Morgunblaðið - 09.04.1976, Page 20
20
MORGUNBLAÐJÐ, FÖSTUDAGUR 9. APRlL 1976
— Hafréttar-
sáttmáli
Framhald af bls. 1
auðugar af kopar, nikkcl, kóbalti
og fleiri málmum. Kissinger boö-
aði í þessu máli tilslökun af hálfu
Bandaríkjastjórnar sem gæti haft
meiri háttar áhrif á gang viðræðn-
anna og felst í því að Bandaríkin
samþykktu „tímabundnar tak-
markanir“ á vinnslu málma af
hafsbotni. Þróunarlönd sem
vinna kopar, nikkel og kóbalt, t.d.
Sambía, Zaire og Perú, hafa
krafizt einhvers konar verndar
gegn skyndilegu framboði málma
sem kynnu að grafa undan efna-
hag þeirra, en hingað til höfðu
Bandaríkin ekki viljað samþykkja
neina takmörkun á verði og
vinnslu manganvalanna. Þetta
hafði skapað hættu á algjörum
hnút í viðræðunum.
Talsmaður bandariska utan-
ríkisráðuneytisins sagði í dag að
væntanlegur sáttmáli myndi
sennilega setja takmörk við
nýtingu valanna fyrir næstu 15 ár
og þar með veita framleiðendum,
neytendum og alþjóðlegum eftir-
litsstofnunum tíma til að koma á
einhvers konar samkomulagi til
að vernda hagsmuni framleið-
enda i landi.
Þá sagði Kissinger, að Banda-
ríkin féllust á að sett yrði á
alþjóðleg stofnun um vinnslu
málma á hafsbotni á djúpslóðum,
sem byggð yrði á valdajafnvægi
milli þróaðra landa og þróunar-
landa og fæli m.a. i sér dómstól til
að leysa ágreiningsefni í þessu
máli. Þá ætti sáttmálinn að
tryggja öllum aðilum jafnan rétt
til aðgangs að hafsbotninum.
Bandaríkin myndu fallast á að
hafsbotnsstofnunin myndi ókveða
fyrir hvert vinnslusvæði sem
einkaaðili fengi annað jafnstórt
svæði sem nýtt yrði til hagsbóta
fyrir fátæk lönd. Þá myndi stofn-
unin ákveða „tekjuskiptingu“ af
allri hafsbotnsvinnslu með tilliti
til stuðnings við fátækustu lönd-
in.
Kissinger sagði að hafréttarráð-
stefnan hefði náð „víðtæku sam-
komulagi" um útfærslu landhelg-
innar i 12 mílur. „Og það sem er
jafnvel enn mikilvægara, allvið-
tækt samþykki er nú fyrir því að
tryggja óhindraða umfeTð um og
yfir sund“, eins og t.d. Gibraltar
og Malacca. Hann kvað samþykki
i augsýn fyrir 200 mílna efnahags-
lögsögu, þar sem strandríkið
hefði lögsögu yfir fiskveiðum og
auðlindanýtingu, en siglingafrelsi
héldist. En auk málmvinnslu-
vandamálsins sagði Kissinger að
tvö erfið mál væru óleyst, — þ.e.
vísindarannsóknir og lausn deilu-
mála sem upp kunna að koma.
Þjóðir þriðja heimsins hafa ver-
ið tregar til að Ieyfa ótakmarkað-
ar vísindarannsóknir innan 200
mílnanna af ótta við að erlendar
þjóðir myndu grípa tækifærið til
njósna eða auðlindaleitar.
Kissinger lagði til að strandríkin
stjórnuðu auðlindarannsóknum
en hefðu annars konar rann-
sóknir frjálsar.
Um lausn deilumála hafa flest
ríki fallist á þörfina fyrir bind-
andi gerðardóm af einhverju tagi,
en engin samstaða hefur náðst
um frahikvæmd þessa. Kissinger
lagði ekki ! ram nákvæmar tillög-
ur um þett mál. Heimildir innan
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins hernulu tð margar af tillögun-
um sem fram komu í ræðu
Kissingerj íiefðu komið fram áð-
ur í viðræðum á ráðstefnunni. En
ræðan væri tilráun til að ýta á
eftir lausn af fullum þunga.
— Kína
Framhald af bls. 1
dag, voru hermenn á verði um-
hverfis Torg hins himneska frið-
ar, en minni spenna var engu að
siður i borginni. Þúsundir göngu-
manna fóru i vellöguðum fylking-
um um göturnar, börðu bumbur
og sungu slagorð til að fagna
breytingunum á forystuliðinu
sem gerðar voru í gær. Á sumum
veggspjöldum voru slagorð þess
efnis að stéttaóvinir yrðu knésett-
ir.
Stjórnmálaskýrendur telja að
þó að hinum róttækari öflum í
kommúnistaflokknum hefði tek-
izt að fella Teng, hefði sá sigur
orðið þeim dýrkeyptur og enn
væru hægfara öflin áhrifamikil.
Hua Kuo-feng, líttþekktur stjórn-
málamaður, sem á skömmum tíma
er orðinn annar valdamesti leið-
togi Kína, er almennt skynsemis-
byggjumaður og ekki líklegur til
róttækra stefnubreytinga. Ekki
er búizt við að breytingarnar á
forystuliðinu í gær muni þegar i
stað hafa í för með sér breytta
utanríkisstefnu, en vafi þykir
leika á þvi hvort hin nýja forysta
hafi sömu reynslu og kunnáttu í
utanríkismálum og Teng og Chou
sem höfðu víða farið. Hua hefur
ekki, svo vitað sé, ferðast erlend-
is.
Erlendir diplómatar i Peking
segja að á meðan valdabaráttan
stóð yfir hafi þeim á engan hátt
verið torveldaður aðgangur að
kínverskum embættismönnum.
Áhrif hennar á stjórn landsins frá
degi til dags ekki verið mikil að
því er séð varð, og fremur hefur
verið aukning i útgáfu ferðaleyfa
til Kina en hitt. Þó var Teng sak-
aður um að dýrka um of það sem
frá útlöndum kæmi.
— Inflúensa
Framhald af bls. 1
landlækni. Hann sagði að vita-
skuld myndu fslenzk heilbrigðis-
yfirvöld bregðast á viðveigandi
hátt við þessari áskorun f samráði
við Alþjóða heilbrigðismálastofn-
unina og fá bóluefni frá henni, en
það yrði þó ekki tilbúið fyrr en
um áramót. Landlæknir sagði að
fulltrúar heilbrigðisyfirvalda á
Norðurlöndunum væru nú á
fundi f Kaupmannahöfn og þar
yrði þetta mál rætt, og einnig á
árlegum aðalfundi WHO f Genf f
maf. Hins vegar tók hann fram að
ekkert væri sannað um að farald-
ur væri yfirvofandi, þótt vissu-
lega yrðu menn alltaf að vera á
verði gagnvart slíku.
Sérfræðingarnir ráðleggja heil-
brigðisyfirvöldum að hafa stöðugt
samband við lækna og almenning
í viðkomandi löndum „og undir-
búa áætlanir til að aðlaga núver-
andi heilbrigðisþjónustu hugsan-
legu undantekningarástandi",
segir í tilkynningu WHO.
Talið er að svínavírus hafi
valdið farsóttinni sem varð 20
milljónum manna að fjörtjóni í
lok fyrri heimsstyrjaldarinnar..
Svínainflúensa kom upp að nýju í
búðum bandaríska hersins í Fort
Dix í New Jersey 1 febrúar s.l. og
leiddi til áskorunar Fords forseta
sem fyrr er nefnd.
WHO kvaddi síðan sérfræðinga
þessa á fund og fyrirskipaði 95
inflúensumiðstöðvum sínum um
heim allan að vera viðbúnir hugs-
anlegum faraldri svínainflúensu.
WHO skýrði ekki frá því hverjir
sérfræðingarnir væru, en þeir
ræddust við á lokuðum fundum á
miðvikudag og fimmtudag. WHO
segir að sérfræðingarnir telji að
tilfellið í Fort Dix hefði „enn ekki
valdið útbreiddum faraldri . .. og
gæti hugsanlega verið einangrað
tilfelli". í tilkynningunni segir á
lokum: „Hins vegar ætti að koma
ótvírætt í ljós á næstu mánuðum
hvort um útbreiðslu (inflúens-
unnar) verður að ræða eða ekki.“
— Nýtingin á
Jötni . . .
Framhald af bls. 36
sem Jarðboranir hefðu fengið
eftir áramót væri við borun að
Reykjum á Reykjahnúk, skammt
frá Blönduósi. Búið væri að bora
niður á 1167 metra dýpi og fengj-
ust nú 18—20 sekúndulítrar 71
stiga heitu vatni. Þessi árangur
lofaði mjög góðu og mætti fast-
lega búast við að á þessum stað
fegnist nægilegt vatnsmagn fyrir
hitaveitu handa Blönduósi.
— Gætum selt
Hollendingum
Framhald af bls. 3
syni aðalræðismanni aðalhvata-
maðurinn að staðsetningu gróður-
húsanna hér á landi. Að sögn
hans yrði hér aðeins um tilrauna-
stöð að ræða en ef vel reyndist
mætti auka framleiðsluna veru-
lega. Hann benti á að það vekti
athygli víðar en á Islandi og
Hollandi ef þessi tilraun bæri
árangur, og taldi vafalítið að fleiri
aðilar fengju þá áhuga á að semja
við íslendinga um ylrækt. Smiði
gróðurhúsanna yrði að sjálfsögðu
kostnaðarsöm framkvæmd, en
þau kostuðu vart minna en 700
milljónir króna. Sagði Vries að
unnt væri að fá mjög hagstæð lán
I Hollandi til smíðanna svo fjár-
skortur ætti ekki að vera neinn
þrándur í götu. Arsverðmæti
uppskerunnar er hins vegar
áætlað um 200 milljónir króna.
Þótt ekki hafi náðst samningar
um þessar miklu ræktunarfram-
kvæmdir, hafa mörg sveitarfélög
látið í ljós áhuga á málinu, og má
þar til dæmis nefna Reykjavík,
Akureyri og Hveragerði. Að sjálf-
sögðu hefur engin ákvörðun verið
tekin, en ríkisstjórnin hefur
skipað sérstaka nefnd til að
kanna málið.
Héðan 'jra Hollendingarnir á
laugardag, og gera þeir ráð fyrir
að endanleg ákvörðun verði tekin
innan hálfs mánaðar um það
hvort úr smíði húsanna verður
eða ekki. Verði ákveðið að hefjast
handa er ráðgert að byrja smíðina
í september.
— Nú eiga
möskvar . . .
Framhald af bls. 3
hlífar séu aðeins festar að framan
og á hliðum við pokann.
Við veiðar með dragnót í ís-
lenzkri fiskveiðilandhelgi er
óheimilt að nota hlera og hvað
eina, sem gæti komið 1 þeirra stað
til útþenslu vængjanna.
Reglugerð þessi tók gildi 26.
marz s.l. og verða þeir, sem hyggj-
ast stunda dragnótaveiðar næsta
sumar að fullnægja þeim skilyrð-
um, sem hér hefur verið lýst,
varðandi möskvastærð dragnótar
og klæðningu.
— Harður
mótherji
Framhald af bls. 17
var hann höfuðsmaður í fall-
hlífaliðinu í Norður-Afríku,
Italíu og Frakklandi. Árið 1947
flutti hann fyrirlestra um hag-
fræði við Trinity College í Ox-
ford. Hann skrifaði margar
greinar og ein kunnasta bók
hans, Framtlð sósíalismans,
varð biblía brezkra jafnaðar-
manna.
Crosland gekk í fræg samtök
vinstrisinnaðra menntamanna,
Fabian félagið, var áhuga-
samur félagsmaður og var kos-
inn í framkvæmdastjórnina
1947, en færðist smám saman
til hægri í flokknum. Frá því
um 1950 var hann náinn vinur
og samstarfsmaður Hugh Gait-
skells og tók mikinn þátt i bar-
áttu hans gegn stuðningsmönn-
um Nye Bevans I vinstri armi
flokksins. Hann studdi James
Callaghan, núverandi forsætis-
ráðherra, þegar Harold Wilson
var kjörinn leiðtogi flokksins
1963.
Að ýmsu leyti þykir Crosland
steyptur í sama mót og Roy
Jenkins, sem er einnig mennta-
maður og i hægri armi
flokksins, en er ekki eins um-
deildur og hann. Hann þykir
skarpur og mælskur og öruggur
í kappræðum og er vel að sér í
málefnum Efnahagsbandalags-
ins. Hann hefur aldrei átt upp á
pallborðið hjá starfsmönnum
flokksins í kjördæmunum þar
sem hann er meiri mennta-
maður en þeir sem standa
nærri kjósendum flokksins.
Á svipaðan hátt hefur Cros-
land ekki haft viðtækan
stuðning I Neðri málstofunni og
verið nokkuð sér á báti. Það
kom því ekki á óvart í keppn-
inni um stöðu eftirmanns
Harold Wilsons að hann varð
fyrstur úr leik. Sem ráðherra
hefur hann aðallega farið með
sveitarstjórna-, húsnæðis- og
samgöngumál en haft hug á því
að verða f jármálaráðherra.
Þrátt fyrir baráttu sína fyrir
jafnaðarstefnu er ekkert sem
tengir hann „vinnandi stétt-
um“. 1 fyrra haust keypti hann
sér sveitasetur í Oxfordshire
fyrir 40.000 pund. Heimili hans
í London var metið á 70.000
pund. Hann er kvæntur kunnri
bandarískri blaðakonu og rit-
höfundi, Susan Barnes, og er
hún önnur kona hans.
— Orkubú
Vestfjarða
Framhald af bls. 5
samþykkt var á Alþingi 5. apríl
1971, en skriður fyrst komizt á
málið 23. júlí 1975, er Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
skipaði sérstaka nefnd til að
kanna vilja sveitarfélaga á Vest-
fjörðum um þetta efni. Sú könn-
un leiddi til samningar þessa
frumvarps.
Með frumvarpinu fylgja ýmiss
konar gögn, m.a. um eignir Raf-
magnsveitna ríkisins á Vestfjörð-
um, efnahagsreikningar Rafveitu
Isafjarðar, Rafveitu Patreks-
hrepps og Rafveitu Snæfjalla o.fl.
— Albert
Guðmundsson
Framhald af bls. 5
slíkt gæti dregið slæman dilk á
eftir sér. T.a.m., að umboðsmenn
brezkra fyrirtækja hættu að leita
tilboða fyrir Reykjavíkurborg,
því að fyrirfram væri vitað, að
þeim yrði ekki tekið. Valgarð
varaði slðan við slíkum vinnu-
brögðum: Alfreð Þorsteinsson
(F) sagði að ljóst væri, að ekki
væri hægt að sniðganga öll við-
skipti við Breta. Minnti hann á, að
við ættum i styrjöld við stjórnvöld
í Bretlandi en ekki brezku þjóð-
ina. Alfreð sagði að lokum að
stefna bæri að því að beina við-
skiptum til annarra landa en
Bretlands meðan deilurnar
standa yfir. Sfðan var gengið til
atkvæða um tillöguna (samþykkt-
ina). Já sögðu 8 úr meirihlutan-
um, nei sögðu fulltrúar minni-
hlutans en Páll Gíslason greiddi
ekki atkvæði.
- Tannlækningar
Framhald af bls. 19
— Hvað er til úrbóta i þess-
um málum, Gunnar?
— Hið fyrsta þarf að stofna
embætti tannlæknis, er ein-
göngu fæst við meðhöndlun
vangefinna. Embætti þetta skal
heyra beint undir heilbrigðis-
ráðuneytið'. Hugsanlegt er að
það þurfi fleiri en einn tann-
lækni eða þá aðstoð i upphafi
við að koma tannheilsu hinna
vangefnu í eðlilegt horf. Þýð-
ingarmikið er að markið verði
strax i upphafi sett hátt; að
veitt verði góð alhliða þjónusta
og sérstök áherzla lögð á bar-
áttu gegn tannholdssjúkdóm-
um, sem hinum vangefnu staf-
ar oft meiri hætta af en tann-
skemmdum.
— Er nóg að vera eingöngu
með tannlæknastofu fyrir van-
gefna í Reykjavík?
— Nei, og ég hef hugsað mér,
að settar verði upp stofur i
Reykjavík, Kópavogi, Skála-
túni, Sólborg á Akureyri, Sól-
heimum i Grímsnesi, Egilsstöð-
um i S.—Múl og á Vestfjörðum,
þegar vistheimili fyrir van-
gefna hefur verið reist þar.
1 því mikla átaki, er á undan-
förnum árum hefur verið gert í
málefnum vangefinna, hefur
uppbygging tannlæknisþjón-
ustu orðið útundan.
Vangefið fólk er mjög háð
því, hvernig þjóðfélagið hlúir
að þvi. Það er mannúðarmál að
stuðla að þvi, að þessi smæstu
meðlimir þjóðfélags vors verði
aðnjótandi nauðsynlegrar tann-
læknisþjónustu.
— Krafla
Framhald af bls. 13
stöðvarhúsframkvæmdum seink-
að getur svo farið að gufan verði
tiltæk áður en þeim lýkur. Þetta
tvennt verður að meta og vega
áður en ákvörðun er endanlega
tekin um tilhögun stöðvarhús-
framkvæmda við þær aðstæður,
sem nú ríkja á Kröflusvæðinu. Er
nauðsynlegt að framkvæmdaáætl-
un sé sveigjanleg svo að hægt
verði að mæta sérhverjum óvænt-
um aðstæðum á skynsamlegan
hátt.
Að lokum skal þess getið, að á
vegum Orkustofnunar fara fram
allumfangsmiklar rannsóknir til
að fylgjast sem best með goshættu
á Kröflu- og Námafjallssvæð-
unum. Fylgst verður með
sprunguhreyfingum og breyting-
um á jarðhitasvæðunum. Þá hafa
verið gerðar ráðstafanir til að fá
vikulegar skýrslur um jarð-
skjálfta, í staó mánaðarlegra áð-
ur. Ætti þetta að auðvelda raun-
hæft mat á goshættu á hverjum
tíma.
— Skálda
Framhald af bls. 10
að smávegis hlutverkaskipting
frá fyrstu útgáfu hafi verið gerð I
tilbreytingarskyni og yngri skáld
tekin i stað hinna eldri á stöku
stað. Að öðru leyti gildi hin sömu
sjónarmið og áður — hliðsjóð
höfð af árstiðum, svo og tilbreynti
forms og efnis.
„Síðast i formálanum segir:“
Það hefur kostað langt og mikið
amstur að láta enda bókarinnar
ná saman, en þá væri vel ef hún
gæti orðið sú skuggsjá á viðsjál-
um tímum er sýndi hvert verið
hefur alla daga Islendingsins
dýrasta skart, hversu mislitt og
misfágað, sem það annars kann að
vera. Því skal að vísu eigi haldið
fram, að á þessa skáldu séu
prentuð „fegurst kvæði á norður-
hveli heims“. Hitt getur mann
grunað að sambærilega bók
þessari reyndist enn örðugara að
setja saman utan Islands."
I upphafi hvers mánaðar eru
stjörnumerki svo og hin fornu ís-
lenzku mánaðarheiti, en aftast i
bókinni er ítarleg höfundaskrá.
Bókaútgáfan Þjóðsaga gefur
Skáldu út, en prentsmiðja Arna
Valdimarssonar h.f. offset-
prentaði.
— Guðsbörnin
Framhald af bls. 10
væri fróðlegt að fá svar J.H.Ö.
við þeirri spurningu. Varðandi
ákæru ríkissaksóknara New
York borgar á hendur hreyfing-
unni þar, geri ég ráð fyrir að
hún sé ekki vegna þess að fólk
af báðum kynjum búi saman,
það þarf meira til að saksóknari
sjái ástæðu til þess að höfða
mál
Rannsókn saksóknara náði til
50 manns þar af 28 foreldra, 11
fyrrverandi félaga í hreyfing-
unni, fimm aðila sem þekktu
sérstaklega vel til hreyfingar-
innar og sex ákærða meðlima
hreyfingarinnar.
Eg vil að lokum taka undir
þau orð Jónínu að hreint og
falslaust trúarlif fái að lifa og
bæta því við að vonandi tekst
að bæta fyrir þá hnignum sem
Gb-hreyfingin er.
Marz 1976.
Atthagasalur
Lækjarhvammur
Hljóm veitin
Lúdó og Stefán
skc!rt«r.t7 frá kl. 20.30
Borðið í Stjörnusalnum (Grillinu) skemmtið ykk-
ur svo á eftir með Lúdó og Stefáni.