Morgunblaðið - 21.04.1976, Side 44
i
LVSINGASÍMINN ER:
22480
JRar0imbI«l)il>
ALGLÝSINGASLMINN ER:
22480
JHarðunblabib
MIÐVIKUDAGUR 21. APRlL 1976
Stefnt að stórhækk-
un vaxta af sparifé í
bundnum bankabókum
Á móti kemur m.a. mjög lítil
hækkun vaxta á almenn útlán
AÐ UNDANFÖRNU hafa átt sér
stað viðræður milli Seðlabankans
og viðskiptabankanna um hug-
mvndir þær, sem Seðiabankinn
hefur lagt fram um verð-
trvggingu sparifjár, sem bundið
er f bókum, t.d. eins árs bókum.
Er stefnt að þvf að stórhækka
innlánsvexti af slfkum bókum
þannig að þeir verði einhvers
staðar á hilinu 20—30%, til að
verðtrvggja féð eins og fvrr segir
og til að reyna að stöðva út-
streymi fjár úr bönkum. Seðla-
hankinn hefur óbundnar hendur
með að ákveða slíkar brevtingar.
Eftir því sem Morgunblaðið
hefur fregnað, er hugmyndin sú
að á móti komi mjög lítil hækkun
vaxta á almenn útlán bankanna,
þ.e. víxla og lán, og að ennfremur
verði innlánsvextir á ávfsana- og
hlaupareikningum lækkaðir.
Hækkun vaxta af lífeyrissjóðslán-
um og húsnæðismálastjórnarlán-
um mun ekki hafa komið til
umræðu á þessum fundum, eftir
því sem Morgunblaðið hefur
fregnað. Tilkynning um þessa
breytingu mun vera væntanleg
frá Seðlabankanum alveg á næst-
unni.
Bretar standa gegn
gildistöku bókunar 6
BRETAR einir standa gegn þvf að
bókun 6 taki gildi f Efnahags-
bandalagslöndunum, sagði Þór-
hallur Ásgeirsson ráðuneytis-
stjóri f samtali við Mbl. í gær, er
hann var spurður um það, sem
heyrzt hafði að Bretar mundu
ékki setja sig upp á móti þvf að
bókunin tæki gildi. Þessi mál
munu hafa verið til umræðu
nvlega f Efnahagsbandalaginu og
sagðist Þórhallur ekki búast við
neinni breytingu, fyrr en náðst
hefði einhvers konar samkomu-
lag við Breta.
Norðmenn og Færeyingar hafa
mun lægri tolla á freðfiski í Bret-
landi og Danmörku, svo og á
rækju. Er munurinn orðinn tals-
verður og óhagstæður
íslendingum. Tollar í Efnahags-
bandalagslöndunum gömlu hafa
haldizt óbreyttir en eftir að gömlu
EFTA-löndin Danmörk og Bret-
land gengu í EBE hafa tollar á
afurðum íslendina farið stig-
hækkandi. Ef hins vegar ekkert
hefði komið í veg fyrir gildistöku
bókunar 6, væru þar engir tollar á
islenzkum freðfiski og rækju.
Tollar á fslenzkri rækju í Bret-
landi eru nú 16%, en Norðmenn
hafa aðeins 5% toll. I gömlu Efna-
hagsbandalagslöndunum er
Framhald á bls. 43
ÞAÐ ER eflaust einsdæmi hér á landi að fjórar systur fermist
samtfmis, en það átti sér stað f Hallgrfmskirkju á annan f páskum.
Systurnar Unnur, Asta, Birna og Helga Eggertsdætur voru þá
fermdar saman, og að athöfninni lokinni smellti Friðþjófur
Ijósmyndari þessari mynd af systrunum ásamt foreldrum þeirra,
Eggert N. Bjarnasyni rannsóknarlögreglumanni og konu hans
Regfnu Einarsdóttur. Unnur er elzt systranna, 14 ára og átti að
fermast f fyrra, en beið eitt ár svo hún gæti orðið samferða
tvfbyrasystrunum Astu og Birnu, sem eru 13 ára. Og yngsta systirin,
Helga, fékk að vera með þótt hún væri ekki búin að ná hinum
venjulega fermingaraldri. Sóknarprestarnir þeir sr. Ragnar Fjalar
Lárusson og sr. Karl Sigurbjörnsson fermdu. Á myndinni eru talið
frá vinstri, Eggert, Unnur, Asta, Birna, Helga og Regfna.
Fjórar
systur
fermast
saman
Stefnir 1 aflahrun á ver-
tíðinni suðvestanlands
Fiskileysi og ótíð og verulega minni afli í flestum verstöðvum en í fyrra
„J/EJA ætlaðirðu að leita eftir
aflafréttum, vinur, — þér væri
líklega nær að leita þeirra hjá
bónda við Kleifarvatn," sagði
vigtarmaðurinn f Keflavfk þegar
Morgunblaðið spurðist þar fyrir
um aflabrögðin. Þannig var yfir-
leitt tónninn í þeim verstöðvum.
sem við höfðum samband við L
gær, og allir voru sammála um að
útlitið hefði sjaldan verið dekkra
en á þessari vertfð. Allt hjálpað-
ist að — fiskleysi, gæftaleysi f
dæmalausri ótfð og verkfallið á
dögunum. Og menn höfðu ekki
mikla von um að ástandið batnaði
eða eins og vigtarmaðurinn f
Grindavfk orðaði það: „Páska-
hrotan brást og nú bfðum við
sumarmálahrotunnar, og ef hún
kemur ekki þá er það lokahrotan
en ætli hún komi fremur en aðrar
hrotur f ár.“
Vestmannaeyjar:
í VESTMANNAEYJUM var afl-
inn á vetrarvertíð orðinn liðlega
Sigurður Ágústsson
fyrrv. alþm. látinn
SIGURÐUR Ágústsson fyrrver-
andi alþingismaður lést aðfarar-
nótt 19. aprfl s.l. 79 ára að aldri.
Sigurður var sonur Ágústs
Þórarinssonar verzlunarstjóra f
Stykkishólmi og konu hans Ás-
gerðar Arnfinnsdóttur.
Sigurður lauk verzlunarprófi i
Kaupmannahöfn 1917, en starfaði
síðan sem fulltrúi við Verzlun
Tang og Riis í Stykkishólmi til
1931, en 1932 keypti hann fast-
eignir þeirrar verzlunar og hóf á
verzlunarrekstur og útgerð. Reisti
hann hraðfrystihús í Stykkis-
hólmi 1941 og rak þaðan og síðar
einnig frá Hellissandi umfangs-
mikla útgerð til dauðadags.
Sigurður gegndi fjölda trún-
aðarstarfa í heimabyggð sinni og
árið 1949 var hann kjörinn á þing,
fyrst sem þingmaður Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu til 1959
og síðan Vesturlandskjördæmis
til 1967. Hann átti um árabil sæti i
stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, í stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins, í stjórn Samlags
skreiðarframleiðenda og í stjórn
Rifshafnar.
Sigurður Ágústsson var
kvæntur Ingibjörgu Helgadóttur
frá Karlsskála og lifir hún mann
sinn.
„Aflaleysið endurspeglar
ástand þorskstofnsins”
— segir dr. Sigfús Schop/ca
„AFLALEYSIÐ á vetrarvertfð-
inni núna endurspeglar ástand
þorskstofnsins við landið,"
sagði dr. Sigfús Schopka fiski-
fræðingur, þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann f gær-
kvöldi og innti hann eftir
ástæðum fyrir lítilli fiskgengd
á vetrarvertfðinni.
„Þetta er ekki annað en við
vorum búnir að sjá fyrir og
spá,“ sagði Sigfús. Hann sagði
að hrygningarstofninn væri
minni f ár en nokkru sinni, eða
180 þúsund tonn. Næsta ár
myndi það litla sem eftir væri
af sterka árganginum frá 1970
bætast f hrygningarstofninn,
þannig að hann yrði 220 þús-
und tonn árið 1977 en minnkaði
aftur niður í 150 þúsund tonn
árið 1978 við óbreytta sókn.
„Þetta lagast ekki af sjálfu
sér, heldur verður að koma til
stórminnkuð sókn. Ef við
minnkum ekki sóknina, verða
næstu vertíðir jafn lélegar og
þessi ef ekki lélegri."
14 þúsund tonn hinn 15. apríl s.l.
Er þetta um 2000 tonna minni afli
en um sama leyti í fyrra. Munar
þarna mestu um verkfallið f vetur
og svo hinar miklu ógæftir á ver-
tfðinni og aðallega þó í byrjun
hennar. Aflahæsti Eyjabáturinn
er Þórunn Sveinsdóttir með 705
tonn.
ÞorlákshÖfn:
Þar lönduðu 30 bátar í fyrradag
og var hæsti báturinn með 8 tonn
en margir konu að landi með nán-
ast ekki neitt, enda þótt yfirleitt
væri um 2ja nátta lagnir að ræða.
„Ég held að þetta hafi aldrei verið
aumara en núna,“ sagði vigarmað-
urinn þar um aflabrögðin.
Um miðjan mánuðinn var
heildarafli Þorlákshafnarbáta
orðinn 9.097 tonn frá því um ára-
mót eða um 1000 tonnum minni
en í fyrra, því að þá hafði á sama
tima verið landað 10.913 lestum.
Engu að síður róa nú fleiri bátar
frá Þorlákshöfn en f fyrra. Afla-
hæstur bátanna nú er Friðrik
Framhald á bls. 43
Svar komið frá Bandaríkjamönnum
Vlíllí)' I ihini vnihin i...„n..»i cam .. r.: „ i—... r 1 ■ , ■ . ... ... „ .
MORGUNBLAÐINU er kunnugt
um að svar hefur fyrir skömmu
borizt frá Bandarfkjamönnum við
þeirri málaleitan Islendinga, að
þeir útveguðu fslenzku Landhelg-
isgæzlunni hraðskreið skip af
Ashville-gerð.
Það var dómsmálaráðuneytið,
sem óskaði eftir því við utanríkis-
ráðuneytið, að málaleitan þessari
yrði komið á framfæri við Banda-
ríkjamenn. Morgunblaðið sneri
sér í gærkvöldi til Ólafs Jóhann-
essonar dómsmálaráðherra. Hann
staðfesti að svar væri komið, en
sagði að það hefði ekki formlega
borizt frá utanríkisráðuneytinu,
og því vildi hann ekkert um það
segja. Morgunblaðið náði ekki I
Einar Ágústsson utanrfkisráð-
herra en Hendrik Sv. Björnsson
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neytinu sagði, að búið væri að
Framhald á bls. 43