Morgunblaðið - 27.04.1976, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1976
Pétur Bjarnason
hafnarstjóri, Akureyri
Andlát Péturs Bjarnasonar,
hafnarstjóra á Akureyri bar brátt
að. Hann hafði ‘að vísu kennt
nokkurs sjúkleika-og verið tekinn
til rannsóknar upp á spítala
nokkrum dögum fyrir páska. Eng-
an óraði þá fyrir, hversu skammt
yrði að bíða endalokanna, sízt
sjálfan hann. Miðvikudaginn 21.
apríl var hann allur.
Pétur Bjarnason var fæddur í
Reykjavík 4. janúar 1939, sonur
hjónanna Ólafar Guðmundsdótt-
ur skipstjóra í Dýrafirði og síðar í
Reykjavík Guðmundssonar og
Guðrúnar Björnsdóttir yfirsetu-
konu og Bjarna úrsmiðs Jónsson-
ar frá Gröf í Viðidal Bjarnasonar
gull- og silfursmiðs frá Gottorp.
Móðir Bjarna úrsmiðs var Rósa
Stefánsdóttir frá Tungu á Sval-
barðaströnd, systir Stefáns í
Varðgjá og síðar á Svalbarði og
þeirra systkina.
Pétur Bjarnason var stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri
1959 sigldi siðan til Þýzkalands,
þar sem hann lauk prófi í véla-
verkfræði við Tækniháskólann í
Darmstadt 1966. Þá fluttist hann
heim til Akureyrar og gerðist
fyrst trúnaðarmaður hafnarstjórn-
ar og siðar hafnarstjóri.
21. des. 1963 kvæntist Pétur
þýzkri konu. Giselu Stephans og
áttu þau þrjú börn: Jón Stephan
11 ára, Markús Hermann 7 ára og
Önnu Lind Gertrud 4 ára öll hin
mannvænlegustu. Gisela Step-
hans býður af sér óvenju góðan
þokka, er prúð kona. Henni hefur
tekizt að semja sig að háttum ís-
lendinga svo að undrum sætir og
hefur góð tök á málinu; hún er
mikill íslendingur eftir hérvistar-
ár sín.
Með ráðningu Péturs Bjarna-
sonar sem hafnarstjóra var mörk-
uð ný stefna í hafnarmálum
Akureyrar, með því að hann var
verkfræðimenntaður. Fyrsta
verkefni hans var að sjá um upp-
setningu og byggingu stóru drátt-
arbrautarinnar. Kom þá strax í
ljós, að Pétur var úrvals starfs-
maður, og var samstarf hans við
hafnarnefnd og alla, sem við
höfnina unnu, mjög gott alla tíð.
Hann var samvizkusamur og úr-
ræðagóður og hvers manns hug-
ljúfi, þeirra, sem með honum
störfuðu.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
CAMILLA ÞORGEIRSDÓTTIR,
Vifilsgötu 7
andaðist að morgni 23. april í Borgarspítalanum.
Óskar Sampsted,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Hjartkær eiginkona mín,
UNNUR JÓNSDÓTTIR.
Nökkvavogi 38,
er lézt 19 þ m verður jarðsett frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 28
apríl kl. 1.30
Fyrir hönd aðstandenda.
Karl Magnússon.
+
Hjartkær móðir mín, tengdamóðir og amma okkar
DAGNY GUÐMUNDSDÓTTIR
Spltalaveg 1, Akureyri
andaðist i Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 1 7. april.
Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju laugardaginn 1 maí n.k. kl. 1 3 30
síðdegis
Ragnheiður Karlsdóttir Jóninna Jónsdóttir
Karl H. Haraldsson Haraldur Haraldsson.
+
Sonur okkar,
MARKÚSJÓHANNSSON,
Holtagerði 33,
andaðist að Barnadeild Hringsins, föstudaginn 23. april.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágústa Waage,
IngóHur Tryggvason
+
Ástkæri eiginmaður minn, faðir og afi okkar,
JAKOB ÓLAFUR JÓHANNSSON
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, miðvikudag 28. þ.m. kl 3.
Steinunn Kristjánsdóttir
Hallveig Ósk Jakobsdóttir
Anton Karl Jakobsson
Salome Kristln Jakobsdóttir Jón Vilhelm Pálsson
Hafdls Ósk Jónsdóttir og Páll Þórir Jónsson.
Pétur Bjarnason var vörpuleg-
ur á velli, hress í lund og drengur
góður. Hann var ávallt reiðubú-
inn að taka spaugi og lék á als
oddi. í einkalífi var hann traustur
og hamingjusamur og höfðu þau
hjón Gisela og hann búið börnum
sínum fallegt og gott heimili á
ytra borði sem innra.
Pétur Bjarnason er sá fyrsti
sem hverfur úr hópi okkar sam-
stúdentanna. Er margs að minn-
ast frá glöðum dögum. Mér er þó
meir í hug, að með honum hefur
fallið frá maður í blóma lífsins,
sem átti margt óunnið fyrir sína
heimabyggð og sérstaklega fyrir
fjölskyldu sína. Þessir síðustu sól-
ardagar hér á Akureyri hafa verið
henni dökkir og daprir.
Aldrei er svo bjart
yfir öðlingsmanni
að eigi geti syrt
eins sviplega og nú;
og aldrei er svo svart
yfir sorgarranni
að eigi geti birt
fyrir eilífa trú!
Við hjón sendum konu og börn-
um Péturs Bjarnasonar, foreldr-
um hans og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur.
Halldór Blöndal.
Vinur minn, Pétur Bjarnason,
fv. hafnarstjóri, lézt á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri hinn 21.
apríl s.l. aðeins 37 ára að aldri
eftir skamma sjúkdómslegu.
Dauða hans bar að með svo snögg-
um og óvæntum hætti að erfitt er
að trúa þeim kalda og miskunnar-
lausa veruleika að hann sé allur,
horfinn í blóma lífsins frá öllu
sem honum var kært, ábyrgðar-
miklu starfi, konu, börnum og ást-
vinum. Ekki dugir þó að deila við
þann mikla dómara í því efni og
þótt orð séu aldrei jafn fánýt og
einmitt þá þegar slík ósköp dynja
yfir, vil ég þó að leiðarlokum
minnast þessa vinar míns með ör-
fáum fátæklegum orðum.
Pétur Bjarnason var fæddur 4.
janúar 1939 í Rvík, en fluttist það
sama ár til Akureyrar með for-
eldrum sínum, Bjarna Jónssyni
úrsmið frá Gröf í Húnaþingi og
Ólöfu Guðmundsdóttur frá Dýra-
firði, en þau sæmdarhjón hafa
sett svip sinn á bæjarlíf Akureyr-
inga síðan þau fluttust hingað.
Pétur varð stúdent frá M.A. 1959
en fór síðan utan til náms og lauk
prófi í vélaverkfræði frá háskóla í
Darmstadt 1966. Þar kynntist
hann eftirlifandi konu sinni,
Gieselu Bjarnason, fæddri Step-
han, og gengu þau í hjónaband í
desember 1963. Þau stofnuðu
fyrst heimili í Darmstadt, en
fluttust siðan til Akureyrar, þeg-
ar Pétur hafði lokið háskólaprófi.
Þau áttu þrjú börn, Jón Stefán,
Markús Hermann og Önnu Lind,
sem er yngst, einungis 4ra ára.
Pétur var mikill heimilismaður
og natinn faðir og má nærri geta
hversu missir þessara ástvina
hans er mikill og harmurinn sár.
Eftir heimkomuna annaðist
Pétur fyrst eftirlit fyrir bæjaryf-
irvöl með uppsetningu dráttar-
brautarinnar hér á Akureyri og
hafnarstjóri varð hann síðan
1968, og gegndi því starfi til
dauðadags. Hann hafði mikinn og
lifandi áhuga á starfi sínu, eink-
um þó að bæta hafnaraðstöðuna
og komu glöggt í ljós hæfileikar
hans, þrautseigja, lipurð og
stefnufesta í þeim mótbyr, sem
+
Eiginkona mín
UNNUR Þ. JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungm frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 2 7. aprll kl. 3.
Reynir Sigurðsson.
+
Eiginmaður minn og faðir okkar
SIGURÐUR TÓMASSON.
Frumskógum 6. Hveragerði
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 29. aprll kl. 3.
Jónasfna Þ. Guðnadóttir,
Guðni Ragnar og Njörður.
Eiginkona mln
SVAVA SIGURÐARDÓTTIR
Drekavogi 18
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28 aprll kl
10 30
Blóm vinsamlegast afþökkuð. þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á liknarstofnanir.
Ágúst Jónsson
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÓLÖF JÓNSDÓTTIR
Hverfisgötu 13 B,
Hafnarfirði
lézt i Borgarspítalanum. laugardaginn 24 april.
Jón Sigurgeirsson
Erla Jónsdóttir Þorvaldur Ó. Karlsson
Baldur Jónsson Ásdts Ólafsdóttir
Hulda E. Jónsdóttir
og barnaböm.
Lokað í dag
frákl. 1 2. á hádegi vegna jarðarfarar
ÁSBJARNAR STEFÁNSSONAR,
læknis
Ábyrgð h.f.
Tryggingafélag Bindindismanna.
hann hlaut i uppbyggingu vöru-
hafnarinnar. Undir forystu hans
var sá hnútur leystur, sem aðrir
aðilar höfðu komið því máli i og
vissi ég að það gladdi hann mikið,
þegar fjármagn var tryggt til þess
að ljúka 1. áfanga vöruhafnarinn-
ar á þessu ári. Hann þóttist þá
öruggur um að sjá þann draum
sinn rætast að aðstaða til uppskip-
unar og meðferðar vöru ger-
breyttist til batnaðar í Akureyrar-
höfn. Á fleira lagði hann gjörva
hönd. Einu sumarfríi sínu varði
hann erlendis til þess að kynna
sér skiðalyftur og var með í ráð-
um við kaup og uppsetningu
stólalyftunnar i Hlíðarfjalli.
Hann unni íþróttum og útilífi og
vildi gera aðstöðu íþróttafólks I
bænum sem bezta.
Þegar við hjón fluttumst til Ak-
ureyrar átti ég því láni að fagna
að kynnast Pétri Bjarnasyni. Við
urðum trúnaðarvinir og sam-
starfsmenn á mörgum sviðum, í
hafnarstjórn, Rotaryklúbbi,
stjórn Islendings og fleiri félags-
samtökum. Síðar áttum við margt
saman að sælda vegan málefna
Akureyrarhafnar. Aldrei bar þar
á vináttu okkar nokkurn skugga
hvorki í samstarfi eða skemmtan.
Pétur var enginn ofstopamaður
en hann var fylginn sér og flutti
mál sitt af festu með vel fgrund-
uðum rökum. Hann var léttur í
lund og góður húmoristi, enda átti
hann ekki langt að sækja þá gáfu.
Einn var þó sá eiginleiki Péturs,
sem ég mat mest. Hann var ein-
stakur drengskaparmaður í þess
orðs fyllstu merkingu. Slikan vin
er sárt að missa svo um aldur
fram en minningin um hann er
gulli betri. Ég þakka Pétri
Bjarnasyni þá miklu gjöf.
Ég flyt eftirlifandi eiginkonu
hans, Gieselu, börnunum, foreldr-
um hans og bræðrum, Jóni og
Stefáni innilegustu samúðar-
kveðjur mínar og konu minnar.
Megi góður guð blessa okkur öll-
um minningu Péturs Bjarnason-
ar.
Lárus Jónsson
Afmælis-
o g
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast f síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
línubili.
Ulfaraskreytingar
blómciuol
Groðurhusið v/Sigtun simi 36770
S. Helgason hf. STEINIÐJA
llnholtl 4 Slmar 24477 og 142S4