Morgunblaðið - 27.04.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.04.1976, Blaðsíða 28
28 A hættu- slóðum í ísrael™ Sr Sigurður Gunnarsson þýddi Þetta voru mikil vonbrigði fyrir Óskar, því aö innst inni hafði hann hlakkað til að hitta brytann á ný, þegar hann hafði reynt svo margt og var ekki lengur hræddur við hana? .... En við félaga sína sagði hann: „Þá verðum við að fara upp til skipstjórans.“ Því næst gengu þau að klefa skipstjórans. En þá varð Óskar allt í einu gripinn um stund sömu ónotatilfinning- unni og fyrr. En nú dugði ekki að vera smeykur, svo að hann hristi brátt af sér allan ótta, enda stóðu tveir vopnaðir menn að baki hans. Hann beit því á jaxlinn, opnaói dyrnar ákveðinn og gekk inn. r COSPER --------------------\ Dóttir okkar ætlar að gifta sig og maðurinn minn ætlar að reyna að útvega þeim fbúðina uppi. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1976 Skipstjórinn sat inni. Strax og hann leit upp og sá Óskar, stóð hann á fætur, tók í hönd hans og bauð hann innilega velkominn. Hann sagói, að Andrés hefði fengið bréf Óskars og sýnt sér það, svo að hann kannaðist við allt ævintýrið. Og svo hló hann léttum hlátri. Já það var vel af sér vikið, drengur minn. En þú mátt ekki minnast á, að ég hafi sagt þetta, — því að annars gæti farið svo, að allir þrælarnir strykju i hvert sinn, sem við komum í höfn. En þetta var nú engu að síður vel af sér vikið, — ha-ha-ha-. Og vopnaða menn? Ha-ha-ha-. Skipstjórinn klappaði á vasa Jesemels og Mirons, — ég sé vel, hvað þið hafið þarna, karlarnir. Og svo eru þarna tvær ungar og fallegar stúlkur á eftir ykkur. Ha-ha-ha. Hvernig er þetta eiginlega með þig, Óskar, — hefurðu eignast heila fjölskyldu? Ha- ha-ha.... Hversdagslega, þegar dagarnir voru langir og stundum leiðinlegir, var skip- stjórinn kaldur og ákveöinn, eins og her- foringi. En brytu menn hans eitthvað af sér tók hann jafnan á því léttum tökum og hafði oft gaman af. Hann kallaði á léttadrenginn, pilt sem var nýlega ráó- inn, og lét hann koma með kaffi og gott brauð handa Óskari og vinum hans. Og meðan veitinganna var notið af góðri lyst, var sitt af hverju spjallað í léttum tón ,,En hvar er Andrés?“ spurði Óskar allt í eínu. t „Andrés?.. Já, þú veizt það ekki, vinur minn. Hann liggur á sjúkrahúsi i Mar- seille — á sömu stofu og brytinn. Gaman fyrir Andrés, — eð eóa finnst þér það ekki,“ sagði skipstjórinn og hló dátt, svo að ístran stóra hristist öll og skalf. „Þeir fengu reyndar báðir vonda hitasótt og urðu aó fara sjúkrahús en vegna áætl- unar minnar, gat ég ekki beðið eftir sjúklingunum, svo að þeir verða á sjúkra- húsinu, þangað til FÁLKINN kemur aft- ur til Marseille. Já, karlinn, það verður ekki dónalegt fyrir Andrés. Þeir veróa þarna vinirnir, í þrjár til fjórar vikur.“ „Þrjár til fjórar vikur, “ sagði Óskar. „Það er ekki meira en vikuferð héðan til Marseille?“ „Já, víst er það rétt, drengur minn, en þú veizt líklega ekki Óskar að við urðum fyrir vélarbilun, sagði skipstjóri. Við verðum að halda hér kyrru fyrir um það bil þriggja vikna tíma.“ /---------------------------------\ Kæru Tengdaforeldrar! Ég fullvissa ykkur um að þið hafið ekki misst dóttur ykkar — þið hafið Ifka fengið mig að auki á ykkar framfæri! Blómarós kom með nýjan hatt f bfó. Hún vildi helzt ekki taka hann ofan, en vissi, að þér sem fyrir aftan hana sátu, gátu haft óþægingi af honum. Hún sneri sér þvf að manninum, sem sat í næsta sæti fyrir aftan, og spurði, hvort hatturinn færi ekki f taugarnar á honum. — Nei, svaraði maðurinn, en hann hefur haft slæm áhrif á konuna mfna. Hún hefur þegar krafist þess, að ég kaupi henni eins hatt. X — Ég er hamingjusamur og allt það. Ég vildi bara, að konan mfn talaði ekki eins mikið um fyrri manninn sinn og hún ger- ir. — Vertu ánægður, mfn er alltaf að tala um tilvonandi manninn sinn. — Hvers vegna giftistu pabba, mamma? — Svo þig er farið að undra það líka. X — Sigurður, sagði yfirþjónn- inn, hvers vegna fór maðurinn, sem sat við borð nr. 5 svona skyndilega út? — Hann settist þarna við borðið, sagði þjónninn, og bað um pylsur. Ég sagði honum, að við ættum engar f augnablik- inu, en ef hann vildi bfða svolít- ið, sagðist ég skyldu biðja mat- reiðslumanninn að búa þær til. — Nú og hvað svo? — Ég fór strax fram f eldhús, en þá vildi svo óheppilega til að ég steig ofan á skottið á hundin- um og hann rak upp aumkunar- vert væl. Maðurinn heyrði það og flýtti sér út. Arfurinn í Frakklandi 50 koma af salerninu um leið og þau stigu út úr lyftunni. Hann var klæddur f náttslopp og sfðbuxur og var með inniskó á fótum. — Lenti f óhappi með bflinn, sagði David. — Þar fór f verra. En þeir hafa leyft yður að fara af sjúkrahúsinu sé ég. Bfliinn ónýtur? — Óskemmdur með öllu, svaraði David. — En hinn bfllinn þá? Hann hló við, og Helen fannst þórðar- gleðin skfna úr hverjum drætti. — Og ég sé að unnustan er yður til trausts og halds eins og vera ber. Gott. Einmitt eins og það á að vera. — Honi soit qui mal y pense, M Lazenby, sagði Helen alvöru- gefin. — Ja, það er nú Ifkast til. Góða nótt. Hann dró sig vandræðalega f hlé inn til sfn. — Furðufugl, sagði Helen. — heldurðu að hann sé að njósna um þig? — Hann virðist á ferli þar sem ég er, sagði David. — Ég trúi þvf ekki að þau séu systkini. — Þau hafa sitt hvort herberg- ið. — Hún yppti öxlum. — Kannski eru þau bara hittin á ævintýrin. Finnst þér ekki þú ættir að tylla þér niður. — Það er allt f lagi með mig, sagði hann hranalegar en ætlun hans hafði verið. Hún rétti upp höndina. — Allt f lagi, elskan mfn. Ég skal ekki plaga þig með spum- ingum um heilsufarið f bráðina. Ég vona bara að læknirinn sem batt um sárið hafi kunnað sitt fag. Hann settist þyngslalega f annan hægindastólinn. — Ég hef á tilfinningunni að manniífið f kringum höllina og vini Marcels sé á þann veg að það vefjist ekki fyrir neinum þar á bæ að taka trúanlega þá útgáfu að þetta hafi verið slys. — Ég býst við að þú hafir á réttu að standa, sagði Helen. — Ég dreg að minnsta kosti þá álvkt- un af kynnum mfnum við þetta fólk. — Svo að Paul er þá ekki alveg sá bjáni sem ég hélt hann vera. Kannski hefur hann ekki teflt f neina tvfsýnu? — Þú sagðir að Marcel hefði farið að leita hans. — Ég held það. — Þá hefur Paul glatað öllu sfnu. Marcel lætur hann ekki vera erfingja sinn eftir þennan at- burð. — Kannski Marcel þurfi nú Ifka að fara að Ifta um öxl. Næturvörðurinn barði að dvrum og bar þeim kaffi og sam- lokur á hakka. Helen hellti f boll- ana og hallaði sér aftur f rúminu og maulaði samloku. — Ég hef ekkert fengið að borða, sagði hún til skýringar. — Nei, hvað er nú þetta? Undan koddanum dró hún minnisbók Boniface. David útskýrði fyrir henni hvernig hann hefði komizt yfir hókina. — Ég verð að skila henni aftur, sagði hann. — Ég var bara búinn að steinglevma henni. — Er heimilisfang Mme Des- granges f henni. — Já, en það er það sama og við fórum á um kvöldið og kemur ekki að neinu gagni. Hún blaðaði annars hugar að stafnum D. — Davtd, hvers vegna ertu svona sannfærður um að hún hafi farið aftur til Spánar? Gæti ekki verið, að hún væri einhvers staðar f grenndinni? Kannski hefur hún bara brugðið sér f frf? — Hún hefði sagt mér það. Hún sagði mér að hún færi á hverjum degi f húsið mitt og þar gæti ég fundið hana. Ég er hér um bil viss um að um það levti sem ég taiaði við hana hafði hún engin áform á prjónunum um að fara f burtu. — Og hvað hefur þá orðið tíl þess að hún skipti svo snöggiega um skoðun, að þfnum dómi? — Eitthvað hefur komið uppá. svo að hún hefur skvnjað að hún væri f hættu stödd. Mér dettur f hug að hún hafi þekkt dánu kon- una, eða vitað að minnsta kosti hver hún var. Ég held að þá hafi hún ákveðið að koma sér á örugg- ari stað. Ég held satt að segja að hún sé farin aftur til Spánar vegna þess hún tók fjölskvlduna með sér, vangefna soninn, og gömlu frænkuna sem Gautier tal- aði um. Ég trúi ekki að hún ryki af stað með þau bæði f eftirdragi ef ekki hefði komið upp á eitthvað það sem gerði hana hrædda. Ég verð æ sannfærðari um að hún hafi farið aftur til Spánar, þegar ég velti málinu fyrir mér. — Nema hún hafi einnig orðið fyrir „slysi“, sagði Helen hugsi. — Éf hún væri dáin mvndi fjöl- skyldan enn vera á heimilinu sagði Davíd. — Hún er á lífi. Það er ég viss um. En hvernig getum við fundið hana? Það er stóra spurningin. — Ég held okkur takist það, sagði Helen mÍAkri röddu. — ,.\ >g finn hér. Hún fletti fyrst að stafnum D og benti á stóran staf G sem var við hlið nafns T'me Desgranges.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.