Morgunblaðið - 07.05.1976, Side 10

Morgunblaðið - 07.05.1976, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1976 Mótmæli barnakennara A FUNDI stjórnar og fulltrúaráðs Sambands íslenzkra barnakenn- ara sem haldinn var fyrir nokkru var gerð samþykkt hvar mótmælt var harðlega þeirri réttarskerð- ingu íslenzkra barna, sem felst í því að fjölga bekkjardeildum frá því sem nú er. Segir í samþykktinni að með tilliti til þeirra frétta i dagblöð- um, að menntamálaráðuneytið muni beina þeim tilmælum til skólanna að þeir fjölgi nem- endum i bekkjardeildum frá því sem nú er, þá itrekar fulltrúaráðs- fundur SÍB þá ályktun siðasta fulltrúaþings, að stefna beri að því að ekki séu fleiri en 24 nem- endur í einni bekkjardeild. Jafnframt lýsir fundurinn yfir þeirri skoðun sinni, að það sé ein höfuð forsenda fyrir blönduðum bekkjum hvað námsgetu snertir, að nemendafjöldi hafi einhverja möguleika á að sinna sérþörfum hvers nemanda í bekknum. Aðalfundur KRON: Mótmælir synjun borgarstjórnar Aðalfundur KRON var haldinn fvrir skömmu og sóttu fundinn 113 fulltrúar segir í fréttatilkynn- ingu frá KRON. Félagsmenn KRON eru nú rúmlega 13 þúsund og var heildarvelta félagsins rúm- lega einn milljarður króna. Hefur veltan aukizt um 32% miðað við árið áður en rekstrarafgangur að loknum afskriftum var kr. 532 þúsund. Félagið veitti um 7 milljónir króna í afslátt á árinu í formi lækkaðs vöruverðs. A aðalfundinum fluttu Ragnar Ólafsson formaður félagsins og Ingólfur Ólafsson kaupfélags- stjóri skýrslur um starfsemi fé- lagsins og skýrði Ragnar frá því, að borgarstjórn Reykjavíkur hefði synjað KRON um leyfi til þess að reka stórmarkað í hús- næði SlS við Elliðavog. Urðu miklar umræður um þetta mál og samþykkti fundurinn harðorð mótmæli og skoraði á borgar- stjórn Reykjavíkur að breyta af- stöðu sinni í þessu máli og veita KRON hið umbeðna leyfi. I mót- mælunum segir að synjunin hindri eðlilega, frjálsa samkeppni í smásöluverzlun og sé misbeiting á pólitisku valdi og bitni á öllum almenningi í Reykjavík sem og félagsmönnum, KRON. Fundarstjórar á fundinum voru Sigurður Guðgeirsson og Guðrún Guðvarðsdóttir. I stjórn KRON eru nú Ragnar' Ólafsson, Guðjón Styrkásson, Böðvar Pétursson og Björn Krist- jansson. © i Ingólfur Ólafsson kaupfélags- stjóri flvtur skýrslu um starfsemi félagsins á aðaífundi KRON. INNLENT JAFNRÉTTISNEFND NESKAUPSTAÐAR I fréttatilkynningu sem Mbl. hefur borizt kemur fram að jafn- réttisnefnd Neskaupstaðar var kosin á fundi bæjarstjórnar i febrúar s.l. Með kosningu hennar mun Neskaupstaður væntanlega leggja fram sinn skerf til 10 ára áætlunar Sameinuðu þjóðanna í baráttunni fyrir jafnstöðu kynjanna. Verkefni nefndarinnar skulu m.a. vera að gera könnun á stöðu kvenna i bænum og óskum þeirra og áliti á bæjarmálum og beita sér fyrir fræðslu um jafnréttismál í skólum og meðal almennings. Nefndina skipa Gerður G. Ósk- arsdóttir formaður, Randíður Vigfúsdóttir ritari, Jóhannes Stefánsson, Stella Steinþórsdóttir og Smári Geirsson. Nefndin hefur hafið störf og gert sér starfsáætlun fyrir yfir- standandi ár. ÍAÍ:M V' Mk''SAmi»!ÍMM&íÆSSllíí Erling Aspelund forstjóri Hótels Loftleiða og Emil Guðmundsson aðstoðarhótelstjóri. Ljósm. Mbl. RAX mál og ennfremur aðrir salir þannig að hægt er að halda sex ráðstefnur I hótelinu á sama tfma. Nú eru starfrækt á hótelinu 217 gistiherbergi með 434 gisti- rúmum. Meginhluti gesta hótelsins er erlent ferðafólk sem hingað kemur til lengri eða skemmri dvalar. Gistinæt- ur frá upphafi eru um 550 þús- und og meðalnýting hótelsins sl. 2 ár eru 60% segir I fréttatil- kvnningunni. Starfsfólk hótels- ins er 117 manns á veturna en 175 manns á sumrin. Forstjóri Ilótels Loftleiða er nú Erling Aspelund og aðstoð- arhótelstjóri er Emil Guð- mundsson. Hótel Loftleiðir 10 ára: Gistinætur orðnar um 550 þúsund I fréttatilkvnningu frá kynn- ingardeild Flugleiða kemur fram að þann 1. maf voru liðin 10 ár frá þvf að Hótel Loftleiðir var opnað. t þeim áfanga sem þá var opnaður var gistirými fyrir 216 gesti í 108 herbergj- um. Viðdvalarfarþegum Loft- leiða hafði þá fjölgað verulega og aukning var fvrirsjáanleg. I hótelinu var brvddað upp á ýmsum nýjungum, s.s. sund- laug í kjallara og góðri aðstöðu til fundahalda. Hinn 1. maf 1971 var tekin í notkun viðbótarbvgging en í henni voru 110 herbergi og ennfremur ný veitingabúð, sal- ur til ráðstefnuhalds með tækj- um til túlkunar á fjögur tungu- Formannafundur^ Kven- félagasambands íslands 1 LOK apríl var haldinn f Reykja- vfk 12. formannafundur Kvenfé- lagasambands tslands. 1 K.t. eru 21 héraðssamband og Kvenfélag- ið Líkn í Vestmannaeyjum. Fund- inn sóttu formenn allra héraðs- sambandanna nema einn. 1 frétta- tilkvnningu frá K.l. segir að rösk 23 þúsund kvenna séu félags- bundin innan K.l. Á fundinum var m.a. skýrt frá undirbúningnum að þingi Hús- mæðrasambands Norðurlanda, sem haldið verður í Reykjavík i ágúst. Þingið munu sækja um 120 erlendar konur og nokkrir karl- menn. Ekki er enn vitað hve margir íslenzku þátttakendurnir verða þar sem umsóknarfrestur er enn ekki útrunninn, en rúm er fyrir 100 íslenzkar konur. Um- ræðuefni þingsins verður Norður- löndin og umheimurinn — Mat- vælaauðlindir og mataræði. Þrír íslenzkir fræðimenn og einn Fjögurra farþega loftbelg- ur keyptur til landsins Ætlað að fljúga með landsmenn í sumar Loftbelgurinn sem Holberg Más- son hefur kevpt til landsins. Belgurinn er 22 metra hár og 20 metrar I þvermál. Mvndin er tekin í Bretlandi fyrir skömmu þegar Holberg var að leggja upp f revnsluför á loftfarinu. VÆNTANLEGUR er til landsins á næstu dögum loftbelgur sem Holberg Másson flugmaður hefur keypt, en Holberg gerði tilraunir í loftbelgjagerð fyrir nokkrum árum með skólafélögum sínum úr Menntaskólanum f Hamrahlíð auk þess að þeir smíðuðu eld- flaug sem sagt var frá f fréttum. Holberg hefur lokið einkaflug- mannsprófi og prófi í stjórn loft- belgja og hefur Flugmálastjórr gefið út á hans nafn fyrsta flug skýrteinið til stjórnunar á loít- belgjum á Islandi. Holberg keypti loftbelginn í Bretlandi fyrir 1,2 millj. kr. og var hann þar ytra fyrir skömmu til þess að prófa tækið. Belgurinn sem mun fá fslenzka skráningar- merkið TF-HOT ber 3—4 menn, en alls er belgurinn 1560 rúm- metrar, 22 metra hár og 20 metrar í þvermál. I spjalli við Morgunblaðið kvaðst Holberg ætla að fljúga belg.num í nágrenni Reykjavíkur í sumar og bjóða fólki að ferðast með. Loftbelgurinn er fylltur upphituðu lofti og er það um 100 stiga heitt, en það er hitað upp með própangasi. Dúkur belgsins er úr næloni en karfan sem ber 3—4 menn er úr basti. Ef flugtúrar með loftbelgnum verða vinsælir kvaðst Holberg ætla að eiga belginn áfram, en að öðrum kosti selja hann aftur. Hann kvaðst fyrst og fremst hafa keypt hann til þess að sýna fram á að auðvelt og skemmtilegt væri að fljúga loftbelgjum yfir íslandi. norskur flytja erindi og síðan skiptast þátttakendur í umræðu- hópa og fjalla um spurningar sem frummælendur leggja fram. Á formannafundinum var kosin nefnd til að endurskoða lög K.t. fyrir næsta landsþing og einnig var kosin nefnd til að undirbúa útgáfu á sögu kvenfélaganna á hálfrar aldar afmæli K.I. árið 1980. Aðalstjórn Kvenfélagasam- bands Islands skipa Sigríður Thorlacius, Sigurveig Sigurðar- dóttir og Margrét S. Einarsdóttir. SAMÞYKKTIR A FUNDINUM Á fundinum voru gerðar nokkr- ar samþykktir og skoraði fundur- inn á ríkisstjórn tslands að fram- lengja starfstíma hinnar ríkis- skipuðu kvennaársnefndar en hann hefur verið bundinn við lok þessa árs. Telur fundurinn eðli- legt að nefndinni verði falið að starfa þann áratug, sem S.Þ. helga baráttunni fyrir réttinda- málum kvenna. Þá fagnar fundurinn framtaki meðal 12 ára gamalla skólabarna í baráttunni gegn tóbaksreyking- um og skorar á félagskonur K.I. að vinna að því að draga úr tóbaksreykingum. Fundurinn beinir þeirri ósk til menntamálaráðherra að sérstök aðgát verði höfð við gerð náms- skrár grunnskóla varðandi verk- iegar greinar, svo að æskufólk fái ekki síður trausta undirstöðu f verknámi en bóknámi. Þá skorar Samskrá SAMSKRÁ um erlendan ritauka íslenzkra rannsóknarbókasafna sem Landsbókasafn Islands gefur út er nú komin út fyrir tímabilið janúar til júní 1975. Skráin kemur út tvisvar á ári í tvennu lagi. Samskrá er send ókeypis þeim sem þess óska og sé beiðnum um það beint til Landsbókasafns Is- lands. fundurinn á Búnaðarfélag Is- lands að stuðla að þvi að lands- menn verði sjálfir sér nógir um vörur eins og t.d. kartöflur og gulrófur. Ennfremur skorar fundurinn á heilbrigðisyfirvöld að leggja aukna áherzlu á víðtæk- ari lækningaaðstöðu, fræðslu og félagslegá aðstoð er draga megi úr áfengissýki en fagnar því jafn- framt að hæli fyrir áfengissjúka skuli nú vera að taka til starfa á Vifilsstöðum. Vísindafélag ályktar um rík- isstofnanir BLAÐINU hefur borist svohljóð- andi frétt frá Vísindafélagi Norð- lendinga: Almennur fundur í Vísindafé- lagi Norðlendinga, haldinn á Húsavík þann 1. mai 1976, sam- þykkti eftirfarandi ályktanir: 1. Félagið fagnar fram komnum tillögum „Stofnanaflutnings- nefndar", um flutning rikisstofn- ana frá Reykjavík. Þeirri áskorun er beint til stjórnvalda landsins, Fjórðungs- sambands Norðlendinga og við- komandi sveitar- og sýslufélaga, að þau láti nú þegar kanna mögu- leika á framkvæmd tillagnanna. 2. Hvað Norðurland snertir, telur fundurinn að of mikil áherzla sé lögð á flutning stofn- ana til eins staðar, þ.e. Akureyr- ar, i tillögum nefndarinnar. Telur fundurinn eðlilegt, að athugað verði um flutning (heildar- eða deildarflutning) stofnana til ann- arra staða norðanlands, svo sem til Húsavíkur og Sauðárkróks. 3. Jafnframt telur félagið sjálf- sagt, að haldið verði áfram upp- byggingu ýmissa menningarstofn- ana á Norðurlandi, í samræmi við fyrri tillögur félagsins um það efni (frá 1972), enda hlýtur slík uppbygging að vera á ýmsan hátt minni vandkvæðum bundin en flutningur stofnana. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.