Morgunblaðið - 13.05.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.05.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976 3 Fyrrverandi flugmenn Vængja: Orðnir atvinnulausir vegna þvermóðsku og óbilgimi hluthafaklíku „Fullyrðingar stjórnar Vængja hf. um að rekstur félagsins geti með engu móti staðið undir samn- ingum við núverandi aðstæður koma flugmönnum æði spánskt fyrir sjónir, þar sem fargjöld fé- lagsins hafa nýverið hækkað um 14% og leiguflug um 20% og með tilliti til þess að rekstur félagsins hefur alla t(ð gengið mjög vel,“ segir f greinargerð sem Morgun- blaðinu hefur borizt frá fyrrver- andi flugmönnum Vængja. I greinargerðinni eru gerðar at- hugasemdir við ýmis þau atriði sem koma fram í greinargerð stjórnar Vængja á dögunum og rakið hvernig samningaumleitan- ir milli aðila gengu fyrir sig. I greinargerðinni segir ennfremur, að laun þau sem flugmenn Vængja fóru fram á og voru sam- þykkt af Vængjum séu mun lak- ari en laun annarra flugmanna í innanlandsflugi. Fram kemur að flugmenn hafi gert það að skilyrði í tilboði sínu 2. maí að viðþáværi samið sem félaga innan Félags ísl. atvinnuflugmanna en þó með tveimur varnöglum sém aðilar höfðu komið sér saman um. 1 svari sinu hafi stjórn Vængja hins vegar ekki viljað viðurkenna FlA sem viðsemjanda fyrr en FÍA hefði stofnað sérdeild innan sinna vébanda, þar sem flugmenn Vængja hefðu einir atkvæðisrétt um sín mál, en stjórn FÍA hefði ekki getað á neinn hátt skuld- bundið sig til svo mikilla skipu- lagsbreytinga á félaginu. „Framkoma stjórnar Vængja hf. I þessari deilu er þess eðlis að ástæða getur verið til að huga betur hvað að baki býr,“ segir i greinargerðinni. „Alitið er að hagur félagsins sé það góður að Framhald á bls. 21 r Frá Olympíumótinu í Monte Carlo: Islendingar 1 25. sæti eftir 13 umferðir MonteCarlo 12. maí. Frá Jakobi R. Möller. t NtUNDU umferð spilaði fs- lenska sveitin við Kanada og tap- aði naumlega með 8 stigum gegn 12. Ásmundur, Hjalti, Sfmon og Stefán spiluðu leikinn. Eftir þessa umferð var sveitin f 15. sæti. í dag hefir hallað undan fæti. I morgun spilaði sveitin við Júgó- slavíu og tapaði 2—18. Það virðast vera álög á islenskum bridgespil- urum að spila illa á móti Júgóslöv- um og leikurinn í dag var engin undantekning. Guðmundur, Karl, Ásmundur og Hjalti spiluðu leik- inn. I elleftu umferðinni var spilað við kvennasveit mótsins og vannst sá leikur með 12 gegn 8. Þá voru Kólombíumenn næstir í röðinni. Ásmundur, Hjalti, Simon og Stefán spiluðu leikinn og varð afraksturinn úr þeim leik aðeins tvö stig gegn 18. í kvöld á að spila við Thailand, en á morgun verður erfitt að sækja á brattann því þá verður spilað við þjóðir í efstu sætunum, m.a. Svíþjóð og Sviss. Það sem af er mótinu hefir ís- lenska sveitin spilað nokkuð gloppótt og ekki náð að sýna þann styrk sem hún á að búa yfir. ísland er nú í 25. sæti með 114 stig. „Rógskrif” — segir stjórn FÍA um greinar- gerð Vængjastjórnar MORGUNBLAÐINU hafa borizt athugasemdir frá stjórn Félags fsl. atvinnuflugmanna vegna greinargerðar stjórnar Vængja á dögunum út af Vængjadeilunni. Eru þar staðhæfingar Vængja- stjórnar varðandi FÍA bornar til baka og kallaðar rógskrif. Meðal annars segir f greinargerð FÍA: „Þar er því haldið fram að flug- menn hafi farið fram á æviráðn- ingu. Þetta er alrangt, slíkt hefir aldrei verið gert, hvorki gagnvart Vængjum né núverandi viðsemj endum FÍA. Það er borið á FÍA að hafa beitt Fl og LL kverkatökum og komið i veg fyrir vöxt og við- gang félaganna og muni síðar- meir beita Vængi sömu tökum. Ef litið er til þess að um 30 ára skeið hafa Fí, LL og FÍA búið saman og í dag eru Flugleiðir eitt öflugasta fyrirtæki landsins þá virðast slík „kverkatök" ekki vera óheilla- vænleg vexti og viðgangi fyrir- tækja. Því er haldið fram að FÍA hafi til skamms tíma verið lok- aður klúbbur flugmanna Fi og LL. Þetta er í samræmi við aðrar staðhæfingar stjórnar Vængja h/f. FÍA hefir frá stofnun verið opið öllum, sem hafa réttindi til atvinnuflugs á islandi. Samninganefnd skipuð flug- mönnum, sem störfuðu hjá Vængjum h/f hefir annast við- ræður við Vængi h/f og munu þeir sjálfir gera grein fyrir þeim viðræðum, sem fram hafa farið.“ Ber er hver að baki nema . . . Ljósm.: Friðþjófur. Ljósprentun á tilskipun um póststofnun á Islandi i DAG, 13. maí, eru liðin 200 ár frá útgáfu tilskipunar um póst- stofnun á islandi. i tilefni þessa hefur póst- og símamálastjórnin látið Ijósprenta tilskipunina, sem prentuð var í Hrappseyjarprent- smiðju 1782. Dr. Bjarni Vil- hjálmsson, þjóðskjalavörður, að- stoðaði við undirbúning l jósprent- unarinnar. Tilskipunin var á dönsku en póst- og símamálastjórn hefur einnig gt-fið út sérprentun á þýð- ingu hennar á íslenzku og ensku, sem birtist i ritinu Póststofnun á íslandi 175 ára, sem gefið var út 1951. Cfl £>l eifftlií Lauritz Andreas 'fhodal tti etiftamtmairtowt 3«lairt,famt ?Cmt< manb o»rt ©otitet> 09 Sf5efiet?lmtet fant= meflehé; 03 GIíTtUg OlcStephen- fen æottá amtmanh ontt fijtetamtet; onjMeitö* *t n n l « ð til cit tyoffcxrjtos ^nbreímiið ínti i IRobtf* 17«*. Fáséð málverk á upp- boði hjá Klausturhólum KLAUSTURHÓLAR, listmuna- uppboð Guðmundar Axelssonar, halda 18. uppboð sitt að Hótel Sögu n.k. sunnudag kl. 15. Að þessu sinrii verða seld málverk eftir fslenzka listamenn. Og eru meóal málverkanna ýmsir fágæt- ir og merkilegir hlutir, og þar á meðal málverk eftir listamenn, sem mjög er sjaldgæft að séu á boðstólum. Meðal málverka eftir látna listamenn er gamalt olíumálverk Framhald á bls. 20 Stórbingó í Sigtúni á vegum sjálf- stæðisfélaga I KVÖLD klukkan 20.30 efna sjálfstæðisfélögin f Nes- og Mela- hverfi og Vestur- og Miðbæjar- hverfi til stórbingós f Sigtúni. Margt veglegra vinninga verður á boðstólum, m.a. utanlandsferð- ir, heimilistæki og margt fleira. Eru borgarbúar hvattir til að fjölmenna og freista gæfunnar í þessu glæsilega stórbingói, segir í tilkynningu frá félögunum. Allir eru velkomnir. Humarvertíð- in byrjar á sunnudaginn UMSÓKNARFRESTUR um humarveiðilevfi í sumar rennur út á morgun. Að sögn Þórðar Evþórssonar fulitrúa f sjávarút- vegsráðuneytinu hafa borizt milli 140 og 150 umsóknir og þar af hafa 138 bátar uppfvllt skilvrði um levfisveitingu. 1 fyrra voru veitt 139 humarveiðilevfi þannig að meiri ásókn virðist ætla að verða f humarveiðarnar nú en f fvrra. Humarveiðarnar hefjast á sunnudaginn og er búist við því að allmargir bátar byrji veiðarnar strax þann sama dag. Þórður Eyþórsson sagði að leyft yrði að veiða á svæði frá Beru- fjarðarál að Snæfellsnesi. Kvótinn í ár er 2800 tonn en var í fyrra 2000 tonn. Að sögn Þórðar verður bátum ekki úthlutað sér- stökum kvóta heldur verða veiðarnar stöðvaðar þegar búið er að veiða upp í heildarkvótann. Að sögn Þórðar má búast við fleiri umsóknum tvo sfðustu dag- ana þannig að væntanlega verða nokkru fleiri leyfi veitt í ár en í fyrra. Leyfin eru bundin við 100 tonna hámarksstærð eða 400 hestafla hámarksorku vélar. 50 félagsmenn í Æ ttfr æðifélaginu Ættfræðifélagið hélt aðalfund 27.4 s.l. Stjórnin var endurkosin og skipa hana nú: Ölafur Þ. Kristjánsson formaður, Bjarni Vilhjálmsson varaformaður, Pétur Haraldsson gjaldker, Jó- hann Gunnar Ólafsson ritari, Jakobina Pétursdóttir meðstjórn- andi. Að tillögu stjórnarinnar var Einar Bjarnason prófessor gerður heiðursfélagi i viðurkenningar- skyni fyrir rannsóknir og ritstörf um ættfræði. Þá var samþykkt að láta prenta i samlögum við þjóðskjalasafn manntalió frá 1801. Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjala- vörður flutti erindi um ættrakn- ingar samkv. dómsmálabókum og öðrum gögnum í þjóðskjalasafni. Allmiklar birgðir eru enn til af manntalinu frá 1816, að undan- skildu 1. hefti, sem er uppselt. Félagsmenn eru nú 50. sjóvatfrétfir Sjávarfréttir er fjórum sinnum útbreiddara en nokkuð annað blað á sviði I Sjávarfrétta, Laugavegi 178 pósthólf 1 193. sjávarútvegsins. Sjávarfréttir fjalia um útgerð, fiskiðnað, markaðsmál, rann- , Rvík. Óska eftir áskrift. sóknir vísindi, tækni og nýjungar, skipasmiðar og fl. I ^ ^ Gerist áskrifendur að Sjávarfréttum. Sjávarfréttir kosta kr. 330 og eru eingöngur seldar í áskrift. Áskriftarsíminn er 82300 Heimilisfang Sími sjávarfréttir'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.