Morgunblaðið - 13.05.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.05.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1976 5 Cabarett leikur á Mallorka HLJÓMSVEITIN Cabarett fer til Mallorka á Spáni nú í mán- aðarlokin þar sem hljómsveitin mun leika á vegum íslenzka ferða- og skemmtiklúbbsins, Klúbbs 32. Mun Cabarett leika þrjú kvöld í viku á Hótel 33, en s.l. sumar lék hljómsveitin Judas þar einnig á vegum Klúbbs 32. Klúbbur 32 ráðgerir fleiri ferðir til Mallorka í sumar og einnig er áætlað að fleiri hijómsveitir ferðist með klúbbnum og leiki á Hótel 33 í sumar. Tíu Eddu-hótel í r Eitt nýtt í Menntaskólanum á Isafirði Hljómsveitin Cabarett. í SUMAR starfrækir Ferðaskrif- stofa rfkisins alls tfu Eddu-hótel á nfu stöðum á landinu. Eitt þeirra er nýtt, f heimavist Menntaskól- ans á tsafirði. Fvrsta hótelið tek- ur til starfa um hvftasunnuhelg- ina, það er hótelið á Kirkjubæjar- klaustri, en sfðan opna þau eitt af öðru og starfa öll frá því um miðj- an júnf til ágústloka. Síðastliðið sumar tóku Eddu- hótelin upp þá nvbreytni að veita afsiátt þeim, er pöntuðu og greiddu fyrirfram fyrir 7 nátta gistingu. Nokkur hundruð manns -notfærðu sér þetta tilboð, velflestir til þess að fara i hring- ferð um landið. Nú hafa Eddu- hótelin auglýst nýtt sértilboð. Veittur er 30% afsláttur af gist- ingu og morgunverði þeim er dvelja samfleytt í þrjár nætur eða lengur á sama hóteli og þeir hinir sömu fá einnig 15% afslátt af mat í öllum veitingasölum meðan þeir dveljast á hótelinu. Kostar þá gisting í 3 nætur í tveggja manna herbergí ásamt morgunverði 4.500 krónur á mann. Gisting í Húsmæðraskólanum að Laugar- vatni er þó nokkuð dýrari. Börn fá afslátt af þessu sérverði eftir sömu reglum og gilda um barna- afslátt af almennu verðlagi á Eddu-hótelum. Til þess að njóta þessará kjara verða menn að panta og greiða fyrirfram fyrir gistingu og sumar morgunverð. Móttaka pantana hófst 10. mai, en sértilboðið stendur til 10. júní eða á meðan hótelrými er fyrir hendi. Veitir Ferðaskrifstofa ríkisins allar upplýsingar þar um. Almennt verð á gistingu er hið sama á öllum hótelunum nema í Húsmæðraskóianum á Laugar- vatni, 3.200 kr. á nóttu fyrir tveggja manna herbergi, en 2450 krónur fyrir eins manns herbergi. Morgunverður kostar 550 krónur. AL'CLVSINGASÍMINN KR: 22480 Nvkomið — Nýkomið Teg. 600. Litur brúnt leður með slitsterkum sólum Stærðir Nr. 36—41 Póstsendum Kirkjustræti við Austurvöll HOOVER Firmakeppni Sleipnis haldin á laugardaginn FIRMAKEPPNI hestamannafé- lagsins Sleipnis fer fram laugar- daginn 15. maí kl. 14 á Engjavegi á Selfossi. 56 fyrirtæki taka þátt í keppninni og er keppt um farand- bikar, sem Landsbanki islands gaf. Sérstök verðlaun, knapaverð- laun, verða veitt 15 ára og yngri. Hestarnir eru ekki skráðir til keppni, en hverjum sem vill er heimilt að koma með hesta til þátttöku og eiga þeir að vera mættir stundvislega klukkan 13.30 við félagshesthúsið. Góð rækjuveiði Vest- fjarðabáta frá áramótum RÆKJUVERTÍÐ á Vestfjörðum var um það bil að Ijúka í lok aprílmánaðar, aðeins nokkrir Iðnnemasamband Islands:______________ Verkmenntun verður að bæta Á formannafundi aðiidarfélaga Iðnnemasambands tslands sem haldinn var fvrir helgi var lögð áherzla á að átak verði að gera f verk- og tæknimenntun þjóðar- innar. Segir í fréttatilkvnningu frá Iðnnemasambandinu að ráða- menn þjóðarinnar verði að gera sér ljóst, að verkmenntun verður ekki bætt með því að koma á fót mörgum skólum hér og þar á landinu með litla sem enga að- stöðu, heldur verður að koma upp góðum rfkisreknum kjarnaskóla á þeim stöðum sem þegar hafa verið ákveðnir. Þá bendir formannafundur Iðn- nemasambandsins á að fram hafi komið hjá ábyrgum aðilum að ef verkmenntun fengi það fjármagn sem hún þarf, gæti það aukið framleiðni iðnaðarins um allt að 25% en aðeins 5% framleiðni- aukning nægði til að fjármagna allt fræðslukerfi þjóðarinnar. Þá harmar fundurinn þann mis- skilning, sem virðist hafa orðið hjá forráðamönnum Iðnskólans í Stykkishólmi, á niðurstöðu ráð- stefnunnar á Neskaupstað. Með þeim er ekki á neinn hátt ráðist á skólastjóra eða kennara, heldur að þeirri aðstöðu sem þeir búa við. Fundurinn ftrekar að verk- menntun getur aldrei orðið góð með aðstöðu eins og henni er lýst i skýrslu um Iðnskólann í Stykkis- hólmi. er heimilisprýði HOOVER Tauþurrkarar. Stærð: Hæð 85 cm, breidd 59 cm, dýpt 55 cm. Hleðsla: 3,5 kg, af þurrum þvotti. Þurrkkerfi: Tvö, annað fyrir náttúrulegan vefnað en hitt fyrir gerfiefni. Hitastig: 55 C, 75 C. Tímastillir: 0 til 110 mínútur. Öryggi: Öryggislæsing á hurð, 1 3 A rafstraumsöryggi, Taurþurrkarinn er á hjólum. Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan HOOVER- VERKSMIÐJURNAR ÁBYRGJAST VARAHLUTI í 20 ÁR, EFTIR AÐ FRAMLEIÐSLU SÉRHVERRA TEGUNDA ER HÆTT bátar á Isafirði og f Súðavfk áttu eftir að veiða hluta af leyfilegu aflamagni. Rækjuvertíð lauk á Bíldudal 9. aprfl, og var landað þar f aprfl 22 lestum, en við tsa- fjarðardjúp bárust á land 308 lestir f mánuðinum. Steingríms- firðingar hættu rækjuveiðum í iok marzmánaðar. Alls hafa þá borizt á land 2.504 lestir af rækju frá áramótum, en í fvrra var afl- inn á vetrarvertfðinni 1.850 lestir. Heildaraflinn á haustinu var aðeins 881 lest á móti 1.921 lest árið áður. Er vertíðaraflinn þá 3.385 lestir, en var 3.771 lest sama tfmabil f fvrra. Á Bíldudal bárust á land í vetur 218 lestir, en haustið gaf 82 lestir. Er vertíðaraflinn því aðeins 300 lestir, en var 523 lestir i fyrra. Við ísafjarðardjúp bárust á land í vetur 1.651 lest, en haustið gaf 585 lestir. Er vertfðaraflinn því 2.236 lestir, en var 2.339 lestir i fyrra. Þess ber þó að gæta, að i vetur hafa 36 bátar stundað þessar veiðar, en þeir voru í fyrra 55. Við Steingrímsfjörð bárust á land í vetur 635 lestir, en á haust- vertiðinni 214 lestir. Er vertíðar- aflinn því 849 lestir, en var 9Ö9 lestir i fyrra. Vertíðaraflinn er því lakari á öllum stöðunum, en aftur á móti skiptist aflinn nú á 60 báta, en 82 báta í fyrra. Þrír bátar frá Bildudal voru byrjaðir veiðar á hörpuskel, og höfðu þeir aflað 42 lestir í mánuðinum. HOOVER þvottavélar Stærð: HxBxD.85x59x55 sm. Þvottamagn: 5 kg af þurrum þvotti. Þvottakerfi: 1 2 til 16 algjörlega sjálfvirk þvottakerfi. Vatnsinntak: Heitt og kalt (blandar), eða eingöngu kalt vatn. Vatnshæðir: Vélarnar velja á milli vatnshæða. Sápuhólf: Skúffa sem skipt er í 3 hólf, forþvottur, aðalþvottur og bætiefni. Hitastig: 30 gr. C, 40 gr. C, og 60 gr. C, og 95 C Oryggi: Öryggislæsing á hurð, vatnsöryggi á sápuskúffu. 1 3 A rafstraumsöryggi. Þvottatromla úr ryðfriu stáli. Vélarnar eru á hjólum. Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan. Þær falla því vel í innréttingar eða undir borð. Einnig má sameina þvottavél og tauþurrkara á þann hátt að skorða þurrkarann ofan á vélina. FÁLKIN N* Suðurlandsbraut 8 Sími 8-46-70

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.