Morgunblaðið - 13.05.1976, Síða 17

Morgunblaðið - 13.05.1976, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976 17 Pósturinn fann enga viðtakendur Udine, 12. maí. Reuter. NTB. í MORGUN urðu enn jarðskjálft- ar á Norður-ítalíu, en engar frétt- ir höfðu borizt um manntjón. Þó segir NTB-fréttastofan að fjög- urra manna sé saknað. A.m.k. 10 manns slösuðust þegar húsveggir hrundu I skjálftunum, sem mæld- ust 3,2 og 4,8 stig á Richter- kvarða. Tvö sveitaþorp eru ein- angruð af völdum aur- og grjót- skriðna, sem stöðvuðust I aðeins fárra metra fjarlægð frá tjöldum sem hinir húsnæðislausu fbúar þorpsins Praulins hafast nú við f. Hjálparsveitir gripu til nvrra að- gerða eftir sfðustu skjálftahrin- urnar, en ekki vitað hversu mikið tjón var í þeim. Lffið á jarð- skjálftasvæðunum var þó að komast f eðlilegt horf í dag, og t.d. hófu nokkrar óskemmdar eða lfttskemmdar verksmiðjur starf- semi að nýju. stjórnin sendi í dag 400 hermenn til að aðstoða við hjálparstarfið. „Bretar krefjast 50 mflna landhelgi" hljóðar fyrirsögn f blaði sem sjóliðar á „HMS Codpeace" lesa á þessari skopmvnd úr Daily Mirror. Textinn með myndinni var svohljóðandi: „Franskir fall- byssubátar, hollenzkir fallbyssubátar, þvzkir, belgfskir og írskir... vonandi fara ekki allir að dæmi okkar.“ Frakki grunaður um morð sendiherrans París, 12. maí. Reuter. HLJÖÐRITUN með orðsendingu manns, sem sagði að samtök sem hann væri f, bæru ábyrgð á morði bólivfska sendiherrans f Parfs, bendir til þess að morðingjarnir hafi verið Frakkar, bæði vegna orðavalsins og hreimsins, að sögn frönsku lögreglunnar f dag. Lögreglan telur að alltaf séu til Frakkar sem séu reiðubúnir til að ryðja mönnum úr vegi og fremja önnur hermdarverk í þágu erlendra samtaka. Lögreglan leitar að um 35 ára gömlum manni sem sjónarvottar hafa lést og segja að myrt hafi sendiherr- ann. Franska lögreglan yfirheyrði i dag marga vinstrisinna úr hópi 12.000 Suður-Ameríkumanna sem búsettir eru f París en ekkert nýtt kom fram sem gæti leitt til hand- töku morðingja sendiherrans, Joaquin Zentone Anaya hershöfð- ingja. Hert var á öryggisráðstöfunum í Bólívíu í dag til verndar mönnum sem tóku þátt í barátt- Framhald á bls. 21 Hægriárás á stjórn Arias Madrid. 12. maí. NTB. HÓPUR 126 hægrisinnaðra þingmanna á Spáni veittist harkalega að Carlos Arias Navarro forsætisráðherra f dag og sökuðu hann um að valda ringulreið með pólitfskum umbótum sem hann hefur boðað. Þingmennirnir eru fjórðungur fulltrúa á spænska þinginu og í hópnum eru sjö fyrrverandi ráð- herrar og margir fyrrverandi ráð- herrar frá valdatíma Francos hershöfðingja. Þeir krefjast þess í bréfi sem þeir hafa undirritað að stjórnin gefi afdráttarlausa yfirlýsingu um hvaða umbætur hún vilji. Þeir segja að nú sé svo komið að ráð- herrar stjórnarinnar sendi frá sér yfirlýsingar sem stangist á og erfitt sé að fá úr þvi skoríð hvað stjórnin raunverulega vilji. Stjórnin er ennfremur sökuð um að troða á rétti þingmanna með því að knýja fram viss laga- frumvörp án þess að þingið fái að fjalla nægilega um þau. Bréf þingmannanna birtist í kjölfar harðra umræðna á þingi þar sem þingforseti, Torcuato Fernandes Miranda, hvatti þing- heim hvað eftir annað til þess að fella umbótatillögur stjórnar- innar. Jarðskjálftasvæðin á N-Ítalíu: Mchigankosníngamar taldar ráða úrslitum — fyrir baráttu Fords við Reagan Og í þorpinu Majano, þar sem meir en 80 manns fórust í skjálft- anum s.l. fimmtudag, fór póstur bæjarins að bera út póstinn að nýju. En eftir fyrstu umferð varð hann að gefast upp. „Því miður verð ég að fara með næstum því öll brefin aftur á pósthúsið," sagði hann. „Hús eru horfin, og íbúar þeirra húsa sem enn standa uppi eru farnir á brott.“ Rann- sóknarnefnd ríkisins sem kannar tjónið sagði í dag, að 90% húsa á svæðinu væru annað hvort eyði- lögð eða óibúðarhæf. Ríkisstjórn- in átti að koma saman síðar í kvöld til að fjalla um á hvern hátt þeim 200 milljörðum líra sem veitt hefur verið i viðlagasjóðinn verði bezt varið. Vestur-þýzka Washington, Detrot. 12. maí. AP — Reuter — Ntb. RONALD Reagan hrósaði enn einum sigrinum f dag yfir Ford Bandarikjaforseta í forkosn- ingunum í Nebraska í gær, og undirbjó sig undir að rétta baráttu forsetans banahögg f for- kosningum í heimarfki Fords, Michigan, á þriðjudag. Reagan hefur nú á bak við sig 427 fulltrúa á landsþingi repúblíkana f ágúst, en Ford hefur 362, en stjórnmálaskýrendur telja þó, að meirihluti þeirra 395 fulltrúa sem óskuldbundnir eru enn, styðji forsetann. Atkvæði 1.130 fulltrúa þarf til að hljóta útnefn- ingu repúblfkana. Ford, sem fékk 45% atkvæða f Nebraska en Reagan 55%, reyndi að láta sem ekkert hefði f skorizt f dag og kvað Reagan „ekki endilega" hafa tekið forvstuna. En von- brigðin voru augljós í herbúðum forsetans, og er talið einsýnt að kosningarnar í Michigan muni ráða úrslitum um stöðu Fords á landsþinginu. Sigur forsetans í forkosningunum f West-Virginia f gær er ekki talinn vega upp ósigurinn í Nebraska. Þar voru hlutföllin 56%:44%. Jimmv Carter, sem tapaði öllum á óvart fyrir Frank Church Framhald á bls. 21 Enn ein skrá frá Las Vegas, 12. mai. NTB. Reuter. ENN EIN erfðaskrá sem staðhæft er að auðkýfingurinn Howard Hughes hafi skrifað hefur skotið upp kollinum í Las Vegas en sam- starfsmenn hans segja að hún sé fölsuð. Níu menn sem eru ekki nafn- greindir en auðkenndir með , nafnnúmerum eiga að fá einn sjötta auðæfanna samkvæmt erfðaskránni, einn sjötti á að renna til læknisfræðistofnunar Vinsæll innan flokks og utan JO Grimond, sem hefur fallizt á að taka við for- ystu Frjálslynda flokks- ins á nýjan leik og verð- ur leiðtogi hans til bráða- birgða — að minnsta kosti fram yfir næstu þingkosningar — er einn virtasti stjórnmálamað- ur Bretlands. Vinsældir hans ná langt út fyrir raðir flokksins. Talið er að ein af ástæðunum til þess að hann er valinn sé sú að hann er einn af fáum leiðtogum Frjálslynda flokksins sem eru þjóð- kunnir. Grimond er fæddur í St. Andrews í Skotlandi og lauk prófi í lögfræði frá Balliol College i Oxford. Hann barðist í landhernum í síðari heims- styrjöldinni og náði majórstign. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1950 fyrir Orkneyjar og Hjaltland og hefur verið þing- maður þess kjördæmis síðan. Sem þingmaður þess kjör- dæmis hefur hann haft mikinn áhuga á sjávarútvegsmálum og oft tekið þátt í umræðum um landhelgisdeilur íslendinga og Breta. Jo Grimond Grimond hefur haft orð fyrir að vera dugandi og greindur þingmaður. Hann þykir hafa sýnt ágæta forystu- og stjórn- sýsluhæfileika. Jafnframt þykir hann þægilegur í fram- komu, rólegur og kurteis. Árið 1956 var Grimond kjör- Framhald á bls. 21 Chile rekið úr PEN Haag, 12. maí. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN PEN- samtakanna hefur rekið Chile-deildina þar til næsti fundur hennar verður haldinn á næsta ári. Stjórnin sagði að Chile- deildin vildi ekki hjálpa fangelsuðum félagsmönnum og neitaði því að þeir sætu I fangelsi. Tillagan var samþykkt með 21 atkvæði gegn einu en fjórir sátu hjá. Hún var borin fram af full- trúum Bandaríkjanna, Ungverja- lands, Austur-Þýzkalands, Vestur- Þýzkalands og Hollands. Áður en tillagan var samþykkt sagði fulltrúi Chile, Jorge Callo, að engir rithöfundar sætu í fang- elsi í Chile vegna skoðana sinna þótt nokkrir kynnu að hafa verið handteknir fyrir undirróðurs- starfsemi. Patty kveðst andlega óhæf Los Angeles, 12. triai. Reuter. PATRICIA Hearst neitaði í dag að taka afstöðu til sakargifta í réttarhöldunum um aðild hennar að mannráni, ráni og árás i Los Angeles á þeim forsendum að hún væri andlega óhæf til að koma fyrir dóm. Er hinn 22 ára gamli milljónaerfingi var leidd inn i réttarsalinn sagði Albert Johnson, einn af lögfræðingum hennar, að hún myndi ekkert segja að svo stöddu. Sú staðreynd að hún gengist nú undir geð- rannsókn samkvæmt fyrirmælum dómarans í máli þvi sem höfðað var á hendur henni i San Fransisco, undirstrikaði að hún væri andlega óhæf. í réttarsaln- um í dag stóð Patricia Hearst í fyrsta sinn augliti til auglitis til fyrrum félaga sina i Symbíónesiska frelsishernum, Emily og William Harris, frá því þau voru handtekin í september s.l. Hún forðaðist að horfa á þau. Öll þrjú eru ákærð um 11 ákæru- atriði fyrir glæpi framda í Los Angeles 16. maí 1974. Sfðasta myndin sem vitað er til að hafi verið tekin af Howard Hughes. Myndin var tekin við kappaksturskeppni I Watkins Glen 1961 og samstarfsmenn Hughes staðfestu siðar að hún væri af honum. erfða- Hughes Hughes, einn sjötti til skyld- menna og afgangurinn til háskóla í Kaliforníu, Nevada, Texas og Mexíkó og „blindra og heimilis- lausra barna í Ameriku". Erfðaskráin var send i pósti til dómhússins i Las Vegas og er dagsett 22. júní 1969. Önnur erfðaskrá fannst í aðalstöðvum mormóna í Salt Lake City fyrir nokkrum vikum, en hún var dag- sett 19. marz 1968. Enn hefur ekki fengizt úr þvi skorið hvort fyrri erfðaskráin er ófölsuð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.