Morgunblaðið - 13.05.1976, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 13.05.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976 19 i - ftV*'6i--MíW ákvörðun um þau virðist ein- mitt hafa staðið málinu fyrir þrifum fyrstu árin. Hafa bæði Thodal og aðrir embættismenn óttazt, að væntanlegar póst- göngur yrðu óhæfilega kostn aðarsamar. Þá ber heimildum I saman um það, að stiftamt- maður hafi í raun verið and- vígur því, að teknar yrðu upp póstgöngur um landið. Ekki vita menn ástæðuna fyrir því, en honum tókst að draga fram- kvæmd máisins á langinn um sex ár. Má og segja með sanni, að póstsamgöngur samkv. tilskipuninni frá 1776 kæmust ekki í eðlilegt horf fyrr en með eftirmanni hans, von Levetzow stiftamtmanni (1785—1790) Eftir nokkrar bréfagerðir milli rentukammersins og stift- amtmanns og eins við Ólaf Stephensen amtmann á næstu tveimur árum var loks hinn 8. júlí 1779 gefin út reglugerð um póstburðargjöld. Var ákveðið, að greiða skyldi 2 sk. fyrir að flytja bréf úr einni sýslu i aðra, og fór gjaldið því hækkandi eftir fjarlægð frá Bessastöðum. Sem »dæmi má taka, að 2 sk. kostaði undir bréf úr Suður- Múlasýslu til Austur- Skaftafellssýslu og svo 4 sk. I Vestur-Skaftafellssýslu. Þannig kostaði þessa leið 10 sk. undir bréf til Bessastaða. í beinu framhaldi af reglu- gerðinni frá 1779 hefði svo mátt ætla, að rentukammerið hefði ákveðið gjald fyrir flutning bréfa með skipum milli Islands og Danmerkur og svo áfram þaðan eftir dönskum og norskum póstleiðum. Þetta var ekki gert, og er ástæðan fyrir því ókunn. Verður ekki annað séð en þau bréf, sem fóru milli íslands og Kaupmannahafnar, hafi verið fl,utt ókeypis, svo sem verið hafði oftast nær áður. Mun svo einnig hafa verið i reynd allar götur til 1870, þegar breyting var gerð á fyrir- komulagi póstferða milli landanna. Menn hafa að vonum furðað sig á því, að hin íslenzka póst- stofnun skyldi ekki þegar I upp- hafi hafa verið sett undir stórn aðalpóststjórnarinnar dönsku á sama hátt og norska póststjórn- in hafði verið síðan 1719. Engin skýring er tiltæk á þessari ráða- breytni dönsku stjórnarinnar. Hún ákvað hins vegar skipulag- ið á þann veg, að stiftamtmaður varð eins konar póstmeistari og hafði aðalafgreiðslu póstsins á sinni hendi. Var það vitanlega I samræmi við það, að allar póst- leiðir voru bundnar við Bessa- staði, bæði að og frá. Gegndi stiftamtmaður þessu starfi til ársins 1803, en þá tók bæjar- fógetinn I Reykjavík við því. Landfógeti hafði aftur á móti frá upphafi á hendi gjaldkera- störf og reikningshald stofn- unarinnar. Hélzt þessi skipan svo óbreytt til 1870. Samkv. tilskipúmnni 1776 urðu sýslumenn bréfhirðingar- menn, hver I sinni sýslu. Sá galli var á þessu fyrirkomulagi að bréfhirðingarstaður fluttist til með sýslumönnum, því að þeir höfðu ekki fasta búsetu I sýslum sínum. Gat þetta þvi valdið allmiklu róti á bref- hirðingarstöðum. í upphafi urðu þeir 18 og svo hinn 19. á Bessastöðum. Þeir embættis- menn, sem annast áttu póst- þjónustuna, fengu enga þókn- un fyrir störf sín. Margnefnd tilskipun um póstgöngur á islandi frá 1776 var ekki birt á Alþingi fyrr en 1782. Afsakaði stiftamtmaður þennan drátt við dönsku stjórn- ina m.a. vegna veikinda sinna sumarið 1776. Til þess að bæta úr þessari vanrækslu sinni lét hann prenta tilskipunina sér- staklega I Hrappsey 1782 i jafn- mörgum eintökum og Alþingis- bókin var prentuð I, svo að leggja mætti hana með henni. Geta lesendur virt fyrir sér titilsíðuna af mynd þéirri, sem birt er með þessari grein. Reglulegt póstskip mun hafa byrjað siglingar milli íslands og Kaupmannahafnar árið 1778. Var varin ein ferð á ári að vori til, en aðrar póstferðir urðu með skipum kaupmanna, svo sem tiðkazt hafði fram að þessu. Hélzt þetta fyrirkomulag óbreytt til 1851, er póstskipa- ferðum var fjölgað i þrjár á ári, en auk þess var þá'bætt við einni ferð milli Reykjavíkur og Liverpool I Englandi. Seglskip voru notuð I þessum ferðum. Haustið 1857 fórst póstskipið Sölöven undir Svörtuloftum á Snæfellsnesi með rá og reiða. Varð það til þess, að árið eftir, 1858, voru teknar upp póst- ferðir með gufuskipúm milli landanna. Jafnframt urðu ferðirnar sex á ári frá apríl til nóvember. Fyrsta póstferð innanlands samkv. tilskipuninni 1776 var ekki farin fyrr en 1782 eða sama ár og hún var auglýst á Alþingi. Sú ferð hófst frá Reykjafirði við ísafjarðardjúp 10. febrúar 1782, og hét póstur- inn Ari Guðmundsson. Fór hann um Ögur til ísafjarðar og þaðan suður um firði til Haga á Barðaströnd. Má það heita skemmtileg tilviljun, að fyrsta póstferð hér á landi skyldi hefjast á Vestfjörðum, því að höfundur þessara lína telur gild rök hníga að því, að fyrsta notkun íslenzkra frímerkja í febrúar 1873 hafi einnig orðið á póstferð um svipaðar slóðir á Vestfjörðum. Ekki hélt Ari póstur alla leið til Bessastaða, því að sýslumaðurinn í Haga ákvað til sparnaðar að senda þau fáu bréf, sem pósturinn flutti, með „skotspónapósti" eða tækifærispósti suður til Bessastaða, en slíkt var heimilt, ef þannig stóð á. Kostnaðurinn við þessa fyrstu póstferð á íslandi reyndist 5 rd. og 76 sk., en tekjurnar einungis 84 sk. Snemma reyndist því svo, að póstburðargjöld hrukku skammt fyrir kostnaði. Árið 1870 urðu þáttaskil í sögu íslenzku póstþjónustunn- ar. Það ár tók danska aðalpóst- stjórnin loks við póstflutning- um milli Islands og Danmerkur og einnig innanlands. Voru þá settar á stofn sérstakar póst- stöðvar í Reykjavík og á Seyðis- firði og skipaður póstmeistari, ÖIi Finsen. Um leið var ákveðið gjald fyrir póstflutning milli landanna og það greitt með dönskum frímerkjum. Aftur á móti voru þau ekki notuð á póst innanlands, heldur giltu þar áfram reglurnar frá 1779. Þetta fyrirkomulag hélzt svo til árs- loka 1872, en þá varð gerbreyt- ing á allri póstþjónustu hér á landi samkv. Tilskipun um póstmál á Islandi frá 26. febrú- ar 1872 og reglugerð um sama efni frá 3. maí s.á. Var þá sett á fót embætti sérstaks póstmeist- ara, og var Öli Finsen ráðinn í það starf. Um leið voru stofnað- ar 15 póstafgreiðslur víðs vegar um landið og 54 bréfhirðingar. Hafði hinn nýi póstmeistari yf- irstjórn allra þessara póst- stöðva á sinni hendi, en hann laut aftur stiftamtmanni og svo landshöfðingja frá 1. apríl 1873. Segja má, að með tilskipun- inni frá 1872 hafi verið komið á póstþjónustu með nútímasniði. Settar voru reglur og samin gjaldskrá í samræmi við það, sem tíðkaðist í öðrum löndum. Þá voru og gefin út sérstök frímerki, skildingafrimerki,hin fyrstu hér á landi. Voru þau tekin í notkun eftir áramót 1873. Eftir það varð fast gjald, 4 sk., undir einfalt bréf, og skipti fjarlægð engu máli. Aftur á móti kostaði 2 sk. undir bréf, sem sent var innansveitar, þ.e. staða, sem voru á milli póstaf- greiðslna. Þá kostaði 8 sk. undir einfalt bréf til Danmerkur, eins og verið hafði frá 1870, en nú féllu dönsk frímerki úr gildi til burðargjalds og hin íslenzku komu i staðinn. Árið 1875 var gerð breyting á myntkerfi hér á landi og teknir upp aurar og krónur í stað skildinga og ríkisdala áður. 1 samræmi við það varð að breyta um frímerki. Komu þau út 1. ágúst 1876. Þau voru eins að útliti og skildingamerkin að öðru leyti en því, að aurar komu i stað skildinga. Þvi hlutu þau nafnið aurafrímerki. Á þessu sumri eru þannig liðin 100 ár frá útkomu þeirra, og minnist póststjórnin þessa af- mælis með sérstakri frímerkja- útgáfu síðar á árinu. Ekki er unnt að rekja hér nákvæmlega þróun islenzkra póstmála síðustu 100 árin, en rétt er að drepa á nokkur atriði. Smám saman fjölgaði póst- stöðvum, og voru póstafgreiðsl- ur um síðustu aldamót orðnar 25 og bréfhirðingar 182. Á þess- ari öld hafa orðið miklar breyt- ingar á allri póstþjónustu með stórbættum samgöngum. Um 200 póststöðvar eru nú i land- inu, og er helmingur þeirra með fastráðnu starfsfólki. Póst- ferðir um landið og til útlanda eru næstum daglega og að mestu leytu með flugvélum. Enda þótt ýmsir telji póstþjón- ustuna á stundum nokkuð sein- virka, er markmið hennar það, að landsmenn fái póst sinn næsta virkan dag, eftir að hon- um hefur verið skilað til flutn- ings. Svo sem áður er getið, varð Óli Finsen fyrsti póstmeistari hér á landi árið 1873, en hann hafði áður verið i þjónustu dönsku póststjórnarinnar frá 1870. Gegndi hann embætti til dauðadags 1897. Eftirmaður hans varð Sigurður Briem, sem lengst allra hefur setið í þessu embætti. Hann beitti sér fyrir ýmsum nýjungum á fyrstu ár- um i embætti, m.a. útburði bréfa I Reykjavik. Áður varð hver ibúi að sækja póst sinn á pósthúsið við lcomu póstanna í bæinn. Þá lét Sigurður Briem setja upp pósthólf i pósthúsinu, en þau varð hann að leigja mönnum og reka fyrir eigin reikning — eða þangað til yfir- menn hans sannfærðust um ágæti þeirra og hagræði fyrir bæjarbúa. Þá tók sjálf póst- stjórmn við rekstri þeirra. Við fullveldistöku íslendinga 1. des. 1918 varð breyting á stjórn póstmála, og tóku íslend- ingar eftir það mestum hluta þeirra til sín úr höndum dönsku póststjórnarinnar. Um leið varð Sigurður Briem aðal- póstmeistari og svo póstmála- stjóri 1930. Hann lét af embætti 1935 fyrir aldurs sakir. Þá tóku gildi lög um sameiningu pósts og sima. Varð Guðmundur J. Hh'ðdal fyrsti póst- og síma- málastjóri, en hann hafði verið landsímastjóri frá 1931. Gegndi hann embætti til ársins 1956, er hann varð sjötugur. Þá tók við Gunnlaugur Briem, sonur Sig- urðar Briem, og sat hann i emb- ætti til 1971, er hann varð að Framhald á bls. 20 íslenzk póstlest Titílsíoa af pósttílskipuninm 1776 (prentuð 1C782)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.