Morgunblaðið - 13.05.1976, Page 35

Morgunblaðið - 13.05.1976, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976 35 Þrátt fyrir glæsilega tilburði tókst Ivan Curkovic ekki að verja þrumuskot Roths og Bayern hafði tekið forystuna 1 lO. SfmamyndAP Roth sá um aöBayern sigraði íþriðja skipti Bayern Munchen vann St. Etienne 1:0 í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða f Glasgow f gærkvöldi. Hefur Bayern Miinchen sigrað í þessari keppni þrjú ár f röð og hefur þvf jafnað met Real Madrid og Ajax frá Hollandi, en þessi félög unnu þessa keppni þrisvar f röð á sfnum tfma. Það var Franz Roth, sem skoraði eina mark leiksins á 57. mfnútu eftir aukaspyrnu við vítateig. (sjá mynd). Hefur Bayern Múnchen aldrei tapað úrslitaleik f bikarkeppni, hvorki heima fyrir né á alþjóðavettvangi. Það var fyrirliði Bayern MUn- chen Franz „keisari" Becken- bauer sem framkvæmdi auka- spyrnuna við vitateigslinuna og renndi knettinum út á Roth, sem sendi knöttinn viðstöðu- laust í gegnum varnarvegg Frakkanna og í netið. Auka- spyrnan var dæmd er brotið var á Gerd MUller, þeim mikla markaskorara og þó hann skor- Framhald á bls. 20 ÍSÍog UMFÍ gera samning við Ferða- miðstöðina: Möguleikar á allt að 50% ódýrari ferðum Guðmundur og Símon ngliðar í landsliðinu ÞEIR Guðmundur Þorbjörnsson Val og Símon Kristjáns- son Fram voru í gær valdir í 16 manna landsliðshóp í knattspyrnu en hvorugur þessara pilta hefur áður verið valinn til að leika landsleik. Guðmundur er 19 ára gamall og vakti mikla athygli í leikjum Vals í fvrra og þó enn meiri í nýafstöðnu Reykjavíkurmóti. Símon er 22 ára gamall og var valinn til að leika með pressuliðinu gegn landsliðinu í fyrrakvöld. Þar stóð hann sig svo vel að Tony Knapp landsliðsþjálfara fannst ekki stætt á öðru en að velja hann í landsliðshópinn. Annars er landsliðshópurinn að öðru leyti skipaður reynslumikl- um Ieikmönnum,-sem flestir hafa leikið með liðinu meira eða minna undanfarin 2 síðustu velgengnis- ár landsliðsins. Þó er Ásgeir Elíasson nú að nýju kominn f landsliðshópinn, en Ásgeir kom ekki nálægt landsliðinu í fyrra- sumar, en þá dvaldi hann á Ölafs- vík við þjálfun Víkings. Sá lands- liðshópur, sem fer til Noregs í næstu viku og leikur á Ullevál i Osló á miðvikudag, er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Árni Stefánsson Fram Sigurður Dagsson Val Aðrir leikmenn: Jón Pétursson Fram Ölafur Sigurvinsson IBV Jóhannes Eðvaldsson Celtic Marteinn Geirsson Fram Símon Kristjánsson Fram Ásgeir Elíasson Fram Ásgeir Sigurvinsson Standard Liege Gísli Torfason IBK Ólafur Júlíusson ÍBK Árni Sveinsson tA Guðgeir Leifsson Charleroi Teitur Þórðarson IA Matthias Hallgrímsson ÍA Guðmundur Þorbjörnsson Val. Með landsliðinu til Noregs fer landsliðsnefndin, en hana skipa Tony Knapp, Árni Þorgrímsson og Jens Sumarliðason og auk þeirra Hilmar Svavarsson stjórnarmaður í KSI. I viðtali við Tony Knapp í gær sagði hann að ekki væri enn ákveðið hverjir 11 hæfu leikinn í Noregi, en hann sagði að likur væru á að báðir nýliðarnir fengju að spreyta sig í leiknum. Þá sagði Knapp að Víkingurinn Stefán Halldórsson hefði örugglega verið í þessum hópi ef hann hefði ekki átt við meiðsli að stríða. Um Skagamanninn Jón Gunnlaugsson sagði Knapp að hann hefði ekki fundið pláss fyrir hann í þessum 16 manna hópi, ef valdir hefðu verið 17 leikmenn hefði Jón hins vegar verið inni. — Jón fær örugglega tækifæri með landslið- inu áður en sumarið er allt sagði Knapp. Guðmundur Þorbjörnsson, hinn 19 ára gamli nýliði í landsliðs- hópnum, sagði að það væri sér vissulega mikið ánægjuefni að vera kominn í landsliðshópinn. — Nú er næsta skrefið að komast í liðið sjálft, sagði Guðmundur. — Annars bjóst ég ekki við að verða valinn svo fljótt í landsliðshóp- inn, en að sjálfsögðu hefur maður stefnt að þessu, sagði Guðmundur, sem hafði ærna ástæðu til að vera ánægður í gær, því hann lauk nýlega prófum úr 5. bekk MR með mjög góðri einkunn. Aðspurður sagði Guðmundur að það væri mjög gaman að æfa með landsliðinu, andinn innan liðsins væri góður og honum hefði strax verið tekið eins og einum úr hópnum. tÞRÓTTASAMBAND Islands og Ungmennafélag tslands hafa ný- lega gert samning við Ferðamið- stöðina um vikulegar hópferðir félagsmanna til höfuðborga Norðurlandanna. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir allt að 50% afslætti frá gildandi far- gjöldum á hverjum tíma, miðað við 70 manna hóp. ISI og UMFl hafa undanfarið kannað leiðir til að lækka þann mikla ferðakostnað, sem meðlimir þessara samtaka þurfa árlega að greiða. Á grundvelli þeirra athug- ana var fyrrnefndur samningur við Ferðamiðstöðina gerður og nær hann yfir alla félaga innan íþrótta- og ungmennafélaganna, ekki aðeins keppnishópa. Enda Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFl, Sigurður Magnússon, skrifstofustjóri Isl, og Friðjón Sx-mundsson frá Ferðamiðstöðinni á blaðamannafundinum f gær. Víkingar bjóða Bobby Charlton í stutta heimsókn Vfkingar hafa nýlega ritað knattspyrnukappanum heimsfræga Bobby Charlton og boðið honum að koma hingað til lands f stutta heintsókn f sumar. Billy Haydock, þjálfari Vfkinga, er góðvinur Charltons og er það hans hugmynd að bjóða Charlton hingað til lands f sumar. Ef af komu kappans verður mun hann dvelja hér f 3—4 daga, ræða við yngri sem eldri leikmenn, halda fundi með þjálfurum og jafnvel stjórna æfingum. Bobby Charlton starfar nú við eigin ferðaskrifstofu og þess má geta að er Bill Haydock og Charlton ræddu saman um fyrirhugaða Islands- ferð þess fyrrnefnda, þá ráðlagði Charlton honum að fá sér jeppa er til Islands kæmi og ferðast á honum um landið. A þann hátt gæti hann bezt kynnst hinni stórbrotnu náttúru þessa lands, en Charlton kom hingað til lands fyrir nokkrum árum og afhenti verðlaun f samkeppni ungra knattspyrnumanna. þótt þessar ferðir séu bundnar við höfuðborgir Norðurlandanna geta ódýrar hópferðir einnig náð til annarra landa. Þá er að geta þess að skv. samn- ingnum býður Ferðamiðstöðin nokkur sæti í vorferðum til sólar- landa á vægu verði. Var bent á það á blaðamannafundi er þessi mál voru kynnt í gær að upplagt væri fyrir íþrótta- og ungmenna- félög að nota þessar ferðir sem vinninga á t.d. bingó-kvöldum. Sigurður Magnússon, skrif- stofustjóri ISl, sagði á blaða- mannafundinum f gær að þetta væri aðeins fyrsta skrefið i þá átt að auðvelda ferðalög hinna fjöl- mennu hópa á vegum íþrótta- og ungmennafélaga. Næsta skrefið yrði að gera ferðir innanlands ódýrari. Guðmundur Þorbjörnsson Val og Sfmon Kristjánsson Fram (t.h.) eru nýliðar f landsliðshópnum, en báðir stóðu þeir sig vel f pressuleiknum í Kaplakrika í fvrrakvöld. íslandsmet hjá Sigfúsi og Lilju TVÖ ný íslandsmet í frjálsum íþróttum litu dagsins ljós á geysisterku móti í Sochji vid Svartahg.f í gær og í fyrradag. Sigfús Jónsson bætti eldra met sitt í 10.000 metra hlaupi er hann hljóp þessa vegalengd á 30:10.0 og Lilja bætti metið í 1500 metra hlaupi er hún hljóp á 4:31,6. Sjálf átti Lilja eldra metið en það var 4:34.0. Er Morgunblaðið ræddi við Svavar Markússon, fararstjóra íslenzka hópsins, á keppnisstað í gærkvöldi, sagði hann að þó íslenzku keppendurnir Sigfús, Lilja og Ágúst Ásgeirsson hefðu staðið sig mjög vel miðað við árstíma þá hefði verið við algjört ofurefli að etja og ekkert þeirra hefði komist í milliriðla á mótinu. Ágúst Ásgeirsson keppti í 3000 metra hindrunarhlaupi á þriðjudaginn og hljóp vega- lengdina á 9:15.4, en aðstæður voru ekki sem beztar og árangurinn því ef til vill ekki eins góður og vænta hefði mátt. 1 gær keppti Ágúst síðan i 1500 m hlaupi og fékk timann 3:50.2, en bezt á hann á þessari vega- lengd 3:49,4. Lilja setti íslandsmet í 1500 metra hlaupi eins og áður er nefnt, en auk þess keppti hún í 800 metra hlaupi og reyndi þar við Ölympíulágmarkið i grein- inni. Hljóp hún á 2:12.5 min og verður ekki annað sagt en það sé allgott miðað við árstíma og lofi góðu fyrir sumarið, þó henni tækist ekki að ná lág- markinu að þessu sinni. Islenzku keppendurnir liáðu fyrir kveðjur heim. I.U.ia heldur til Svíþjóðar i dag. cn Ágúst og-Sigfús til Englands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.