Morgunblaðið - 13.05.1976, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
AUGLVSINGASÍMINN ER:
22480
JS*r0unl>Inbib
FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976
íslenzkir
tómatar á
markað í
næstu viku
„ÞAÐ ER aðeins dagaspursmál
hvenær nýir íslenzkir tðmatar
koma á markaðinn. Þeir verða
örugglega komnir I húðirnar f
næstu viku,“ sagði Þorvaldur Þor-
steinsson hjá Sölufélagi garð-
yrkjumanna, þegar Mbl. ræddi
við hann f gær.
Þorvaldur sagði að tómatarnir
kæmu nú heldur seinna á mark-
aðinn en venjulega. Þeir þyrftu
aðeins nokkra sólardaga til við-
bótar til að þroskast og ná rauða
litnum og þá væri hægt að setja
þá á markaðinn. Sölufélagið mun
fyrst um sinn fá tómata úr
Biskupstungunum, Hreppunum
og Borgarfirði.
Agúrkur komu á markaðinn
fyrir nokkru og sagði Þorvaldur
að góð sala hefði verið á þeim að
venju.
Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður:
Hluti af fé
sjóðsins á
vaxtaauka-
reikninga?
STJÓRN Atvinnuleysistrvgg-
ingasjóðs hélt fund f ga-r, þar
sem rætt var um hugsanlega
brevtingu á ávöxtun sjóðsins.
Að sögn Hjálmars Vilhjálms-
sonar, formanns sjóðsstjórnar,
var engin ákvörðun tekin á
fundinum.
Hjálmar sagði að til fundar-
ins hefði verið boðað vegna
þeirra breyttu viðhorfa, sem
skapast hefðu við tilkynningu
Seðlabankans um hækkaða
vexti á svonefndum vaxtaauka-
reikningum, en þeir bera sem
kunnugt er 22% vexti. Sagði
Hjálmar að til athugunar væri
að setja hluta af fé Atvinnu-
Ieysistryggingasjóðs inn á
slíka reikninga. Fé sjóðsins
mun nú nema tæpum 4
milijörðum króna og þar af er
allstór hluti bundinn í verð-
bréfum.
Nimrod-þota sveimaði í allan gærdag yfir brezku togur-
unum sem Ægir gerði sem mesta skráveifu á Vestfjarða-
Var Nimrod-þotan vopnuð eða ekki:
.. . . . .... . , Ljósmynd Ol.K.M.
miðum t gær, og einnig varðskipinu sem fylgdi togurun-
um eftir. Á myndinni sést Nimrod-þotan yfir Ægi.
„Ábyrgðarhluti að sinna
ekki hótun herflugvélar”
segir forstjóri Landhelgisgæzlunnar
Bretar gefa loðin svör um vopnabúnað þotunnar
„NIMROD-flugvélin er hervél og getur borið ýmis tæki og búnað, svo
og sprengjur, og það er þess vegna ábyrgðarhluti að verða fyrir hótun
frá slfkri vél um skotárás án þess að sinna henni,“ sagði Pétur
Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunar, vegna atburðarins út af
Vestfjörðum f gærmorgun. Varðskipið Ægir reyndi þar að taka togar-
ann Primellu H-98 og skaut föstu aðvörunarskoti f nánd við togarann
en flugmaður Nimrod-þotu skarst f leikinn með þvf að hóta að skjóta á
varðskipið ef það léti ekki af aðgerðum sfnum.
• Að sögn Péturs Sigurðssonar á
Landhelgisgæzlan til á segul-
bandi fjarskiptasamtal milli
foringja þotunnar og skipstjórans
á Primellu, þar sem foringinn
gefur skipstjóranum fyrirmæli
um að tilkynna varðskipinu, að
„við mundum skjóta" á varð-
Frumvarp um rannsóknarlögreglu:
Dómsmálaráðherra snuprar
þingnefnd fyrir seinagang
ÓLAFUR Jóhannesson dóms-
málaráðherra gagnrýndi störf
þingnefnda harðlega í ræðu, sem
hann flutti á Alþingi f gær og
taldi að þingnefndir væru allt of
seinvirkar við afgreiðslu mála.
Mál þetta spannst vegna ásakana
Sighvats Björgvinssonar f fyrra-
dag þess efnis, að allsherjarnefnd
neðri deildar kæmi ekki frá sér
mikilvægum málum. Var m.a.
rætt um frumvarp rfkisstjórn-
arinnar um rannsóknarlögreglu
og fram kom, að dómsmáiaráð-
herra hafði óskað eftir að frum-
varpið og fylgifrumvörp fengju
fullnaðarafgreiðslu á þessu þingi,
en nefndin hafði ákveðið að af-
greiða það í haust.
Ellert Schram, formaður alls-
herjarnefndar neðri deildar, svar-
aði ásökunum og sagði að ekki
væri gert ráð fyrir því að frum-
varpið, er orðið væri að lögum,
tæki gildi fyrr en 1. janúar 1977.
Kvað hann erfitt að ganga frá
frumvarpinu úr nefnd, nema
skoða fyrst athugasemdir og
ábendingar, sem komið hefðu frá
ýmsum aðilum, sem fjallað hefðu
um málið.
Við umræðurnar í þinginu í
gær kom fram, að þetta er í annað
sinn, sem Ólafur Jóhannesson
setur ofan í við þingnefndir fyrir
slakleg störf í málum, sem snertu
umbætur í dómsmálum og rann-
sóknum sakamála og væru þess
eðlis, að ekki mætti tefja þau í
meðferð þingsins umfram það
sem góðu hófi gegndi.
Þá kom það einnig fram í máli
þingmanna, sem stóðu upp til
þess að verja störf þingnefnd-
arinnar, að dómsmálaráðherra
hefði sjálfur óskað eftir um-
sögnum ýmissa og hefði málið
nokkuð tafizt hjá þeim aðilum. Þá
kvaðst einn þingmannanna, sem
starfað hefur í fjárveitinganefnd
hafa staðið að því í þeirri nefnd
að fækka í starfsliði löggæzlunnar
og kvaðst hann eiga erfitt með að
standa að fjölgun í starfsliði lög-
gæzlunnar í allsherjarnefnd.
Þannig kvað hann frumvörpin
stangast á.
skipið, ef það hleypti af fleiri
skotum á togarann. Varnarmála-
ráðuneytið brezka hefur hins
vegar í tilkynningum, sem það gaf
út í gærkvöldi, neitað því að
Nimrod-þotan sé vopnuð og að
foringinn á henni hafi haft í
hótunum um að skjóta á varð-
skipið. Hann hafi fyrst og fremst
verið að koma skilaboðum til skip-
stjórans á Primellu þess efnis að
skipstjórinn ætti að segja skip-
herra varðskipsins að hætta
áreitni við togarann ellegar
myndum „við“ skjóta. Með því
hafi hann átt við gagnaðgerðir
brezka flotans hér við land en
ekki átt við að hann myndi sjálfur
skerast í leikinn. Foringi Nimrod-
þotunnar hafi þannig fyrst og
fremst verið fjarskiptalegur
tengiliður milli togarans og
verndarflotans. Síðar hins vegar í
umræðum í brezka þinginu leiddi
flotamálaráðherrann hjá sér að
svara því hvort þotan hefði verið
vopnuð.
£ Ólafur Jóhannesson dóms-
málaráðherra hefur lýst því yfir
að þessi síðasti atburður í land-
helgisdeilu Islands og Bretlands
sé alvarlegs eðlis og að hann eigi
von á því að málið verði tekið
fyrir á fundi ríkisstjórnarinnar.
• Eftir þessar sviptingar úti af
Vestfjörðum héldu togararnir
sem voru í Víkurálnum fyrir
Vestfjörðum ýmist aftur til Græn-
lands, þaðan sem þau komu, eða
héldu suður með vesturströnd-
inni til móts við herskipið Lowes-
toft og birgðaskipið Blue Rover,
sem haldið höfðu af verndarsvæði
brezka flotans fyrir Suðaustur-
landi togurunum til aðstoðar.
Þegar Morgunblaðið flaug yfir
skipin f gærkvöldi rak varðskipið
Ægir þar á undan sér togarann
Volecus GY—188 og Primellu og
var stöðugt með klippurnar úti en
Nimrod-þotan sveimaði stöðugt
yfir þeim. Var von á þriðju Nim-
rod-þotunni þennan daginn til að
taka við vaktinni af þeirri sem nú
hélt vörðinn. Skipin voru þá
stödd um 20 mflur suðvestur af
Malarrifi en herskipið Lowestoft
var komið út af Meðallandsbugt.
Herskipið og togararnir áttu að
hittast um miðnætti.
Hér fer á eftir fréttatilkynning,
sem Landhelgisgæzlan gaf út um
atburðinn um miðjan dag í gær:
Eins og fram hefur komið í
fréttum varð vart við brezka tog-
ara að ólöglegum veiðum í Víkur-
Framhald á bls. 20
Stálu sam-
skotabauk
kirkjunnar
RANNSÖKNARLÖGREGLAN
hefur nú til rannsóknar
nokkra bflþjófnaði, sem ungl-
ingspiltar hafa framið á sfð-
ustu dögum. Inn f þetta
fléttast fleiri afbrot umræddra
pilta. Meðal annars brutust
þeir inn f Langholtskirkju f
vikunni og höfðu á brott með
sér samskotabauk kirkjunnar.
Innihaldinu eyddu þeir f
sígarettur, sælgæti og eitthvað
fleira.