Morgunblaðið - 05.06.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JUNI 1976
Listahátíð í
Norræna húsinu:
Gaman og
alvara frá Færeyjum
Úr slðustu sýningu Sjónleikarhússins f Þórshöfn, atriði úr f
hvaóa kápu á ég að fara. pabbi? eftir Jens Pauli Heinesen. Frá
vinstri Oliver Næss, Sverrir Egholm og Annika Hovdal.
Listahðtíð
ÍJ 1976
A Listahátíðinni verða tvö
færeysk kvöld I Norra*na hús-
inu, en þar munu leikararnir
Annika Hoydal, Eyðun
Johannessen og Finnbogi
Johannesen gítarleikari
skemmta með flutningi skáld-
skapar í bundnu máli og
óhundnu, gamalt og nýtt efni,
gaman og alvara, sem lýsir
menningarsögu og nútlmalífi
F'æreyinga.
Þremenningarnir sem f'lytja
færeyska efnið eru komnir
hingað óg við hittum þau að
máli vestur á Grenimel 24 þar
sem þau húa.
Þetta er efni frá mörgum höf-
undum, sögðu þau í spjalli við
blaðamann Morgunblaðsins, en
við höfum sett þessa dagskrá
saman. Þetta verður í nokkurs
konar kaharettformi. mikið af
söngvum, ljóðum, gamni og
alvöru og hluta úr nýjum leik-
ritum munum við flytja, en alls
verður dagskráin um l’A tími i
flutningi. Þetta er aiveg ný dag-
skrá og frumflutt á Lístahátið-
inni, en mögulega flytjum við
hana einnig heima i Færeyjum
á Ólafsvökunni.
Annar leikþátturinn sem við
flytjum er úr nýju leikriti eftir
Steinbjörn Jacobsen, Skipið
heitir það og fjallar um nútima
sjómannslíf um borð í skipi, en
hinn þátturinn er úr leikriti
Jens Pauli Heinesen rithöf-
undar og það heitir Hvönn
stakkin skal ég fara í, papí? — I
hvaða kápu á ég að fara í,
pabbi?
Þá tökum við stuttan þátt um
gesti á Ólafsvöku, en í því sam-
bandi kemur ýmislegt spaugi-
legt og framandi upp. Annars
er góður húmor i Færeyjum um
þessar mundir og við drögum
eitthvað dám af þvi.
Þá spurðum við Eyðun leik-
hússtjóra í Þórshöfn að því
hvað væri helzt að frétta úr
leiklistarlífi Þórshafnar.
Við eigum afmæli á þessu ári,
sagði Eyðun, það eru 50 ár liðin
frá því að Sjónleikarhúsið var
opnað og af því tilefni fáum við
í heimsókn leiksýningar frá öll-
um Norðurlöndunum. Þjóðleik-
húsið kom í april, Lilla Teatern
frá Finnlandi er i Þórshöfn á
leið til Islands. I tilefni af-
mælisins frumsýndum við í vet-
ur nýtt leikrit eftir Jens Pauli
Heinesen, tveggja tíma leikrit,
sem atriði verður sýnt úr á
Listahátíð í Reykjavík. Þá vann
hópur leiklistarnema í Þórs-
höfn saman að uppsetningu
leikrits í vetur og var rauði
Annika Hoydal I hlutverki í
leikriti Jens Pauli I Þórshöfn.
þráðurinn í því efni í tilefni
kvennaárs, enda hét verkið
Ósæmandi. Það var sýnt í apríl
í Þórshöfn og verður væntan-
lega sýnt einnig á Ólafsvöku.
Þá er einnig á dagskrá hjá
Sjónleikarhúsinu að frumflytja
nýtt verk í haust í tilefni
afmælisins, en það mun fjalla
um bæjar- og mannlífssögu
Þórshafnar í gamni og alvöru.
Höfundur þessa verks er Eyð-
un, en hann vinnur nú að samn-
ingu þess, en Eyðun er fjölfróð-
asti og reyndasti leikhúsmaður
Færeyja, leikhússtjóri,
sviðsmaður hefur hann verið,
leikstjóri, leikari, leiktjalda-
málari og nú síðast höfundur.
Eyðun kvað vanta tilfinnan-
lega góða leikhúsaðstöðu í Þórs-
höfn, en úr því myndi sennilega
rætast á næstu árum, því ákveð-
ið væri að byggja þar Norrænt
hús og yrði á næstunni sam-
keppni um teikningar af hús-
inu, en jafnframt væri ákveðið
að halda áfram með grunnbygg-
ingu Sjónleikarhússins í Þórs-
höfn og ljúka því eins fljótt og
unnt væri þannig að í sjónmáli
eru tvö góð leiksvið í Þórshöfn.
— á. j.
A Grenimelnum f góða veðrinu: Frá vinstri: Eyðun Johannessen, Annika Hovdal og Finnbogi
Johannesen.
Helgi Tómasson og mótdansari hans Anna Aragno komu i Keflavtkurflug-
völl f gærmorgun I roki og rigningu. svo erfitt reyndist að hemja
blómvóndinn frá listahátiSarnefnd. sem móttókustjórinn Geirlaug Þor-
valdsdóttir færði þeim við flugvélina. Ljósm. Emilía.
Rok og
rigning
mætti
balletdöns-
urunum
— Það er alltaf gaman að fá tækifæri til að koma heim, en
það er bara alltof sjaldan, sagði Helgi Tómasson, balletdansari
er hann steig út úr flugvélinni i rokið og rigninguna á
Keflavíkurflugvelli í gær. Balletdansmærin Anna Aragno, sem
dansar á móti honum í Þjóðleikhúsinu, átti sýnilega fullt í fangi
með að hemja balletkjólpokann sinn, sem rokið þreif i eins og
segl.
Helgi sagði að i þetta sinn hefði verið erfitt að koma þvi við
að dansa á listahátíð, þar sem svo mikið er að gera hjá New
Þessi mynd var tekin nýlega, þegar Helgi Tómasson var að æfa nýjan
ballett eftir Jerome Robin við tónlíst eftir Leonard Bernstein, en höfund-
amir eru fyrir aftan hann á myndinni.
York City ballettinum og hann verður að fara aftur strax á
mánudag. Nú er tveggja mánaða sýningar með hefðbundinni
sýningarskrá, en i júli fer flokkurinn að venju til Saratoga. En
eftir það kvaðst Helgi fara á eigin vegum til Spánar og
Frakklands, þar sem hann mun dansa á móti Violet Verdi sem
aðaldansari með ballettflokki
Spurður um nýja balletta, sem Robbins og Ballanshine voru
að semja fyrir N.Y City Ballet, sagði Helgi að einn ballett
Ballanshine væri kominn fram, „Union Jack,,", sem settur
hefði verið upp í tilefni 200 ára landnámsafmælis Bandartkj-
anna. Þetta er ballet fyrir 70 dansara flokk og dansar
Helgi þar hlutverk.
Helgi kvaðst vera búinn að ná sér eftir meiðsli.i fæti og
slæmsku í baki, sem gerði það að verkum að hann þurfti að
vera frá dansi um tíma.
Anna Aragno, sem er ítölsk að uppruna og hefur verið
sólódansari við Metropolitan óperuna sagði fréttamanni Mbl á
flugvellinum að hún hefði getað komið til íslands og dansað á
móti Helga, þegar hann bað hana um það, vegna þess að hún
hefði losað sig úr föstu starfi þar eð hún á nú tvær litlar
dætur. Hún er gift óperubassasöngvaranum fræga Justion
Diaz. Hún dansar þó víða í Ameríku og fer í sýningarferðir,
dansar mest á móti Fdmund VHIa
Þau Helgi og Anna Aragno sögðu að báðir „tvídansarnir,"
sem þau dansa í sýningunum á laugardags- og sunnudags-
kvöld séu hefðbundnir dansar, sem þau oft sýni og séu því i
æfingu, en þeir eru úr Hnetubrjótnum við tónlist Tchaikovskys
og Don Quiquote við tónlist Leons Minkusar. Þannig var hægt
að koma því við að skreppa til íslands um helgi til að dansa á
listahátíð