Morgunblaðið - 05.06.1976, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1976
Hagnaður SIS
136 millj. króna
18,8 millj. kr. tap af kaupfélögunum
TEKJUAFGANGUR af rekslri
Sambands ísl. samvinnufélaga á
sl. ári nam kr. 235,7 milljónum
króna en endanleg nióurslaóa
rekstrarreiknings varó hagnaóur
aó fjárha-ó 136,1 milljón króna.
Rekslrarkoslnaóur ha-kkaói á
árinu um 977,3 millj. króna mió-
aó vió árið 1974 eða um 41,7%.
Ileildarvelta Sambandsins 1975
nam 22.189 millj. króna og jókst
um 7.116 millj. frá árinu á undan
eða um 47,2%. Fastráðnir starfs-
menn Sambandsins voru í árslok
1537.
Starfandi Samhandsfélög voru í
árslok 44. og fjöldi félagsmanna
þeirra var 39.779 eóa um 18,4%
þjóðarinnar. Heildarvelta félag-
anna nam 32.276 millj. kr. og
hafðí aukizt um 46% frá fyrra ári.
A árinu sýndu 26 þessara félaga
hagnað samtals að upphæð 69,4
millj. kr. en 17 félög sýndu halla
rekstrarfjárþörf hændanna væri
miklu meiri en rekstrarlán þeim
til handa. Þetta hil hefðu kaup-
félögin reynt að hrúa, sem aftur
leiddi til þess, að skuld þeirra við
Samhandið yrði meiri. Ef tekið
væri meðaltal átta mánaða tíma-
hils, mars-október, síðustu tvö ár-
in, væri fjárbinding kaupfélag-
anna hjá Sambandinu 422 millj.
kr. 1974 en 752 millj. kr. 1975.
Meðalfjárbinding hækkaði um
330 millj. kr. eða um 78% frá 1974
til 1975.
I lok ræðu sinnar vék Erténdur
Einarsson að þróun efnahagsmála
hér á landi og kvað vart fara á
milli mála, að viðsjárverðir tímar
væru framundan í þeim efnum.
Allir væru sammála um, að undir-
rót efnahagsvandans væri öhófleg
verðbólga, en ekki hefði reynzt
unnt að'sameina þjóðina um leiðir
til að halda henni í skefjum.
P? i'L/t1 £ Tyi v'3 I
* r f8> s' r * þr'IUtO f
’4 ítl
að upphæð 88,1 míllj. kr. Var því
halli allra félaganna 18,8
milljónir kr en afskriftir þeirra
nema 228 millj. króna. Verzlanir
félaganna voru alls 199 í árslok,
þar af 106 kjörbúðir og starfs-
menn þcirra voru 2631. Heildar-
launagreiðslur þeirra til
verzlunar- og skrifstofufólks
námu 1.267 milljónum króna,
hækkuðu um 298 milljónir króna
á árinu eða um 31 %.
Þetta kom fram á aðalfundi
Sambands ísl. samvinnufélaga
sem haldinn var að Bifröst í
Borgarfirði á fimmtudag og föstu-
dag, og er gert ráð fyrir að
fundinum ljúki siðdegis í dag.
Fundinn sækja um 100 fulltrúar
rúmlega 40 Sambandsfélaga.
Eysteinn Jónsson, formaður Sam-
bandsstjórnar, setti fundinn og
Ágúst Þorvaldsson var kjörinn
fundarstjóri. 1 skýrslu Erlends
Einarssonar forstjóra um rekstur-
inn kom fram að þrátt fyrir að
árið hafi verið atvinnurekstri að
mörgu leyti erfitt, hafi tekist að
halda rekstri Sambandsins vel í
horfinu og afkoman i heild hafi
verið nokkru betri en árið áður.
Heildarveltan sem áður er getið
skiptist þannig niður á einstakar
deildir Sambandsins: Sjávar-
afurðadeild var með 6.456 millj.
kr. veltu, innflutningsdeild 5.336
millj. búvörudeild 4.312 millj.,
Iðnaðardeild 3.054 millj., Véla-
deild 1.782 millj., Skipadeild 867
millj og smærri starfsgreinar 382
millj.
I yfirlitsræðu sinni minntist
Erlendur Einarsson m.a. á. hve
árstíðasveifla í stöðu kaupfélag-
anna við Sambandið væri mikil og
yrði sífellt erfiðara vandamál. Or-
sakir þessarar sveiflu væru fyrst
og fremst fólgnar í því, að
Launastéttirnar þyrftu að gera
sér glögga grein fyrir því, að í
verðbólgu á borð við þá, sem hér
hefði ríkt, ætti sér stað gifurleg
eignatilfærsla í þjóðfélaginu.
Þetta ástand skapaði einmitt þá
miklu hættu, að þeir ríkú sem
eiga miklar fasteignir verði
ríkari, en hinir fátæku sem eiga
litlar eða engar fasteignir verði
fátækari. Segja mætti, að verð-
bólgan væri markvisst að grafa
undan velferðarþjóðfélagi okkar.
Eriendur lagði áherzlu á, að þeir
sem stjórnuðu efnahagsmálunum
mættu ekki gefast upp við að
finna leiðir til að hafa hemil á
verðbólgunni. Hætta væri á, að
menn sigldu værukærir ofan á
verðbólgusjónum og ráðstafanir í
efnahagsmálum miðuðust við það,
að þjóðfélagið laðaði sig að mikilli
verðbólgu í stað þess að draga úr
henni.
Að loknum skýrslum Eysteins
Jónssonar, stjórnarformanns, og
Erlends Einarssonar forstjóra var
tekið til meðferðar aðalumræðu-
efni fundarins — Atvinnulýðræði
og hafði Axel Gislason, fram-
kvæmdastjóri skipulags- og
fræðsludeildar, framsögu um það.
Skiptar skoðanir reyndust vera
meðal fundarmanna um atvinnu-
lýðræði og gildi þess en samþykkt
var ályktun sambandsstjórnar um
að heimilt skuli að veita tveimur
fulltrúum starfsmanna sæti á
stjórnarfundum með málfrelsi og
tillögurétti. Þá voru samþykktar
ályktanir um nauðsyn nýrrar
stefnu varðandi rekstrarlán land-
búnaðarins og öfluga sókn gegn
verðbólguvandanum.
Stjórn Sambandsins skipa nú:
Eysteínn Jónsson, Valur Arnþórs-
son, Ölafur E. Ólafsson, Olafur
Sverrisson, Ragnar Ólafsson og
Þórarinn Sigurjónsson.
Úr Sturlungu, Flugumýrarbrenna.
Sumarsýning opnuð
í Ásgrímssafni
MANUDAGINN 7. júní, 2. dag
hvítasunnu, verður hin árlega
sumarsýning Ásgrímssafns
opnuð, og er hún 43. sýning
safnins síðan það var opnað al-
menningi árið 1960.
Sýning þessi er yfirlitssýn-
ing, nær hún yfir 60 ára tíma-
bil. Eru þá m.a. hafðir í huga
erlendir gestir sem safnið
skoða á sumrin. Skýringartexti
á ensku fylgir hverri mynd.
Nokkrar af myndum safnsins
eru nú sýndar í fyrsta sinn i
húsi Ásgríms Jónssonar, vatns-
litamyndir og nokkrar teikning-
ar i heimili hans, oliumyndir í
vinnustofunni.
Asgrímssafn hefur látið
prenta kynningarrit á ensku,
dönsku og þýzku um Ásgrim
Jónsson og safn hans. Einnig
kort í litum af nokkrum lands-
lagsmyndum í eigu safnsins
ásamt þjóðsagnateikningum.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, verður opið alla daga i júní,
júlí og ágúst, nema laugardaga,
frá kl. 1,30—4. Aðgangur er
ókeypis.
Leiklistarskóli íslands
útskrifar 11 nýja leikara
LFIKLISTARSKÓLA lslands var
slitið sl. mánudag og voru þá
brautskrártir frá skólanum 11 ný-
ir leikarar. Fru þart fyrstu nem-
endurnir, sem skólinn brautskrá-
ir, en ails voru nemendur skólans
í vetur 42 í 4 bekkjardeildum.
Nemendurnir, sem nú útskrifurt-
ust eiga art baki fjögurra vetra
nám i leiklist en námirt hófu þeir
í leiklistarskólanum SÁL og fóru
sírtan í Leiklistarskóla Islands,
þegar hann var stofnaður.
I vetur hafa hinir nýju leikarar
starfað í svokölluðu Nemenda-
leikhúsi og færðu þeir upp leikrit-
ið Mjólkurskógur og þann 20.
þessa nánaðar frumsýna þeir nýtt
leikrit, Undir Suðvesturhimni.
Texti þessa nýja leikrits er eftir
Sigurð Pálsson og annast hann
jafnframt uppfærslu verksins.
Tónlistina hefur Gunnar Reynir
Sveinsson samið.
Skólastjóri Leiklistarskólans,
Pétur Einarsson, sagði i samtali
við Mbl. að mjög brýnt væri að
finna lausn á húsnæðismálum
skólans fyrir næsta skólaár. í vet-
ur var skólinn til húsa í húsnæði
því, sem Fósturskólinn hafði áður
til umráða í gamla Búnaðarfélags-
húsinu við Lækjargötu. Húsnæði
þetta er mjög hljóðbært auk þess,
sem það hentar illa þar sem
kennslustofurnar eru of litlar.
Pétur sagði það von sina að finna
mætti lausn á þessum málum fyr-
ir næsta vetur. Kennarar við skól-
ann i vetur voru fjórtán en aðeins
einn starfsmaður, skólastjórinn,
er fastráðinn. Nýir leikarar hafa
ekki útskrifast frá leiklistarskóla
hér á iandi síðan árið 1972<
Færeyjaferð-
ir Norræna
félagsins
NORRÆNA félagið efnir til
fjögurra Færeyjaferða í sum-
ar. Farið verður héðan 27.
júní, 11. og 25. júli og 8. ágúst.
Fargjaldið er 16.900 krónur,
en þátttakendum er einnig séð
fyrir gistingu á farfuglaheim-
ili, tveimur máltíðum á dag og
skoðunarferðum um eyjarnar.
Kostar það 800 færeyskar
krónur fyrir vikuna. Þátttak-
endur geta dvalið á eyjunum í
hálfan mánuð og er þá síðari
vikan óskipulögð og frjáls.
Ferðirnar innan eyjanna
verða þannig að farið verður í
bilum um Straumey og Austur-
ey, siglt til Klakksvíkur og gist
þar eina nótt, síðan verður far-
ið þaðan til Viðeyjar um jarð-
göng sem samtals eru á fjórða
km. löng. Þá verður heilsdags-
ferð til Sandeyjar, siglt þangað
en ekið í bílum um eyjuna og
loks verður farið í siglingu til
Nolseyjar.
Þátttakendur þurfa að hafa
með sér svefnpoka eða annan
útbúnað til að sofa við.
Þeir sem hafa huga á að taka
þátt í ferðinni 27. júní þurfa að
bregða skjótt við og panta far
strax, aðrir hafa aðeins meiri
umhugsunarfrest.
Nýútskrifaðir leikarar frá LeiklLstarskóla tslands ásamt Pétri Einars-
syni skólastjóra (lengst til vinstri á mvndinni).