Morgunblaðið - 05.06.1976, Page 35
— Afmæli
Þórður . . .
Framhald af bls. 19
Hann hefur verið mjög traustur
og ábyggilegur rafverktaki, sem
sést m.a. á því að mörg fyrirtæki
hafa skipt við hann árum eða
jafnvel áratugum saman. Þetta
allt hefur leitt tíl þess að Þórður
hefur oftast verið með eitt af
stærstu rafverktakafyrirtækjum
landsins.
Þórður hefur verið lánsamur á
fleiri sviðum en hvað atvinnu-
rekstur snertir. Hann á ágæta
konu, Ingibjörgu Jónsdóttur. sem
hefur búið honum bráðmyndar-
legt heimili og þau hafa átt barna-
láni að fagna, eiga tvö uppkomin
börn. Elisabetu menntaskóla-
kennara og Örlyg, lögfræðing og
rafvirkja, er starfar nú sem fram-
kvæmdastjóri hjá Samb. ísl. raf-
veitna.
En þrátt fyrir mikil umsvif i
atvinnurekstri hefur Þórður gefið
sér tíma til ýmissa annarra hluta.
Hann hefur gerzt víðreistur er-
lendis og flestar beztu laxveiðiár
landsins hefur hann sótt heim.
Þeir munu vera ótaldir laxarnir
er hann hefur dregið á land.
Hann hefir verið mikill skóg-
ræktarmaður, eins og sést bezt á
svæðinu við Hafravatn, ér hann
ásamt bróður sinum hefur ræktað
upp.
Þá eru ótaiin félagsmálin. til-
efni þessarar afmæliskveðju er
einmitt að þakka honum öll þau
störf, er hann hefur unnið f.vrir
rafverktakasamtökin. Hann sat i
stjórn og varastjórn Lands-
sambands fsl. rafverktaka yfir 20
ár, lengi sem gjaldkeri. Einnig
hefur hann gegnt mörgum öðrum
trúnaðarstörfum, bæði íyrir
F.L.R.K. og L.Í.R. Um fjölda ára
hefur hann verið fulltrúi F.L.R.R.
á aðalfundum Vinnuveitendasam-
bands íslands. Þá mun hann hafa
verið í stjórn Rafvirkjadeildar-
innar h.f. frá upphafi.
Eg vil færa Þórði beztu kveðjui
og þakkir Rafverktakasamtak
anna, fyrir öll hans störf í þeirrs
þágu. Eg sjálfur vil þakka Þörði
góða viðkynningu, ég hef ósjaldan
leitað ráða hjá honum, þegar
vandleyst mál hafa komið upp í
félagsmálunum. Þá hefur verið
gott að koma til hans og ræða
málin yfir kaffibolla hjá honum
og Ingibjörgu konu hans.
Eg býst ekki við að Þórður færi
mér neinar þakkir fyrir að hlaupa
í blöðin með þessa kveðju, en það
verður þá að hafa það. Vonandi
fyrirgefur hann það, þótt sfðar
verði
Eg veit það verða margir er
vilja taka í hönd Þórði í dag, og
óska honum gæfu og gengis.
Við hjónin sendum þér, Þórður,
og þinni konu okkar beztu árnað-
aróskir á þessum merku timamót-
um ævi þinnar.
Gunnar Guðniundsson.
noiei
»
Akranes
Rabsodía
II. í hvítasunnu
Opið til kl. 1.
ALLAR VEITINGAR.
Fjörið verður
á hótelinu
í kvöld
AUGI.ÝSINGAS1M1NN ER:
22480
JtUrgunblatiU)
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JUNl 1976
35
Tónabær Tónabær
JlEXICD
leikur í Tónabæ 2. í hvítasunnu
ARMANN
INGÓLFS-CAFÉ
GÖMLU DANSARNIR í KVÖLD
HG-KVARTETTINN LEIKUR
SÖNGK. MATTÝ JÓHANNS
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 7. Sími 12826.
GÖMLU DANSARNIR
II. Hvítasunnudag kl. 9
Söngvari Gunnar Páll.
BINGÓ
II Hvítasunnudag kl. 3.
TJARNARBÚÐ
Hljómsveitin Eik leikur annan
í hvítasunnu
frá kl. 9 — 1.
Aldurstakmark 20 ár. Munið nafnskirteinin.
Paradís
Annan í hvítasunnu
LEiKHusKjniLnRinn
leika fyrir dansi til kl.
11.30
Borðapantanir i sima 19636.
Kvöldverður frá kl. 18.
Spariklæðnaður áskilinn
18936
SIMI
Frumsynir 2 i Hvitasunnu
Stórmyndina
Funny lady
Afarskemmtileg heimsfræg amerísk stórmynd í
litum og Cinema Scope. Með úrvalsleikurun-
um: _ ,
Barbara Streisand,
Omar Sharif,
James Caan
Sýnd kl. 6 og 9
Ath breyttan sýningatíma
Austurbæjarbíó
Frumsýnir:
NJÓSNARINN ÓDREPANDI
Jean-Paul Belmondo — Jacqueline Bisset
fslenskur texti
Sýnd á annan i hvitasunnu kl. 5, 7, og 9.