Morgunblaðið - 05.06.1976, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JUNl 1976
47
Ian Ure hvatti sína menn til dáða gegn Þrótti í
gærkvöldi, FH sigraði 2:0.
Fjórði tapleiknr Þrótt-
ar — nú 0:2 gegn FH
UTLITIÐ er ekki gæfulegt hjá Þrótturum eftir að þeir hafa leikið 4
leiki í 1. deildinni, töpin eru orðin jafn mörg og leikirnir og Þróttarar
hafa fengið á sig nfu mörk, en aðeins skorað tvívegis. I gærkvöldi
tapaði Þróttur fyrir FH með engu marki gegn tveimur og voru þau
úrslit sanngjörn eftir gangi leiksins. Nýliðunum tókst sjaldan að skapa
sér marktækifæri en áttu hins vegar nokkur góð langskot. FH-liðið óð í
„sjensum“, eins og sagt er, á tímabili í fyrri hálfleiknum en tókst ekki
að skora úr helmingi marktækifæra sinna.
Fyrra mark leiksins kom á 9.
mínútu leiksins eftir að Viðar
Halldórsson hafði gefið frábæra
sendingu á Ólaf Danívalsson upp
kantinn. Sumir sögðu að visu að
Ólafur hefði verið rangstæður, en
hvað með það, hann gaf knöttinn
fyrir markið og þar var hart
barist. Jóni Þorbjörnssyni tókst
ekki að halda knettinum þó hann
hefði hendur á honum og að lok-
um batt Magnús Teitsson endi á
baráttuna við markteiginn með
því að senda knöttinn í netið.
Siðara mark sitt í leiknum skor-
uðu FH-ingar þegar aðeins 4 mín-
útur lifðu af leiktímanum. Ólafur
Danívalsson átti mestan heiður-
inn af þvi marki. Hann gaf fasta
sendingu frá endamarkalínu fyrir
markið og eftir að þremur FH-
ingum hafði mistekizt, tókst Jó-
hanni Ríkharðssyni loksins að
koma knettinum í netið. Hvað
varnarmenn Þróttar voru að
hugsa þarna er ekki gott að vita.
Þróttarliðið er lið sem á að geta
leikið mun betur en það gerði í
gærkvöldi og sömuleiðis í flestum
öðrum leikjum liðsins í mótinu,
en það sem vantar helzt i leik
liðsins er betra leikskipulag. Ekki
vantar viljann og auk þess eru
sumir leikmenn liðsins bráðlagnir
með knöttinn en það er bara ekki
nóg, auk þess sem reynsluleysið
háir liðinu mjög. FH-ingarnir
Jóhann, Leifur og Ólafur áttu all-
ir góð tækifæri í þessum leik,
tókst þó ekki að nýta þau. Það
skipti þó ekki sköpum í þessum
leik því tvívegis kom FH-liðið
knettinum i net andastæðingsins.
I stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild. Laugar-
dalsvöllur 4. júní.
Þróttur — FH 0:2 (0:1).
Mlörk FH: Magnús Teitsson á 9.
mínútu og Jóhann Ríkharðsson á
86. inínútu.
Áminning: Jóhanni Hreiðars-
syni var sýnt gula spjaldið í leikn-
um.
—áij.
LIÐ ÞRÓTTAR: Jón Þorbjörnsson 2, Ottó Hreinsson 2, Gunnar
Ingvarsson 1, Leifur Harðarson I, Guðmundur Gíslason 2, Erlend-
ur Björnsson 1, Daði Harðarson 1, Þorvaldur Þorvaldsson I,
Baldur Hannesson 1, Jóhann Hreiðarsson 2, Sverrir Brvnjólfsson
2, Halldór Arason (varam.) 1.
LIÐ FH: Ómar Karlsson 2, Viðar Halldórsson 2, Andrés Krist-
jánsson 2, Gunnar Bjarnason 2, Janus Guðlaugsson 2, Magnús
Teitsson 1, Helgi Ragnarsson 2, Pálmi Sveinbjörnsson 1, Leifur
Helgason 2, Ólafur Danivalsson 3, Asgeir Arinbjarnarson
(varam.) 1.
DÓMARI: Ragnar Magnússon 2.
Bergur og Jóhann
hcetta í stjórn HSÍ
ÁRSÞING Handknattleikssam-
bandsins verður haldið 18. og 19
1. deild
kvenna
BREIÐABLIK gerð jafntefli
við Islandsmeistara FH I 1.
deild kvenna í knattspyrnu I
fyrrakvöld. Urslitin urðu 0:0
og voru þau úrslit nokkuð
sanngjörn eftir atvikum. UBK
sótti meira undan vindi f fyrri
hálfleiknum og átti þá m.a. tvö
skot I slá. 1 seinni hálfleiknum
sótti FH meira en gekk illa að
skapa sér marktækifæri.
A sunnudaginn lék Fram
gegn Víði úr Garði og sigruðu
Vfðisstúlkurnar 4:3 eftir
mikinn baráttuleik.
þessa mánaðar og meðal mála sem
væntanlega verða lögð fyrir þing-
ið má nefna fjölgunartillögu i 1.
og 2. deild eins og frá hefur verið
greint f Morgunblaðinu.
Þrír stjórnarmenn eiga að
ganga úr stjórninni á þinginu,
þeir Jón Magnússon, Bergur
Guðnason og Jóhann Einvarðs-
son. Mun Jón ætla að gefa kost á
sér til endurkjörs, en þeir Bergur
og Jóhann hins vegar ekki.
Jóhann telur sig ekki hafa þann
tíma sem hann óskaði til að sinna
stjórnarstörfum í HSl og vill því
heldur hætta en sitja áfram.
Bergur Guðnason mun hins
vegar vera óánægður með ýmis-
legt innan stjórnarinnar og þá
einkanlega framvindfu mála í sam-
bandi við landsliðið og þjálfara-
málin.
Aukin samskipti kylfinga
við erlenda félaga sína
ÍSLENZKIR kylfingar munu í sutnar taka þátt í fleiri mótum á erlendri grundu
en oftast áður, jafnvel þó Golfsambandið sjái sér ekki fært að taka þátt i
Evrópumeistaramóti unglinga í sumar eins og undanfarin ár. Núna 19. og 20. júní
bjóða Svíar tveimur Islendingum til Kalmar í Svíþjóð þar sem sterkir kvlfingar,
áhugamenn, frá átta löndum að minnsta kosti verða meðal keppenda. Ekki er
fullákveðið hverjir verða fulltrúar tslands í þessari keppni, en ekki er ólíklegt að
íslandsmeistarinn Björgvin Þorsteinsson verði annar þeirra.
Af þátttöku Islendinga í öðr-
um mótum erlendis má nefna
að ísland og Luxemborg munu
heyja landskeppni i golfi ytra 3.
og 4. júlí. íslendingar hafa
aldrei unnið Luxemborg í
landskeppni fullorðinna, en
hins vegar nokkrum sinnum í
unglingaflokki. Þá hefur Golf-
sambandinu verið boðið að
senda þátttakendur á Eisen-
howermótið, sem fer fram i
Portúgal í október. Kostnaður
er mikill við þessa keppni, sem
segja má að sé Olympíukeppni
golfmanna, en stefnt er að því
að senda landsliðið í keppnina.
en sennilega verða þeir sem
fara að greiða nokkurn hluta
kostnaðar sjálfir.
Norðurlandamótið í golfi fer
að þessu sinni fram í Stafangri
í Noregi í byrjun september og
verður spennandi að sjá hvað
þar gerist. Síðasta Norður-
landamót var haldið hér á landi
og segja má að þar hafi allir
orðið sigurvegarar! Norðmenn
urðu Norðurlandameistarar —
í fyrsta skipti. Danir unnu Svía
— í fyrsta skipti á Norður-
landámóti. Sviar áttu leikmann
sem setti vallarmet. Islending-
ar unnu Finna — í fyrsta skipti.
Og loks áttu Finnar svo leik-
mann sem sló holu í höggi. I
sambandi við Norðurlandamót-
ið fer væntanlega fram lands-
keppni á milli Islendinga og
Finna að Norðurlandamótinu í
Stafangri loknu.
Stjórn Golfsambandsins
efndi til fundar með frétta-
mönnum i gær þar sem þessar
lýsingar komu fram og greint
var frá helztu mótum innan-
lands i sumar. Landsmótið í
golfi fer fram í Grafarholti í
býrjun ágúst, en í sambandi við
það verður í fyrsta skipti haldið
sérstakt mót fyrir yngri kylf-
ingana i byrjun júlí. Fer það
mót á Nesvellinum, en þau
sterkustu í yngri flokkunum,
sem hafa forgjöf 7 eða minna,
geta eftir sem áður keppt með
þeim fullorðnu.
I sumar verður i fyrsta skipti
efnt til „Opins islenzks meist-
aramóts" (Icelandie Open). Fer
mót þetta fram í seinni hluta
ágústmánaðar. Er meiningin í
framtiðinni að á mót þetta mæti
erlendir kylfingar auk ís-
lenzkra meistaraflokksmanna,
sem sennilega verða einir um
hituna i sumar.
Mótabók Golfsambandsins
kom út i gær og eru þar golf-
klúbbarnir 9 kynntir. Yngsti
golfklúbburinn er klúbbur Esk-
firðinga, en í Vik í Mýrdal er
unnið að stofnun golfklúbbs.
Skrá er yfir mót sumarsins i
bókinni, helztu viðburða siðasta
árs er getið og fleira mætti
Framhald á bls. 26
Ég óska eftir Breyt yfirferð og Nafn_____________________________________________
stillingu. Látið Breytbílinn
koma við hjá mér. Heimilisfang_______________________________Sími
Vinnustaður
ORDSENDING
lil Broyl eigenda
Þann 12. júní kemur sérstakur
viðgerða- og þjónustubíll frá
Breyt verksmiðjunum til lands-
ins. Bíllinn, ásamt norskum
sérfræðingi mun ferðast um
landið og veita Broyt eigendum
ókeypis yfirferð og stillingu á
vélum þeirra. Ferðin hefst á
Seyðisfirði.
Skrifið eða hringið í Velti h/f,
Suðurlandsbraut 16, sími
35200, og pantið Breytbílinn til
ykkar.
Sérfræðingurinn metur ástand
vélarinnar, fer yfir og stillir
vökvakerfið, og gerir við. Við-
gerðir og varahlutir eru gjald-
skyld, en yfirferð og um það bil
50-90 stillingaratriði eru ó-
keypis.
Pantið Breytbílinn til ykkar
strax í dag, svo að hægt sé
að senda bílinn og sérfræðinga
á vinnustað ykkar!
VELTIR Hr.
Suðurlandsbraut 16*Simi 35200