Morgunblaðið - 04.07.1976, Side 3
MORGUNBLAÐÍÐ. SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1976
3
Norskir
listamenn
í Norræna
húsinu
Morgunblaðsmenn í sviðsljósinu
í golfkeppni íþróttafréttamanna
ÁRLEG golfkeppni íþrótta-
fréttamanna fór fram á föstu-
daginn á Golfvelli Ness á Sel-
tjarnarnesi og að venju gaf
SAAB-umboðið á íslandi verð-
laun til keppninnar. Morgun-
blaðsmenn voru mjög i sviðs-
ljósinu að þessu sinni og hlutu
þeir þrenn verðlaun auk siðasta
sætisins.
Ágúst I. Jónsson, — áij
Morgunblaðsinsy sigraði, lék 9
holurnar á 48 höggum, en Sig-
mundur Steinarsson, SOS á
Tímanum, varð i öðru sæti á 53
höggum og tókst honum þvi
ekki að verja titil sinn frá fyrra
ári.
I þriðja sæti varð síðan
íþróttaljósmyndari Mbl., Frið-
þjófur Helgason, og lék hann á
58 höggum og fékk auk þess
sérstök verðlaun fyrir flest
högg á eina braut, en Friðþjóf-
ur lék 9. holuna á 13 höggum. I
næstu sæti röðuðu þeir sér
síðan Björn Blöndal, Sigtrygg-
ur Sigtryggsson, Gunnar Steinn
Pálsson og lestina rak Helgi
Danielsson Mbl. á fleiri högg-
um en svo að ástæða sé til að
nefna. Gylfi Kristjánsson hætti
keppninni og mun að sögn hafa
gert það af hræðslu við
kríurnar sem eru að unga út
þessa dagana.
N.K. mánudag, 5. júlí,
munu tveir norskir tón-
listamenn’ skemmta í sam-
komusal Norræna hússins.
Þetta eru þeir Geir E. Lar-
sen, sem leikur aðallega á
flautu og Hans W. Brimi,
en hann er Noregsmeistari
í leik á venjulega fiðlu.
Koma þessara norsku lista-
manna til íslands að þessu sinni
er í sambandi við stjórnarfund
hússins, sem haldnir eru tvisvar á
ári, vor og haust. 1 tengslum við
þessa fundi hafa verið haldnar
kvöldvökur og hefur Norræna
húsið séð um að fá norræna, að-
komna skemmtikrafta til að koma
þar fram. Nú á að stofna deild
Norræna félagsins á Patreksfirði
og munu norsku listamennirnir
skemmta á stofnfundinum þar.
SUNNUDAGINN 11. júnf verða
prestskosningar í Mosfellspresta-
kalli. Umsækjendur eru tveir,
séra Birgir Ásgeirsson prestur í
Siglufirði og séra Ingólfur
Guðmundsson lektor við
Kennaraháskólann og messar
hann ( Lágafellskirkju í dag en
séra Birgir messaði siðast liðinn
sunnudag.
Séra Ingólfur Guðmundsson er
fæddur 22.11. 1930 á Laugarvatni,
sonur Guðmundar Ólafssonar
kennara þar og Ólafar Sigurðar-
dóttur. Hann lauk stúdeijtsprófi
frá Akureyri 1951, kennaraprófi
1955 og guðfræðiprófi frá
Háskóla islands árið 1962. prófi í
uppeldisfræðum sem aukagrein
frá Óslóarháskóla 1959. sótti nám
í kennimannlegri guðfræði í
Þýzkalandi og stundaði einnig
guðfræðinám i Safnaðarháskólan-
um í Ósló. Hann hefur starfað
sem lögregluþjónn og kennari í
Geir E. Larsen.
Reykjavík og verið sumarbúða-
stjóri i Sumarbúðum Þjóð-
kirkjunnar i nokkur ár. Hann var
settur sóknarprestur í Húsavíkur-
prestakalli 1962—63 og veitt
Mosfell i Grímsnesi frá 1963 þar
sem hann þjónaði í þrjú ár. Árið
1972 var hann settur kennari við
Kennaraskóla Islands og hefur
undanfarin ár verið leiktor i
kristnum fræðum við Kennara-
háskólann.
Séra Ingólfur hefur átt sæti i
Æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar
frá 1970—75 og í menntamála-
nefnd þjóðkirkjunnar og verið
formaður þeirra og sótt ráðstefn-
ur á vegum þeirra erlendis. Þá
hefur hann verið i stjórn Kristi-
legs stúdentafélags. Stúdentaráðs
H.i. og Bindindisfélags kennara,
verið formaður Stúdentafélags
Suðurlands og Kennarafélags
K.H.I.
Séra Ingólfur Guðmundsson er
Ráðstefna
um endur-
væðingu
lands og
vatns
RÁÐSTEFNA um endur-
væðingu lands og vatns
verður haldin á vegum At-
lantshafsbandalagsins á
Hótel Loftleiðum dagana 5.
til 10. júlí og verður hún
Séra Ingólfur Guðmundsson.
kvæntur Áslaugu Eiriksdóttur,
kennara og bókaverði frá Glit-
stöðum í Norðurárdal og eiga þau
f jögur börn.
sett næstkomandi mánu-
dag klukkan 09.15. Á ráð-
stefnunni munu hinir
ýmsu vísindamenn flytja
erindi Fjölmargir vísinda-
menn víðs vegar að munu
sækja ráðstefnuna.
i upphafi ráðstefnunnnar mun
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra, ávarpa hana. Gert er ráð
fyrir að þátttakendur noti tvo
daga til kynnisferða. Hinn 7. júlí
verður farið til Vestmannaeyja og
ummerki gossins þ?r skoðuð og
uppbyggingin eftir gos. Þá verður
hinn 9. júli farið i kynnisferð I
Gunnarsholt, í Þjórsárdal, að
Gullfossi og Geysi og i heim-
leiðinni verður komið við á Þing-
vöUum, þar sem snæddur verður
kvóldverður. Ráðstefnunni lýkur
laugardaginn 10. júlí á hádegi.
KOMIN er út á vegum Rann-
sóknastofnunnar f norænum mál-
vfsindum við Háskóla tslands
bókin Old Icelandic heiti in
Modern Icelandic, eftir Halldór
Halldórsson prófessor. Þetta er
þriðja bókin I ritröó þeirri, er
málvfsindastofnunin hefur gefið
út undanfarin ár.
i fyrri hluta bókarinnar rann-
sakar höfundur hugtakið heiti í
fornum ritum, einkum Snorra-
Eddu. 1 seinni hluta bókarinnar
er fjallað um notkun heita eða
skáldamálsorða í síðari tima
íslenzku og sýnt fram á, að fjöldi
þeirra lifir enn í lausu máli og á
vörum alþýðu, t.d. í orðtökum og
talsháttum. Bókaverzlun
Snæbjarnar Jónssonar sér um
dreifingu og sölu bókarinnar.
Heilbrigðismálaráð;
Hundabanni
verði framfylgt
NÝLEGA samþykkti heilbrigðis-
málaráð Reykjavikurborgar sam-
hljóða eftirfarandi bókun:
„Heilbrigðismálaráð itrekar
áskorun sina frá 30. maí 1975 til
lögreglu og dómsvalds um, að
banni við hundahaldi í borginni
verði i reynd framfylgt.
Jafnframt óskar ráðið eftir
greinargerð frá ofangreindum
aðilum um, hvað líði framkvæmd
á umræddu banni."
Halldór Halldórsson
Mosfellsprestakall
NÝ BÓK UM HEITI