Morgunblaðið - 04.07.1976, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1976
LOFTLCIBIR
C 2 1190 2 11 88
BILALEIGAN
p
i
o
rvj
24460 g
28810 n
Utvarpogstereo,. kase t tutæk i
51EYSIR
LAUGAVEGI 66
CAR
RENTAL
Fa
J I Ití l. t l.l lf. l V
'AiAjm
FERÐABILAR hf,
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabílar og jeppar.
BILALEIGA
Car Rental
SENDUM
41660-42902
Við þökkum þeim fjölmörgu er
glöddu okkur á margvíslegan
og ógleymanlegan hátt á gull-
brúðkaupsdegi okkar 12. júní.
Lifið öll heil.
Margrét Guómunds-
dóttir og
Ingimundur Einarsson
Borgarnesi.
Aðalfundur
Alþýðuorlofs
AÐALFUNDUR Alþýðuorlofs var
haldinn að Hótel Sögu 30. júní s.l.
1 skýrslu stjórnarinnar kom
fram, að 85 félög innan ASt, 3
landssambönd auk Iðnnemasam-
bands tslands og Bifreiðastjóra-
félagið Frami eiga nú aðild að
Alþýðuorlofi. Verkstjórafélagi
tslands var á fundinum veitt
aðild, auk þess sem samþykkt var
að bjóða Bandalagi starfsmanna
rfkis og bæja aðild að Alþýðuor-
lofi.
Þá gerði fundurinn ályktun þar
sem skorað er á ríkisstjórnina og
fulltrúa tslands f Norðurlanda-
ráði að styðja tillögur um breytt-
ar reglur um leiguflug milli
Norðurlanda. Með frjálsari regl-
um en þeim, sem nú gilda í þeim
efnum, taldi fundurinn að yrði
lagður raunhæfastur grundvöllur
að norrænu samstarfi.
Óskar Hallgrfmsson var endur-
kjörinn formaður Alþýðuorlofs.
Varaformaður Alþýðuorlofs er
Björn Jónsson, Sigurjón Péturs-
son var kjörinn ritari og Guðríður
Elíasdóttir gjaldkeri.
Hreint
££&land
fagurt
land
LANDVERND
útvarp Reykjavík
SUNNUD4GUR
4. júlf
MORGUNNINN
8.00 Morgunandakt
Séra Sigurður Pálsson vígslu-
biskup flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir.
Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir).
a. Konsertsinfónía í B-dúr
op. 84 eftir Haydn. Georg
Ales, André Remond, Emile
Mayousse og Raymond
Droulez leika með
Lamoureux-hljómsveitinni í
Parfs; Igor Markevitsj
stjórnar.
b. Te deum eftir Hándel
Janet Wheeler, Eileen
Laurence, Francis Pavlides,
John Ferrante og Joljn
Dennison syngjameðkórog
hljómsveit Telemannfélags-
ins f New York; Richard
Schulze stjórnar.
c. Pfanókonsert nr. 24 í c-
moll (K491) eftir Mozart.
André Previn leikur með
Sinfónfuhljómsveit Lund-
úna; Sir Adrian Boult stjórn-
ar.
11.00 Messa f Dómkirkjunni
Séra Pétur Ingjaldsson
prófastur á Skagaströnd
prédikar; séra Þórir Steph-
ensen og séra Páll Þórðarson
þjóna fyrir altari.
Organleikari: Ragnar
Björnsson.
(Hljóðr. 28. júnf við setningu
prestastefnu).
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
SIÐDEGIÐ
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.20 Mér datt það f hug
Haraldur Blöndal lögfræð-
ingur spjallar við hlustend-
ur.
13.40 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátíðinni f Schwetz-
ingen í maí
I Solisti Veneti leika hljóm-
sveitarverk eftir Albinoni,
Galuppi, Tartini, Bussotti og
Vivaldi.
15.00 Hvernig var vikan?
Umsjón: Páll Heiðar Jóns-
son.
16.00 Geysiskvartettinn syng-
ur nokkur lög
Jakob Tryggvason leikur
meða á pfanó.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Alltaf ásunnudögum
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.10 Barnatfmi: Guðrún
Birna Hannesdóttir stjórnar
Kynning á norska barna-
bókahöfundinum Álf Pröys-
en og þjóðsagnasöfnurunum
Asbjörnsen og Moe.
Lesarar auk stjórnanda:
Svanhildur Óskarsdóttir og
Þorsteinn Gunnarsson.
Einnig leikin og sungin
norsk tónlist.
18.00 Stundarkorn með
ftölsku söngkonunni Mirellu
Freni
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
KVÓLDIÐ
19.25 Orðabelgur
Hannes Gissurarson sér um
þáttinn.
20.00 Bandarfkin 200 ára
a. Píanókonsert í F-dúr eftir
Georg Gershwin Sondra
Biancha og Pro Musica
hljómsveitin í Hamborg
leika; Hans-Jiirgen Walther
stjórnar.
b. Stjórnarskráryfirlýsing
Bandarfkjanna fyrir 200 ár-
um. Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri flytur erindi.
c. Bandarfsk tónlist. Leifur
Þórarinsson tónskáld spjall-
ar um hana.
d. „Milljónarseðillinn", smá-
saga eftir Mark Twain. Valdi-
mar Ásmundsson þýddi. Þór-
hallur Sigurðsson leikari les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Danslög
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Minnzt 200 ára
afmœlis Banda-
ríkjanna í hljóö-
varpi í kvöld
t BARNATtMA kl. 17.10 f dag
kynnir Guðrún Birna Hannes-
dóttir norska barnabókahöf-
undinn Alf Pröysen og þjóð-
sagnasafnarana Asbjörnsen og
Moe. Leikin og sungin verður
norsk tónlist. Lesarar eru auk
stjórnanda Svanhildur Óskars-
dóttir og Þorsteinn Gunnars-
son. Er þetta hinn þekkilegasti
þáttur og áhugaverður.
Um kvöldið er það viðamest á
dagskránni að minnzt verður
200 ára afmælis Bandarfkj-
anna. Hefst sú dagskrá á píanó- ■
konsert f F-dúr eftir Gershwin,
flutt af Pro Musica hljómsveit-
inni í Hamborg og Söndru
Biancha. Hans JUrger Walther
stjórnar. Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri flytur erindið
Stjórnarskráryfirlýsing Banda-
rfkjanna fyrir 200 árum. Leik-
in verður bandarfsk tóniist og
Leifur Þórarinsson kynnir og
ræðir um hana. Loks les svo
Þórhallur Sigurðsson smásög-
una „Milljónaseðillinn" eftir
Mark Twain í þýðingu Valdi-
mars Ásmundssonar.
Lýkur svo þeirri dagskrá.
Ekki sakar að nefna að kl. 16
á sunnudaginn syngur Geysis-
kvartettinn nokkur lög við und-
irleik Jakobs Tryggvasonar og
fastir liðir eru síðan eins og
venjulega.
'"■X' J / i
'V I
Mark Twain
M
ERff®* hdI HEVRH(
Orðabelgur í útvarpi kl. 19.25:
Rœtt um bœkur
og boðskap
Solzhenitsyns
Kl. 19.25 í kvöld er á dagskrá
þátturinn Orðabelgur í umsjá
Hannesar H. Gissurarsonar.
Við spurðum Hannes um efni
þáttarins og sagði hann m.a.:
„t þættinum f kvöld verður
fjallað um Alexander
Solzhenitsyn, bækur hans og
boðskap. Eg hef fengið Indriða
G. Þorsteinsson rithöfund • til
viðræðu um þetta efni. Mér
fannst ástæða til að gera
Solzhenitsyn nokkur skil f þess-
um þætti, þvf að ég hef orðið
þess var að margir undra sig á
því hve lítið hefur verið fjallað
um Solzhenitsyn f rfkisútvarp-
inu, og nú er sem sagt ætlunin
að ráða nokkra bót á því.“
Hannes stundar nám f heim-
speki við Háskóla tslands.
Fyrsti Orðabelgur hans var á
dagskrá fyrir hálfum mánuði,
en þættirnir verða annan hvern
sunnudag f sumar.
„Þetta er þáttur um bók-
menntir og Iistir, og hef ég
meðal annars hugsað mér að
fjalla um George Qrwell,
Áldous Huxley, Karl R. Popper
og fleiri rithöfunda og heim-
spekinga,“ sagði Hannes H.
Gissurarson að lokum.
Hannes H. Gissurarson
„Mér datt það í hug” kl. 13.20:
Hvað dettur Haraldi í hug?
Haraldur Blöndal.
Þátturinn „Mér datt það f
hug“ er á dagskrá kl. 13.20 I
dag, og þar flytur Haraldur
Blöndal lögfræðingur hlustend-
um hugleiðingar sfnar.
„Eg ætla mér að spjalla dálft-
ið um amerfsku byltinguna,
sem átti sér stað fyrir 200 ár-
um,“ sagði Haraldur þegar við
inntum hann eftir efni þáttar-
ins.
„Mér datt f hug að segja
nokkuð frá atburðum sem voru
þá að gerast hér á landi. Lfka
minnist ég á Aljechin skák-
meistara, sem eitt sinn kom
hingað til lands og fékk Fálka-
orðuna. Aljechin afrekaði það
meðal annars að stöðva umræð-
ur um fjárlög fslenzka rfkisins,
og mun ég útskýra nánar, auk
þess sem ég mun fjalla nokkuð
um Fálkaorðuna og orðuveit-
ingar almennt,“ sagði Harald-
ur.