Morgunblaðið - 04.07.1976, Page 39
MORGUNBLAÐIÐÍ SUNNUDAGUR 4. JULÍ 1976
39
— Minning
Dagný
Framhald af bls. 35
gamla Gullfossi, er hann dó 1932,
aðeins 32 ára gamali. Ung að ár-
um, 29. september 1916, giftist
Dagný Karli Guðnasyni, verzlun-
armanni við Tuliníusarverzlun á
Akureyri. Hann kom með þeim
Tuliníusarhjónum til Akureyrar
um aldamótin frá Höfn í Horna
firði. Sambúð þeirra varð því mið-
ur stutt, Karl dó 18. des. 1921.
Áttu þau tvö börn, Harald og
Ragnheiði. Er Haraldur dáinn
fyrir 7 árum frá konu og tveim
ungum sonum. Var það mikið
áfall fyrir blessaða Dagnýju. Eftir
stutta sambúð hafði hún misst
mann sinn og varð hún að sjá á
bak syni sínum langt fyrir aldur
fram. Vann Haraldur um árabil
hjá B.S.A.
Bót var í máli að Ragnheiður
dóttir hennar hefur ávallt reynzt
henni afburða vel. Hefur hún í
mörg ár unnið hjá Sjúkrasamlagi
Akureyrar. Bjuggu þær mæðgur
alltaf að Spítalavegi 1 á gamla
heimilinu sem Dagný unni öllu
öðru fremur. Fór vel á því. Ekki
hefði átt við vinkonu mina að
þurfa oft að flytjast búferlum.
Dagný var ákaflega vanaföst,
strax sem barn og með afbrigðum
trygglynd. Gestrisni hafði hún
erft í ríkum mæli frá foreldrum
sinum, var gott til hennar að leita.
Þótt vík væri milii vina í tugi ára,
vissi ég að vinátta hennar var sú
sama, ég vissi að ég átti hauk í
horni þar sem Dagný var. Og hvað
er betra en eiga vini sem aldrei
svíkja. Dagný var þannig skapi
farin að gott var að lynda við hana
og þægileg návist hennar. Hún
var rólynd og skipti sjaldan
skapi, var ekki ein af þeim er
stökkva upp á nef sér, hvað lítið
sem út af ber. Til þess var hún of
greind. Hún virtist taka lífinu
með jafnaðargeði, samt var hún
ákveðin í skoðunum og stóð fast á
sínu mati, var einörð ef því var að
skipta og var sýnt um góðan mál-
flutning. Henni datt aldrei í hug
að abbast upp á neinn að fyrra
bragði, en ef einhver var órétti
beittur, var henni að mæta.
Ég vona að Dagný fyrirgefi mér
þótt þessi kveðja sé síðbúin, oft
hefur hugur minn leitað til henn-
ar síðustu vikurnar þótt ekkert
hafi heyrzt til mtn. Þakklát er ég
Ragnheiði dóttur hennar er með
lífi sínu hefur sýnt fagurt for-
dæmi. Votta ég henni, systkinum
Dagnýjar og öðrum nánum ætt-
ingjum innilega samúð mína.
Guð blessi, Dagnýju mína.
Hulda Á Stefánsdóttir.
AUGLÝSINGASÍMtNN ER:
^22480
J 3W»r0unbUbib
Lóðir við
Lindargötu
Lóðirnar nr. 31, 35 og 37 við Lindargötu i Reykjavik. ásamt litlu
timburhúsi á lóðinni nr. 37, eru til sölu. Lóðirnar eru samliggjandi,
samtals 1 030 fermetrar að stærð.
Nánari upplýsingar eru veittar i lögfræðideild bankans.
Landsbanki íslands.
Rafstöðvar
Til leigu
Höfum til leigu sérlega vel búnar dieselraf-
stöðvar, 37 kVA og 12.5 kVA, 380/220 V.
Orka h.f.,
Laugavegi 1 78,
sími 38000
Verksmiðjuútsala
Seljum á mánudaginn búta og afganga. Enn-
fremur eldri lager af peysum.
Pr/ónastofan Iðunn h. f.
Skerjabraut 1, Seltjarnarnesi.
Lokað vegna
sumarleyfa
frá 12. júlí—3. ágúst.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN,
Mula v/Suðurlandsbraut.
18714
Annar vinningurinn í vorhappdrætti Krabba-
meinsfélagsins 1 976, sumarhús „Barona" kom
á ofanskráð númer.
Vinningsmiðinn var seldur í lausasölu, en eig-
andi hans hefur ekki gefið sig fram.
HAPPDRÆTTI KRABBAMEINSFÉLAGSINS.
Einbýlishús á Arnarnesi
Vorum að fá í sölu gullfallegt hús að grunnfleti
193 fm með 70 fm kjallara og tvöföldum
bílskúr. Á hæðinni eru stórar stofur, sjónvarps-
skáli, 4 svefnherb. öll með skápum, eldhús
baðherb. og gestasnyrting. Allar innréttingar
sérlega vandaðar. Lóð fullfrágengin og
skemmtilega ræktuð. Húseign í sérflokki.Uppl.
aðeins í skrifstofunni (ekki í síma)
Fasteignasalan
Norðurveri Hátúni 4 a
Simar 21870 og 20998
ertu hvít
eins og næpa^ s
LÁTTU EKKI ALLA FÁ OFBIRTU í AUGUN
ÞEGAR ÞÚ BIRTIST Á STRÖNDINNI í SUM-
AR EYDDU EKKI MÖRGUM DÖGUM AF
DÝRRI SÓLARFERÐ i SKUGGANUM TIL ÞESS
AÐ VENJAST SÓLINNI.
ÞAÐ ER ÓÞARFI.
FÁÐU ÞÉR PHILIPS SÓLARLAMPA OG HANN
GERIR ÞIG BRÚNA ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ Á
STRÖNDINA ÞANNIG FULLNÝTIR ÞÚ
SÓLARLANDAFERÐINA SVO HJÁLPAR HANN
ÞÉR AÐ HALDA LITNUM VIÐ ALLAN
NÆSTA VETUR
heimilistœki sf
HAFNARSTRÆTI 3 - SÍMI 20455 SÆTUN 3 SIMI 15655
SÓLBIKINI
sem segir
SEX!
Einn og sama brjostahaldarann má binda á sex
vegu, svo lítið verður eftir sem sólin nær ei til!
— Margir litir — stærðir s - m - I
Póstsendum um allt land. Verð 3.950.-
Ke
Laugavegi
sími 12650