Morgunblaðið - 04.07.1976, Page 48
A1’(iLVSIN(;AS!MINN ER:
22480
AUGLÝSINGASLMINN ER:
22480
JWor0unbI«biíi
SUNNUDAGUR 4. JULt 1976
1
Blóðflokkaskráning sjó-
manna ekki brýn nauðsyn
— segir Ólafur Jensson, forstöðumaður Blóðbankans
RANNSÓKNANEFND sjóslysa
gerði á síðasta ári tillögu um
blóðflokkun allra íslenzkra sjó-
manna og að í skipshafnarskrá
yrði skráður blóðflokkur hvers
og cins. Tilgangurinn með
þessu var að yrði stórslys um
borð f skipi, yrði unnt að senda
blóð með þyrlu og gefa slös-
uðum. Segir nefndin að það
geti haft úrslitaþýðingu að vita
blóðflokk manna f slfkum
tilfellum.
Morgunblaðið hafði af þessu
tilefni samband við Ólaf Jens-
son yfirlækni og forstöðumann
Blóðbankans, og spurðist fyrir
um framkvæmd þessa máls.
Óiafur sagði, að þegar menn
hefðu farið að kanna hugsan-
lega framkvæmd þessa máls
hefðu komið í ljós ýmsir tækni-
legir örðugleikar. Hefur komið
til tals að gera skýrslu um blóð-
flokk að skilyrði fyrir
munstrun á skip. Sagði Ólafur
að oft vildi það brenna við að
menn hefðu ekki gögn um
slíkar upplýsingar um sjálfa sig
handbær þegar til ætti að taka.
Þá kvað Ólafur einnig erfið-
leika í því sambandi að margir
Framhald á bls. 47.
Óvenju fá-
ir brezkir
ferðamenn
BREZKUM ferðamönnum hefur
fækkað mjög hér á landi og að
sögn Geirs Zoéga þá mun ástæðan
vera landhelgisdeila Islendinga
og Breta. — Við fengum í vetur
margar fyrirspurnir frá brezku
fólki sem hafði hug á að koma til
íslands, en þorði hreinlega ekki
út af þorskastríðinu, sagði Geir er
Morgunblaðið ræddi við hann (
gær.
— Fólk vissi ekki hvað var að
gerast og hélt að það yrði jafnvel
barið ef það kæmi hingað. Ég er
þó sannfærður um að brezku
ferðafólki fjölgar strax næsta
sumar, en þar sem Bretar skipu-
leggja sumarleyfi sín gjarnan
langt fram í tímann þá koma ekki
margir Bretar' hingað i sumar. Ég
get t.d. nefnt að áætlað hafði ver-
ið að brezkt skemmtiferðarskip
með 1200 farþega kæmi hingað í
sumar en hætt var við það á
síðasta vetri vegna landhelgisdeil-
unnar, sagði Geir Zoega.
FERÐAMANNATÍMINN er hafinn og allar horfur eru á þvf að margir útlendingar muni leggja leið slna hingað í ár.
Sunnlenzkir
bændur bíða
eftir þurrki
l.juMli. fer.ri.
GRASSPRETTA er yfirleitt góð
vfðast hvar á landinu og sláttur
hófst vfða fyrir nokkru. Hefur
talsvert verið heyjað f Eyjafirði
og á norðausturhorni landsins.
Hér syðra hefur lftið verið slegið
enn vegna óþurra, þótt sumir,
sem aðstöðu hafa til votheysverk-
unar, hafi slegið.
Það litur yfirleitt vel út með
gras — sagði Gunnar Guðbjarts-
son, formaður Stéttarsambands
bænda í gær, er Morgunblaðið
spurði hann um ástand og horfur
í landbúnaði í sumar. Hann sagði
að á nokkrum stöðum hefði orðið
vart við kal, en víðast hvar um
landið kvað hann grassprettu
mjög góöa og gras liti mjög vel út.
Menn sunnanlands bíða aðeins
eftir þurrki.
Heldur fór illa með garðávexti í
Rangárvallasýslu í næstsíðustu
viku, en þar hvessti þá mjög
mikið og fauk moldin. Var heldur
sáð í fyrra lagi, en fyrir ein-
hverjum búsifjum munu menn
hafa orðið í þessu hvassviðri,
einkum í Þykkvabæ. Sagði
Gunnar að búizt hefði verið við að
árið í ár yrði gott kartöfluár, en
hann kvað þetta hafa spillt mjög
miklu. Er ekki enn séð, hvernig
úr því rætist — sagði Gunnar
Guðbjartsson.
ís kemur í veg fyrir loðnu-
veiðar en eykur afla togara
IS HEFUR undanfarna daga rek-
ið inn yfir þau svæði úti af Vest-
fjörðum þar sem loðnulóðningar
fundust á dögunum og hefur því
enn ekki tekizt að veiða neina
loðnu. Loðnan, sem ekki er komin
undir fsinn, er dreifð og óveiðan-
leg. Isinn hefur hins vegar gert
það að verkum að þorskur og ufsi
hafa þétzt mjög og hafa togararn-
Eyjaferjan kemur í dag
Aðstaða enn ekki klár
VESTMANNEYJAFERJAN nýja
er væntanleg til Eyja klukkan 15
f dag og verður komu skipsins
fagnað með hátfðlegri athöfn.
Samkór Vestmannaeyja mun
sýngja við komu skipsins og
Lúðrasveit leika. Þá munu Einar
Eiríksson forseti bæjarstjórnar í
Vestmannaeyjum og Guðlaugur
Gfslason alþingismaður flytja
ávörp.
Ferjan fór frá Noregi aðfarar-
nótt föstudags og siglingin hingað
hefur gengið vel. Verður skipið til
sýnis fyrir almenning í dag, en
fyrsta ferðin á milli Þorlákshafn-
ar og Eyja verður farin á miðviku-
daginn. Aðstaða fyrir ferjuna í
Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn
er enn ekki tilbúin þannig að
fyrst um sinn verður ekki hægt að
Framhald á bls. 47.
ir veitt sérlega vel að undanförnu
úti af Vestfjörðum og aflinn verið
góður fiskur.
Að sögn Hjálmars Vilhjálms-
sonar fiskifræðings um borð í
Bjarna Sæmundssyni er ísinn nú
45—50 mílur vestur af landinu og
er kominn yfir það svæði þar sem
Reykjavíkurskipin Sigurður og
Guðmundur fundu loðnulóðning-
ar á dögunum. Skipin hafa því
fært sig af þessu svæði og hafa
verið við leit síðustu tvo daga
norður af landinu, eða úti af
Grímsey og Kolbeinsey. Enn hafa
þau ekki fundið loðnu, en leitinni
mun verða haldið áfram. Súlan
frá Akureyri var væntanleg á
miðin í gær og i fyrradag lagði
Gullberg frá Vestmannaeyjum
einnig af stað á miðin.
Jón Páll Halldórsson á Isafirði
tjáði Morgunblaðinu í gær að allir
Vestfjarðatogararnir og einhver
fleiri skip hefðu veitt mjög vel á
Kögurgrunni, Djúpál og Grunn-
hala síðustu viku. Hefðu togar-
arnir fengið 150—180 tonn á viku
og aflinn ýmist verið fallegur ufsi
eða þorskur. Fram að síðustu viku
hefði afli verið tregur úti af Vest-
fjörðum og ufsi hreinlega ekki
sézt Framhald á bls. 47.
VeikindiumboriJ
í Kungsholm
5 farþegar skildir eftir
ALLS koma hingað 9 skemmti-
ferðaskip f sumar á vegum
ferðaskrifstofu Geirs Zoéga en
nokkur skip munu einnig
koma á vegum Fcrðaskrif-
stofunnar Úrvals í sumar.
Skemmtiferðaskipið Kungs-
holm var f Reykjavfk á föstu-
daginn, en með þvf skipi voru
um 400 farþegar. Kungsholm
kom hingað frá New York, en
hélt sfðan til Noregs. Fimm af
farþegum Kungsholm fóru þó
ekki með skipinu þangað
vegna veikinda og liggja þeir á
Framhald á bls. 47.