Morgunblaðið - 06.07.1976, Qupperneq 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTARLAÐI
144. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Verið rólegir vinir
— við erum komnir”
Gíslarnir héldu fyrst að hinzta
stundin væri runnin upp —
Heimurinn agndofa yfir leiftur-
aðgerðum ísraelsmanna
Tel-Aviv, Kampala, Washington,
New York, London, Bonn
og víðar 5. júlúAP-Reuter-NTB.
ÞEGAR fsraelsku gfslarnir komu til Ben Gurion flugvallar f Tel-Aviv
eftir að þeir höfðu verið frelsaðir úr höndum skæruliðanna á
Entebbe-flugvelli f Uganda áttu þeir ekki annað orð til að lýsa
aðgerðum fsraelsku vfkingasveitanna en „Stórkostlegt." „Öll aðgerðin
tók aðeins nokkrar mfnútur" sagði David Elberbaum, hvíthærður
öldungur. Þreyttur en hamingjusamur, umkringdur tárfellandi ætt-
ingjum sagði hann fréttamönnum, að hann hefði skyndilega heyrt skot
og sprengingar um 11 leytið aðfaranótt sunnudags og hefði hann þá
helzt óttazt að palestfnsku flugvélaræningjarnir og samstarfsmenn
þeirra hefðu gert alvöru úr hótunum sfnum að sprengja upp flugstöð-
ina, „en þá sáum við hermenn okkar streyma að úr öllum áttum.“ hélt
Elberbaum áfram „og þeir köstuðu handsprengjum og skipuðu okkur
að leggjast flatir á gólfið. Aðrir gfslar hcyrðu ísraelsku hermennina
segja. „Verið rólegir vinir, við erum kornnir."
Sfðan spurðu fsraelsku hermennirnir hvar flugvélaræningjarnir
væru, „en sögðu okkur síðan að standa upp og fara til flugvélanna sem
biðu á flugbrautinni f um 600 metra fjarlægð," hélt Elberbaum áfram.
Hann sagði að hermennirnir hefðu verið f einkennisfötum tsraelshers.
Sumir þeirra komu aðvffandi f brynvörðum bifreiðum og miðuðu
vélbyssum sem að sögn voru m.a. teknar af Ugandahermönnum.
Einn af björgunarmönnunum borinn á höndum fagnandi mannf jölda við komuna til
Bel Gurion-flugfallar.
Nánari frásagnir af
aðdraganda og björg-
unaraðgerðum eru á
bls. 14 og 15 og við-
brögð á bls. 38.
Viðbúnaður við
landamæri ísraels
Israelska þjóðin hefur minnzt
björgunarinnar með hátíðarhöld-
um en gerði hlé á þeim I dag til að
jarðsetja 2 af þremur gfslum, sem
létust í aðgerðunum, er bjargað
var úr höndum 7 skæruliða 110
gíslum, 98 Gyðingum og 12 manna
áhöfn Air Francebreiðþotunnar,
sem rænt var fyrir viku.
Ræningjarnir höfðu hótað að
myrða alla gíslana, ef ísraelar
hefðu ekki kl. 11.00 á sunnudags-
Grátandi mæðgur á Ben Gurion-flugvelli eftir að móðirin hafði heimt dóttur sína úr
helju.
morgun tryggt, að 53 föngum í 6
löndum yrði sleppt úr haldi og
þeim flogið til Entebbeflugvallar
í Uganda, þar sem ræningjarnir
héldu gislum sinum. í árásinni
féllu allir skæruliðarnir, 20
hermenn Uganda, 3 gíslar og einn
israelskur hermaður.
Segja má að íbúar heims sé rétt
að ná sér eftir þau andköf sem
þeir tóku er fréttist af þessari
djörfu og hnitmiðuðu aðgerð ísra-
ela. Tugþúsundir manna fögnuðu
gislunum og björgunarmönnum
þeirra, er þeir snéru aftur til Ben
Gurionflugvallar. Fáni ísraels
blakti við hún um gervallt landið,
dagblöð voru full af auglýsingum,
sem óskuðu Rabin forsætisráð-
herra og samráðherrum hans til
hamingju með sigurinn, en ísra-
elskar hersveitir voru I við-
búnaðarstöðu við landamærin
vegna hótana skæruliða
Palestínuaraba um blóðugar
hefndaraðgerðir.
Framhald á bls. 39
Spánn:
6 ráðherrar
neita að starfa
með Suarez
Madrid 5. júlf Reuter — AP.
JOSE Maria de Areilza utanrfkis-
ráðherra Spánar og Manuel Fraga
innanríkisráðherra hafa neitað að
starfa f stjórn Adolfos Suarezar
forsætisráðherra, sem Juan
Carlos útnefndi f embættið eftir
að Navarro sagði af sér fyrir
helgi. Utnefning Suarezar kom
mjög á óvart, vfst hafði verið talið
að annar hvor hinna fyrrnefndu,
sem verið hafa fremstir f hópi
umbótasinna á Spáni yrðu fvrir
valinu.
Þessi ákvörðun ráðherrana er
talin mikið áfall fyrir Suarez og í
konung, en ástæðurnar fyrir þess-
um mótmælaaðgerðum Areilza og
Fraga eru sagðar að þeir telji
Suarez alltof reynslulítinn fyrir
starfið, að hann hafi haft alltof
náin tengsl við Þjóðarfylkingu
Francos hershöfðingja og að hann
sé með áætlanir um að koma
tæknikrötum Opus Deyhreyfing-
ar kaþólskra til valda á ný á
Spáni. Talið er að 4 aðrir ráðherr-
ar muni fylgja fordæmi þessara
tveggja þ.á m. Garrigues dóms-
málaráðherra og Gamaero upplýs-
ingamálaráðherra.