Morgunblaðið - 06.07.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. jULl 1976
• r
„Eg berst á
fáki fráum”
— kjörorð fjórðungsmóts
hestamanna á Melgerðismelum
ÉG BERST á fáki fráum eru eink-'
unnarorð f jórðungsmóts norð-
lenzkra hestamanna á Melgerðis-
melum f Eyjafirði 8.—11. júlf.
Mótið hefst fimmtudaginn 8. júlf
klukkan 10 með skoðun kynbóta-
hrossa. A föstudag verður þvf
fram haldið og þá fer einnig fram
fyrri hluti góðhestadóma og
undanrásir f stökki. Um kvöldið
verður kvöldvaka þar sem ungl-
ingar sýna listir sfnar á hestbaki
og hagyrðingar og söngvarar
ásamt fleirum skemmta.
Laugardagur hefst með góð-
hestadómum klukkan 9. Síðan
Þrjú héraðsmót
Sjálfstæðisflokks
um næstu helgi
verður sýning á kynbótahrossum
og þá kappreiðar á skeiði og
brokki og kvöldvaka um kvöldið.
Sunnudagurinn er aðaldagur
mótsins. Þá verða kynbótahross
sýnd og dómum lýst og verðlaun
afhent. Sjö efstu góðhestar í hvor-
um flokki verða sýndir og verð-
launaðir. Hópreið hestamanna
verður eftir hádegið og úrslit
kappreiða. Að lokum verður dreg-
ið i happdrætti mótsins, en aðal-
vinningur þar er reiðhestur, auk
13 aukavinninga, þar af þrjú fol-
öld.
Milli 250 og 300 hross koma
fram á mótinu sum langt að kom-
in. Má þar nefna t.d. skeiðgamm-
ana Óðinn, Fannar og Vafa svo og
f stökki þær Nös og Loku. Má því
búast við harðri og spennandi
keppni. Eins og komið hefur fram
er mótssvæðið við Melgerðismela
nýtt. Sjálft sýningarsvæðið er í
skeifulaga hvammi austan og
sunnan undir melunum með góðu
áhorfendastæði í skjóli fyrir norð-
anátt. Þarna hefur verið byggt
mjög myndarlegt veitingahús
með góðri snyrtiaðstöðu, einnig
hefur verið byggt hesthús fyrir
tæp 40 hross.
Tjaldsvæði eru góð fyrir hendi
með rennandi vatni og útisalerni.
Hrossahagar eru nægir og góðir
norðan við melana og hafa þeir
verið girtir sundur í hólf með
réttum í. Melgerðismelarnir sjálf-
ir eru rennisléttir og hið ákjósan-
legasta reiðsvæði, enda eru þar
varavellir til keppni og sýninga.
TVEIR NÝIR 0LÍUGEYMAR
SETTIR UPP í ÖRFIRISEY
(Ijósm. Br. H.)
Goðinn kemur með 3000
tonna geyminn frá
Seyðisfirði til Reykjavfkur.
BJÖRGUNARSKIPIÐ Goðinn kom í gær til
Reykjavfkur með 3000 tonna geymi f togi. Lagði
Goðinn af staö frá Seyðisfirði á föstudaginn með
geyminn, en þar hafði hann staðið ónotaður f
mörg ár og reyndar aldrei verið notaður við
sfldarverksmiðjuna á sfnum tíma. Fyrst um
sinn verður geymirinn geymdur f Sundahöfn,
en verður sfðar f sumar settur upp f Örfirisey.
— Þar er verið að stækka mjög athafnasvæði
Olfufélagsins Skeljungs, sem lét flytja tankinn
til Reykjavfkur.
Að sögn Böðvars Kvaran hjá Shell mun Goð-
inn fara til Siglufjarðar f vikunni og taka þar
5000 tonna geymi, sem þar hefur ekki verið
notaður sfðan á sfldarárunum. Verður sá geymir
einnig settur upp f Örfirisey og geymarnir báðir
væntanlega notaðir undir gasolfu.
Sigurður með um 700 tonn
af loðnu til Siglufjarðar
Eyjólfur Konráó
Ingólfur
UM NÆSTU helgi verða haldin 3
héraðsmót Sjálfstæðisflokksins:
Siglufirði, föstudaginn 9. júlí kl.
21 stundvíslega. Ávörp flytja
Matthfas Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra og Eyjólfur Konráð
Jónsson alþingismaður.
Sauðárkróki, laugardaginn 10.
júlí kl. 21 stundvíslega. Avörp
flytja Matthías Bjarnason sjávar-
Framhald á bls. 39
Fleiri þýzkir en
brezkir að vdðum
FLEIRI þýzkir togarar en brezkir
voru að veiðum á Islandsmiðum í
gær, eða 20 talsins, en brezku
togararnir voru 18. Þá voru hér
við land 3 belgískir togarar og 3
færeyskir.
SIGURÐUR RE var kominn með
um 700 tonn af góðri loðnu f gær-
kvöldi, er Morgunblaðið hafði
samband við Harald Ágústsson
skipstjóra á Sigurði á miðunum
norður af landinu. Sagði Harald-
ur að þeir myndu leggja af stað
til Siglufjarðar með aflann f nótt.
Guðmundur RE var kominn með
um 350 tonn f gærkvöldi, en afl-
ann hafa skipin fengið sfðan á
laugardagskvöldið.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur um borð f Bjarna
Sæmundssyni sagði í viðtali við
Morgunblaðið i gær að á laugar-
dagskvöldið hefði Sigurður fund-
ið torfublett um 125 sjómílur
norður af Siglunesi og þá fengið
Einni skútunni bjargað f land í fjörunni við Golfvöllinn á Seltjarnarnesi. (Ijósm. Friðþjófur).
Þremur skútum hvolfdi út
af Seltjarnarnesi,
um varð meint af
Félagar f siglingaklúbbunum
Siglunesi í Reykjavfk og Kópa-
nesi í Kópavogi fóru um helgina f
tveggja daga ferð úr Fossvogi upp
í Saltvík á Kjalarnesi. Farið var á
14 skútum og 3 aðstoðarbátum og
voru rúmlega 30 manns með í
ferðinni. Gekk allt eins og f sögu
þar til út af Gróttu á leiðinni til
baka á sunnudaginn að hvessti
mjög og hvolfdi þremur bátanna
og voru þeir ásamt remur öðrum
skútum dregnir upp á land fyrir
neðan golfvöllinn á Seltjarnar-
nesi. Áhafnir á þrem skútum fóru
í sjóinn og blotnuðu hressilega.
Engum mun þó hafa orðið meint
af volkinu, enda var unga fólkinu,
sem skipaði áhafnir boðið upp á
heitt kaffi og kakó f skála Golf-
klúbbs Ness og það drifið f þurr
föt um leið og það kom f land.
Að sögn Guðleifs Guðmunds-
sonar, eins forráðamanna Sigl-
ingaklúbbsins Kópaness í Kópa-
vogi, voru áhafnir bátanna ungl-
ingar á aldrinum 13—15 ára. —
Þessir krakkar kunna orðið vel að
fara með skútur eins og þær sem
notaðar voru í ferðinni upp á
Kjalarnes og þó svo að þremur
þeirra hafi hvolft við Seltjarnar-
nes, þá held ég ekki að krakkarnir
hafi verið í neinni hættu, sagði
Guðleifur. — Þau voru öll í björg-
unarvestum og góðum hlffðarföt-
um, auk þess sem auðvelt á að
vera að rétta skúturnar, sem eru
af GP- og Flipper-gerð, við á nýj-
en eng-
volkinu
an leik. Þá voru fullorðnir menn
þeim til aðstoðar á Zodiaz-
gúmbátum og einum trébáti.
Ferðin á laugardag upp á Salt-
vík gekk i alla staði mjög vel og
tók ferðin þangað tæpa þrjá tíma.
Frá Saltvík var lagt af stað um
klukkan 9 á sunnudagsmorgun og
var þá blíðskaparveður þar. Var
skútunum siglt meðfram strand-
lengjunni og vakti siglingin mikla
athygli. Það var ekki fyrr en úti
af Gróttu að erfiðleikarnir byrj-
uðu, en allt fór þó vel og bátarnir
sex sem taka varð upp á land við
golfvöllinn á Seltjarnarnesi eru
komnir á sinn stað í Kópavogi eða
í Nauthólsvík og var þeim flestum
siglt þangað.
Herstöðvar-
andstæðingum
/ •• 9 \
í nop vio
NATO-fánann
t ÞANN mund sem vfsindaráð-
stefna Atlantshafsbandalags-
ins var að hefjast að Hótel
Loftleiðum f gærmorgun,
mætti þar 20—30 manna hóp-
ur á vegum miðnefndar her-
stöðvarandstæðinga. Menn úr
hópnum voru þar með dreifi-
miða en réðst sfðan að fána-
stöng þeirri, þar sem fáni
bandalagsins hékk við hún,
skáru böndin, tóku fánann nið-
ur og rifu í tætlur. Bar lögregl-
una að í þeitn svifum og tók
fólkið í vörzlu sfna. Var það
fært á lögreglustöðina, þar
sem tekin var skýrsla um at-
burðinn en fólkinu sfðan
sleppt.
um 250 tonn I 3 köstum. Síðan
hefði lítið fundizt fyrr en seint á
sunnudagskvöldið og þá 130 mílur
norður af Skagatá. Aðfaranótt
mánudagsins hefðu skipin síðan
fengið um 300 tonn hvort og í
gærkvöldi fengu bæði skipin
nokkurn afla.
Að sögð Hjálmars Vilhjálmsson-
ar er þetta stór og falleg loðna
full af átu. Er loðnan í þunnum
torfum alveg við yfirborðið. Sig-
urður fer með afla sinn til Siglu-
fjarðar og var væntanlegur þang-
að fyrir hádegi i dag. Verður loðn-
an brædd þar að mestu leyti, en
eitthvað mun verða fryst til beitu.
Súlan frá Akureyri og Gullberg
frá Vestmannaeyjum eru væntan-
leg á loðnumiðin fljótlega.
Tundurdufl
í Furufirði
TUNDURDUFL fannst á laugar-
daginn i Furufirði á Ströndum og
var Landhelgisgæzlunni gert við-
vart. Sendi hún skip á staðinn
með menn til að gera duflið
óvirkt. Kom þá i ljós að það hafði
þegar verið gert og duflið því
hættulaust. Mun duflið hafa legið
nokkurn tíma i sandi í fjöruborð-
inu, en sópazt ofan af því síðustu
daga. Tundurdufl þetta var segul-
dufl af enskri gerð.
Fimm verkfræðingar í
viðbót hefja verkfall í dag
Fimm verkfræðingar hjá
Mælingadeild Reykjavíkurborgar
hefja verkfall i dag og leggjast þá
niður mælingar fyrir nýjum hús-
um og mælingar á lóðamörkum.
Bætast þessir fimm við þá tvo
verkfræðinga hjá byggingafull-
trúa borgarinnar, sem verið hafa í
verkfalli síðustu tvo daga. Að
sögn Gunnars Gunnarssonar for-
manns Samninganefndar stéttar-
félags verkfræðinga stóðu verk-
fræðingar verkfallsvörð í gær og
munu halda því áfram en fátt bar
til tíðinda í gær við verkfalls-
vörzluna að sögn Gunnars. Siðast-
liðinn föstudag var samninga-
fundur verkfræðinga og fulltrúa
Reykjavíkurborgar hjá sáttasemj-
ara. Að sögn Gunnars Gunnars-
sonar miðaði ekkert í samkomu-
lagsátt á þeim fundi.