Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULl 1976
3
Yilhjálmur
Arnason skip-
stjóri látinn
VILHJÁLMUR Árnason, skip-
stjóri og útgerðarmaður, er lát-
inn.
Vilhjálmur fæddist i Stokkseyr-
arseli 1896 og voru foreldrar hans
Árni Vilhjálmsson, bóndi og sjó-
maður, og kona hans Sigríður
Þorkelsdóttir. Hanri lauk far-
mannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík 1919, en var
siðan skipstjóri á togurunum
Gylli 1928—36, Venusi frá
1936—48 og Röðli 1948—1958, er
hann varð framkvæmdastjóri út-
gerðarfélagsins Venusar hf. Hann
var einn af stofnendum Venusar,
svo og Hampiðjunnar hf. í
Reykjavík og Hvals hf. í Hafnar-
firði.
Vilhjálmur var kvæntur Guð-
ríði Sigurðardóttur.
Saltlítið í
Siglufirði
Siglufirói 5. júlí.
SIGLFIRÐINGAR hafa kvartað
yfir saltleysi undanfarna daga og
mun svo einnig vera víðar á Norð-
urlandi. Fiskhúsin eiga Iftið salt
eftir og eiga Siglfirðingar ekki
von á að fá salt fyrr en um miðjan
mánuðinn.
Nýr bátur bættist i flota Sigl-
firðinga um helgina. Er það Pétur
Jóhannsson, 230 tonna bátur, sem
smiðaður var í Noregi 1968. Fyrir-
tækið Höfn h.f. keypti skipið frá
Grundarfirði og mun Pétur Jó-
hannsson fara á togveiðar síðar i
vikunni. Undanfarið hafa nokkrir
Austfjarðabátar komið inn til
Siglufjarðar til að taka is, en þeir
Framhald á bls. 39
Hátíðahöldin á Blönduósi:
Vísindamenn 15
þjóða fjalla hér um
umhverfismál
Minnisvarði af frum-
I GÆRMORGUN var sett á Hótel
Loftleiðum ráðstefna um um-
hverfismál, sem Vfsindadeild At-
lantshafsbandalagsins gengst fyr-
ir. Fjallar hún um endurheimt
illa farins lands og skaddaðra lff-
kerfa f tempraða beltinu, bæði á
landi og f sjó. Ráðstefnuna sækja
54 vfsindamenn frá 15 þjóðum.
Islenzkir fyrirlesarar eru sex, og
að auki taka 17 fsl. vfsindamenn
þátt f ráðstefnunni.
Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra setti ráðstefnuna og bauð
gesti velkomna. Þá skýrðu tilgang
ráðstefnunnar, markmið og til-
högun forseti ráðstefnunnar, dr.
Holdgate, dr. T.D. Allan frá Vís-
indadeild Nato og dr. Sturla Frið-
riksson, framkvæmdastjóri ráð-
stefnunnar. Þá hófst flutningur
vísindalegra erinda.
Fjölluðu fyrstu erindin um
undirstöðu líffræðilegra kerfa og
voru þar flutt 5 framsöguerindi.
Þá var tekinn fyrir flokkur er-
inda um vanda hrörnandi líf-
kerfa. Þar flutti m.a. Sturla Frið-
riksson erindi um eyðingu ís-
lenzkra lifkerfa.
í dag hefst ráðstefnan aftur kl.
9.15 og flutt erindi til viðbótar i
þeim flokki. Þá verður tekið fyrir
næsta viðfangsefni, sem er rann-
sóknir á árangursríkum dæmum
um endurheimt tegunda og líf-
kerfa, þar sem eru 5 flutnings-
byggjanum afhjúpaður
menn, þar á meðal Hákon Bjarna-
son, sem ræðir um jarðvegseyð-
ingu og skógrækt á íslandi. Á
miðvikudag verður farið til Vest-
mannaeyja til að skoða eyðingu af
eldgosi og enduruppbyggingu. En
á fimmtudag verður ráðstefnunni
haldið áfram, hefst með erindi
Sveins Runólfssonar land-
græðslustjóra um jarðvegsvernd
á íslandi.
Frá opnun umhverfisráðstefnunnar á Loftleiðum fgær.
IBUAR á Blönduósi efndu til
sérstakrar afmælisdagskrár um
sfðustu helgi f tilefni þess, að
100 ár eru liðin sfðan kauptún-
ið fékk verzlunarréttindi. Að
sögn Ragnars Inga Tómasson-
ar, framkvæmdastjóra dag-
skrárnefndar, tókust hátfðar-
höldin með miklum ágætum
enda vel vandað til undirbún-
ings og dagskrárliða. 1 tilefni
afmælisins bárust _sveitar-
stjórninni margar góðar gjafir
og má þar nefna máiverk frá
Þorvaldi Skúlasyni listmálara,
málverk frá Lionsklúbbi
Blönduóss, útskorna gestabók
frá sýslunefnd Á-
Húnavatnssýslu, útskorinn
fundarhamar frá oddvitum
sýslunnar og sveitarstjórn
Skagastrandar gaf útskorinn
pappfrshnff.
Utihátíðin hófst eftir hádegi
á laugardag í Kvenfélagsgarð-
inum við Blöndu i bliðskapar-
veðri. Meðal dagskrárliða var
lúðrablástur, hátíðarfundur
hreppsnefndar Blönduóss, sr.
Árni Sigurðsson rakti sögu
staðarins og afhjúpaður var
minnisvarði af fyrsta Blönduós-
ingnum, Tómasi Thomsen
Frá Blönduósi.
kaupmanni, en minnisvarðann
gerði Jónas Jakobsson.
Hreppsnefnd Blönduós-
hrepps bauð síðan í eftirmið-
dagskaffi í Félagsheimilinu og
siðar um daginn var sérstök
skemmtun fyrir börn í Hvamm-
inum við Blöndu. Þá fór fram
knattspyrnuleikur milli liðs
USAH og Árroðans úr Eyjafirði
iem lyktaði með sigri hinna
fyrrnefndu, 3 rnörk gegn einu.
Um kvöldið var leiksýning í Fé-
lagsheimilinu en þar sýndi
Leikfélag Blönduóss „Þið mun-
ið hann Jörund“ eftir Jónas
Árnason undir leikstjórn
Magnúsar Axelssonar. Síðan
var dansað úti undir berum
himni við Félagsheimilið og
mun það vera nýlunda á
Blönduósi.
Veðurguðirnir voru Blöndu-
ósingum ekki alveg eins hlið-
hollir á sunnudeginum eins og
Framhald á bls. 39
FERÐIR TIL GAGNS OG GLEÐI
MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNIi
HIFI '76
3rd International Exhibition
With Festival
Dusseldorf
Hópterð
Brottför 24 september
photokino
Köln
World Fair of Photography
Hópferð
Brottför 9 september
HW
rgna
Spoga
'76
Alþjóðleg sportvörusýning
Köln
Hópferð
Brottför 25 september
Frankfurt
Alþjóðleg
bókasýning
Hópferð
Brottför 1 5
Ódýru Spánarferöirnar
Costa Blanca — Benidorm
2ja og 3ja vikna ferðir í allt sumar.
Fjölskylduafsláttur, íslensk hjúkrunarkona
og barnfóstra
23. ágúst aukaferS
19. júli nokkur sæti laus 30 ágúst
2 ágúst aukaferð. 6 sept
9 ágúst (aussæti. 13. sept.
16 ágúst aukaferð 20. sept.
september
Auto-
mechanika 76
Bílavarahlutir, tækninýjungar
varðandi bílaverkstæði bensin
stöSvar o.fl.
Frankfurt/M
Hópferð Brottför 24. september.
Frankfurt
Alþjóðleg vörusýning
Brottför 28. ágúst.
W JÉ* M. .
Ódýrar Noröurlandaferöir í allt sumar. Seljum einnig farseöla meö öllum
flugfélögum um allan heim á sérstaklega hagkvæmum fargjöldum.