Morgunblaðið - 06.07.1976, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976
varð síðan aftur forsætisráð-
herra að loknum kosningum
1973 og gegndi starfinu þar
til nú í janúar.
Kosningar verða í Noregi
haustið 1977 og við spurð-
um Bratteli hverjar horfurnar
væru fyrir þær kosningar á
þessu stigi.
,,Það er auðvitað aldrei
hægt að segja til um úrslit
kosninga fyrirfram, en ég tel
ákveðið að Verkamanna-
flokkurinn standi mun betur
að vígi nú og muni gera að
ári en i kosningunum 1973.
Þessa skoðun byggi ég m.a.
á þvi að skoðanakannanir
hafa sýnt að flokkurinn hefur
aukið fylgi sitt talsvert og
þær hreyfingar sem við verð-
um varir við innan flokksins á
ýmsum stöðum í landinu
benda einnig i þessa átt.
Enda þótt ég hafi aldrei borið
sérlega mikið traust ti| skoð-
anakannana má láta þess
getið að hinar nýjustu þeirra
sýna að flokkur okkar hefur
nú fylgi um 42% kjósenda
samanborið við þau 35%
Nor ski V er kam ann a-
flokkurinn á uppleið
— segir Trygve Bratteli, fyrrum
forsætisráðherra Noregs,
sem hér er nú í heimsókn
TRYGVE Bratteli fyrrv. forsætisráðherra
Noregs og frú Randi kona hans eru stödd hér
á landi um þessar mundir í einkaheimsókn.
Bratteli lét sem kunnugt er af forsætisráð-
herrastörfum í janúar sl. og við tók Oddvar
Nordli, sem einnig er væntanlegur hingað til
lands í sumar. Bratteli er nú formaður þing-
flokks norska Verkamannaflokksins, en það
starf er umfangsmikið og erilsamt á meðan
Stórþingið situr og fer því fjarri að Bratteli
hafi dregið sig í hlé frá pólitísku starfi.
Þau hjón hafa komið til íslands oft áður,
fyrst kom Bratteli hingað árið 1957, en síð-
asta heimsókn þeirra hjóna var á þjóðhátíð-
ina 1974.
Trygve Bratteli var fjórði í
röð ellefu systkina og hafði
ekki aðstöðu til að afla sér
langrar skólamenntunar
Hann stundaði ýmis störf á
unga aldri, vann i norskri
hvalstöð á árunum
1926—27 og stundaði
byggingavinnu árin
1928—33, þ.e.a.s. þegar
vinnu var að fá. Bratteli byrj-
aði að starfa fyrir norska
Verkamannaflokkinn árið
1934, og við báðum hann
um að rekja afskipti sín af
norskum stjórnmálum frá
þeim tíma.
„Fyrstu afskipti mín af
starfi Verkamannaflokksins
voru þau að ég gaf út litið
flokksblað í bænum Kirkenes
í Norður-Noregi á árinu
1934. Stuttu síðar var ég
kosinn í forystu hreyfingar
ungra jafnaðarmanna og
starfaði þar í nokkur ár. Á
stríðsárunum lá stjórnmála-
starfsemi niðri og ég fór aftur
í byggingavinnu. En árið
1942 var ég handtekin og
dvaldi i fangabúðum Þjóð-
verja til striðsloka. Eftir stríð
varð ég varaformaður Verka-
mannaflokksins og gegndi
því þar til Einar Gerhardsen
lét af formannsstörfum og
forsætisráðherraembætti árið
1965. — Á þing var ég
kosinn 1 949 "
„Var það ekki erfið reynsla
að dvelja i fangabúðum Þjóð-
verja í þrjú ár?"
„Jú, en samt er það svo
með það sem fólk upplifir að
eitthvað má af allri reynslu
læra. Ég var handtekinn í
júní 1942 og dvaldi fyrst í
fangabúðum í Noregi, en var
síðan fluttur til annarra búða
í Þýzkalandi. Þessar búðir
voru T Elsass og þegar striðs-
lokin nálguðust voru þar um
500 Norðmenn. Aðeins um
helmingur þeirra átti þaðan
afturkvæmt, hinir dóu úr
sulti og vinnuþrælkun. Vinn-
an í þessum búðum var mjög
erfið og sjálfir kölluðu Þjóð-
verjarnir svona búðir „Nacht
und Nebel" (nótt og þoku).
Mér var sleppt úr haldi rétt
fyrir stríðslokin og kom til
Noregs um Svíþjóð þann 1 5
maí 1 945, viku eftir að búið
varaðfrelsa Noreg."
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra og Bratteli. Þeir áttu
með sér fund i gærmorgun, en einnig hitti Bratteli forseta
íslands dr. Kristján Eldjárn og fleiri framámenn.
VERKAMANNA-
FLOKKUPINN í SÓKN
Eftir stríð varð Einar
Gerhardsen forsætisráðherra
í Noregi, og Bratteli varð
fljótt náinn samstarfsmaður
hans. Þegar Gerhardsen lét
af störfum 1 965 varð Bratteli
formaður Verkamannaflokks-
ins, eins og áður sagði, en
flokkur hans beið ósigur í
kosningunum haustið 1965
og við tók stjórn borgarflokk-
anna. Bratteli varð þá þing-
leiðtogi Verkamannaflokks-
ins og er stjórn borgaraflokk-
anna leystist upp 1971 varð
hann forsætisráðherra og
gengdi því þarfi þar til hann
sagði af sér í kjölfar úrslita
þjóða ratkvæðagreiðslunnar
um aðild Norðmanna að EBE
í september 1972. Hann
sem við fengum 1973.
Ihaldsflokkurinn hefur einnig
aukið eitthvað við sig, skv
þessum könnunum og Kristi-
legi flokkurinn og Mið-
flokkurinn hafa haldið sínu.
Flokkarnir tveir sem eftir eru
af hinum gamla Vinstri flokki
virðast báðir úr sögunni og
flokkarnir lengst til hægri og
vinstri, þ.e. Sósialíski vinstri
flokkurinn og flokkur Anders
Lange hafa einnig tapað
fylgi. Ég tel að þessar niður-
stöður sýni að aukið jafnvægi
sé að færast i fylgi flokkanna
og þær sveiflur sem urðu að
minnka."
EKKIRÉTT AÐ BREYTA
KOSNINGAKERFINU
í Noregi er yfirleitt tiltölu-
lega lítill munur á fylgi borg-
araflokkanna annars vegar
og Verkamannaflokksins og
flokkanna vinstra megin við
hann hins vegar. Kosningar
fara hins vegar aðeins fram á
fjögurra ára fresti, og ekki er
hægt að boða til kosninga
áður en kjörtimabilinu lýkur.
Þetta hefur leitt til þess að
minnihlutastjórnir eru all-
algengar þar í landi. Við
spyrjum Bratteli, hvað hon-
um finnist um að breyta
þessu fyrirkomulagi þannig
að unnt verði að boða til
kosninga þegar ríkisstjórn
verður einhverra hluta vegna
að segja af sér í stað þess að
þá taki við minnihlutastjórn.
„Ég legg ekki mikla
áherzlu á þetta atriði, og tel
ekki að slík breyting mundi
leysa neinn vanda í okkar
stjórnmálalífi. Þetta byggi ég
m.a. á reynslu Dana og
Finna, sem búa við þetta
kerfi. Þingrof og boðun nýrra
kosninga er atriði sem á bet-
ur við I landi þar sem er
tveggja flokka kerfi og ég tel
betra að hafa þetta óbreytt i
Noregi, þvi þetta kerfi setur
ákveðinn þrýsting á stjórn-
málaflokkana um að ná sam-
komulagi. Kerfisbreyting af
þessu tagi gæti e.t.v. orðið til
þess að hægara væri að leysa
pólitíska hnúta við sérstakar
aðstæður, en i heild teldi ég
lítið unnið við að gera þessa
breytingu."
KONUNGDÆMI
ÁFRAM í NOREGI
„Þær raddir heyrast stund-
um í Noregi að rétt sé að
leggja niður konungsdæmið
og stofna lýðveldi. Hvað er
um þetta mál aðsegja?"
„Þetta mál er ekki mikið
deilumál í stjórnmálum. Ég
held að flestir Norðmenn séu
andvígir því að leggja niður
konungsdæmið. Konungur-
inn hjá okkur er ekki eins og
konungar í ævintýrasögum
og Norðmenn líta ekki á kon-
ungsdæmið í mjög róman-
tísku Ijósi. Konungurinn er
fyrst og fremst æðsti em-
bættismaður þjóðarinnar
sem innir af hendi verkefni,
sem ella yrði að fela öðrum,
og ef stofnað yrði lýðveldi
fengi forseti ekki meiri pólí-
tísk völd en konungurinn hef-
ur nú. Það hefur heldur ekki
verið neitt til umræðu að
stofna forsetaembætti með
auknum völdum á líkan hátt
og tíðkast í Frakklandi og
Finnlandi, enda hefur það
verið svo í Noregi allt frá
1905 að konungurinn hefur
engin afskipti haft af stjórn-
málum."
Við spyrjum Bratteli að lok-
um hvort hann sé nokkuð
farinn að hugsa til þess að
skrifa bók um afskipti sín af
norskum stjórnmálum.
„Ég hef ekki tekið neina
afstöðu til þess enn þá. Ég er
enn í fullu starfi og hef lítinn
tima aflögu. Það koma út
bækur í haust, m.a. með fyr-
irlestrum mínum, en þær eru
gefnar út án þess ég hafi
komið þar nærri. Konan mín
hefur lika skrifað bók um
ferðalög okkar, sem heitir
„Pá tokt með statsminister-
en" (Á ferð með forsætisráð-
herra), en ég hef sem sé ekki
gert það upp við mig hvort
ég legg út í að skrifa bók
siðar."