Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976
BJÖRGUN GÍSLANNA Á
HÉR fer á eftir frásögn Akiva Laxer, þrítugs lögfræðings frá
Tel Aviv, á fangavistinni, sem lauk með þvi að israelsku
gíslunum var bjargað úr höndum palestinsku flugvélarræn-
ingjanna á Entebbeflugvelli i Uganda.
Ég vaknaði upp við hróp og um-
gang I flugvélinni. Ensk rödd með
sterkum þýzkum hreim sagði I
hátalaranum: „Þetta er nýi flugstjór-
inn ykkar. Nafni flugvélarinnar hefur
verið breytt I Haifa, Che Guevara-
armur Alþýðufylkingarinnar til frels-
unar Palestlnu hefur raent henni."
Lágvaxin, Ijóshærð kona stóð
fremst I flugvélinni með skamm-
byssu I annarri hendi og hand-
sprengju l hinni. Tveir Arabar stóðu
aftast með handsprengjur. Þeir skip-
uðu okkur að rétta upp hendur. Við
gerðum okkur grein fyrir þvl að flug-
vélinni hafði verið rænt og fylltumst
skelfingu. Frakki sem sat við hliðina
á mér stóð upp og hrópaði: „Ég skal
drepa þessa hryðjuverkamenn".
Einn Arabinn sparkaði I kviðinn á
honum. Flugvélaræningjarnir tóku af
okkur öll skjöl og peninga og stungu
þeim r poka.
Nokkrum klukkustundum siðar
sveimuðum við yfir Denghazi-
flugvelli. Við flugum átta hringi og
fengum að borða. Þegar við lentum
nokkrum klukkustundum slðar fóru
flugvélaræningjarnir út og komu aft-
ur með tvo kassa af handsprengjum,
sem þeir settu við neyðarutganginn.
Klukkan var 10 að kvöldi þegar
við fórum. Við flugum I um fimm
tima og lentum á Entebbe-flugvelli I
Uganda. Við sátum I flugvélinni I niu
tima og Ugandahermenn fylgdust
með okkur fyrir utan. Þá sagði einn
af flugvélaræningjunum: „Martröð-
inni er lokið. Við förum úr flugvél-
inni." Við fórum inn i flugstöðvar-
bygginguna og vonuðum að þessu
væri lokið. en svo var ekki.
Nokkru siðar kom Idi Amin til
okkar, einkenniskiæddur og með ein
kennismerki israelska fallhlffalíðs-
ins. „Kannski þekkið þið mig,
kannski ekki," stamaði hann. „Ég er
doktor Idi Amin Dada marskálkur,
forseti lýðveldisins Uganda." Hann
var svo merkilegur með sig. að ég
átti bágt með að byrgja niður i mér
hláturinn.
ISRAELSMENN fögnuðu í gær dirfskufullri björgun
102 gísla úr höndum palestínskra flugvélarræningja í
Uganda, en ísraelskt herlið var viðbúið hefndaraðgerð-
um arabískra hryðjuverkamanna á landamærunum.
Yitzhak Rabin forsætisráðherra sagði að björgunin
ætti að auka ísraelsmönnum sjálfstraust sem beið
hnekki í októberstríðinu, en palestínskir hryðjuverka-
menn handan landamæranna í Líbanon hótuðu blóð-
ugum hefndum vegna björgunarinnar sem er þeim
jafnmikið áfall og Idi Amin Ugandaforseta.
Sigri hrósandi
ísraelsmenn höfðu hótunina að
engu og eru sigri hrósandi. Blöðin
birta heillaóskaskeyti frá stjórnmála
leiðtogum um allan heim og haft er
eftir Henry Kissinger utanríkisráð-
herra að hann samgleðjist ísraels-
mönnum á „merkum degi í sögu
Gyðingaþjóðarinnar". Rabin forsæt-
isráðherra hefur ekki notið jafnmik-
illa vinsælda síðan hann var hylltur
sem sigurvegari þegar hann var for-
seti herráðsins í sex daga stríðinu
1967.
Síðan hafa heldur ekki verið eins
mikil fagnaðarlæti í ísrael. Það eina
sem varpar skugga á gleði þeirra er
útför þiggja gisla sem fórust i árás-
inni ásamt öðrum æðsta manni isra-
elsku árásarsveitarinnar. Gíslarnir
sem biðu bana voru 56 ára kona sem
er nýflutt frá Rússlandi, heilbrigðis-
þjónustustarfsmaður sem lézt i
sjúkrahúsi i Nairobi og 1 9 ára stúd-
ent Jean Jacques Maimouni sem
hefur einnig franskan ríkisborgar-
rétt. Árásarforinginn sem féll var
Yonatan Netanyahu ofursti sem varð
fyrir skoti frá flugturninum á
Entebbe flugvelli þegar menn hans
brunuðu i jeppum búnum fallbyssum
út úr flutningaflugvél af gerðinni
C 1 30, einni þeirra þriggja flugvéla
sem tóku þátt í árásinni.
ísraelsku vikingahermennirnir
felldu um 20 Ugandahermenn og sjö
hryðjuverkamenn í árásinni sem tók
eina klukkustund. Þeir flugu síðan til
ísraels með 89 gisla og 12 manna
áhöfn flugvélarinnar frá Air France
sem hryðjuverkamennirnir rændu,
en að minnsta kosti einn gísl var
lagður í sjúkrahús i Nairobi þannig
að alls var bjargað 102 gislum. Ann-
ar israelskur gísl, 75 ára gomul kona
að nafni Dora Bloch, hafði verið flutt
í sjúkrahús í Kampala áður en árásin
var gerð.
Viðvörun
Rabin forsætisráðherra hefur var-
að önnur riki viS þvi að hjálpa flug-
vélarræningjum i framtiSinni. Hann
átti greinilega við Libýu og Alsir sem
Israelsmenn gætu auSveldlega grip-
ið til svipaðra árása gegn i framtið-
inni. ísraelska stjórnin hefur sakað
Amin forseta um að hafa hjálpað
flugvélarræningjunum og þess
vegna sagði Rabin að fleiri rlki yrðu
að hafa hugfast að öryggi þeirra gæti
ísraelsku gíslarnir við heimkomuna í Tel Aviv.
ísraelsku árásarmennirnir segjast
hafa fellt alla hryðjuverkamenn sem
þeir hafi getað fundið og ekkert
bendir til þess að þeir hafi haft með
sér fanga sem þeir gætu yfirheyrt.
., Hryðjuverkamennirnir vissu ekki
hvaðan á þá stóð veðrið þegar við
hófum skothríðina." sagði einn
þeirra. „Þeir voru svo furðu lostnir
að þeir höfðu ekki rænu á þvi að
þrifa i handsprnegjurnar og það varð
nokkrum gislum til lífs." Aðeins var
beitt einni handsprengju.
„Ugandamennirnir veittu miklu
harðara viðnám," sagði annar isra-
elskur hermaður. „Þýzku konunni
tókst að hefja skothríð en við felld-
um hana." Hann bætti því við að
auðvelt hefði reynzt að ráða niður-
lögum hinna.
„Við eigum ekki nógu sterk orð til
að hrósa flugstjóranum og áhöfn
hans," sagði einn gislanna. Farþeg-
arnir í þotu Air Francé segja að
áhöfnin hafi neitað að yfirgefa gisl-
ana þegar flugvélarræningjarnir hót-
uðu að láta hana lausa og þeir voru
síðustu óbreyttu borgararnir sem yf-
irgáfu flugstöðvarbygginguna eftir
israelsku árásina. Einn gislanna lýsti
þvi hvernig áhöfnin hefði róað þá og
hjálpað þeim á alla lund.
Yitzhak Rabin forsætisráðherra og fleiri ráðherrar úr nefndinni sem skipulagði björgun gíslanna á
Entebbe-flugvelli. Gad Yacobi samgönguráðherra er til vinstri og síðan koma Rabin, Shimon
Peres landvarnaráðherra og Vigal Allon utanríkisráðherra.
komizt i hættu ef þau hjálpuðu flug-
vélarræningjunum.
fsraelsku gislarnir segja að hryðju
verkamönnum hafi verið leyft að
ganga i lið með flugvélarræningjun-
um eftir að þota Air France lenti á
Entebbe-flugvelli. Þeir segja að Amin
hafi alltaf verið vopnaður skamm-
byssu þegar hann heimsótti þá og I
fylgd með rúmlega tiu Ugandaher-
mönnum sem sumir hafi verið vopn-
aðir israelskum vélbyssum.
Þegar fsraelsmennirnir voru skildir
frá öðrum gislum skömmu eftir flug-
vélarránið segja þeir að það hafi
minnt þá á það þegar „valdir" voru
Gyðingar sem átti að útrýma i fanga-
búðum nazista i heimsstyrjöldinni.
Þeir sögðu að þýzk kona, sem var I
hópi palestinsku flugvélarræningj-
anna. hefði verið hrottafengin, stöð-
ugt haldið á skammbyssu, en breitt
yfir sofandi börn á nóttunni ef
ábreiðurnar duttu af þeim.
Furðu lostnir
Sérþjálfaðir
Hermennirnir sem flugu 4.000
kilómetra vegalengd til að bjarga
gislunum eru úr sérþjálfaðri vikinga-
hersveit sem hefur það verkefni að
berjast við skæruliða. Til árásarinnar
voru notaðar tvær herþotur af gerð-
inni Boeing 707 og ein flutninga-
flugvél af gerðinni Hercules C130.
Flugtimi fyrrnefndu flugvélanna til
Uganda var áætlaður fimm timar,
hinnar siðarnefndu lengri.
Nokkrir hermannanna munu hafa
tekið þátt í aðgerðum vikingasveita
gegn arabiskum hryðjuverkamönn-
um i jsrael. Yfirmaður þeirra, Dan
Shomron hershöfðingi, sem þegar er
orðinn þjóðsagnapersóna, var nýlega
skipaður yfirmaður fótgöngu- og fall-
hlifaliðsins.
Talið er vist að flugvélarnar hafi
sézt i tatsjám i einhverju þeirra landa
sem þær flugu yfir en óvist hvort
yfirvöld i löndunum hafi áttað sig á
hvaða flugvélar þetta voru og sizt
dottið i hug að þær væru israelskar.
„Ég hélt að é
örfáar mínút
„Þeir voru svo furðu lostnir
að þeir höfðu ekki rænu á að
þrífa í handsprengjumar”