Morgunblaðið - 06.07.1976, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976
* «
FH-stúlkur
ætla að verja
meistara-
titilinn
ALLT bendir nú til
þess aö FH-stúlkurnar
muni verja titil sinn í
1. deild kvenna í knatt-
spyrnu. Á sunnudag-
inn sigruóu þær
Breiöablik 1:0 og skor-
aði Svanbjörg Magnús-
dóttir eina mark leiks-
ins.
Hefur FH-liðið
aðeins tapað einu stigi
í mótinu og var það í
fyrri leik liðsins gegn
Breiðabliki. Segja má
að þessi leikur hafi
verið hreinn úrslita-
leikur hjá stúlkunum
því Breiðablik hafði
fram að leiknum sömu-
leiðis aðeins tapað
einu stigi.
v#('
Friðfinnur Finnbogason skallar að marki Haukanna I leiknum á laugardaginn. (Ljósm. Mbl. RAX)
GOÐ KNATTSPYRNA OG
BARÁTTA ER ÍBV VANN
MIKIL
HAUKA
LIÐ Hauka og ÍBV buðu
áhorfendum upp á góða
skemmtun er liðin mætt-
ust í Kaplakrika á laugar-
daginn. Þótti leikurinn vel
leikinn og mikið var um
spennandi augnablik. Vest-
mannaeyingar voru sterk-
ari aðilinn í þessum leik,
sem öðrum í leikjum sín-
um við hin liðin f 2. deild-
inni til þessa og 2:0 sigur
Völsungar komu á óvart
og unnu ísfirðinga 3:1
VÖLSUNGAR komu heldur betur á óvart í leik sínum
við Isfirðinga á heimavelli þeirra síðarnefndu í 2. deild-
inni um helgina. Úrslitin urðu 3:1, en það verður þó að
segjast að mikill heppnisstimpill var á þessum sigri
Húsvíkinganna að þessu sinni.
Ekki voru liðnar nema 3 mínút- Jónasson skoraði fyrir Völsung og
ur af leiktímanum er Hermann voru Isfirðingarnir þá engan veg-
inn með á nótunum, hreinlega
ekki byrjaðir leikinn. Fimm mín-
útum síðar skoraði Jóhannes
Sigurjónsson síðan annað mark
Völsunga, en segja má að allan
þann tíma, sem eftir var af leikn-
um hafi Isfirðingarnir sótt stöð-
ugt. Sérstaklega var sókn þeirra
þung í seinni hálfleiknum og
skoruðu þeir þá eitt mark. Var
þar Gunnar Guðmundsson að
verki. Undir lok leiksins fengu
Völsungar skyndisókn, en slikar
fengu þeir nokkrar í leiknum, og
markaskorarinn Hreinn Elliðason
skoraði mark sem tryggði Völs-
ungunum sigur í leiknum.
Góð byrjun SeHyssinga
dugði ekki gegn Þór
SELFYSSINGAR skoruðu
2 fyrstu mörkin í leiknum
við Þór á laugardaginn, en
síðan ekki söguna meir.
Þórsliðið skoraði 4 mörk
það sem eftir var leiksins
og sigraói verðskuldað 4:2.
Þeir Tryggvi Gunnars-
son og Sumarliði Guð-
bjartsson unnu fallega
saman aö mörkum Selfoss
sem komu á 8. og 19. mín-
útu fyrri hálfíeiksins.
Fyrst skoraði Tryggvi eftir
að Sumarliði hafði leikið
varnarmenn Þórs grálega
og síðan bætti Sumarliði
öðru markinu við með
skalla eftir góða fyrirgjöf
frá Tryggva.
Magnúsi Jónatanssyni
tókst síðan að minnka mun-
inn skömmu síðar meó
langskoti og fleiri mörk
voru ekki skoruð í fyrri
hálfleiknum. í seinni hálf-
leik var Þórsliðið allt
annað og sterkara og liðið
skoraði þá þrjú mörk þó
þeir sæktu á móti vindi.
Skoruðu þeir Jón Lárus-
son, Sigurður Lárusson og
loks Magnús Jónatansson.
þeirra var fyllilega sann-
gjarn þó svo að Haukarnir
hafi sýnt meiri mótstöðu
en flest hinna liðanna.
Sigurlás Þorleifsson skoraði
fyrra mark IBV er um 20 minútur
voru liðnar af leiktímanum, en í
seinni hálfleiknum skoraði siðan
Tómas Pálsson eftir að hafa feng-
ið stungusendingu inn fyrir vörn
Hauka. Þótti mönnum sem Tómas
hefði verið rangstæður er knött-
urinn var gefinn á hann, en slak-
ur dómari þessa leiks dæmdi
markið gilt.
Haukarnir hafa ekki leikið eins
vel í keppninni í 2. deildinni í
sumar og I þessum leik. Nú sýndu
þeir þá takta sem gerðu þá að
öruggum sigurvegurum í Litlu
bikarkeppninni í vor og hefðu
, sennilega unnið öll önnur lið í 2.
deild með þessari frammistöðu,
nema Eyjamennina. Lið IBV á
engan veginn heima i 2. deild.
Liðið er í flokki með betri liðun-
um í 1. deildinni og ótrúlegt er að
nokkuð geti komið í veg fyrir sig-
ur þeirra í 2. deild í ár.
Suðurnesjamaður
sigraði í SR-
keppni Leynis
Á Akranesi fór fram um helg
ina opið mót i golfi og á sunnu-
daginn var þar keppt I meist
araflokki og gaf keppnin stig til
landsliðs. Golfklúbburinn
Leynir é Akranesi sá um fram-
kvæmd mótsins en Sements-
verksmiðjan gaf verðlaun til
keppninnar.
I meistaraflokki sigraði Hall-
ur Þórmundsson á 155 högg-
um og fær hann 20.9 lands-
liðsstig fyrir I 2. og 3. sæti
urðu siðan jafnir Gunnar
Júliusson og Þórhallur Hólm-
geirsson Það vakti athygli að
15 ára Akurnesingur, Loftur
Sveinsson, sigraði í forgjafar-
keppninni i meistaraflokki á 81
höggi brúttó, 68 höggum
nettó, en 18 fyrstu holurnar
voru jafnframt stigakeppninni
forgjafarkeppni i flokknum.
i 2. og 3. flokki varð knatt-
spyrnukappinn Jón Alfreðsson
í öðru sæti i forgjafarkeppninni
á 71 höggi nettó.
Helztu úrslit i
urðu sem hér segir:
keppninni
MEISTARAFLOKKUR.
STIGAKEPPNIN:
Hallur Þórmundsson GS 155
Gunnar Júliusson GL 157
Þórhallur Hólmgeirsson GS
157
Sigurður Pétursson GR 1 59
Hannes Þorsteinsson GL 161
Magnús Halldórsson GK 164
Guðni Ö. Jónsson GL 165
Jóhann Benediktsson GS 166
Sigurður Hafsteinsson GR 166
Eirikur Jónsson GR 166
2. OG 3. FLOKKUR, ÁN
FORGJAFAR:
Þorgeir Þorsteinsson GS 84
Barði Valdimarsson GR 88
MEO FORGJÖF:
Þorgeir Þorsteinsson GS 70
Jón Alfreðsson GL 71
1 OG MEISTARAFLOKKUR
MEÐ FORGJÖF, 18 HOLUR:
Loftur Sveinsson GL 68
Hallur Þórmundsson GS 70
f keppninni gerðist það að
Jóhann 0 Guðmundsson, NK,
tók vitlausan bolta á einni
brautinni og lauk holunni með
honum og byrjaði á þeirri
næstu. Þegar Jóhann uppgötv-
aði mistök sin tilkynnti hann
þau strax og dæmdi sjálfan sig
þvi úr keppninni.
UPPGJOFI LIÐI REYNIS OG ÞVI
AUÐVELDUR SIGUR ÁRMANNS
MENN voru á einu máli um það
að Ieik Reynis og Ármanns I 2.
deildinni loknum, að lið Reynis
hefði aldrei verið jafn slakt og
um þessar mundir. Það er nánast
að sjá sem liðið hafi þegar gefist
upp við að halda sæti slnu f deild-
inni, þrátt fyrir að Selfyssingar
KA og Guðgeir fóru illa með Víkinga
HINN árlegi minningar-
leikur, um Jakob heitinn
Jakobsson, sem fyrrum
lék með ÍBA og landsliði
Islands, var leikinn á
Akureyri á föstudag. Það
voru 2. deildarlið KA og
1. deildarlið Víkinga sem
áttust við. Skemmst er
frá því að segja að KA
bar hærri hlut frá borði,
skoraði fjögur mörk, en
Víkingar tvö.
Að þessu sinni lék Guðgeir
Leifsson, atvinnumaðurinn
kunni, með KA sem gestur og
sýndi hann á köflum glæsilega
takta. Leikurinn var vart einn-
ar mínútu gamali þegar Víking-
ar skoruðu fyrra sinni. Þar var
að verki Eirikur Þorsteinsson.
KA tók sfðan smám saman völd-
in á vellinum og Sigbjörn
Gunnarsson jafnaði fljótlega úr
vítaspyrnu. Fyrir leikhlé skor-
aði Gunnar Blöndal síðan tví-
vegis. Að öllum þessum mörk-
um KA var afar vel unnið og
raunar unun að sjá undirbún-
inginn að öðru marki KA þar
sem vörn Víkinga var spiluð
sundur og saman.
I upphafi síðari hálfleiksins
bætti Gunnar Blöndal sínu
þriðja marki við og fjórða
marki KA og þannig var staðan
þar til á síðustu minútu að
Jóhannes Bárðarson skoraði
annað mark Víkinga.
KA-liðið var mun sterkari
aðilinn í leiknum og þegar sá
gállinn er á liðinu er fátt til
varnar. Gunnar Blöndal hefir
skorað hvorki meira né minna
en niu mörk i tveimur leikjum,
þrjú gegn Vikingi og sex gegn
Leiftri í bikarkeppninni tveim-
ur dögum þar á undan. Það er
ekki amalegt fyrir lið að hafa
slíkan markaskorara á sinum
snærum.
Vikingarnir ollu nokkrum
vonbrigðum. Þess ber þó að
gæta að þeir léku kvöldið áður í
deildinni og hefur það ef til vill
dregið eitthvað úr krafti leik-
manna. Það er þó greinilegt að
bakverðirnir eru veiku hlekkir
liðsins, og nýti andstæðingarnir
kantana vel gegn Vikingi er
ástæða til að ætla að dæmið
gangi upp. Sigb. G.
séu aðeins einu stigi á undan
þeim. Það skýtur alla vega
skökku við að heyra eins og stöðu
Reynis er háttað, að þjálfarinn,
Duncan McDowell, skuli kominn
I viku frí og farinn til Skotlands.
Já, leikur Reynis við Ármann
var afar slakur af hálfu Reynis.
Það var varla að þeir kæmu skoti
á mark Ármanns leikinn út. Að
visu var þeirra skæðasti sóknar-
leikmaður, Björgvin Gunnlaugs-
son, I leikbanni, en vart hefir það
haft úrslitaáhrif. Ármenningar
komu þó knettinum aðeins einu
sinni í net Reynis í fyrri hálfleik.
Þar var Arnlaugur Helgason að
verki. Ármenningarnir skoruðu
hins vegar fjórum sinnum í síðari
hálfleiknum, Ingi Stefánsson tví-
vegis, Þráinn Asmundsson einu
sinni og eitt markanna var sjálfs-
mark.
Armenningar verða vart dæmd-
ir af frammistöðunni i þessum
leik, til þess var mótstaðan allt of
lftil. Hins vegar setur sífellt nudd
leikmanna út í dómara, andstæð-
inga og jafn vel sín á milli leiðin-
legan blæ á framkomu og leik
liðsins.
Sigb. G.