Morgunblaðið - 06.07.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JULÍ 1976
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Ódýrt garn
í irskar peysur. Munið útsöl-
una á H jartagarninu.
Hof Þingholtsstræti 1.
Verðlistinn, auglýsir
Munið sérverzlunina með
ódýran fatnað. Verðlistinn,
Laugarnesvegi 82, sérverzl-
un. ími 31 330.
tilkynningar'
Sölusýning
vélprjónakvenna. Þær vél-
prjónakonur sem ætla að
selja vörur á sölusýningunni í
okt. n.k., tilkynni vöruteg. og
magn til Sigríðar lorðkvist
Hafnargötu 7, Bolungarvík
fyrir 1 5. ágúst. Nefndin.
Tvitug stúlka
óskar eftir atvinnu. Margt
kemur til greina. Simi
42671.
Ibúð til leigu
4ra herb. við Háaleitisbraut
frá 1. október. Tilboð og upp-
lýsingar sendast Mbl. merkt:
Góður staður — 2977.
Keflavík
Til sölu vel með farin 3ja
herb. ibúð við Lyngholt.
Mjog góðir greiðsluskilmálar.
Fasteignasalan, Hafnargötu
27
Keflavík. simi 1 420.
Brotamálmur
er fluttur að Ármúla 28, simi
37033. Kaupi allan brota-
málm langhæsta verði. Stað-
greiðsla.
Dráttarvél óskast
Vil kaupa gamla dráttarvél í
sæmilegu ástandi.
Guðjón D. Gunnarsson,
simi um Króksfjarðarnes.
Arinnhleðsla —
Skrautsteina-
hleðsla. Simi 84736.
Bólstrun —
klæðningar
Með nýju áklæði og ýmsum
breytingum má gera gömul
húsgögn sem ný. Ath. mögu-
leikana.
Bólstrun Sveins Halldórs-
sonar, Skógarlundi 11,
-Garðabæ. simi 43905.
Blindraiðn
er að Ingólfsstræti 16, s.
12165.
SIMAR. 11798 OG 19533.
Miðvikudagur 9. júlí
1. kl. 08.00 Þórsmörk.
2. kl. 20.00 Grótta — Sel-
tjarnarnes, verð kr. 500 gr.
v/bílinn. Fararstjóri: Gestur
G uðfinnsson.
Föstudagur 11. júli.
1. kl. 08.00 Hringferð um
Vestfirði.
Fararstjóri: Guðrún Þórðar-
dóttir.
2. kl. 20.00. Þórsmörk,
Landmannalaugar og Kjölur.
Laugardagur 10. júlí.
Hornstrandir (Aðalvík).
Fararstjóri: Sigurður B.
Jóhannesson.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Ferðafélag íslands
Frá Frikirkjusöfnuðin-
um i Reykjavik
Sumarferðin verður farin
sunnudaginn 1 1. júlí. Mætið
við Frikirkjuna kl. 8.30. Ekið
verður að suðurströndinni,
að Flúðum, Skálholti og
víðar. Farmiðar seldir i Versl-
uninni Brynju til föstudags.
Uppl. i símum 30729,
15520 og 16985.
Ferðanefndin.
Fíladelfia
Munið tjaldsamkomurnar við
Melaskóla kl. 20.30 í kvöld.
lilJ.IJJIJ
71
Framvegis verða veiðileyfi i
HLÍÐARVATNI. KÁLFÁ og
LAXA i S.-Þing. seld i verzl.
Sport, Laugavegi 15.
UTIVISTARFERÐIR
12. — 21. júli Hornstrandir.
Fararstj. Jón I. Bjarnaso» .
15. — 21. júli Látrabjarg,
róleg og létt ferð.
20.—28. júlí Aðalvík, létt
ferð, enginn burður. Fararstj.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
24.—29. júli Laki, létt og
ódýr fjallaferð.
22. — 28. júl? Grænlands-
ferð.
29/7 — 5/8 Grænlandsferð.
ENNFREMUR FLEIRI-
FERÐIR
Utivist.
Lækjargötu 6,
simi 1 4606.
■yv
Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu
í Morgunblaðinu þann: ..................
......v..y
‘ Athugið
Skrifið með prentstöfum og <
setjið aðeins 1 staf í hvern reit.
Áríðandi er að nafn, heimili
°g simi fylgi.
Á A A ^... »mJ\ A A I |JV—■
77.4 AM/Su
M> T/iJr.A Zfj!-'
IMA.ð. /sue / fiA/liM rt/Ð- '
A 1 t
/ .SS/tA .1.0,0.06. •<
.. A —4 A « ■)
I I-------L.
J I L
J L
I I____1 I. I_____I._______I Fyrirsögn
i8o Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
1 I I L
J L
J l I I I I I L
J__I__I__I_I__I__I__I 360
REYKJAVIK:
HAFNARFJÖRÐUR:
J I I I I 1 I L
J I I I I I I I—I—I—L
J___\_I__I__I 540
I I 1 I I
I I I I L
KJOTMIÐSTOÐIN, Laugalæk 2,
I I I I I_I__\_I__\_I__I I I 1 I I—1—1—I—I—I 720 SLÁTURFÉLAG SUÐURLAIMDS
Háaleitisbraut 68,
J__I_I_I_I_i__I_I__I_I__I_I_I_I__I_I__I_I--1-!-1 900
I I I L
J I I I I L
J I I I I I I I I I L
I I I I—\—L
J I I I L
J I L
.L...J I I I L
Hver lína kostar kr. 1 80 Meðfylgjandi er greiðsla kr.
NAFN: .......................................
HEIMILI: ....................................SÍMI:
LJÓSMYNDA
OG GJAFAVÖRUR
Reykjavíkurvegi 64,
KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, Stigahiíð 45—47, VERZLUN
j_| 1080 HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2-6 !Ó,RÐAR *»ÓRÐARSONAR. <
SLÁTURFÉLAG SUOURLANDS
j—| 1260 Álfheimum 74,
Suðurgötu 36,
KÓPAVOGUR
ARBÆJARKJÖR
Rofabæ 9,
A A A AA -A
ÁSGEIRSBÚÐ, Hjallabrekku 2'
BORGARBÚÐIN, Hófgerði 30
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
Á 7 t . A A--....A..A M. ...^-----------
Guðni Kristinsson í
Skarði — Fimmtugur
Á SUMARKVÖLDI fyrir um þrjá-
tíu árum kom ég í fyrsta sinni að
Skarði í Landsveit. Síðdegis þenn-
an dag hafði verið manntalsþing
þar á staðnum og á þessum degi
sá ég í fyrsta skipti marga eldri
bændur sveitarinnar. Þetta voru
menn af gamla skólanum. Þá fór
ekki á milli mála, að það ríkti
góður andi og notalegur í þessu
samfélagi, velvild, heiðarleiki og
hlýja. Flestir þessir menn eru nú
horfnir af sviðinu, en hinar fornu
dyggðir eru rótfastar, og enn i dag
finnst mér Landsveitin vera eins
og ein stór fjölskylda, ein tröll-
trygg fjölskylda.
Skarð á Landi er fornt höfuðból
og jafnframt gamalt, en sifellt
nýr rausnargarður. Þar komu
menn ætíð við þegar farið var inn
í óbyggðina og aftur þegar komið
var til byggða. Kristinn í Skarði
var löngum leiðsögumaður inn í
fjalladýrðina, Landmannalaugar,
Fjallabaksveg, Veiðivötn og jafn-
vel norður í land um Sprengi-
sandsleið. Orð fór af Kristni sem
traustum og skemmtilegum ferða-
félaga og fararstjóra, fróðum, frá-
bærum hestamanni, sem hafði
auga á hverjum fingri og öllum
þótti gott og öruggt með að vera.
Hann var maður þeirrar gerðar
að fyrsta handtak vakti óbilandi
traust og það var eins og hann
væri fæddur til að stjórna og
segja fyrir verkum. Orð hans
stóðu. —
Krir*1,nn lézt um aldur fram,
fyrir um tuttugu árum. Hann var
hreppsstjóri í Landsveit. Sigriður
móðir afmælisbarnsins og ljós-
móðir er þekkt af rausn og hjarta-
hlýju. Hún lét sér ekki nægja að
fagna gestum sínum. Hún vildi
líka láta fara vel um þarfasta
þjóninn. Hestum ferðamanna gaf
hún brauð og rúgdeig þó ilmandi
taða væri í stalli. Einhvern veg-
inn sé ég hana Sigriði í Skarði
fyrir mér hjá stórum kraumandi
kjötpotti og sjóðheitum kaffikatli.
Svona lifir matarástin líka í minn-
ingunni. Hún dýrkaði ekki sjálfa
sig, en fetaði sin spor af sivakandi
fórnarlund í miklu húsfreyju-
starfi.
Húsbændurnir, sem nú búa í
Skarði, afmælisbarnið Guðni
Kristinsson, hreppstjóri i sinni
sveit, og konan hans, hún Sigríð-
ur Theodóra Sæmundsdóttir, eiga
bæði ættir sinar að öðrum þræði
að rekja I Landsveitina. Þau hafa
erft og áunnið ,sér þá eiginleika
sem einkenna og prýða mannlifið
i heimabyggðinni. Þau hafa hlotið
traust og virðingu sveitunga og
sýslubúa og þykir öllum gott að
eiga þau að.
Það er vandaverk að taka við
höfuðbóli og halda í horfinu.
Unga húsfreyjan, sem kom úr
Reykjavík og tók við eldhúsinu og
umsýslunni hennar Sigríðar I
Skarði, hefur staðió þannig í
stykkinu að hún sjálí'og höfuðból-
ið i Skarði hefur heiður af.
Guðni Kristinsson býr stóru búi
og afurðamiklu. í Skarði er sífellt
verið að rækta og byggja og allur
bústofn er miklu meiri en al-
mennt gerist. Hann er maður
hygginn og farsæll og kann öðr-
um betur með fjármuni að fara.
Allir, sem til þekkja, vita, aó
hreppstjórinn i Skarði vinnur sín
embættis- og félagsmálastörf af
einstakri alúð og samvizkusemi.
Hann hefur verið hreppstjóri í
um tvo.áratugi. Hann er formaður
sóknarnefndar Skarðskirkju, sit-
ur í sveitarstjórn, er umboðsmað-
ur skattstjóra. F'ormaður félags-
heimilisnefndar og sér um félags-
heimilið að Brúarlundi, sem ný-
lega er aftur uppbyggt af miklum
myndarskap eftir bruna — og
svona má áfram upp telja.
Hjónin í Skarói eru samanvalin
i þvi að vilja leysa allra vanda.
Allir geta beðið þau og allra er-
indi eru i öruggum höndum hjá
þeim. Þau eru fljót til hjálpar, en
ekki hafa þau hátt um það, sem
látið er af hendi rakna til að
hjálpa og gleðja.
Þau hjónin eiga tvö efnileg
börn, Helgu Fjólu, sem er i
heimagarði, og Kristin, sem nú
býr með foreldrum sínum og er
ungi bóndinn þannig gerður og
giftur að víst er að enn og áfram
verður merki manndóms,
myndarskapar og athafna uppi
haldið i Skarði og ungum hestum
riðið til gangs — en hestamennsk-
an i Skarði er gamalgróin.
Skarð á Landi stendur austan
undir Skarósfjalli. Þaðan er sýn
til fjalla hrífandi fögur og Hekla
gamla i hæfilegri fjarlægð, tignar-
leg og ógnandi, en nær rennislétt
tún og vallendisgrundir til suð-
urs. Af heimahlaði má sjá að
Guðni i Skarði hefur verið at-
hafnasamur ræktunarmaður.
Græna byltingin hefur átt góða
liðsmenn i Skarði. Sunnan við
bæjarhúsin í Skarði er kirkjan,
vel hirt og vakandi inni i hinum
óvenju fagra kirkjugarði, sem
hlaðinn er úr hraungrýti af
hreinni snilld, enda hafa Land-
menn löngum verið frægir vegg-
hleðslumenn og má sjá þess
merki viða um sveitina.
1 dag munu margir flytja af-
mælisbarninu i Skarði hamingju-
óskir og þakkir. Við hjónin erum i
þeim stóra hópi, sem hefur þótt
það ágætur lifsfengur að vera í
vinfengi við afmælisbarnið og
minnumst margra góóra stunda á
heimili hjónanna í Skarði.
Pálmi Eyjólfsson.
ÞEIR, scm beina sjónum að ris-
andi sól, taka eftir morgunroðan-
um á fjöllunum og þakka ljósið,
þeir kunna ekki að eldast. Æsku-
bríminn verður þeirra hlutskipti,
ylgjafi og uppörvun öllum þeim,
sem fá notið félagsskaparins.
Slíkur maður er vinur minn og
frændi, Guðni á Skarði, sem í dag
leggur að velli hálfa öld. Fyrir
mér er þessi fimmtugi unglingur,
fólk hans og sveit, dæmigert fyrir
allt það bezta, sem íslenzkt þjóðlíf
á. Við kynnin af heimili hans hef-
ur mér enn frekar aukist skiln-
ingur á því, hvernig bændabýlin
þekku gátu varðveitt islenzka
þjóð í þúsund ár.
Unglingi hæfir ekki Iöng af-
mælisgrein. Þessi orð eru á enda.
Megi hrynjandi hófadyns og lýs-
andi fegurð Landsins verða hlut-
skipti þitt og þinna um alla fram-
tið.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
— Orð í eyra
Framhald af bls. 4
snemmt, doktor?
— Snemmt? Klukkan að verða
tiu. i Mols er aldrei neitt of
snemmt. Né of seint. Enda hafa
einhvurjir stúngið uppé að flytja
alla félagsvisindamenn á norður
hveli jarðar til okkar i Mols. Þar |
eiga þeir heima, segja sumir, þó *
ég hafi nú aldrei botnað i hvu > :
vegna þeir eiga heima hjá okk.- ’i
fremuren annarsstaðar, tildæ
i the House of Commons