Morgunblaðið - 19.08.1976, Page 1
32 SÍÐUR
181. tbl. 63. árg.
FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Kansasborg 18. ágúst.
AP — Reuter.
ATKVÆÐAGREIÐSLU um for-
setaefni Repúblíkanaflokksins
var ekki lokið er Mbl. fór f prent-
un í nótt, en yfirgnæfandi Ifkur
voru taldar á að Ford forseti sigr-
aði við fyrstu atkvæðagreiðslu.
Var forsetinn seint f gærkvöldi
mjög sigurviss og hafði snúið sér
að valinu á varaforsetaefni sínu.
Gaf hann út yfirlýsingu, þar sem
hann hét þvf að ráðgast við Ron-
ald Reagan, fyrrum fylkisstjóra
Kalifornfu og helzta keppinaut
sinn, áður en hann tæki ákvörð-
un, en Reagan hefur margoft lýst
þvf yfir að hann muni undir eng-
um kringumstæðum gefa kost á
sér f það embætti.
Sigur Fords var talinn viss, eft-
ir að hann sigraði í atkvæða-
greiðslu í fyrrakvöld, þar sem
borin var fram tillaga frá stuðn-
ingsmönnum Reagans um, að for-
setinn yrði að tilkynna varafor-
setaefni sitt fyrir atkvæðagreiðsl-
una um sjálft forsetaefnið. Var
tillagan felld með 1180 atkvæðum
gegn 1069, en 10 sátu hjá. Töldu
stjórnmálafréttaritarar að úrslit-
in í nótt myndu verða svipuð þótt
ekki treystu þeir sér til að útiloka
að eitthvað óvænt gerðist.
Danmörk:
Richard Schweiker öldungar-
deildarþingmaður og varaforseta-
efni Reagans gekk í dag á fund
Reagans og bauðst til að draga sig
í hlé ef Reagjin teldi að það gæti
hjálpað honum. Reagan hafnaði
boðinu. Tommy Thomas yfirmað-
ur kosningabaráttu Reagans í
Flórída sagði við fréttamenn í
kvöld, að ef Reagan hefði tekið
þessu boði hefði hann átt sigur
visan, en nú væri allt miklu erfið-
Framhald á bls. 18
Jack Ford heldur f jakka föður sfns, er forsetinn tekur f hendur
stuðningsmanna sinna f aðalstöðvum kosningabaráttunnar f Kansas-
borg f fyrradag.
Styður aðeins á-
löguhækkanirnar
Kaupmannahöfn 18. ágúst frá Lars Olsen
SEINT í gærkvöldi náðist
samkomulag milli dönsku
stjðrnarinnar og thalds-
flokksins um þá hlið efna-
hagsmálafrumvarps
stjórnarinnar, sem fjallar
um hækkaðar álögur, en
Paul Schlueter formaður
íhaldsflokksins sagði, að
samkomulag hefði ekki
náðst um önnur atriði
frumvarpsins, sem fela í
sér takmörkun á launa-
hækkunum við 6% og
niðurskurð á opinberum
gjöldum um 2 milljarða
danskra króna á næsta ári
og þrjá milljarða á árun-
um 1978—79.
Stjórnin hefur nú stuðn-
ing 90 þingmanna við
þennan þátt efnahags-
Frá mótmælafundinum við Kristjánsborg í gær.
frumvarps síns, og þarf j
nákvæmlega 90. íhalds-'
menn hafa 9 þingmenn
Um 15000 verkamenn efndu i
dag til mótmælafundar fyrir
framan þinghúsið, Kristjánsborg,
til að mótmæla fyrirhuguðum að-
gerðum, sem gera ráð fyrir að
launahækkanir á næsta ári verði
takmarkaðar við 6% og að sölu-
skattur á bifreiðum, bjór, áfengi,
bensíni, tóbaki og sykri verði
hækkaður stórlega til að tryggja
ríkissjóði allt að 5 milljarða
danskra króna tekjur. Þá gengu
einnig þúsundir Dana af vinnu-
Framhald á bls. 18
Bankaránið í París;
Héldu lykt-
ina og návað-
ann úr veit-
ingahúsi
Paris 18. ágúst AP.
GtFURLEGUR fjöldi lög-
reglumanna f Parfs og vfðar
leitar nú bankaræningjanna,
sem um helgina rændu um 2
milljörðum fsl. króna úr
Societé Générale-bankanum f
Parfs um helgina, en tafið er
að hér hafi verið að verki sömu
mennirnir og rændu svipaðri
upphæð úr útibúi sama banka
f Nizza f sfðasta mánuði.
Lögreglan hefur enn sem
komið er ekki hugmynd um
hverjir hér voru að verki, en
það hefur vakið mikla gremju
lögreglu og bankayfirvalda, að
sérþjálfaðir öryggisverðir, sem
ráðnir voru sérstaklega til að
gæta bankans um helgina
vegna frídags verzlunarmanna
á mánudag, heyrðu tvisvar á
laugardag einkennileg hljóð og
fundu lykt úr geymsluhvelf-
ingu bankans, en komust að
þeirri niðurstöðu án þess að
kanna málið nánar, að lyktin
og hávaðinn kæmu úr kjallara
Framhald á bls. 18
Filipseyjar:
Á 5. þúsund
lík fundin
Manila 18. ágúst
Reuter — AP.
LJÓST er nú að á 5. þúsund
manns að minnsta kosti hafa
látið Iffið f mesta jarðskjálfta f
sögu Filipseyja og þúsunda er
saknað. Er óttazt að allt að
10—15 þúsund manns hafi lát-
izt. Um 100 þúsund manns eru
heimilislausir og nemur tjónið
af völdum náttúruhamfaranna
tugum milljóna dollara. Mest
varð manntjónið af völdum
flóðbylgju, sem skall á suður-
strönd eyjanna f kjölfar jarð-
skjálftans og sogaði hún heilu
þorpin með öllum fbúum á haf
út.
Lítið manntjón varð hins
vegar i Szechwanhéraði i Kína,
þar sem öflugur jarðskjálfti
varð um svipað leyti og á
Filipseyjum, þar sem ibúar
héraðsins um 3 milljónir að
tölu höfðu verið varaðir við
yfirvofandi skjálfta og sváfu
allir utan dyra er hann reið
yfir. Mældist sá skjálfti 7,2 á
Richter.
Ford sigurviss
á flokksþinginu
Reagan hafnaði boði Schweikers um að draga sig í hlé
Samkomulag að hluta
yið íhaldsflokkinn
Tveir Bandaríkjamenn
myrtir í Panmunjom
Seoul og Washington
18. ágúst AP-Reuter.
FORD Bandarfkjaforseti for-
dæmdi f kvöld morðin á tveimur
bandarfskum herforingjum á
hlutlausa beltinu milli S- og N-
Kóreu og sagði að um dýrsleg
morð án minnsta tilefnis hefði
verið að ræða. Hann sagði að
stjórn N-Kóreu bæri algera
ábyrgð á morðunum. Að sögn
bandarfska utanrfkisráðuneytis-
ins fóru herforingjarnir tveir inn
á hlutlausa beltið til að fylgja
starfsmönnum Sameinuðu þjóð-
anna, sem áttu að fella nokkur tré
á svæðinu. Gerðu þá um 30 n-
kóreanskir hermenn skyndilega
árás á Bandarfkjamennina og
hjuggu þá til bana með öxum.
Herstjórnin í N-k'óreu sagði að
Bandaríkjamennirnir hefðu neit-
að að hlýðnast skipunum n-
kóreanskra hermanna um að
hætta viðarhögginu og skyndilega
ráðizt á N-Kóreumennina, sem
snúizt hefðu til varnar. I tilkynn-
ingu N-Kóreustjórnar var ekkert
minnzt á mannfall, en fregnir frá
Panmunjom i dag hermdu að þrir
N-Kóreumenn hefðu einnig fallið.
Yfirstjórn gæzluliðs Sameinuðu
þjóðanna boðaði I dag í tilkynn-
ingu, sem gefin var út I Seoul, til
fundar vopnahlésnefndarinnar i
Panmunjom á morgun föstudag
til þess að ræða atburðinn. Síð-
ustu átök milli Bandarikjmanna
og N-Kóreumanna áttu sér stað
fyrir 14 mánuðum, er n-
kóreanskir hermenn særðu illi-
lega bandarískan ofursta i
Panmunjom, er þeir réðust að
honum að ósekju, að þvi að þá
sagði i tilkynningu Bandaríkja-
stjórnar.