Morgunblaðið - 19.08.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976
ingu. Komið verður viða við,
meðal annars i Höfðaborg,
Bombay og Hong Kong, og
skroppið verður i þriggja daga
heimsókn til Kína.
í risaskipi á borð við QE 2 er
að sjálfsögðu um margs konar
farþegarými að tæða, og segir i
auglýsingunni að ódýrasta
SVEITIR frá Scotland Yard í
London létu til skarar skriða um
síðustu helgi og handtóku 27
manns, sem þeir telja viðriðna
alþjóða glæpastarfsemi. Meðal
annars er talið að þessi glæpa-
hringur hafi stundað sölu á
gulli, sem hringurinn þóttist
hafa undir höndum, en aldrei
var til Átti þetta að vera fjár-
sjóður, sem nazistar földu í
Þýzkalandi og viðar í lok síðari
heimsstyrjaldarinnar. Tals-
menn Scotland Yard segja að
hópur þessi hafi svikið út fé i
Bretlandi, sem nemur milljón-
um sterlingspunda. Telja þeir
að þessi brezki glæpahringur
hafi átt samvinnu við annan
glæpahring í Vestur-
Þýzkalandi, sem sveik út millj-
ónir þýzkra marka með ,,sölu" á
„nazistagulli", dýrum steinum
og fölsuðum listaverkum. Upp
komst um þann hring fyrir
hálfu öðru ári.
Rannsókn þessa máls hefur
tekið langan tima, og hefur
Scotland Yard haft samvinnu
við yfirvöld víða erlendis.
Margir þeirra handteknu höfðu
um langt skeið verið undir stöð-
ugu eftirliti lögreglunnar, og
fulltrúar Scotland Yard jafnvel
elt suma þeirra á ferðum milli
landa.
Við húsleit i sambandi við
handtökurnar fann lögreglan
mikið af fölsuðum vegabréfum,
ferðatékkum, verðbréfum og
alls konar skjölum. Voru þetta
mjög nákvæmar eftirlíkingar,
enda höfðu félagar i glæpa-
hringnum notað sum vegabréf-
anna.
Starfsemi þýzka glæpa-
hringsins er enn t rannsókn.
Einn af foringjum hans var
handtekinn i Paris fyrir hálfu
öðru ári, en síðar framseldur til
Þýzkalands og færður fyrir dóm
í Múnchen. Gengur maður
þessi undír nafninu Peter Bald-
au, en er einnig þekktur sem
„Svarti Pétur". Fjórtán menn
aðrir hafa verið handteknir í
sambandi við rannsókn í máli
Baldaus
ÍSLENZKAR ferðaskrifstofur
auglýsa nú vetrarferðir til sólar-
landa, og er þar aðallega átt
við Kanaríeyjar. í blaðinu The
New York Times er einnig mik-
ið um auglýsingar um vetrar-
ferðir, en fáar slá út auglýsing-
una frá Cunard-félaginu brezka
um hnattferð með risaskipinu
„Queen Elizabeth 2".
Ferðin á að hefjast 15. janú-
ar 1977, og verður siglt frá
New York austur á bóginn,
suður fyrir Afríku, og komið til
baka um Panamaskurðinn til
New York eftir 81 dags sigl-
ferðin kosti rétt tæpa sjö þús-
und dollara á mann, eða krónur
1,3 milljónir, og er þá miðað
við tvo í klefa Hæst fer far-
gjaldið upp í 30 þúsund doll-
ara, eða 5,55 milljónirá mann,
og kostar þá ferðin fyrir hjón
rúmar 1 1 milljónir.
Sólarferð fyrir 5 %
milljón (á mann)
Erlingur Þorsteinsson
yfirlæknir 65 ára í dag
I dag er sextíu og fimm ára einn
af þekktustu læknum höfuð-
borgarínnar, Erlingur Þorsteins-
stn, háls-, nef- og eyrnalæknir og
yfirlæknir heyrnardeildar Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavfkur. Það
er þó ekki að sjá á útliti hans, því
að aldurinn ber hann vel, grannur
og spengilegur eins og ungur
maður.
Erlingur er af góðu bergi brot-
inn. Hann er sonur Þorsteins Erl-
ingssonar skálds og Guðrúnar
Jónsdóttur Erlings. Þorstein þarf
ekki að kynna, svo kunnur er
hann öllum íslendingum, sem
komnir eru til vits og ára. Hann
andaðist 1914, en Erlingur var þá
aðeins 3ja ára að aldri. Guðrún
lifði mann sinn lengi og andaðist
1960 í Reykjavík.
Ég kynntist Erlingi fyrst við
inntökupróf í Menntaskólann í
Reykjavík árið 1925. Hann dró
strax að sér athygli mína, því að
hann var óvenjulega vel af guði
gerður, bæði andlega og líkam-
lega. Reyndist hann strax góður
námsmaður og svo laginn, að allt
lék í höndum hans. Var hann
meðal annars mjög drátthagur og
orðhagur bæði í ræðu og riti. Við
urðum svo bekkjarbræður í
Menntaskólanum og vorum það
öll menntaskóiaárin. Síðustu þrjá
veturna þar lásum við saman og
einmitt heima hjá honum í Þing-
holtsstræti 33.
Erlingur öðlaðist snemma fast-
mótaða skapgerð og viljastyrk.
Hann myndaði sér og fljótt
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og hefur aldrei farið i
launkofa með þær, við hvern sem
í hlut á. Hann er mjög trygglynd-
ur og orðheldinn eins og allir
þekkja. sem honum hafa kynnzt.
Erlingur var móður sinni mjög
umhyggjusamur og góður sonur.
sérstaklega þegar hún gerðist
öldruð og lasburða. Guðrún var
frjálslynd í bezta lagi, og gat hún
vel sett sig inn í hugarfar okkar
skólapiltanna, enda var heimili
hennar oft æði gestkvæmt. Þar á
meðal voru margir skólapiltar og
fjöldi annarra menntamanna.
Hún hafði búið manni sínum og
börnum yndislegt heimili í eigin
húsi og man ég það sérstaklega,
að allt var á skrifstofunni eins og
Þorsteinn hafði skilið við það,
hver hlutur á sínum stað á skrif-
borðinu hans og jafnvel stafurinn
hans þar sem hann geymdi hann á
meðan hann lifði. Allt var helgað
minníngu hans.
Guðrún stofnaði Sólskrikjusjóð-
inn og afhenti hann Dýravernd-
unarfélaginu í minningu Þor-
steins. Tilgangur sjóðsins er að
afla fóðurs handa smáfúglunum
til að gefa þeim í vetrarhörkum.
Eftir lát Guðrúnar hefur Erlingur
veitt sjóðnum forstöðu og unnið
ötullega að fjáröflun í sjóðinn
m.a. með árlegri útgáfu jólakorta
með vísum úr fuglaljóðum Þor-
steins.
Það sem sagt hefur verið hér að
framan lýsir nokkuð í hvernig
umhverfi Erlingur var uppalinn
og hlýtur slíkt að hafa varanleg
áhrif á þann, sem þess nýtur.
Erlingur hefur líka sýnt það, að
hann hefur tekið í arf marga
beztu eðliskosti foreldra sinna,
nema ef vera skyldi skáldskapar-
gáfuna. Hann er þó eins og áður
segir orðhagur vel í óbundnu
máli, snjall ræðumaður og hrókur
alls fagnaðar á góðra vina fund-
um. Hefur hann og mjög góða og
þroskaða kýmnigáfu.
Erlingur er eins og allir vita,
sem þekkja hann, höfðingi heim
að sækja og hefur hann og hans
ágæta kona unun af því að taka á
móti gestum. Er þar ekkert til
sparað að láta gestunum líða sem
bezt og mun vandfundið það
heimili, sem ánægjulegra er að
koma á.
En það eru fleiri en þeir sem
innandyra eru, sem njóta gest-
risni og góðsemi þeirra hjóna.
Þau hafa takið upp merki for-
eldra Erlings að hugsa um þá
smæ^tu, snjótittlingana í vetrar-
hörkum með því að strá fugla-
fóðri, bæði við húsið heima og
lækningastofuna. Lýsir þetta
manninum vel og munu fleiri en
snjótittlingarnir njóta góðs af
þessum eiginleika Erlings.
Hann reyndist eins og áður hef-
ur komið fram ágætur námsmað-
ur, hlaut góða fyrstu einkunn,
bæði á gagnfræðaprófi og
stúdentsprófi, sem hann tók 1931.
Hann lagði stund á læknisfræði
og lauk embættisprófi frá
Háskóla Islands, einnig með góðri
fyrstu einkunn árið 1937. Sigldi
hann síðan til Danmerkur til frek-
ara náms. Gerðist hann sérfræð-
ingur í háls-, nef- og eyrnalækn-
ingum. Hann starfaði á mörgum
sjúkrahúsum að sérgrein sinni I
Danmörku undir handleiðslu
góðra og reyndra yfirlækna.
Síðari heimsstyrjaldarárin urðu
nártistímabil hans í Danmörku, en
Þjóðverjar hernámu hana eins og
kunnugt er. Skapaði það ýms
óþægindi fyrir námsmenn eins og
aðra. Erlingur kom heim með e/s
Esju í júni 1945. Hann öðlaðist
almennt lækningaleyfi 1938, en
viðurkenningu sem sérfræðingur
1945.
Erlingur hefur fylgzt mjög vel
með nýjungum 1 sérgrein sinni
eins og síðar verður vikið að og
sótt mörg læknaþing erlendis. Þá
hefur hann ritað ýmsar greinar í
Læknablaðið og erlend læknarit,
svo og flutt fyrirlestra um lækn-
ingar 1 sérgrein sinni. Árið 1960
fór Erlingur til Bandaríkjanna til
að kynna sér nýtízku aðgerðir til
að bæta heyrn manna. Siðan hef-
ur hann framkvæmt slíkar
aðgerðir hér heima á fjölda sjúkl-
inga og þótt takast vel. Hann er
þvl brautryðjandi á þessu sviði
hér á landi. Til þess að fylgjast
með framförum við þessar að-
gerðir hefur hann farið nokkrum
sinnum utan síðast liðin 15 ár.
Árið 1962 vann Erlingur að því
að koma á fót heyrnardeíld við
Heilsuverndarstöð Reykjavikur
með tækjum, sem Zontaklúbbur
Reykjavíkur gaf. Hefur hann ver-
ið læknir deildarinnar síðan og
var fyrir röskum þrem árum skip-
aður yfirlæknir heyrnardeildar-
innar, sem sinnir ört vaxandi
verkefnum og er búin nýtlzku
tækjum.
Erlingur hefur I fristundum
sinum fengizt talsvert við kvik-
myndatöku. Á hann mjög fagurt
og veltekið kvikmyndasafn af
náttúrufegurð Islands frá ferða-
lögum sinum um landið og lax-
veiðum, en Erlingur er ágætur
laxveiðimaður. Hann stundar
sundíþróttina talsvert og höfum
við mjög oft fylgzt að í sundlaugar
borgarinnar. Erlingur hefur átt
frumkvæðið að árlegum skemmti-
fundum okkar bekkjarbræðranna
úr Menntaskólanum og tekið þar
jafnframt kvikmyndir. Er þetta
kvikmyndasafn okkur bekkjar-
bræðrunum því dýrmætara sem
árin líða.
Erlingur er kvæntur Þórdísi
Toddu hjúkrunarkonu
Guðmundsdóttur Þorvaldssonar,
bónda að Bildsfelli í Grafningi.
Þau eiga tvö mannvænleg börn,
Þorstein f. 1962, og Guðrúnu
Kristínu f. 1966. Þórdís hefur
búið manni sínum og börnum
einkar smekklegt heimili. Móðir
Þórdísar, Kristín Jósefsdóttir,
dvelst á heimili þeirra hjóna og
eru börnin mjög hænd að henni.
F.vrri kona Erlings var Hulda
Davíðsson, dóttir Ólafs Davíðs-
sonar, fyrrv. kaupmanns í
Hafnarfirði. Dóttir þeirra Huldu
og Erlings er Ásthildur Erna f.
1938. Hún er stúdent, með
kennaraprófi í dönsku frá
Háskóla Islands (BA-prófi).
Stundaði hún framhaldsnám og
lauk prófi frá Kennaraháskóla í
Kaupmannahöfn. Hún starfar nú
sem lektor við Kennaraháskóla
Islands. Maður hennar er Jónas
verkfræðingitr Elíasson,
prófessor við Háskóla Islands.'
Þau eiga tvö börn, Helgu
Guðrúnu og Erling Elias.
Erlingur var kjörinn forseti
þings norrænna háls-, nef- og
eyrnalækna, sem haldið var í júní
1975 í fyrsta sinn á íslandi og var
hið nítjánda i röðinni. Áður höfðu
þau verið haldin annarsstaðar á
Norðurlöndum til skiftis. Ég hefi
frétt að hinn mikli undirbúningur
undir þingið hafi þótt stjórn-
endum þess til sóma og að forseti
þgss hafi leist störf sín vel og
röggsamlega af hendi, enda hafi
þátttakendur farið vel ánægðir
héðan.
Hinn 1. janúar síðastliðinn
sæmdi forseti Islands Erling