Morgunblaðið - 19.08.1976, Page 13

Morgunblaðið - 19.08.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976 13 Myndin var tekin þegar klukkan Stóri-Tómas tók formlega við hlutverki hinnar frægu Lundúnaklukku Big Ben, sem varð að taka niður vegna viðgerða. Ekki var talið fært að nota hljóðritanir af slætti Big Ben, þar sem það hefði getað eyðilagt raunveruleikaskyn hlustenda að þvf er sérfróðir segja. Var þvf ákveðið að flytja Stóra-Tómas, eða Great Tom, frá St. Pauls kirkjugarði. Frá Pompeii Eftir nærri níu aldir í öskunni BORGIN Pompeii við rætur eld- fjallsins Vesuvíusar fór I eyði í gosinu mikla árið 79 e K., og I tæp sjö hundruð ár var lítt hugað að rústunum. Skipu- lagður uppgröftur hófst árið 1 763, og enn er verið að leita þarna að minjum gamalla daga. Ekkert hraun rann yfir Pompeii, aðeins glóandi aska, sem lagðist eins og þykkt teppi yfir borgina og alla sem í henni voru. Á meðfylgjandi mynd sést afsteypa af jarðneskum leifum manns, sem fundust nýlega í öskulögunum. Sérfræðingar segja að unnt sé með fullri vissu að bera kennsl á manninn, og hafi þetta verið Marcus Obellius Firmus, auðugur dómari i Pompeii, og frambjóðandi við kosningar, sem aldrei gátu farið fram r Irar hafa fengið nóg af IRA VINSÆLDIR írska lýðveldis- hersins, IRA, hafa sjaldan verið minni á Norður-írlandi en ein- mitt nú, og daglega berast yfir- völdum bréf, símskeyti og upp- hringingar, sem skipta hundruðum með áskorunum um að frelsa ibúa landsins und- an aðgerðum IRA. Flestir skora á yfirvöldin að beita hernum áf hörku til að binda enda á starf- semi IRA, og gagnrýna stjórn- völd fyrir drátt á þvi að láta til skarar skriða Ekki eru það eingöngu mót- mælendur, sem kvarta, heldur hafa heil borgarhverfi kaþólskra skorizt í leikinn. Þar hafa íbúarnir bundizt samtök- um og safnað undirskriftum undir áskoranir til yfirvaldanna. I flestum áskorununum er bent á nauðsyn þess að stöðva IRA áður en fleiri börn verða myrt i átökunum, og á þörfina á að binda enda á sprengjuárásir og eyðileggingu mannvirkja áður en enn meira atvinnuleysi verður i landinu vegna rekstrar- stöðvana. Fiefur kaþólska kirkjan í London tekið undir þessi mótmæli, og líkir hún félögum IRA við glæpaflokk Al Capones Meðfylgjandi mynd sýnir ummerkin eftir sprengjuárás IRA t Blefast í fyrri viku, en skömmu áður höfðu þrjú ung börn verið drepin t átökum IRA og hermanna. Húsfriðunarsjóður stofnaður á Akureyri? riddarakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu fyrir vel unnin læknis- störf. t skírnarsálmi Erlings er faðir hans orti til hans, segir: „Við ætt jörð sé hugur og heiti þitt fest. Og hamingja er til þess að vinna, hún geymir það meðal þess gulls, sem er bezt, glæstustu nafnanna sinna. Því heimkynnis lotning með hjörtunum slær, en heimsfrægð er köld, hversu vftt sem hún nær." Erlingur er góður tslendingur, sem ann landi sínu og þjóð. Hann hefur ferðazt mikið um landið sitt og kann vel við sig í tæru fjalla- lofti við góða laxveiðiá. Erlingur kiknar ekki undan þessari lög- eggjan föður síns. í skírnar- sálminum segir ennfremur: „Þó þætti okkur vænst, að þú ættir þann auð. sem ekki er með fémunum talinn: Þá blessun, sem hlýzt fyrir hjálpsemi f nauð við hræddan og fóttroðinn valinn. Þótt greiðinn sé Iftill þá getur hann nægt, og gleður oft meir en það verk sem er frægt." Hjálpsemi í nauð hefur Er- lingur svo sannarlega veitt, bæði í læknisstarfi og í samskiptum sínum við hina smáu. Sem náinn vinur hans og nábúi um árabil hefi ég haft góða aðstöðu til að sannreyna þetta. Síðustu ljóð- línur skírnarsálmsins hljóða svo: „Hann faðir þinn leiðir þig Ifklega skammt, ■ en lánist sá arfur þá stendurðu samt." Við félagar og skólabræður Erlings vitum að þessi arfur hefur lánast og því stendur hann þar sem hann er. Við vonumst til þess að hann eigi langa lífdaga framundan við góða heilsu, landi sínu og þjóð til gagns og sóma, við hlið góðrar og glæsilegrar konu og efnilegra barna. Jafnframt óska ég og fjölskylda mín af- mælisbarninu og fjölskyldu hans innilega til hamingju á þessum timamótum. Við þökkum forsjón- inni fyrir að hafa haft tækifæri til að kynnast og njóta vináttu þessarar ágætu fjölskyldu, því þar sem góðir menn fara eru guðsvegir. Þormóður Ögmundsson. Akureyri 17. ágúst Á FUNDI bæjarstjórnar Akur- eyrar i dag var til umræðu tillaga um húsfriðunarsjóð, en flutnings- maður hennar er Gfsli Jónsson. Tillaga er svohljóðandi: „Bæjarstjórn samþykkir að stofna Húsfriðunarsjóð, hlutverk er að veita fé til varðveizlu gamalla húsa í bænum, þeirra sem hennar eru verð að mati Hús- friðunarnefndar og bæjar- stjórnar. Gert er ráð fyrir að tekjur sjóðsins verði framlag rikissjóðs annars vegar, hins vegar framlag bæjarins, t.d. ákveðinn hundraðshluti bygg- ingaleyfisgjalda eftir ákvörðun bæjarstjórnar hverju sinni. Bæjarstjórn kýs sjóðnum stjórn og setur honum reglugerð er ráð- herra staðfestir. Sjóðurinn tekur til starfa þegar hann er þess menugur að mati sjóðsstjórnar.“ Tillögunni fylgir svohljóðandi greinargerð: „Ekki leikur á tveim tungum að á Akureyri eru mörg hús þess virði að þau séu varðveitt i sem upprunalegastri mynd. Og margt hefur þegar glatazt af eldi og vangeymslu. Bæjarhlutar eins og Gamla Akur- eyri og Fjaran eru gott dæmi um heil hverfi sem ættu að geymast án þess að heildarsvipur þeirra raskaðist. Með þessu er þó alls ekki átt við að ekki megi rifa þar sitthvað af hinum gömlu húsum né byggja þar ný, ef þess er gætt að þau hús sem varðveizlugildi hafa fái að standa og nýbyggingar spilli ekki heildarsvip hverfisins. Varðveizla gamalla húsa getur verið mjög kostnaðarsöm og ekki von til þess að t.d. einstaklingar, sem slik hús eiga, leggi fram stór- fé til hennar þegar húsin eru orðin illnothæf eða ónothæf til íbúðar. Félög og opinberir aðilar þurfa og á fjárframlögum að halda i þessu skyni og því er þessi tillaga flutt." Tillögunni var vísað til bæjar- ráðs með 11 samhljóða atkvæðum. Sv.P. Hreint É ^land I fagurt I land I LANDVERND Ritsafn Gunnars Gunnarssonar Áður útkomnar Saga Borgarættarinnar Svartfugl Fjallkirkjan I, Fjallkirkjan il Fjallkirkjan III Vikivaki Fleiðaharmur Ný útkomnar Vargur í véum Sælir eru einfaldir Jón Arason Sálumessa Fimm fræknisögur Dimmufjöll Fjandvinir Gunnar Gunnarsson hefur um langt skeið verið einn virtasti hófund ur á Norðurlóndum Aimenna Bókafélagið, Austurstræti 18, Bolholti 6. sími 19707 simi 32620

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.