Morgunblaðið - 26.08.1976, Qupperneq 1
36 SIÐUR
187. tbl. 63. árg.
FIMMTUDAGUR 26. ÁGUST 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Nauðganir, morð og rán í Soweto:
Zúlú-menn ganga ber-
fnoarskym
serksgang í he
Jóhannesarborg 25. igúsl — Reuter NTB
MIKILL fjöldi manna af Zúlú-
kynþætti gekk berserksgang f
Soveto f nágrenni Jóhannesar-
borgar í dag. Talið er að allt að
þúsund manns hafi tekið þátt f
óeirðunum, og voru Zúlú-
mennirnir vopnaðir kylfum,
sigðum, öxum, hnffum, og spjót-
um. Þeir réðust inn á heimili og
myrtu þar fólk, auk þess sem
fregnir hafa borizt af ránum, mis-
þyrmingum og nauðgunum.
Heilu fjölskyldurnar hafa flúið
Soweto vegna þessara hryðju-
verka. Talið er að yfir 20 manns
hafi látið Iffið í þessum sfðustu
átökum, og mörg hundruð munu
hafa særzt.
Ástæða atburða þessara mun
vera sú að Zúlu-menn sem
búsettir eru í Soweto voru mót-
fallnir hinum víðtæku verkföllum
annarra blökkumanna I útborg-
inni, og tóku ekki þátt í þeim. Er
talið að hér hafi verið að ræða
hefndarráðstafanir gegn þeim,
sem stóðu fyrir verkföllunum. í
gær, mánudag, kom til átaka milli
Zúlú-manna og ungmenna, sem
reyndu að hindra þá I því að halda
til vinnu. Átökin hófust þó fyrst
fyrir alvöru þegar Zúlú-menn
komu til Soweto að vinnudegi
loknum, og komust að raun um að
kveikt hafði verið f skálum
þeirra. Upphófust þá æsingar
miklar, sem stóðu alla nóttina og
fram á dag. Fregnum af þætti
lögreglunnar i átökunum ber ekki
saman. Segja sumir að lögreglan
hafi að mestu haldið að sér hönd-
um, en aðrir, að lögreglan hafi
skotið að Zúlú-mönnum í því
skyni að tvistra þeim.
Zúlúmenn í Soweto búa þar í
skálum, en fjölskyldur flestra
Framhald á bls. 20
Deilan um Eyjahafið:
Öryggisráð SÞ skorar á Tyrki og
Grikki að hefja samningaviðræður
IRENE Moloi við Ifk manns sfns fyrir utan heimili þeirra í Soweto.
Hún horfði á Zúlú-menn vinna á honum „Þeir stungu hann þrívegis f
bakið, og til þess að fullvissa sig um að hann væri dáinn, gengu þeir f
skrokk á honum með sigðum og kylfum þar sem hann lá á jörðinni,"
sagði Irene Moloi. Þegar atburðurinn átti sér stað voru hjónin á flótta
frá heimili sínu, en maðurinn ekki nægilega frár á fæti þar sem hann
haltraði vegna meiðsla, sem hann hlaut nýlega.
Sameinuðu þjóðunum — 25. ágúst —
Reuter
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna skoraði í dag á Grikki og
Tyrki að setjast að samningaborði
og reyna þannig að leiða deiluna
um réttindi á Eyjahafinu til
lykta. Um leið beindi öryggis-
ráðið þvf til stjórnvalda f þessum
ríkjum að sýna ýtrustu varfærni f
deilunni, og draga með þeim
hætti úr spennunni, sem rfkt.
hefur að undanförnu vegna olfu-
leitar Tyrkja á svæði, sem Grikkj-
ar gera tílkall til.
Fulltrúi Breta í öryggisráðinu
báru fram tillöguna um þessa
ályktun ráðsins. Umræður fóru
Framhald á bls. 20
Rannsókn mútu-
málsins í Hollandi:
Niðurstaða
birt í dag
Raymond Barre ræðir við frétta-
menn fyrir utan Elyseé-höll f
Parfs skömmu eftir að hann var
tilnefndur forsætisráðherra f
gær.
Haag — 25. ágúst — Reuter.
NIÐURSTÖÐUR rann-
sóknar þeirrar, sem fram
hefur farið á vegum hol-
lenzku ríkisstjórnarinnar
að undanförnu, á því hvort
ásakanir í garð Bernharðs
prins, eiginmanns Júlíönu
drottningar, um að hann
hafi þegið mútur af
Lockheed-flugvélaverk-
smiðjunum, eigi við rök að
styðjast, verða birtar á
þingi á morgun, að því er
fulltrúi stjórnarinnar sagði
í dag. Hann sagði ennfrem-
ur, að um leið mundu Joop
den Uyl, forsætisráðherra, j
Framhald á bls. 20 1
Zúlú-menn f árásarhug við búðir sfnar f Soweto f gær.
Neyðarlögin á írlandi verða
trúlega samþykkt á þingi
Dublin 25. ágúst — Reuter.
S(J ÁKVÖRÐUN írsku ríkis-
stjórnarinnar að fara þess á leit
við þing lýðveldisins að það sam-
þykki að lýst verði yfir neyðar-
ástandi f landinu til að unnt verði
að beita vfðtækum og ákveðnum
aðgerðum til að brjóta á bak aftur
hermdarverkastarfsemi frska lýð-
veldishersins, IRÁ, og annarra
ólöglegra samtaka, hefur vakið
mikið umtal, en búizt er við því
að frumvarpið muni mæta all-
nokkurri andspyrnu á þingi og
víðar vegna þeirra takmarkana á
borgararéttindum sem það felur f
sér. M.a. yrði unnt að hafa fólk f
haldi í allt að sjö daga án þess að
ákæra yrði birt. Pólitfskar heim-
ildir í Dublin drógu hins vegar
ekki í efa I dag, að þessi „strfðsyf-
irlýsing" Liam Cosgraves, forsæt-
isráðherra, gegn hermdarverka-
starfseminni í landinu hlyti sam-
þykki þings innan fárra vikna, þó
með hugsanlegum breytingum.
Þingið kemur saman á þriðjudag
n.k. til að f jalla um málið.
Raymond Barre falin stjómar-
myndun eftir afsögn Chiracs
París — 25. ágúst — Reirter — NTB
GISCARD d’Estaing Frakklands-
forseti fól f dag Raymond Barre
myndun nýrrar ríkisstjórnar, en
áður hafði Jacques Chirar sagt af
sér, að þvf er virðist eftir harðar
deilur við forsetann.
Raymond Barre er 52 ára að
aldri. Hann er hagfræðingur og
varð viðskiptaráðherra f stjórn
Chiracs f janúar á þessu ári, en
hafði áður verið varaforseti fram-
kvæmdanefndar Efnahagsbanda-
lagsins. Hann er ekki flokksbund-
inn, og gegna Gaullistar þannig
ekki lengur forystuhlutverki f
frönskum stjórnmálum, en for-
sætisráðherra hefur jafnan verið
úr flokki þeirra síðan árið 1958.
Talið er að Raymond Barre birti
ráðherralista sinn á föstudag.
Giscard d'Estaing kom fram í
sjónvarpi í kvöld og ræddi þar
stjórnarskiptin. Hann kvaö ástæð-
una fyrir ágreiningi þeirra Chir-
acs þá, að forsætisráðherrann
fyrrverandi hefði viljað auka
Framhald á bls. 20
Eftir að lög um neyðarástand
hafa verið samþykkt hefjast um-
ræður um frumvarpið um það
vald sem veitt skuli ríkisstjórn-
inni meðan á neyðarástandinu
stendur, m.a. um s'ö. daga varð-
hald og um sérs <t ref imála-
frumvarp, þar sem gert er ráð
fyrir mun harðari fangelsisdóm-
um fyrir ýmiss konar hermdar-
verkastarfsemi. Þetta frumvarp
mun einnig veita lögreglu og her
landsins víðtæka heimild til að
gera húsleitir, handtaka og gera
eignir upptækar.
Talsmenn stjórnarandstöðu-
Framhald á bls. 20