Morgunblaðið - 26.08.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGUST 1976
3
Bændur fá upp-
bót á lífeyris-
greiðslur
I GÆR voru gefin út bráðabirgðalög sem miða að því að tryggja
llfeyrisþegum Lífeyrissjððs bænda sambærilega uppbót á Iffeyris-
greiðslur árin 1976 og 1977 og samið var um í febrúarmánuði sl. milli
ASl og vinnuveitenda til handa þeim er þiggja slfkar greiðslur úr
almennum Iffeyrissjóðum verkalýðsfélaga. Lög til staðfestingar þvf
samkomulagi voru sett á Alþingi f maí sl, en ekki vannst tfmi til þess á
þinginu að gera sambærilegar breytingar á lögum um Lífeyrissjóð
bænda. Er með bráðabirgðalögunum bætt úr þessu ósamræmi, en
lífeyrisgreiðslur til aldraðra félaga í Lífeyrissjóði bænda hafa ekki
hækkaðfrá árinu 1974.
I fréttatilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu segir eftirfar-
andi til skýringar bráðabirgðalög-
unum:
„Við setningu laga um Lífeyris-
sjóð bænda árið 1970 var í veiga-
miklum atriðum höfð hliðsjón af
reglugerðarákvæðum hinna al-
mennu lífeyrissjóða verkalýðs-
félaga, sem tekið höfðu til starfa
það ár. J :fnframt voru ákvæði II.
kafla laganna um sérstök lífeyris-
réttindi til handa öldruðum
bændum og mökum þeirra sniðin
eftir ákvæðum laga um eftirlaun
til aldraðra félaga í stéttarfélög-
um. Sá grundvallarmunur var þó
á bótaákvæðum, að í reglugerðum
hinna almennu lífeyrissjóða
verkalýðsfélaga var kveðið á um
takmarkaða og skilorðsbundna
verðtryggingu lífeyris, og sam-
kvæmt 8. gr. laga nr. 63/1971 um
eftirlaun til aldraðra félaga I
stéttarfélögum hefur ráðherra
heimild til að ákveða árlega upp-
bætur á lifeyrisgreiðslur, en í lög-
um um Lífeyrissjóð bænda eru
engin ákvæði af þessu tagi. Þessi
mismunar stafaði af því, að vegna
mjög óhagstæðrar aldursskipting-
ar var fjárhagsgrundvöllur Lif-
eyrissjóðs bænda talinn tiltölu-
lega veikur og útgjöld vegna II.
kafla voru hlutfallslega mikil.
Þetta kemur m.a. fram í greinar-
gerð nefndar þeirrar, er samdi
upphaflegt lagafrumvarp, en hún
taldi rétt, að möguleikar á verð-
tryggingu yrðu athugaðir við
endurskoðun laganna síðar. Með
lögum nr. 67/1974 voru lífeyris-
fjárhæðir samkvæmt eldri úr-
Framhald á bls. 20
Stóri messudagur 1
Skálholti á sunnudag
STÓRI messudagur I Skálholti
verður að þessu sinni haldinn
næsta sunnudag, 29. ágúst. Verð-
ur þá að venju helgihald með
ýmsu móti I kirkjunni allan dag-
inn. Morguntfð verður sungin kl.
9, barnaguðsþjónusta verður ki.
10, lesin messa kl. 11,30, mið-
degistfð ki. 13, messa kl. 14, orgel-
tónieikar kl. 16, messa kl. 17, les-
in messa kl. 18,30 og sfðast messa
kl. 21 sfðdegis.
Á tónleikunum kl. 4 mun Glúm-
ur Gylfason, organleikari á Sel-
fossi, sem f sumar hefur einnig
verið organleikari Skálholts-
kirkju, flytja verk eftir erlenda
og íslenzka höfunda. Norskur
nemandi hans, Gry Ek, mun og
leika við messurnar, og e.t.v.
munu fleiri koma þar við sögu,
þvf að námskeið fyrir organista og
söngstjóra hefst í Skálholti
þennan dag. Haukur Guðlaugs-
son, söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar, veitir þvi forstöðu. Tveir
kirkjukórar munu væntanlega
koma við sögu. Kór Selfosskirkju
mun að líkindum syngja við mess-
una kl. 2 og Skálholtskórinn við
kvöldmessuna. En að venju munu
margir prestar og leikmenn
leggja sitt af mörkum þennan
dag.
Þeim, sem kynnu að vilja hafa
lengri dvöl á staðnum um daginn,
skal á það bent, að borðsalur Lýð-
háskólans mun standa gestum og
gangandi opinn, og geta ferða-
menn snætt þar nesti sitt.
(Fréttatilkyning)
Vitnið gefi
sig fram
EKIÐ var sl. mánudag á bifreið-
ina R-5052 sem er Saab-fólksbifr.,
rauðbrún að lit, árg. 1973, þar sem
hún stóð á bifreiðastæðinu við
Smiðjustíg á tímabilinu kl.
16.00—17.00. Vitni gaf sig fram
við eiganda R-5052 og sagðist hafa
séð þegar blárri Volkswagen 1600
bifreið var ekið utan í hægra
afturaurbretti R-5052, en eigand-
anum láðist að taka nafn sjónar-
vottsins, sem er beðinn um að
gefa sig fram.
FÖSTtJDAGINN 27. ágúst opnar Unnur Svavarsdóttir
málverkasýningu í sýningarsal MÍR á Laugavegi 178. Á
sýningunni verða 50 myndir, unnar í olíu og acryl. Þetta
er önnur sýning Unnar, en hún hefur áður sýnt í
Keflavík. Sýningin verður opin til 5. september frá kl.
2—10. Allar myndirnar eru til sölu.
Hvorki er elli né áhyggjur að sjá á þessum öldruðu borgurum úr Kópavogi, sem þarna sjást stfga um
borð f flugvél á leið til Austurlands (Ljósm. ÓI.K.M.)
85 aldraðir borgar-
ar úr Kópavogi til
Austurlands í gær
I GÆRMORGUN fór hópur
aldraðs fólks úr Kópavogi I
skemmtiferð til Egilsstaða og
Austurlands á vegum Félags-
málastofnunar Kópavogs. Með I
förinni voru 85 manns, 67 ára
og eldri, en flogið var I tveim
flugvélum til Egilsstaða og það-
an farið til Seyðisfjarðar en
komið við I Skriðuklaustri, á
Hallormsstað og Valþjófsstað á
leiðinni til baka til Egilsstaða.
Komið var til Reykjavíkur I
gærkvöldi eftir um 12 tfma
ferðalag.
Að sögn Kristjáns Guðmunds-
sonar félagsmálastjóra i Kópa-
vogi er ferð sem þessi orðinn
árlegur viðburður í félagsstarfi
aldraðra borgara f Kópavogi. I
fyrra var farið til Akureyrar og
Húsavfkur en árið þar áður í
öræfasveit. Margir hafa farið f
þessar ferðir ár eftir ár. Reynt
er að stilla kostnaði í hóf og
fargjaldið nú var 6000 krónur.
en inni f því var falinn kvöld-
verður, sem snæddur var f
Valaskjálf. Ferðalangarnir
höfðu einnig með sér nesti sem
snætt var fyrri hluta dags.
Kristján sagði að Félagsstofn-
unin greiddi annan kostnað við
ferðina, en stofnunin hefði
jafnan notið mjög góðrar fyrir-
greiðslu Flugfélags Islands f
sambandi við þessar ferðir.
Smávegis töf varð á flugvellinum f Reykjavfk. Hér sjást ferðalangarnir úr Kópavoginum fá sér
kaffisopa á meðan beðið var þess að ferðin hæfist.
Fatasýning í Laugardalshöll
1 sept. á vegum Iðnkynningar
Islenzk iðnkynning áformar að
setja upp fatasýningu f Laugar-
dalshöllinni f september n.k., sem
verður f senn fatakaupstefna og
sýning fyrir almenning. Skv.
upplýsingum Péturs Sveinbjarn-
arsonar framkvæmdastjóra Iðn-
kynningar er þe$si sýning einn
liður af mörgum sem fyrirhugað
er að Iðnkynning beiti sér fvrir á
svokölluðu iðnkynningarári, er
hefst f september. Eins og komið
hefur fram f Mbl. er tslenzk iðn-
kynning samstarfsverkefni sex
aðila sem afskipti hafa af iðn-
aðarmálefnum til eflingar
fslenzkum iðnaði.
Fatasýningin hefur hlotið heit-
ið „Islenzk föt — 76“ og á að
hefjast 8. september og standa í
fimm daga. Þar verður innkaupa-
stjórum gefinn kostur á að
kynnast hinu nýjasta i islenzkum
fatnaði fyrri hluta dags, en frá kl.
15 til 22 verður sýningin opin
almenningi. Jafnframt verða
tvisvar á dag viðamiklar tízku-
sýningar. Á sýningunni munu 30
fataframleiðendur sýna fram-
leiðslu sina. Til samanburðar má
geta þess, að á haustkaupstefnu
fataframleiðenda í fyrra sýndu 12
framleiðendur. Vonazt er til að
almenningi gefist góð yfirsýn á
sýningunni yfir islenzka fata-
framleiðslu.
Að sögn Péturs Sveinbjarnar-
sonar verða önnur verkefni hjá
íslenzkri iðnkynningu m.a.
„Dagur iðnaðarins", sem ráðgert
er að verði haldinn á ýmsum
stöðum á landinu, þar sem iðn-
aður er nokkur. Þegar er ákveðið
að sýning þessi verði haldin á
fjórum stöðum fyrir áramót, þ.e.
Akureyri, Egilsstöðum, Kópavogi
og Borgarnesi. Þá er fyrirhugað
að kynna islenzkan iðnað á fund-
um ýmissa félag:; ' vetur og að
sögn Péturs er vo. azt til að hægt
verði að senda ræðumenn og
dreifa upplýsingaefni á 100 fund-
um fyrir 1. júní n.k. Einnig er
ráðgert að kynna islenzkan iðnað
í sjónvarpi í sérstökum auglýs-
ingaherferðum sem ákveðið er að
verði þrjár talsins. í marz er síðan
ætlunin að efna til svonefndrar
„Viku íslenzkra matvæla", sem
Framhald á bls. 20