Morgunblaðið - 26.08.1976, Page 27

Morgunblaðið - 26.08.1976, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. AGUST 1976 27 Minning: Kjartan Einarsson trésmíðameistari Fæddur 4. desember 1910. Dáinn 18. águst 1976. Það kom fáum á óvart, sem til þekktu, þegar Kjartan lézt á Landakotsspítala 18. þ.m., því hann hafði um skeið átt við hjartasjúkdóm að striða, sem að lokum hafði yfirhöndina, þrátt fyrir harða baráttu lækna og hjúkrunarliðs við sjúkdóminn. Hann lézt í svefni sáttur við guð og menn, Verður hann til moldar borinn fimmtudaginn 26. þ.m. Hann var fæddur í Reykjavík 4. desember, 1910, sonur Einars Björnssonar frá Þúfu í ölfusi og Margrétar Sigurðardóttur frá Langholti í Flóa. Kona hans var Sæunn Glsladóttir, sen einnig á ættir að rekja austur fyrir Fjall. Börn Kjartans og Sæunnar eru fjögur, Margrét, Gísli, Svava og Ingibjörg. Ekki ætla ég mér að fara frekar út í ættfræðina, til þess eru aðrir mér fróðari. Á hinn bóginn vildi ég minnast á góða eiginleika Kjartans. Hann var gæddur miklu jafnlyndi, og áberandi var hið góða skap sem hann jafnan var í. Þetta var jákvæður eiginleiki, sem smitaði frá sér og kallaði gjarnan á góð viðbrögð viðmæl- enda hans. Styggðaryrði voru honum andstæð, og ekki veit ég til þess að hann hafi nokkurn timan veitzt að öðrum að fyrra bragði. Fjarri fer þvi að hann hafi verið skaplaus maður. Væri hon- um misboðið, hafði hann lag á því að koma skoðunum sínum á fram- færi hávaðalaust, og með þeirri festu sem nægði. Menn sýndu honum því ógjarnan áreitni, því hann bauð ekki upp á slikt. Hann var hjálpsamur, og kunni fitt að setja upp fyrir vinnu sína. Hann verðlagði ekki hjálp sína. Það reyndu vinir hans, en ekki sízt börn hans og tengdabörn, því þegar þau byggðu hús sín, þá kom Kjartan ótilkvaddur og bætti þar við aukavinnu eftir langan vinnu- dag. Hann hjálpaði þeim á ósér- hlífinn hátt að byggja yfir sig. Það vita allir, að óskadraumur ungs fólks er framar öðru sá að komast i eigið hús eða íbúð, og með þetta hjálpaði Kjartan börn- um sínum og tengdabörnum, og gladdist meó þeim, þegar hann sá drauminn rætast. Þetta var og er metið við hann ásamt ótalmörgu öðru, sem ekki verður upp taiið. Kjartan var húsasmíðameistari Samband milli svefnvenja fólks og skapgerðar TIL er fólk, sem getur alls ekki sofnað á kvöldin nema meS þvi að láta annan hand- legginn hvíla á stól við rúmið. Aðrir verða að breiða vasaklút yfir andlitið til þess að geta sofnað, enn aðrir eru ekki i rónni fyrr en þeir hafa drepið allar flugur inni í svefnher- berginu og loks er til fólk, sem þarf að hag- ræða koddum sínum og svæflum á alveg sérstakan hátt til að fá góðan nætursvefn. Þessi dæmi kunna að virðast fáránleg, en eigi að siður er það staöreynd, að þorri manna hefur sina sér- stöku aðferð við að sofna. Þessar aðferðir Eftir Renate I. Mreschair engan veginn slik fásinna, sem margir vilja halda fram Dr Ute Pleimes við Giessen- háskóla hefur nýlega rannsakað í Freiburg svefnvenjur manna og kannað, hvernig þær koma heim og saman við skapgerð þeirra Niður- stöður þessara rannsókna benda um margt til þess, að talsverð tengsl séu þarna á milli Þeir, sem yfirleitt eru i andlegu jafnvægi og láta ekki smámuni koma sér úr skorðum, eiga að jafn- aði mjög auðvelt með að sofna Þeir sofa yfirleitt á hliðinni og geta sofið djúpum og værum svefni, jafnvel um hábjartan dag. Þeir vakna fljótt og vel og þurfa venjulega ekki á vekjaraklukku að halda Þegar þeir eru miður sín og undir andlegu fargi, eiga þeir til að sofa lengur en venjulega, andstætt við þá sem eru slæmir á taugum Þegar þeir eiga í sálarstríði, gengur þeim mjög illa að slaka á, og þeir þjást þá oft af svefnleysi. Þrir af hverjum fjórum, sem við var rætt, sögðu, að þeir vildu gjarn- an hafa lengri svefn en þeir hefðu að þetta skipti litlu máli Þeir sem ráða vinnutíma sínum sjálfir eru ýmist sprækir á morgnana eða siðdegis og sama má segja um þá, sem vinna fastan vinnutima á degi hverjum Þeir, sem ekki hafa fastan vinnu- tíma, vilja yfirleitt sofa dálitið fram- eftir á morgnana Einnig er það eftirtektarvert, að hinir, sem verða að mæta til vinnu á ákveðnum tima daglega, muna gjarnan, hvað þá dreymdi, gagnstætt við þá, sem ráða tíma sínum sjálfir Aðeins um það bil einn fjórði af þeim, sem spurðir voru, sofa naktir, og það var athyglisvert, að þetta fólk var venjulega sprækast siðdegis Einnig virtist það almennt vilja leggja sig í klukkutíma eða lengur eftir hádegið Fólk, sem sefur djúpum og vær- um svefni á daginn, liggur venju- lega á hliðinni, en dr. Pleimes telur, að það sé hin ákjósanlegasta hvíldarstelling Annar hver maður vill fremur sofa á hliðinni en á bakinu eða á maganum Af þeim, sem spurðir voru, töldu 11%, að þeim liði bezt, ef þeir svæfu á bak- inu, en fimmti hver þátttakandi hafði gert sér það að venju að sofa á maganum. I þeirri stellingu sefur fólk almennt ekki eins vært og ella Enda þótt flestir telji *«ig sofna í ákveðinni stellingu, gat meirihluti eru ýmist meðvitaðar eða ómeðvitaðar, en menn eru þeim afar háðir, og ef eitthvað kemur í veg fyrir að þeir geti beitt þeim, veldur það vanlíðan og jafnvel svefnleysi. Þeir, sem sofa illa, eru venjulega slæmir á taugum Þeim er hætt við öndunar og meltingarkvillum, og blóðrásin er oft óeðlileg Tilfinninga- lif þeirra er alla jafna hvikulla en hjá öðru fólki Þeir geta yfirleitt ekki sofnað sitjandi i stól, og þeir vakna af sjálfsdáðum á morgnana og muna það, sem þá dreymdi Til er gömul kenning um, að dæma megi persónugerð manna eft- ir þvi, hvernig þeir sofi, og er hún jafnaði Samt sem áður er það svo, að annar hver maður sefur lengur en hann hefur líkamlega og andlega þörf fyrir Fimmti hver maður virðist ekki fyllilega endurnærður eftir eðli- lega langan nætursvefn Örgeðja fólk, sem hefur þörf fyrir mikla hreyfingu og breytingu, þarf venjulega talsverðan svefn, og sefur þó yfirleitt lengur en annað fólk eða átta til niu klukkustundir á sólar hring Þetta fólk fer sjaldan i rúmið fyrr en eftir miðnætti Því gengur illa að vakna á morgnana, og oftast er það ekki i essinu sinu fyrr en liða tekur á daginn Sumir eru í essinu sinu snemma á morgnana, en aðrir siðdegis, og hef- ur almennt verið álitið, að þetta fari eftir þvi, hvort fólk hefur fastan vinnutlma eða getur ráðið honum sjálft að einhverju leytL Dr Pleimes hefur hins vegar sýnt fram á, að þátttakenda ekki kveðið á um, hver sú stelling væri, fyrr en þeir höfðu lagzt niður. Hægt er að sjá mjög sterkt sam- band milli atferlis fólks á daginn og svefnvenja þess, og kemur þetta samband einkum fram hjá þeim, sem búa við stöðuga streitu Þeir sofa venjulega lítið, fara snemma á fætur og hafa vanliðunarkennd á daginn Oft sofnar þetta fólk ein- hvern tima á dagínn án þess að ætla sér það, og þvi reynist erfitt að vinna á fastákveðnum timum. Þar að auki er starfsþrek þeirra mjög mismunandi mikið, en oft gengur þessu fólki bezt að einbeita sér að flóknum verkefnum að kvöld lagi Fyrri rannsóknir hafa yfirleitt gefið til kynna, að enginn teljandi munur sé á svefnvenjum karla og kvenna Framhald á bls. 21 og vann jm' við trésmíðar alla sína ævi. Lítið þekki ég til starfa hans framan af ævinni, en hin síðari ár vann hann hjá fyrirtæk- inu Sindrastál h.f., eða trésmíða- deild þess. Þar leið honum vel hjá þeim drengskaparmönnum, sem það fyrirtæki reka, forstjóranum Einari Ásmundssyni og sonum hans. Ætið heyrði ég hrós um það fólk af hans hálfu. Þakkir eiga þeir skilið. Það sjá margir eftir Kjartani, þvi skarð er þar sem hann var. Kona hans, sonur, dætur, tengda- börn, bróðir, systur og barnabörn sitja eftir með sorgmæddan hug, en góðar minningar. Góðvinur hans, Hjalti, fer nú líklega einn í morgungönguna á næstunni og minnist góðs vinar. En þótt sorgin knýi nú á, þá geta aðstandendur og vinir hugg- að sig vió það, aö sé til betri staður eftir þetta líf en „hótel jörð“, þá er Kjartan þangað kom- inn á vit áður látinna vina og ættingja og skapara síns. Blessuð sé minning góðs drengs. Ingi Adolphsson. HRAUST OG ANÆGÐ BÓRN mllupa bamamaturinn fæst í næstu IMA-verzlun ISLANDSAFTEN I NORDENS HUS Torsdagen den 26. august Filmforevisning Kl. 20:30 VULKANUDBRUDDET PÁ HEIMAEY — film af Osvaldur Knudsen Kl. 22:00 Varme Kilder pá Island — film af Osvaldur Knudsen I udstillingslokalerne: Hafliði Hallgrímsson — malerier — tegninger Velkommen NORRÍNÁ HUSIÖ POHJOLAN TAIO NORDENS HUS 1. stig: 2. stig: 3. stig: 4. stig: um 30% minna níkótín um 60% minna níkótín um 70% minna níkótín um 80% minna níkótín og tjara og tjara. og tjara. og tjara. Hvernig hætta má reykingum á 4 sinnum tveimur vikum. A meðan þú reykir áfram í nokkurn tíma eftirlætis sígarettu þína verður þú jafnframt óháðari reyk- ingum. Án neikvæðra aukaverkana og án þess að bæta við líkams- þyngd. Frá Bandaríkjunum kemur nú ný aðferð, þróuð af læknum í Kalifornfu, fyrir alla þá, sem hafa reynt árangurslaust að hætta reyk- ingum eða fyrir þá sem vildu gjarn- an hætta en óttast aukaverkanir. Þessi aðferð hefur verið nefnd: MD4 stop smoking method. Eðlilegt reykbindindi — á meðan þér reykið. MD4 Method er byggt upp á 4 mismunandi síum, og er hver þeirra notuð í 14 daga. Áhrif þeirra koma fram við stigminnkandi níkótín- og tjörumagn í reyknum. Þannig verð- ur „Níkótín hungur" þitt, smám saman minna — án aukaverkana —, þar til þú einfaldlega hættir að reykj^. 1. stig: Innihald skaölegra efna í sígarettunni minnkar um 30% án þess að bragðiö breytist. 2. stig: Tjara og níkótín hefur nú minnkað um 60%. Eftir nokkra daga kemur árangurinn í Ijós, minni þreyta og minni hósti. 3. stig: Fjöldi þeirra sígaretta, sem þú hefur reykt, hefur minnkað tals- vert, án þess aö þú verðir var við það. Þörf líkamans fyrir níkótíni hefur dofnað. 4. stig: Jafnvel þótt þú reykir 10 sigarettur á dag, þá er innihald skaðlegra efna samsvarandi 2 síga- rettum án MD4. Nú getur það tekist. Ef þú ert nú tilbúin að hætta reyk- ingum, þá er líkaminn einnig und. það búinn. Fæst einungis í lyfjaverzlunurr MD4 anti smoking method

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.