Morgunblaðið - 26.08.1976, Side 34

Morgunblaðið - 26.08.1976, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1976 Dregið í Evrópumótunum í handknattleik í gær: Auðveldir leikir hjá íslenzku þátttakendunum EKKI verður annað sagt en mótherjar fslenzku lið- anna, sem þátt taka í Evrópumótunum í vetur, séu léttir í 1. umferðinni. íslandsmeistarar FH eiga að leika gegn FIF frá Þórs- höfn og bikarmeistarar Vals fá Red Boys frá Lux- emborg sem mótherja í 1. umferðinni. Framstúlk- urnar þurfa heldur ekki að kvarta en þær sitja hjá í 1. umferð keppninnar. Bæði liðið frá Þórshöfn og Luxemborg ættu að verða íslenzku liðunum auðveld bráð og þau því örugglega að komast áfram í keppninni. í fyrra töpuðu þáverandi tslandsmeistar- ar Víkings gegn Gummers- bach í fyrstu umferðinni íslandsmeistarinn mátti sætta sig við annað sæti guten tag, resuLtat europa-cup-ausLosung nationaLe melster maenner fk hafnarfJardar gegen fif torshavn pokaLsieger maenner hb red-boys differdange (Luxemburg) gegen kf vaLur reykjavik nationaLe melster frauen fram reykjavik hat ohne spieL (freiLos) die aechteLrunde erreicht aLLes ok? best regards interhandbaLL / peppmeier 2127 morgbL is 64150 ihf ch Skeyti það sem Peppmeier framkvæmdastjóri Alþjóða handknattieiks- sambandsins sendi Morgunblaðinu I gær. og töpuðu Víkingarnir báð- um leikjunum naumlega. FH-ingar töpuðu hins veg- ar fyrir Oppsal og var það blóðugt fyrir FH-ingana því þeir höfðu greinilega betra liði á að skipa heldur en Norðmennirnir. Morgunblaðinu bárust ekki upplýsingar um það í gær hvaða lið önnur leika saman í 1. umferðinni. Ásgeir leys- ir Hermann af hólmi hjá Leikni ÁSGEIR Ellasson mun leysa Her- mann Gunnarsson af hólmi sem þjáifari liðs Leiknis f 2. deildinni I handknattleik á vetri komanda. Ásgeir hefur gengið úr tR yfir I Leikni og mun hann leika með félaginu eins og Hermann hefur gert tvö undanfarin ár. Hermann hefur hins vegar gengið I raðir sinna gömlu félaga f Handknatt- leiksdeild Vals. Af öðrum félögum f 2. deild er það m.a. að frétta að Olfert Naaby mun þjálfa Ármann, en með þeim hefur Olfert leikið f mörg ár. Þá mun Arni Indriðason landsliðs- maður úr Gróttu þjálfa félaga sfna f Gróttu og jafnframt leika með liðinu. Pétur Bjarnason mun Chivers sá um sigur Servette í Alpabikar Stórgott skallarnark Martins Chivers, enska landsliðsmannsins fyrrverandi, gaf liði hans, Serv- ette frá Genf, sigur í „Alpa- bikarkeppninni" í knattspyrnu í fyrrakvöld. Servette lék til úrslita gegn Nimes frá Frakklandi, urðu úrslitin 2:1 og er þetta annað árið í röð, sem Servette vinnur þennan bikar. Sigur Servette var þó varla sanngjarn því lengi vel var Nimes betri aðilinn á vellinum. Áhuga- knattspyrnumaðurinn Dussaud skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Glæsileg verð- laun í boðs- keppni Nesklúbbs FLESTIR af beztu golfleikurum landsins verða væntanlega meðal keppenda í „GLASSEXPORT" keppninni á Nesvellinum á sunnudaginn. í boði eru sérlega glæsileg verðlaun, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þrir krist- alvasanna eru eignarverðlaun og auk þess farandbikar. Til keppninnar hefur verið boð- ið fimm beztu kylfingum frá stærstu golfklúbbunum, en auk þeirra mun Alec Graz, sem varð 6. í „Icelandic Open“ verða meðal keppenda. Má því búast við að keppendur verði 25—30 og verða leiknar 36 holur. Keppnin hefst klukkan 10 fyrir hádegi og stend- ur fram eftir degi. Badminton hjá KB STARF badmintondeíldar KR er að hefjast og verða fyrstu æfing- arnar í íþróttahúsi KR væntan- lega 1. september. Innritun í tfma deildarinnar i vetur verður í KR- heimilinu á milli klukkan 18 og 20 f kvöld. Ásgeir Elfasson ekki vera hættur þjálfarastörf- um, eins og hann hefur svo oft sagzt ætla að gera og verður að öllum Ifkindum með Haukaliðið næsta vetur. Chivers Nimes á 55. mfnútu, en fimm mfn- útum síðar var Maurice Boyron, miðvallarleikmaður með Nimes borinn af velli vegna meiðsla. Var þjálfari liðsins búinn að skipta tveimur leikmönnum inn á og varð lið hans því að leika með aðeins 10 menn það sem eftir lifði leiksins. Einum fleiri tóku leikmenn Servette leikinn smátt og smátt í sfnar hendur, Chivers átti góðan skalla rétt yfir á 67. mínútu. Mark af 30 metra færi frá Pfistler jafn- aði síðan leikinn og á 74. mínút- unni flaug Chivers hærra en allir aðrir í vítateigi franska liðsins og hamraði knöttinn í netið. Þeir Jón og Bjarki eiga fullt f fangi með að halda á verðlaunun- um glæsilegu. Holbæk leiðir enn með tveimur stigum HOLBÆK færist enn nær meistara- titlinum I Danmörku og sigraði B 93 2:1 á laugardaginn Hefur Holbæk nú tveggja stiga forystu eftir 18 leiki. Atli Þór Héðinsson er enn ekki kominn aftur f lið Holbæk, en hann datt út úr liðinu vegna meiðsla fyrr I sumar. Staða efstu og neðstu liða: Holbæk 18 11 5 2 27:14 27 Frem 18 11 3 4 30:10 25 B 1903 18 10 5 3 32:17 25 AaB 18 9 6 3 29:22 24 Vanlöse 18 3 4 11 25:52 10 Randers 18 3 4 11 22:29 10 Fremad 18 3 3 3 12 1635 9 INGA Magnúsdóttir bar sigur úr býtum f opnu kvennamóti f golfi, sem fram fór á Hvaleyrarvellin- um f Hafnarfirði á laugardaginn. Inga er eiginkona Birgis Björns- sonar, formanns landsliðsnefnd- arinnar f handknattleik. Iþrótta- áhugann vantar ekki f þá fjöl- skyldu, því auk þeirra hjónanna eru börnin einnig mikið f fþrótt- um, t.d. f golfi. Keppt var bæði með og án for- gjafar í kvennakeppninni á laug- ardaginn og gaf Jens Guðjónsson gullsmiður vönduð verðlaun. í keppni án forgjafar sigraði Inga á 91 höggi, en í öðri sæti varð síðan íslandsmeistarinn tvö síðastliðin ár, Kristín Pálsdóttir, á 92 högg- um. I þriðja sæti varð síðan Jakobína Guðlaugsdóttir frá Vest- mannaeyjum á 93 höggum, þann- ig að keppnin gat varla orðið jafn- ari. 1 keppni með forgjöf sigraði Hanna Gabríelsdóttir á 78 högg- um nettó, en í öðru sæti varð Ágústa Dúa á 80 höggum. Á laugardaginn var leikið til úrslita f öldungakeppni Keilis- manna og sigraði Pétur Auðuns- son. ftermann Gunnarsson, Sigurður Dagsson, Halldór Einarsson, Bergsveinn Alfonsson og Alexander Jóhannesson — samanlagt hafa þessir kappar leikió nokkuð á annað þúsund leiki fyrir meistara- flokk Vals. Stórkostlegt hve vel ungu strákarnir hafa staðið sig sögðu „gömlu mennirnir" FIMM þeirra leikmanna, sem urðu tslands- meistarar með Val f fyrrakvöld, urðu einnig meistarar með liðinu árið 1967, þeir Sigurður Dagsson, Bergsveinn Alfonsson, Hermann Gunnarsson, Halldór Einarsson og Alexander Jóhannesson. Fjórir þeir fyrst nefndu urðu einnig meistarar með Val árið 1966. Tveir þeir sfðastnefndu hafa lengst af verið varamenn með liðinu f sumar, en hinir þrfr hafa verið fasta- menn f líðinu og á margan hátt burðarásar þess. Morgunblaðið rabbaði stuttlega við þá Sigurð Dagsson og Bergsvein Alfonsson að leiknum við Þrótt loknum. Voru þeir sammála um að ein helzta forsendan fyrir þessum árangri Vals f sumar væri mjög góður þjálfari liðsins, Sovét- maðurinn Youri Ilytehev. Sögðu þeir hann sér- staklega góðan og skynsaman þjálfara og sögð- ust ekki hafa kynnzt betri þjálfara ásfnum ferli og er hann þó orðinn ærið langur. Á sama tfma og þetta var mælt gekk Youri um klefa Vals- manna, barnslega ánægður með sigurinn, þrýstí hendur strákanna sinna og brosið náði út að eyrum. — Við áttum tæpast von á að ná svona langt f sumar, sögðu þeir Sigurður og Bergsveinn. — Lið okkar er ungt og það er alveg stórkostlegt hvað ungu strákarnir hafa þolað vel „pressuna" sem verið hefur á okkur f allt sumar; reyndar alveg frá upphafi tslandsmótsins, þvf það er erfitt að vera f efsta sætinu f svona langan tfma. Strákarnir hafa staðið sig eins og hetjur og ef þeir haida áfram hjá Val, en verða ekki rifnir frá okkur, t.d. í atvinnumennsku, þá verður Valur á toppnum næstu árin, sögðu þeir félagar. Þeir bættu þvf við, að það hefði ekki aðeins verið liðið, sem hefði verið samstillt f sumar. Stjórnin hefði haldið utan um starfið af rögg- semi og stuðníngsmenn Vals á áhorfendapöllun- um hefðu ekki verið eins atkvæðamiklir f mörg ár. — Annars er eitt, sem menn mega ekki gleyma, sögðu þeir Bergsveinn og Sigurður að lokum. og það er hin óskaplega vinna, sem er að baki sigrí f svona miklu móti, sem tslandsmótið er orðið. Ætli fólk geri sér almennt grein fyrir þvf hve mikil hún er f raun og veru?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.