Morgunblaðið - 01.09.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1976
5
Jón Kr. Olsen, formaður Vélstjórafélags Suðurnesja:
„Sjómönnum var ekki hlátur í huga
þegar þeir felldu samningana”
JÓN Kr. Olsen, formaður Vél-
stjórafélags Suðurnesja hafði
samband við Morgunblaðið og
óskaði að koma á framfæri eft-
irfarandi athugasemd:
„Sjómannasamnigngar felld-
ir í annað sinn“, „Lítill hluti
greiddi atkvæði“. Undirþessari
fyrirsögn birti Morgunblaðið
viðtal við Kristján Ragnarsson
formann L.I.U. og Jón Sigurðs-
son formann Sjómannasam-
bands tslands. I viðtalinu segir
Kristján: „Það er napurt að
manni skuli vera hlátur i
huga.“ Seinna i viðtalinu segir
hann að ástæðan sé sú „að mað-
ur hefur ekki verið þátttakandi
í öðru en skripaleik" og á þar
við að honum hafi verið
skemmt við úrslit þessi.
Ég vil í fyrsta lagi gera þá
athugasemd við viðtalið við
Kristján að það voru 274, sem
skiluðu atkvæðaseðlum í þess-
ari atkvæðagreiðslu en ekki
262, sem viðurkennt skal að er
ekki mikil þátttaka, ef tekið er
tillit til félagsmannatölu þeirra
félaga sem þarna áttu hlut að
máli. Ég kannast við að talað
hefur verið um lélega þátttöku
sjómanna í atkvæðagreiðslum
um kjarasamninga, en hefur
Kristján og aðrir sem slíkt hafa
haft á orði tekið tillit til algjörr-
ar sérstöðu sjómanna hvað
snertir að sækja fundi í stéttar-
félaginu sínu, sem og þá I at-
kvæðagreiðslum, en bátar allt i
kringum landið eru oftast
mannaðir að litlum hluta
heimamönnum, hinir eru viðs
vegar að af landinu og hafa
ekki atkvæðisrétt í stéttarfélög-
um i viðkomandi verstöð og þvi
hafa þeir ekki möguleika á að
greiða atkvæði, sem þeir ann-
ars gerðu. Hefur ekki einnig
hvarflað að Kristjáni að taka
tillit til fjarveru sjómanna
vegna skyldustarfa á hafi úti
sem útiloka þá frá að neyta
atkvæðisréttar sins.
Ég minnist þess að hafa einu
sinni hringt í Kristjan og beðið
hann um að L.t.Ú. færi fram á
það við útgerðarmenn og skip-
stjóra að þeir frestuðu að fara á
sjó þar til áhafnir bátanna
hefðu neytt atkvæðisréttar
sins. I sambandi við þá yfir-
standandi atkvæðagreiðslu
bátakjarasamninga og var þar
aðeins um nokkrar klukku-
stundir að ræða. Þessu synjaði
Kristján, kvað enga ástæðu til
að stöðva bátana út af atkvæða-
greiðslunni.
Þá vil ég einnig benda Krist-
jáni á að augu sjómanna eru
enn frekar að opnast fyrir þvl
ranglæti, sem þeir eru beittir í
launum miðað við aðrar stéttir I
þjóðfélaginu. Það vegur ekki
litið I viðhorfi sjómanna til
samninganna nú, að enn skuli
þeir greiða i stofnfjársjóð fiski-
skipa, eftir þeim upplýsingum,
sem Kristján Thorlacius, for-
maður B.S.R.B., og siðar Berg-
ur Guðnason, lögfræðingur,
gáfu upp um skatt- og fyrninga-
mál útgerðarinnar, þar sem
sýnt er fram á með rökum, að
útgerðarmenn hagnast vel á
Framhald á bls. 18
„IVlerki um raunverulegt eðli Sovétríkja nútímans:
Fasisma, heimsvalda-
stefnu og auðdrottnum”
MORGUNBLAÐINU barst f fær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Einingarsamtökum Kommúnista
(m—1). Fer fráttatilkynningin
hér á eftir:
„Til ríkisstjórnar Sovétrikjanna
Kommúnistaflokks Sovétrikjanna
þjóðþings Sovétrikjanna c/o
sendiráð Sovétrikjanna Reykja-
vik.
Yfirlýsing
Innrás Sovétherja og liðs Var-
sjárbandalagsins i Tékkóslóvakiu
21. ágúst 1968 var gróft brot á
Prestkosning-
arnar tæplega
fyrr en í október
LÍKLEGT er að prstskosningar í
Dómkirkju- og Háteigssóknum í
Reykjavík fari fram i byrjun októ-
bermánaðar og verði kosið sam-
timis i báðum prestaköllunum.
Umsóknarfrestur rann út 27.
ágúst og sóttu fimm prestar um
þessi embætti. Að sögn Óskars J.
Þorlákssonar dómprófasts í
Reykjavík eru kjörskrár ekki til-
búnar, en þær verða lagðar fram
um leið og gengið hefur verið frá
þeim. Sagði hann að ákvörðun um
kjördag yrði tekin I lok vikunnar,
en sagði að kosið yrði í síðasta lagi
10. október.
sjálfsákvörðunarrétti tékknesku
þjóðarinnar og grundvallaratrið-
um sósialismans.
Sú kúgun og það arðrán sem ný
yfirstétt Sovétríkjanna leiddi yfir
Tékkóslóvakíu eftir 1956 og marg-
efldi eftir innrásina, er merki um
raunverulegt eðli Sovétrikja nú-
timans:
— Fasisma, heimsvaldastefnu
og auðdrottnun.
Við fordæmum íhlutun Sovét-
ríkjanna í Tékkóslóvakíu og her-
nám þeirra. Við lýsum yfir sam-
stöðu með tékkneskum verkalýð
og alþýðu sem mun sigra aftur-
haldið og reisa raunverulegt
sósíalískt riki í Tékkóslóvakíu.
Við krefjumst þess að allri
íhlutun í innri mál Tékkóslóvakíu
verði hætt, að allt sóvéskt herlið
hverfi úr landinu og að allir póli-
tiskir fangar þar fái frelsi.
Við heitum á islenskan verka-
lýð, íslenska alþýðu og allt fram-
sækið fólk að taka undir þessar
kröfur og mótmæli og hefja bar-
áttu gegn hinum kapitalísku
Sovétríkjum og striðshættunni,
sem stafar af völdum þeirra og
hins risaveldisins — Bandaríkj-
anna.
Einingarsamtök
kommúnista
(marx-lenínistar) “
Kjarvalsbíó
Hvað er það sem skapar nýjar
stefnur og viðhorf í myndlist?
Eru það málararnir sjálfir, gagn-
rýnendurnir eða listasöfnin? Leit-
azt er við að svara þessari spurn-
ingu I kvikmynd, sem sýnd verður
á Kjarvalsstöðum fimmtudaginn
2. september. Kvikmyndin heitir
Ur kvikmyndinni um Oldenburg
„Listmálarar mála“ og fjallar um
bandariska málara, sem starfa í
New York. Auk málaranna
sjálfra, sem koma fram í mynd-
inni — þ.á.m. Andy Warhol,
Frank Stella og Rauschenberger
svo fáir séu nefndir — koma fram
listfræðingar og gagnrýnendur og
ræða ofangreindar spurningar.
Þessi kvikmyndasýning hefst kl.
20 en fyrr um daginn verða sýnd-
ar tvær aðrar, önnur um enska
myndhöggvarann Henry Moore,
sem talinn er mesti mynd-
höggvari Bretlands á þessari öld,
og hin um Claes Oldenburg, sem
m.a. kom mikið við sögu pop-listar
á sínum tíma. Þessar sýningar
hefjast kl. 17.30.
Kvikmyndasýningarnar eru lið-
ur i Haustsýningu Félags is-
lenzkra myndlistarmanna, sem nú
stendur yfir á Kjarvalsstöðum.
Aðgöngumiði að sýningunni gild-
ir á allar kvikmyndasýningarnar,
en þeim verður framhaldið á með-
an á Haustsýningunni stendur og
verða sýndar kvikmyndir um
surrealisma, franska málaralist
eftir 1950, málara'-eins og t.d.
Picasso, Mattisse, Hundertwasser
o.m.fl.
Sumar-
ALAN
SEM ALLIR HAFA BEÐIÐ EFTIR ER í
FULLUM GANGI í 4 VERZLUNUM SAMTÍMIS
NÝJAR VÖRUR TEKNAR FRAM
A ÚTSÖLUNNI í DAG
HERRAFÖT M/VESTI
ST. JAKKAR
TERYLENE ULLARBUXUR
BÚNAR TIL BEINT Á ÚTSÖLU
DENIM BUXUR
FLAUELSBUXUR
DENIM MUSSUR
SKYRTUR
BLÚSSUR
HERRAPEYSUR
DÖMUPEYSUR
DÖMUKÁPUR
HERRAFRAKKAR
KJÓLAR
DÖMUDRAGTIR
BINDI OMFL.
HLJOMPLÖTUR - SKOR
Látið ekki happ úr hendi sleppa