Morgunblaðið - 04.09.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
pPwýh
Þau sýna á SEPTEM ’76 — Kristján Daviðsson (f.v.), Jóhannes
Jóhannesson, Karl Kvaran, Guðmunda Andrésdóttir, Sigurjón Ói-
afsson og Valtúr Pétursson. A myndina vantar Þorvald Skúlason.
Ljósm. Mbl. RAX.
Sjö listamenn sýna
á SEPTEM 76
SEPTEM '76 nefnist listsýning,
sem f dag verður opnuð f Norr-
æna húsinu. Þessi sýning er
þriðja samsýningin, sem hópur-
inn „Septem“ efnir til, en sú
fyrsta var haldin árið 1974.
Listamennirnir, sem mynda
þennan hóp, eru þau Guð-
munda Andrésdóttir, Jóhannes
Jóhannesson, Karl Kvaran,
Kristján Davfðsson, Sigurjón
Ólafsson, Valtýr Pétursson og
Þorvaldur Skúlason. Verkin á
sýningunni eru tæplega 60, en
auk málverka eru fjórar högg-
myndir eftir Sigurjón Ólafsson,
sem unnar eru f tré.
í samtali við einn listamann-
anna, Kristján Davíðsson, kom
fram, að verkin á sýningunni
eru öll unnin á árinu 1976. Á
bak við þessar sýningar hópsins
er í raun sama tilfinningin og
bak við gömlu septembersýn-
ingarnar á árunum 1947 til ’53.
Við viljum fá almennilega
myndlistarsýningu og geta bor-
ið saman bækur okkar, sagði
Kristján.
— Til hvers eru listamenn
yfirleitt að sýna? Listamenn
vilja ekki lenda úti í horni með
verk sýn og það er lika hoit að
sjá verk sin á sýningu og geta
borið þau saman við verk ann-
arra, sagði Kristján og tók fram
að ekki væri um miklar breyt-
ingar að ræða hjá þeim félögum
frá sýníngu hópsins í fyrra. —
Við erum orðin roskin og búin
að finna okkar farveg.
Sýningin SEPTEM ’76verður
opnuð kl. 15 I dag og verður
opin daglega frá kl. 14 til 22, en
henni lýkur 19. september n.k.
Loðnuhrognin:
„Hirðum aldrei
nema nokkur pro-
mill af hrognunum”
segir Trausti Eiríksson verkfræðingur
— ÉG TEL að þótt loðnuhrogn
verði hirt um borð í sjálfum
veiðiskipunum verði það ekki til
að hafa nein fyrirsjáanleg áhrif á
loðnustofninn á næstu árum. Það
stafar m.a. af því að af 400 þús.
lesta loðnuafla sem við veiðum að
meðaltali, veiðast ekki nema 100
þús. lestir á Faxaflóasvæðinu og
það er ekki nema rétt síöustu
dagana á vertíöinni, sem loðnu-
hrognin eru orðin það þroskuð, að
þau myndi lífvænleg seiði, sagði
Trausti Eiríksson vcrkfræðingur
hjá Rannsóknarstofnun fiskiðn-
aðarins í samtali við Morgunblað-
ið í gær varðandi nýtungu loðnu-
Varð undir
dráttarvél
ÞAÐ óhapp átti sér stað á bænum
Eyði-Sandvík í Sandvíkurhreppi,
að hjól dráttarvélar lenti yfir
stúlku, sem féll út af vélinni. I
fyrstu var talið, að stúlkan hefði
slasazt verulega og var hún flutt á
sjúkrahús í Reykjavík. Við nánari
rannsókn reyndist stúlkan fekki
eins mikið slösuð og haldið var f
fyrstu.
ftMHSftf
ÞAU HEIHTA AP FA
30 MILUÓNIR TIL
AD BÚATILVE6
Sumargjöf fær lóð
við Eiríksgötu
BORGARRÁÐ samþykkli
á fundi sínum fyrir
skiimmu, að gefa Barna-
vinafélaginu Sumargjöf
kost á lóö vió Eiríksgötu
fyrir barnaheimili, enda
afsali félagið sér lóð milli
Sundhallarinnar og
Heilsuverndarstöðvarinn-
ar, sem því hafði áður ver-
ið úthlutaó.
Mannekla í
Vegna þessa hafði Morgunblað-
ið samband við Braga Kristjáns-
son formann Sumargjafar, og
spurði hann hvort félagið hygðist
hefja byggingu barnaheimilis á
þessum stað. Hann sagði, að ekki
væri búið að ganga nákvæmlega
frá þessu máli og yrði vart gert
fyrr en í næstu viku.
Þá sagði Bragi, að sem kunnugt
væri af fréltum, væri nú í undir-
búningi, að Reykjavíkurborg tæki
við öllum rekstri Sumargjafar, en
e'nn væri mörgu ólokið í undir-
búningi þess máls.
hrogna um borð í veiðiskipum, en
um það mál var fjallaö f Mbl. í
gær.
Trausti sagði, að loðnuveiðarn-
ar takmörkuðust fyrst og fremst
af bræðslugetu verksmiðjanna, og
nokkur af þeim skipum, sem feng-
ið hefðu bróðurpartinn af loðn-
unni á undanförnum loðnuvertíð-
um, hefðu verið seld úr landi. —
Því verða það aldrei nema nokkur
promill af hrognunum, sem hægt
er að hirða með hrognaskiljurum
um borð í veiðiskipunum, sagði
hann.
Að sögn Trausta þá á að vera
mjög auðvelt að safna loðnu-
hrognum þeim, sem annars færu
útbyrðis við dælingu, saman um
borð í veiðiskipunum og væri hér
um mjög dýrt hráefni að ræða, en
á s.l. loðnuvertíð hefði tonnið af
hrognunum verið selt á 175 þús-
und krónur.
Morgunblaðið spurði Trausta
hvort ekki bæri að leggja meiri
áherzlu á, að ná hrognunum úr
loðnunni um leið og landað væri
til bræðslu. „Það á að vera mjög
auðvelt sagði hann, og eins og
kunnugt er, er hrognaþyngd loðn-
unnar stundum um 1/3 af heild-
arþyngdinni. Það sem hér veldur
enn mestu er hreinlega skipulags-
leysi í landi. Hins vegar verðum
við að leggja meiri áherzlu á að
nýta þetta verðmæta hráefni, sem
hrognin eru, bæði um leið og loðn-
unni er dælt um borð og eins
þegar henni er dælt í land.“
Aðspurður sagði Trausti, að
kostnaðurvið að koma fyrir
hrognaskiljara og tilheyrandi út-
búnaði um borð í veiðiskipum
væri ekki talinn mikill.
Þá sneri Morgunblaðið sér til
Hjálmars Vilhjálmssonar fiski-
fræðings og spurði hann hvað
hann vildi segja um þetta. Hann
sagðist ekki hafa mikið við það að
bæta, sem hann sagði i Mbl. í gær.
Það mætti að vísu segja, að sem
stæði skipti það ekki miklu máli,
hvort þessi hrogn væru hirt. Hins
vegar gæti það skipt máli síðar og
því ættu íslendingar að fara var-
lega í sakirnar í þessum efnum.
Við hefðum séð nóg af æðibunu-
ganginum í íslenzkum sjávarút-
vegi stundum.
Útsending-
unni seinkaði
vegna fundar
starfsfólks
UTSENDING sjónvarps hófst
ekki fyrr en 18 mínútur gengin
i níu í gærkvöldi, þar sem
fundir starfsfólks stofnunar-
innar dróst á langinn og hefði
að sögn getað orðið miklu
lengri ef honum hefði ekki
verið slitið rúmlega átta.
Eiður Guðnason fréttamað-
ur, sem á sæti í launamála-
nefnd starfsfólks sjónvarpsins,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi, að þetta hefði
eingöngu verið fundur, þar
sem rætt hefði verið um stöð-
una í launamálunum eftir
fund sem haldinn var í fyrra-
morgun með fulltrúum fjár-
málaráðuneytisins.
— Við teljum að það hafi
gott sem ekkert komið út úr
þeim fundi, sagði Eiður.
Hann sagði að fundur starfs-
fólk hefði hafizt kl. 19 í gær-
kvöldi og einfaldlega dregizt á
langinn og getað staðið miklu
lengur ef honum hefði ekki
verið slitið.
— Hér er mikil og megn
óánægja með launin, eins og
uppsagnir starfsfólksins bera
með sér og hefur svo verið
lengi, sagði Eiður að lokum.
Öll gisti-
herbergi
full á Höfn
Höfn í Hornafirði 3. september
frá Árna Johnsen blm. Morgun-
blaðsins.
Hótel og annað gistirými á Höfn
í Hornafirði er nú yfirfullt, bæði
á Hótel Höfn og í Nesjaskóla. Á
Hótel Höfn er 90 manna ráðstefna
Sambands sveitarfélaga á Austur-
landi, þar sem fjallað er um ýmis
mál, bæði sameiginleg og sérstök.
Þá er í Nesjaskóla aðalfundur
Sambands austfirzkra kennara,
þannig að segja má að forystulið í
félagsmálum Austfirðinga sé nú á
Höfn í Hornafirði. Munu þessir
tveir fundir standa yfir fram á
sunnudag.
VI© erom alls L
íKKERT
■JKATfAWA OKKAR' V/O
MlTOM N3 V6I« VA«A
fKKi ÍKFINN 6'PARTA' •
Siglufirði 3. september
Skuttogarinn Sigluvík
landaði 14 tonnum af góð-
um fiski hér í Siglufirði
fyrir tveimur dögum og
Dagný landaði 72 tonnum i
gær. Auk þessa er Dagný
með á milli 40 og 50 tonn af
heilfrystum fiski um borð,
sem gert er ráð fyrir, að
togarinn sigli með. Gífur-
leg atvinna er nú hérna í
bænum og atvinnurekend-
ur leita eftir fólki viða um
land, en með misjöfnum ár-
angri.
mj.
Tveir hasshundar hjá varnarliðinu:
Meira af fíkniefnuin smyglað
inn á völlinn en út af honum
VARNARLIÐIÐ á Keflavfkur-
flugvelli hefur nú tvo hass-
hunda, sem athuga allan póst,
sem berst til hermanna á vell-
inum, ennfremur eru þeir látn-
ir þefa af hverjum hcrmanni,
sem kemur til landsins, ef vera
skyldi, að þeir væru með hass
innan klæða. Þá tjáði Asgeir
Friðjónsson ffkniefnadómari
Mbl. f gær, að miklu meira virt-
ist vera um, að eiturlyfjum
væri smyglað inn á Keflavfkur-
flugvöll heldur en út af vellin-
um.
Hannes Guðmundsson full-
trúi í varnarmáladeild utanrík-
isráðuneytisins sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að
seinni hasshundurinn váeri fyr-
ir skömmu kominn til landsins.
Það væri nýjung hér á landi, að
hasshundar væru látnir þefa af
fólki, því ef þeir yrðu varir við
eitthvað, stykkju þeir á fólk og
rifu og bitu.
Þá sagði Hannes að í smygi-
málinu á Keflavíkurflugvelli
s.l. vetur hefði komið í Ijós, að
viðkomandi hefðu helzt reynt
að smygla til Bandaríkjanna og
þeir hermenn hefðu tekið ís-
lenzkar áætlunarvélar í Stað
hervéla, þar sem þeir töldu
áhættuna miklu minni og varn-
árliðið virtist gera allt sem
hægt væri til að koma f veg
fyrir eiturlyfjasmygl á vellin-
um.
Ásgeir Friðjónsson fíkniefna-
dómari sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, að til
skamms tfma hefði það verið
svo, að miklu meira af fikniefn-
um væri smyglað inn á Kefla-
víkurflugvöll heldur en út af
vellinum og virtist svo vera
enn. —