Morgunblaðið - 04.09.1976, Page 7
' MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
7
Siðferðileg
upplausn
DAGBLAÐIÐ Vísir
ræðir í forystugrein í
gær um skattamál og
verðbólgu og segir m.a.:
„Umræður um skatta-
mál að undanförnu hafa
á margan hátt verið
þarflegar. Þær hafa
ekki einvörðungu heint
athygli manna að mis-
rétti í þeim efnum,
heldur cinnig og ekki
síður opnað augu
manna fyrir þeirri sið-
ferðilegu upplausn,
sem fylgir í kjölfar
þeirrar óðaverðbólgu,
sem við höfum búið við.
Að vísu hefur það lengi
verið ljóst, að verðbólg-
an kippti ekki einungis
stoðunum undan hcil-
brigðu efnahagslffi,
heldur veikti hún al-
mennt allt þjóðfélags-
legt siðferði. Menn hafa
jafnvel haldið því fram,
að verðbólgan ógnaði
stjórnarfarslegu lýð-
ræði, og er vissulega
margt til í þeirri kenn-
ingu. Brandt fyrrum
kanslari Vestur-
Þýzkalands hefur meðal
annarra haldið henni
fram. Allt eru þetta
óhugnanlegar stað-
reyndir. Fram til þessa
hafa menn látið við það
sitja að skeggræða um
þessi vandamál. Nú er
hins vegar komið að
því, að stjórnvöld og
forvígismenn hags-
munasamtaka þurfi að
breyta í samræmi við
þennan kalda veru-
leika, hann verður ekki
umflúinn. Verðbólgan
skaðar ekki aðcins þjóð-
félagsheildina, heldur
gengur hún f berhögg
við hagsmuni hvers ein-
staks borgara. Stundum
er staðhæft að tilteknir
hópar hagnist á verð-
bólgunni, því er t.a.m.
haldið fram, að verð-
bólgan hafi gert mönn-
um kleift aðeignast eig-
ið húsnæði og gefi at-
vinnurekcndum mögu-
leika til þess að ná til
sfn óeðlilegum sölu-
hagnaði."
Skaðar jafnt
launþega sem
atvinnurekstur
Síðan segir Vísir f for-
ystugrein sinni: „Vita-
skuld eru til dæmi hér
um, en þegar á allar að-
stæður er litið má Ijóst
vera, að verðbólgan
skaðar jafnt launþega
og þá sem atvinnurekst-
ur stunda. Verst af öllu
leikur hún þá, sem
minnst hafa umleikis.
Öll skynsamleg rök
hníga því f þá átt, að
annars ólfkir hags-
munahópar geti sam-
einast f baráttunni gegn
verðbólgunni. Þetta
blað hefur jafnan lagt á
það mikla áherzlu, að
ríkisstjórn, stjórnmála-
flokkar, stjórnarmegin
og stjórnarandstöðu-
megin, og hagsmuna-
samtök launþega og at-
vinnurekenda, legðust á
eitt til þess að auðvelda
aðgerðir í því skyni að
draga úr verðbólgu. Að
þessari samstöðu hefur
ekki orðið, þó að f ein-
stökum tilvikum hafi
örlað á vilja f þessa átt.
Hefðbundinn hags-
munaágreiningur og
þrætur stjórnmála-
flokka, oft á tíðum um
keisarans skegg, hafa
setið í fyrirrúmi. Nú
hefur forsætisráðherra
hins vegar boðað, að
ríkisst jórnin hafi f
hyggju að leita eftir
aukinni samstöðu þess-
ara aðila, gagngert til
að auðvelda viðnám
gegn verðbólgu. Það er
tillölulcga auðvelt að
koma í veg fyrir, að
samstarf af þessu tagi
beri árangur. En á hit r
að líta að borgararnir
ætlast til þess, að of al-
gengum barnaskap í
stjórnmálahagsmuna-
átökum verði vikið til
hliðar í þeim tilgangi að
uppræta böl óðaverð-
bólgunnar. Hafa verður
f huga í þessu sambandi
að orsakir verðbólgunn-
ar eru margþættar og
eins að ákvörðunarvald-
ið er svo dreift, að sam-
starf er forsenda raun-
hæfra aðgerða á þessu
sviði. Þannig eru að-
stæðurnar og þeir, sem
völdin hafa á hverjum
stað, verða að skipa
málum f samræmi við
það.“
DÓMKIRKJAN Messa kl. 11
árd. Séra Hannes Guðmunds-
son í Fellsmúla, umsækjandi
um Dómkirkjuprestakall.
NESKIRKJA Guðþjónusta kl.
11 árd. Séra Frank M. Halldórs-
son.
ÁRBÆJ ARPRESTAKALL.
Guðþjónusta i Árbæjarkirkju
kl. 11 árd. Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
Laugarmpskirkja. Messa kl. 11
árd. Séra Garðar Svavarsson.
HÁTEIGSKIRKJÁ. Messa kl.
11 árd. Séra Arngrímur
Jónsson.
HALLGRÍMSPRESTAKALL.
Messa kl. 11 árd. Séra Karl
Sigurbjörnsson.
LANDSPÍTALINN. Messa kl.
10 árd. Séra Karl Sigurbjörns-
son.
FELLA- OG HÓLASÓKN. Guð-
þjónusta í Fellaskóla kl. 11 árd.
Séra Hreinn Hjartarson.
LANGHOLTSSÖFNUÐUR.
Messa kl. 2 síðd. Athugið
breyttan messutíma. Sóknar-
nefndin.
Guðspjall dagsins: Markús 7,
31—37: Hinn daufi og málhalti.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Hersamkoma á Lækjartorgi kl.
4 síðd. Hjálpræðissamkoma kl.
8.30 síðd. Kaft. Daníel Óskars-
son.
ÁSPRESTAKALL. Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grímur Grfmsson.
FILADELFÍUKIRKJAN.
Safnaðarguðþjónusta kl. 2 síðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Guðmundur Markússon.
GRENSÁSKIRKJA. Messa kl.
11 árd. Séra Halldór S. Gröndal.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Messa í Bústaðakirkju kl. 11
árd. Séra Lárus Halldórsson.
GRUND- elli og hjúkrunar-
heimili. Messa kl. 10 árd. Séra
Lárus Halldórsson.
BUSTAÐAKIRKJA. Messa kl
11 árd. Séra Lárus Halldórsson.
MORMÓNAKIRKJÁN, Háa-
leitisbraut 19. Sakramentissam-
koma kl. 2 siðdr-Forstöðumað-
ur.
KÓPAVOGSKIRKJA. Guðþjón-
usta kl. 11 árd. Séra Árni Páls-
Litur dagsins: Grænn. Táknar
vöxt, einkum vöxt hins andlega
lffs.
GARÐAKIRKJA. Messa kl. 11
árd. Séra Bragi Friðriksson.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði.
Guðþjónusta kl. 2 síðd.
Safnaðarprestur.
MOSFELLSPRESTAKALL
Lágafellskirkja. Messa kl. 2
sfðd. Séra Bjarni Sigurðsson
setur nýskipaðan sóknarprest,
séra Birgi Ásgeirsson, í
embætti. Sóknarnefnd.
KEFLAVÍKURKIRKJA. Messa
kl. 11 árd. Séra Ólafur Oddur
Jónsson.
KIRKJUVOGSKIRKJA. Messa
kl. 2 síðd. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA. Guð-
þjónusta kl. 2 sfðd. Aðal-
safnaðarfundur að lokinni guð-
þjónustu. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJ A. Messa kl.
10.30 árd. Sóknarprestur.
HALLGRlMSKIRKJA i Saur-
bæ. Guðþjónusta kl. 2 síðd.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson
prédikar. Altarisganga. Séra
JónÆinarsson.
AKRANESKIRKJA. Messa kl.
10.30 árd. Séra Björn Jonsson.
Jassdansskóli
Sigvalda
Innritun hafin í alla flokka
KENNT VERÐUR:
Jass — dans cl/Q\Ín^
jitterbug og rokk ^ J-|©f St
6.
Upplýsingar
í síma 84750
frá kl. 10—12.
7.
og kl. 1
Jass dans
jass dana
LuvI ks
Kvenstígvél nýkomin
SKÓSEL, Laugavegi 60 sími 21270