Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 7

Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 7
' MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 7 Siðferðileg upplausn DAGBLAÐIÐ Vísir ræðir í forystugrein í gær um skattamál og verðbólgu og segir m.a.: „Umræður um skatta- mál að undanförnu hafa á margan hátt verið þarflegar. Þær hafa ekki einvörðungu heint athygli manna að mis- rétti í þeim efnum, heldur cinnig og ekki síður opnað augu manna fyrir þeirri sið- ferðilegu upplausn, sem fylgir í kjölfar þeirrar óðaverðbólgu, sem við höfum búið við. Að vísu hefur það lengi verið ljóst, að verðbólg- an kippti ekki einungis stoðunum undan hcil- brigðu efnahagslffi, heldur veikti hún al- mennt allt þjóðfélags- legt siðferði. Menn hafa jafnvel haldið því fram, að verðbólgan ógnaði stjórnarfarslegu lýð- ræði, og er vissulega margt til í þeirri kenn- ingu. Brandt fyrrum kanslari Vestur- Þýzkalands hefur meðal annarra haldið henni fram. Allt eru þetta óhugnanlegar stað- reyndir. Fram til þessa hafa menn látið við það sitja að skeggræða um þessi vandamál. Nú er hins vegar komið að því, að stjórnvöld og forvígismenn hags- munasamtaka þurfi að breyta í samræmi við þennan kalda veru- leika, hann verður ekki umflúinn. Verðbólgan skaðar ekki aðcins þjóð- félagsheildina, heldur gengur hún f berhögg við hagsmuni hvers ein- staks borgara. Stundum er staðhæft að tilteknir hópar hagnist á verð- bólgunni, því er t.a.m. haldið fram, að verð- bólgan hafi gert mönn- um kleift aðeignast eig- ið húsnæði og gefi at- vinnurekcndum mögu- leika til þess að ná til sfn óeðlilegum sölu- hagnaði." Skaðar jafnt launþega sem atvinnurekstur Síðan segir Vísir f for- ystugrein sinni: „Vita- skuld eru til dæmi hér um, en þegar á allar að- stæður er litið má Ijóst vera, að verðbólgan skaðar jafnt launþega og þá sem atvinnurekst- ur stunda. Verst af öllu leikur hún þá, sem minnst hafa umleikis. Öll skynsamleg rök hníga því f þá átt, að annars ólfkir hags- munahópar geti sam- einast f baráttunni gegn verðbólgunni. Þetta blað hefur jafnan lagt á það mikla áherzlu, að ríkisstjórn, stjórnmála- flokkar, stjórnarmegin og stjórnarandstöðu- megin, og hagsmuna- samtök launþega og at- vinnurekenda, legðust á eitt til þess að auðvelda aðgerðir í því skyni að draga úr verðbólgu. Að þessari samstöðu hefur ekki orðið, þó að f ein- stökum tilvikum hafi örlað á vilja f þessa átt. Hefðbundinn hags- munaágreiningur og þrætur stjórnmála- flokka, oft á tíðum um keisarans skegg, hafa setið í fyrirrúmi. Nú hefur forsætisráðherra hins vegar boðað, að ríkisst jórnin hafi f hyggju að leita eftir aukinni samstöðu þess- ara aðila, gagngert til að auðvelda viðnám gegn verðbólgu. Það er tillölulcga auðvelt að koma í veg fyrir, að samstarf af þessu tagi beri árangur. En á hit r að líta að borgararnir ætlast til þess, að of al- gengum barnaskap í stjórnmálahagsmuna- átökum verði vikið til hliðar í þeim tilgangi að uppræta böl óðaverð- bólgunnar. Hafa verður f huga í þessu sambandi að orsakir verðbólgunn- ar eru margþættar og eins að ákvörðunarvald- ið er svo dreift, að sam- starf er forsenda raun- hæfra aðgerða á þessu sviði. Þannig eru að- stæðurnar og þeir, sem völdin hafa á hverjum stað, verða að skipa málum f samræmi við það.“ DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árd. Séra Hannes Guðmunds- son í Fellsmúla, umsækjandi um Dómkirkjuprestakall. NESKIRKJA Guðþjónusta kl. 11 árd. Séra Frank M. Halldórs- son. ÁRBÆJ ARPRESTAKALL. Guðþjónusta i Árbæjarkirkju kl. 11 árd. Séra Guðmundur Þorsteinsson. Laugarmpskirkja. Messa kl. 11 árd. Séra Garðar Svavarsson. HÁTEIGSKIRKJÁ. Messa kl. 11 árd. Séra Arngrímur Jónsson. HALLGRÍMSPRESTAKALL. Messa kl. 11 árd. Séra Karl Sigurbjörnsson. LANDSPÍTALINN. Messa kl. 10 árd. Séra Karl Sigurbjörns- son. FELLA- OG HÓLASÓKN. Guð- þjónusta í Fellaskóla kl. 11 árd. Séra Hreinn Hjartarson. LANGHOLTSSÖFNUÐUR. Messa kl. 2 síðd. Athugið breyttan messutíma. Sóknar- nefndin. Guðspjall dagsins: Markús 7, 31—37: Hinn daufi og málhalti. HJÁLPRÆÐISHERINN. Helgunarsamkoma kl. 11 árd. Hersamkoma á Lækjartorgi kl. 4 síðd. Hjálpræðissamkoma kl. 8.30 síðd. Kaft. Daníel Óskars- son. ÁSPRESTAKALL. Messa kl. 2 síðd. að Norðurbrún 1. Séra Grímur Grfmsson. FILADELFÍUKIRKJAN. Safnaðarguðþjónusta kl. 2 síðd. Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd. Guðmundur Markússon. GRENSÁSKIRKJA. Messa kl. 11 árd. Séra Halldór S. Gröndal. BREIÐHOLTSPRESTAKALL. Messa í Bústaðakirkju kl. 11 árd. Séra Lárus Halldórsson. GRUND- elli og hjúkrunar- heimili. Messa kl. 10 árd. Séra Lárus Halldórsson. BUSTAÐAKIRKJA. Messa kl 11 árd. Séra Lárus Halldórsson. MORMÓNAKIRKJÁN, Háa- leitisbraut 19. Sakramentissam- koma kl. 2 siðdr-Forstöðumað- ur. KÓPAVOGSKIRKJA. Guðþjón- usta kl. 11 árd. Séra Árni Páls- Litur dagsins: Grænn. Táknar vöxt, einkum vöxt hins andlega lffs. GARÐAKIRKJA. Messa kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriksson. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Safnaðarprestur. MOSFELLSPRESTAKALL Lágafellskirkja. Messa kl. 2 sfðd. Séra Bjarni Sigurðsson setur nýskipaðan sóknarprest, séra Birgi Ásgeirsson, í embætti. Sóknarnefnd. KEFLAVÍKURKIRKJA. Messa kl. 11 árd. Séra Ólafur Oddur Jónsson. KIRKJUVOGSKIRKJA. Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA. Guð- þjónusta kl. 2 sfðd. Aðal- safnaðarfundur að lokinni guð- þjónustu. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJ A. Messa kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. HALLGRlMSKIRKJA i Saur- bæ. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar. Altarisganga. Séra JónÆinarsson. AKRANESKIRKJA. Messa kl. 10.30 árd. Séra Björn Jonsson. Jassdansskóli Sigvalda Innritun hafin í alla flokka KENNT VERÐUR: Jass — dans cl/Q\Ín^ jitterbug og rokk ^ J-|©f St 6. Upplýsingar í síma 84750 frá kl. 10—12. 7. og kl. 1 Jass dans jass dana LuvI ks Kvenstígvél nýkomin SKÓSEL, Laugavegi 60 sími 21270

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.