Morgunblaðið - 04.09.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
Af Haust-
sýningu
F.I.M.
Fyrir nokkrum árum hélt
saman hópur nemenda mynd-
listardeildar Myndlista- og
handiðaskólans er nefndi sig
stutt og laggott „masterpiece"
— meistaraverkið. Það var
mikið líf, sprell og spé í þessum
ungu mönnum og að sjálfsögðu
tóku þeir þetta nafn upp i
græskulausu gamni og til að
storka hinum skemur komnu
skólafélögum sinum á lista-
brautinni.
Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar, tveir úr
hópnum hafa forframazt við
nám hjá viðurkenndum
snillíngum heimslistarinnar og
ferðazt vítt og breitt um heims-
byggðina til að skoða söfn og
sýningar og kynnast mannlíf-
inu í hinni breytilegustu mynd
— en flestir úr hópnum hafa þó
haldið sig hér heima við ýmis
störf.
mm
Sigurður Orlygsson: „Morgunlcikfimi" '76.
The Masterpiece
Hinir tveir áðurnefndu, sem
heita Magnús Kjartansson og
Sigurður Örlygsson, ásamt hin-
um þriðja Ómari Skúlasyni, er
haldið hefur sig á heima-
slóðum, koma mjög sterkt út á
núverandi Haustsýningu á
Kjvarvalsstöðum — svo sterkt
að ég tel tilefni til að geta
þeirra sérstaklega um leið og ég
vek athygli á sjálfri
sýningunni, en listdómur um
sýninguna f heild mun birtast
hér i blaðinu um miðja næstu
Máski er hér brotið blað í
þróun íslenzkrar myndhugsun-
ar, a.m.k. er hér i senn á ferð
kyngimagnaður kraftur og öfl-
ugur undirtónn og hér er
gengið umbúðalaust til verks,
litir og form brjótast um á
myndfletinum, en er þó haldið f
skefjum af kunnáttusemi í
meðferð efniviðarins.
Það er eftirtektarvert þegar
ungir menn með vökult auga
fyrir hræringum heimslistar-
innar standa um leið með báða
Ómar Skúlason: „An nafns“, '76 —
viku. Félagarnir þrír eru
merkilega sjálfstæðir hver um
sig þótt grundvallarhugsunin
og myndstíllinn sé ekki ósvip-
aður — er hér um það að ræða
sem á fagmáli nefnist
„Assemblage" með ívafi af pop
og öðrum stílum í bland. Er
merkilegt hve myndirnar eru
persónulegar innan þessa
ramma, og hve kröftugar þær
eru í lit- og formaríkdómi
sínum. Um leið taka þeir
félagar öðru framar myndefni
úr umhverfi sínu — máia hið
íslenzka svið, ef við þá viljum
skypja sviðið, allt um kring en
ekki einungis klassísk mynd-
hugtök.
fætur á íslenzku sviði.
Ameriski málarinn Stuart
Davis krufði eitt sinn afstöðu
sina til sjálfs sín og listar
sinnar á snilldarlegan hátt, og
væri það ánægjulegt að sem
flestir íslenzkir framúrstefnu-
listamenn gætu tileinkað ser þá
framsögn, en hún hljóðar svo,
ef við í gamni heimfærum hana
á hina þrjá ungu menn.
„Við erum íslendingar,
fæddir í Reykjavik af
íslenzkum stofni. Við námum
list á íslandi, — við málum það
sem við sjáum á íslandi — með
öðrum orðum sagt, við málum
hið islenzka svið..
Bragi Asgeirsson.
Vilhjálmur Þ, Gíslason:
Þýzkur menningarsióður
Einhver umfangsmesti menn-
ingarsjóður í Evrópu er „Stiftung
F.V.S." í Hamborg, sem veitir
margivsleg verðlaun og fjárfrain-
lög til ýmissa menningarmála.
Þetta er starfsemi, sem er að
vissu leyti hliðstæð Nóbelsverð-
laununum sænsku eða Carls-
bergssjóðnum í Danmörku. Þetta
er einkafyrirtæki og sjálfseignar-
stofnun, stofnað af gjöf þýzks
kaupsýslumanns, dr. Alfred
Toepfer, sem lagt hefur stofnun-
inni mikinn hluta eigna sinna, að
sögn um 150 milljón marka. Fyrir-
tæki Toepfers eru heimsfyrir-
tæki, starfandi frá Kanada til
Sovétríkjanna, frá Indlandi til
Ástralíu og fást við kornverzlun
og framleiðslu fóðurbætis, skipa-
útgerð og bankastarfsemi. Fram-
kvæmda og fjármálastjóri
menningarsjóðanna er dr. jur.
Walther Reusch.
Til grundvallar menningarsjóði
F.V.S. liggur hugsjón stofnand-
ans, dr. Toepfers, um einingu eða
samvinnu Evrópu, en áhugamál
hans i þessum efnum eru á mörg-
um sviðum og í mörgum löndum.
Þess vegna eru verðlaun sjóðsins
og fjárframlög í ýmsum greinum
og á margan hátt, sumt eru
heiðurslaun eða verðlaunapen-
ingar, sumt fjárveitingar í
heiðursskyni fyrir andleg störf,
bókmenntir og vísindarannsókn-
ir, eða styrkir til verklegra og
hagnýtra framkvæmda. T.d. hef-
ur dr. Toepfer mikinn áhuga á
landvernd — s.s. ^LUneborgar-
heiði — og á minjavernd og á
eflingu og viðhaldi þjóðlegra
lista, en einnig á sviðum stjórn-
fræði og stjórnsýslu. Upphæð
þessara heiðursverðlauna eða
fjárframlag nemur frá 5000 til
200 þúsund mörkum hverju sinni
og tala þeirra mun nú vera um
hálfur þriðji tugur á ári. Sjóður-
inn gefur út vandað tímarit á
þýzku, ensku og frönsku.
Margt af þessum veitingum fer
eðlilega til þýskra framkvæmda,
en því fer fjarri að þær séu
bundnar heimalandi stofnandans.
M.a. er einn sjóðurinn ætlaður
Norðurlöndum og kölluð Henrik
Dr. Alfred Toepfer
Steffens verðlaun og veitt árlega
einhverjum norrænum rithöfundi
eða listamanni. Koma bæði til
greina fræðimenn, skáld, tónlista-
menn, arkitektar o.fl. Tveir Is-
lendingar hafa hlotið þessi verð-
laun, prófessor Magnús Már
Lárusson og Hannes Pétursson
skáld. Það fylgir verðlaununum,
að þeir sem fá þau, geta valið með
sér ungan mann til framhalds-
náms í fræðum sínum í Þýzka-
landi á kostnað sjóðsins. Verð-
launin eru veitt með sérstöku til-
liti til alþjóðlegs gildis og human-
iskra verðmæta þeirra starfa, sem
unnin hafa verið.
A svipaðan hátt eru á vegum
sjóðsins einnig veitt árlega mörg
önnur verðlaun svo sem „Goethe-
verðlaun", „Montaigne-verðlaun“
í Frakklandi, „Shakespeare-
verðlaun" í Englandi og „Robert-
Schuman-verðlaun“.
Sumir af þeim, sem verðlaun
hafa hlotið, eru eðlilega ekki mik-
ið þekktir hér á landi, en ýmsir
þeirra eru Evrópufrægir menn og
konur. Af Norðurlandamönnum
má nefna, auk Islandinganna,
Harry Martinson og Villy Sören-
sen og af öðrum Paul Tillich,
Martin Buber, Benjamin Britten,
Walther Gropius, André Malraux,
Salvador de Madariaga, Heath
forsætisráðherra, leikstjórann
Giorgio Strehler og leikarann
Paul Scofield, svissneska skáldið
Philippe Jaccottet, René Cassin,
sem lengi var forseti evrópska
mannréttindadómsins í Strass-
borg, Hanns Lilje biskup í Hann-
over, arkitektana Cordes í Kiel og
Vassas í París.
Stofnandi þessara víðtæku
sjóða, dr. Toepfer, er nú rúmlega
áttræður maður, en í fullu f jöri og
sækir fundi, þar sem verðlaunin
eru veitt við hátíðlegar athafnir
að viðstöddum helztu virðinga-
mönnum hvers staðar. Stjórnir
fara annars einar með úthlutanir.
I forstöðunefnd (kuratorium)
Henrik Steffens verðlauna eiga
nú sæti: prófessor A. Scharff í
Kiel, forseti, ríkisbókavörður
Palle Birkelund Kaupmannahöfn,
prófessor G. Cordes, Kiel,
Vilhjálmur Þ. Gíslason, Reykja-
vík, Werner Kock, borgarstjóri í
Llibeck, prófessor E. Nevanlinna,
Helsinki, prófessor O. Oberholtz-
er, Kiel, og prófessor A. West-
holm, Gautaborg.
I veglegu minningarriti, sem
gefið var út á áttræðisafmæli dr.
Alfred Toepfer, eru rakin hin
fjölbreyttu áhugamál hans og
framkvæmdir. Hann er hinn
merkasti hugsjónamaður og at-
hafnamaður og hinn öflugi gjafa-
sjóður hans hefur haft mikil áhrif
til stuðnings og kynningar á
mörgum verkum og framkvæmd-
um og til skilnings og eflingar
evrópskri samvinnu.