Morgunblaðið - 04.09.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
15
SMTTH SKYTTA
— Ian Smith forsætisráð-
herra Ródesíu er sæmi-
legasta skytta að sögn
lögreglumanns, sem
fylgdi honum um deild
lögreglunnar á landbún-
aðarsýningunni í Salis-
bury í síðustu viku. Fékk
Smith þar að reyna skot-
hæfni sína og sézt hér
miða vandlega á mark.
Simamynd AF
Waldhdm óttast
ófrið í S-Afríku
Genf 3. september — Reuter.
AFVOPNUNARRAÐSTEFNAN í Genf, sem 30 þjóðir
taka þátt í, samþykkti í dag að banna allar tilraunir til að
hafa áhrif á veðurfar í stríði, en ósamkomulag um
nokkur smáatriði getur þó komið í veg fyrir formlega
staðfestingu samningsins. Ráðstefnan náði samkomu-
lagi um textann á síðustu stundu eftir að Mexíkó og
Argentína höfðu látið að því liggja að þau myndu koma í
veg fyrir atkvæðagreiðslu.
Bæöi löndin féllust þó aö lokum ríkin komu sér saman um fyrir
á textann, sem í meginatriöum er ári, en þó meö þeim fyrirvara að
sá sami og Bandaríkin og Sovét- þau geta óskað nýrra viðræöna
-------------------------- um hann síöar. Brasilía gerði fyr-
irvara á samþykkt sinni og ind-
verska sendinefndin lýsti sig sam-
þykka en lofaði engu um sam-
þykki ríkisstjórnar sinnar.
Samkvæmt samningsdrögunum
er þjóöum bannaö aö hafa áhrif á
umhverfið eða ráðast gegn óvin-
um meö tilbúnum stormum, flóð-
bylgjum, jarðskjálftum eða öðr-
um náttúruhamförum. Texti
samningsdraganna fef nú til Sam-
einuðu þjóðanna til umræðu á
allsherjarþinginu síðar í þessum
mánuði.
Fyrsta grein samningsdraganna
segir að samningsaðilar megi ekki
gera fjandsamlegar eða hernaðar-
legar breytingar á umhverfinu,
sem geta valdið „víðtækri, lang-
varandi og stórtækri eyðileggingu
eða manntjóni hjá öðrum samn-
ingsaðila." Sendinefnd Mexikó
sagði í skriflegri athugasemd að
hún gæti ekki fallizt á orðalagið
„víðtæ'k, langvarandi og stórta'k
eyðilegging" þar sem það heimil-
aði hernaðaraðgerðir fyrir utan
þessi skilgreindu mörk.
Brasilía samþykkti með þeim
fyrir vara að áðurnefnt orðalag
yrði skilgreint nánar í lokatexta
samningsins.
Tanaka.
Neu York 2. september — NTB.
LlKUR á meiriháttar sprengingu í suóurhluta Afríku aukast með
hverjum deginum ef þegar verður ekki farið eftir ályktunum Sam-
einuðu þjóðanna um Namibíu, Ródesfu, Suður-Afríku og aðskilnaöi
kynþáttanna, sagði aðalframkvæmdastjóri SÞ, Kurt Waldheim, í árs-
skýrslu sinni, sem birt var í gær.
Waldheim lagði einnig áherzlu
á mikilvægi þess að friðarviðræð-
ur aðila í Miöausturlöndum hefj-
ist án tafar. Hann hvatti líka til
þess að SÞ gripu til raunhæfra
ráðstafana til að binda enda á
alþjóðlega hermdarverkastarf-
semi.
Hann hélt því fram að innan
tíðar yrði orðið of seint að tala um
friðsamlega valdatöku svarta
Framhaid á bls. 21
Góður hag-
vöxtur að
mati OECD
Brtissel 3. september — NTB.
EFNAHAGS- og framfara-
stofnun Evrópu, OECD, birti á
föstudag skýrslu þar sem hún
lýsir bjartsýni á efnahagsþró-
un iðnrfkja. Reiknar stofnun-
in með að næstu árin verði
hagvöxtur þeirra 5% eða fvið
meiri, sem er í samræmi við
það markmið, sem fjármála-
ráðherrar aðildarlandanna
settu sér fyrr f ár.
Fyrsta helming þessa árs var
hagvöxtur að meðaltali 6,5% á
móti 4,5% á sama tlma 1975.
Það eru fyrst og fremst Banda-
rfkin, sem lyfta upp meðaltal-
inu, en þar hefur þróunin ver-
ið hagstæð en það hefur verið
ein höfuðástaeðan fyrir upp-
gangi f Japan, segir stofnunin.
Stofnunin segir aðildarlönd-
in áfram verða að búa við verð-
bólgu og þó að nú hafi dregið
eitthvað úr henni eigi hún eft-
ir að aukast á ný. Fram til
áramóti muni verðhækkanir í
mörgum löndum því verða
meiri en sem nemur 10%.
Fram að miðju næsta ári spáir
stofnunin 8% verðbólgu að
meðaltali f aðildarlöndum sín-
um.
í skýrslunni er sagt að mikið
atvinnuleysi verði alvarlegasta
vandamálið, sem aðildarlöndin
muni eiga við að stríða næstu
misserin. Næsta sumar munu
4.5% vinnufærra manna vera
atvinnulaus en það táknar að-
eins smávægilegar framfarir
því í dag er atvinnuleysi 5,5%
að meðaltali í aðildarlöndun-
um.
Þurrkarnir
auka verð-
bólguna
Parfs, 1. sept. Reuter.
Vinnuveitendasam-
bandið í Frakklandi
skýrði frá því í dag að
ókleift mundi að halda
verðhækkunum í land-
inu innan við 10% á ár-
inu, eins og vonazt hafði
verið til, vegna áhrifa
þurrkanna í sumar á
uppskeru og iðnað, en
þurrkarnir hafa m.a.
leitt til mjög minnkandi
framleiðslu. Franska
landbúnaðarsambandið
lýsti því yfir í dag að
þurrkarnir hefðu haft
alvarleg áhrif á fransk-
an landbúnað og valdið
bændum geysilegu tjóni.
Tal
gýs
Manila 3. seplember — Reuter.
TAL, eitt af virkustu eldfjöllum
Filipseyja, byrjaði að gjósa í
morgun, að sögn jarðfræðinga.
Eldsumbrotin eru á fremur lágu
stigi. Fyrir tveim dögum vöruðu
vísindamenn við gosi i fjallinu,
sem er á eyju í stöðuvatni um 100
km. frá höfuðborginni, og voru
um 1000 manns fluttir frá heimil-
um sínum á öruggari stað. Fjallið
gaus síðast 1970 og olli þá miklu
tjóni. Búizt er viö, að gosiö aukist
og verði mikið.
Spánska stjórnin
vingast við blöðin
Madrid 3. september — Reuter.
SPÁNSKA stjórnin gerði í dag tilraun til að vingast við
dagblöðin, sem gagnrýnt hafa þá leynd sem hvflt hefpr
yfir rfkisstjórnarfundum með því að lýsa því yfir að hún
hafi ekki í hyggju að takmarka frelsi blaða á Spáni.
Stjórnarandstöðubandalagið, vægi við hægri öfl, sem beita
sem í eru jafnaðarmenn, komm- áhrifum sínum til að reyna að
únistar og kristilegir demókratar,
vinnur aftur á móti af fullu kappi
að undirbúningi fundar sem hefj-
ast mun á morgun. A fundinum
verður valin nefnd sem á að ýta á
eftir stjórnmálalegum umbótum.
Stjórnarandstaðan vonast til
þess að nefndin, sem er eins kon-
ar skuggaráðuneyti, skapi mót-
tefja fyrir umbótum.
Gagnrýni blaðanna hófst um
sfðustu helgi þegar rikisstjórnin
bannaði birtingu allra gagna, sem
hún hefur til athugunar. Þau
ásökuðu Adolfo Suarez, forsætis-
ráðherra, um að grípa'til einræð-
isaðferða að dæmi Francos heit-
ins hershöfðingja. Ríkisstjórnin
skýrði afstöðu sína nánar f dag og
sagði að bannið gilti aðeins um
lagafrumvörp, sem hún hefði til
athugunar, því birting þeirra ylli
aðeins ruglingi.
„Við höfum alls ekki i hyggju
að takmarka frelsi blaðanna á
nokkurn hátt,“ sagði upplýsinga-
málaráðherrann, Andreas
Reguera Guajardo, f bréfi til rit-
stjóra dagblaða. Skýrt dæmi um
gagnrýni blaðanna er leiðari f
hinu frjálslynda tímariti Cambio
16 þar sem sagði: „Land þar sem
rikisstjórnin getur sett trúnaðar-
stimpil á hvað sem henni sýnist er
land þar sem frelsið er hlekkjað.“
Japan:
Yfírmaður
ríkisútvarps
segir af sér
— Reuter.
FORSETl japanska ríkisútvarps-
ins, Kichiro Ono, sagði í dag. af sér
því embætti, eftir að fram kom
gagnrýni á, að hann skuli hafa
heimsótt Kakuei Tanaka fyrrum
forsætisráðherra, sem ákærður
hefur verið fyrir að hafa þegið
mútur af Lockheed-
flugvélasmiðjunum. Ono hafði
verið harðlega gagnrýndur bæði
innan ríkisútvarpsins og utan á
þeim forsendum, að heimsókn
hans á heimili Tanaks i ágúst
bryti í bága við óhlutdrægni þá
sem vænzt va'ri af honum sem
yfirmanni útvarpsins. Tanaka var
ákærður 16. ágúst s.l.
\T/
ERLENT
Samkomulag um bann
við veðurfars-stríði