Morgunblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
Jaworsky Watergate-saksóknari:
Réttarhöldin yfir Nixon
hefðu ekki verið réttlát
BANDARfSKI LÖGFRÆÐING
URINN Leon Jaworsky, sem var
sérstakur saksóknari í Watergate-
málinu, segir ( nýútkominni bók
sinni, „Rétturinn og valdið“, að
ekki hefði verið hægt að láta fara
fram réttlát réttarhöld yfir Nixon
fyrrum forseta ef hann hefði ver-
ið formlega ákærður. „Ég vissi
það með sjálfum mér að hefði
verið birt opinber ákæra og rétt-
urinn hefði spurt mig, hvort ég
teldi Nixon geta fengið skjót og
réttlát réttarhöld, eins og fyrir er
lagt í stjórnarskránni, hefði ég
orðið sem starfsmaður réttarins
að svara neitandi," skrifar Jaw-
orsky.
Jaworsky segir einnig í bókinni,
að hann hafi ekki átt von á því að
Nixon væri svo illilega flæktur í
málið, þegar hann tók að sér sak-
sóknarastarfið. „Ég átti von á því
að aðstoðarmenn væru viðriðnir
alls kyns klæki, jafnvel glæpsam-
lega starfsemi, en mér datt aldrei
í hug að forsetinn sjálfur væri
potturínn og pannan óllu sam-
an".
Næg korn-
framleiðsla
Rússa í ár
Moskvu 3. september Reuter.
LEONID Brezhnev aðalritari
Sovézka kommúnistaflokksins
sagði f ræðu f dag f Alma Ta,
höfuðborg Mið-Asfurfkisins
Kazakhstan, að f.vrir lægi að
næg kornuppskera yrði í land-
inu í ár til að mæta þörf lands-
manna. Hins vegar viður-
kenndi Brezhnev, að skortur
væri á kjöti og öðrum dýraaf-
urðum. Þetta er f fyrsta skipti,
sem sovézkir leiðtogar viður-
kenna matvælaskort, en fréttir
um slfkan skort byrjuðu að
berast snemma á þessu ári.
Brezhnev talaði í 90 mfnútur
og fjallaði að mestu um vanda-
mál landbúnaðarins, en sagði
þó einnig, að vel horfði með
iðnaðarframleiðslu f landinu,
og að aukningin fyrstu 7
mánuði ársins hefði ,verið um
5%, en áætlanir höfðu gert ráð
fyrir 4.3%. Ummæli Brezhnev
um kornframleiðsluna urðu til
þess, að gullverð hækkaði í
Lundúnum um 1.85 dollara
hver únsa, en Rússar urðu á sl.
ári að selja mikið gull til að
kosta hveitikaup frá Banda-
rfkjunum.
— Blóðugar . . .
Framhald af bls. 1
Talið er að möguleiki sé á að
Kissinger fari til Afríku að lokn-
um fundum með Vorster ef ein-
hver árangur verður af viðræðun-
um. Kissinger mun koma við í
London á leiðinni til Sviss og
ræða við Anthony Crosland utan-
rfkisráðherra áður en hann held-
ur áfram. Miklar öryggisráðstaf-
anir hafa verið gerðar í Ziirich
vegna fundar ráðherranna og
verða hundruð Iögreglumanna á
verði umhverfis Doler Grand-
hótelið, þar sem viðræðurnar fara
fram.
— Kúbumenn
Framhald af bls. 1
ins, sem staðið hefur í 17 mánuði.
Gert er ráð fyrir, að hann gefi
Assad Sýrlandsforseta skýrslu
um viðræður sfnar, áður en hann
tekur við forsetaembættinu 23.
september nk.
Fulltrúar Palestinumanna og
hægrisinnaðra F'alangista rædd-
ust við i dag og var umræðuefnið
vopnahlésáætlun í þremur liðum,
sem Arababandalagið samdi. Er
það 55. tilraunin til að koma á
vopnahléi frá því að stríðið hófst.
í bókinni segir Jaworsky enn-
fremur að starfsmenn Hvíta húss-
ins hafi ýjað að þvi við hann að
honum stæði til boða dómarastarf
í Hæstarétti Bandaríkjanna, þeg-
ar hann tók fyrst að sér saksókn-
arastarfið. Jaworsky segist hafa
litið á þau ummæli sem agn, sem
hann hafi ekki bitið á. Að sögn
Jaworskys var það Alexander
Haig hershöfðingi, sem þá var
skrifstofustjóri í Hvíta húsinu,
sem færði í tal við hann þennan
möguleika. Haig, sem eins og
kunnugt er er nú yfirmaður her-
afla NATO í Evrópu, hefur ekki
sagt neitt um þessar uppljóstranir
Jaworskys.
— Ávísanamálið
Framhald af bls. 32
um að bankarnir hefðu lokað öll-
um reikningunum, sem rannsókn-
in næði til, þótt flestum hefði
verið lokað. Hann sagðist telja, að
svo hefði ekki verið gert í tveimur
tilvikum — og er Hrafn sagði
þetta bætti hann við orðunum
„því miður“. Hann kvað banka-
stjórnir vita um alla þá reiknings-
hafa, sem haft hefðu viðskipti við
þá sérstaklega, en vildi ekki full-
yrða að bankar vissu um nöfn
allra mannanna. Þá sagði Hrafn
Bragason að nú væru 12 ár síðan
hann hefði hafið störf í Borgar-
dómi Reykjavíkur. Störf hans þar
hófust með því að hann hafði með
höndum málaflokk, sem voru van-
greiddir víxlar og innstæðulausir
tékkar. Hann kvað sum nafnanna
á listanum vera hin sömu og hann
hefði þá átt við að etja. Hann
kvaðst þess jafnframt fullviss, að
ef bankarnir færu strangt eftir
reglunum, sem samstarfsnefnd
bankanna setti á árinu 1967, væri
ekki unnt að leika þann leik, sem
þessir menn hefðu gert.
Þá kvað Hrafn Bragason það
hugsanlegt, að banki eða útibú
gætu haft talsverðar tekjur af því
að loka ekki reikningum, sem mis-
notaðir hefðu verið vegna refsi-
vaxta sem eigendur þeirra yrðu
að greiða.
• Brot á
hvaða grein
hegningarlaga?
Morgunblaðið spurði Hrafn
Bragason, hvaða grein almennra
hegningarlaga þessir menn hefðu
brotið, ef sök þeirrateldist sönn-
uð. Hrafn sagði að til greina
kæmu tvær greinar, 248. gr. og
261. gr. Hin fyrrnefnda hljóðar
svo: „Ef maður kemur öórum
manni til að hafast eitthvað að
eða láta eitthvað ógert með því á
ólögmætan hátt að vekja, styrkja
eða hagnýta sér ranga eða óljósa
hugmynd hans um einhver atvik,
og hefur þannig fé af honum eða
öðrum, þá varðar það fangelsi allt
að 6 árum.“ Hin greinin er: „Hafi
maður drýgt athafnir sams konar
þeim, sem í 248. — 250. gr. getur,
án þess að auðgunartilgangur
þyki sannaður, þá varðar það
sektum, varðhaldi eða fangelsi
allt að 1 ári.“
Aðalbankarnir, sem þessir
reikningar eru í, sem mennirnir
15 hafa notað, eru þessir (um
útibú getur líka verið að ræða):
Alþýðubanki, Utvegsbanki,
Landsbanki, Búnaðarbanki,
Verzlunarbanki, Iðnaðarbanki og
Sparisjóðurinn Pundið. Hrafn
sagði að innan þessara stofnana
þyrfti þó ekkert misjafnt að hafa
átt sér stað vegna þessara keðju-
ávísanahringa.
0 Greinargerð Hrafns
Bragasonar
Hér fer á eftir skýrsla Hrafns
Bragasonar til fjölmiðla eins og
hann afhenti hana á blaðamanna-
fundinum í gær . Millifyrirsagnir
eru Morgunblaðsins:
„Þann 24. ágúst s.l. var ég und-
irritaður skipaður skv. sérstakri
umboðsskrá til þess að fara með
rannsókn vegna umfangsmikillar
notkunar á innistæðulausum
tékkum. Eg mun sinna þessum
umboðsstörfum meðfram mínu
fasta starfi og vonast til að geta
eytt til starfans umtalsverðum
tíma. Skilyrði þess að ég tók þetta
starf að mér svoru þau að ég fengi
alla hugsanlega aðstöðu og aðstoð
frá Sakadómaraembættinu í
Reykjavík, Dómsmálaráðuneyt-
inu, Saksóknaraembættinu,
Seðlabanka fslands, Reiknings-
stofu bankanna og bankastofnun-
um landsins. Hingað til bendir
ekkert til þess að mér verði ekki
látin þessi aðstoð í té. Að máli
þessu mun starfa með mér Guð-
mundur Guðmundsson, rannsókn-
arlögreglumaður, og ennfremur
geri ég ráð fyrir að verða að kalla
til ýmiss háttar aðra aðstoð, sér-
staklega ýmiss konar sérfræðiað-
stoð.
% Bannsókn með
aðstoð tölvu
Þegar ég tók við máli þessu
hafði það verið til athugunar í
Sakadómi Reykjavíkur þó nokk-
urn tíma. Það má þvi segja að ég
komi í þetta mál í miðju kafi.
Samkvæmt upplýsingum Saka-
dóms Reykjavíkur var upphaf
rannsóknar þessarar það, að
snemma ársins 1976 bárust Saka-
dómi Reykjavíkur kærur vegna
innstæðulausra tékka sem útgefn-
ir voru af tveimur aðilum hér í
borg. Á svipuðum tíma voru yfir-
lit og tékkar stórfyrirtækis hér í
borginni skoðuð vegna rannsókn-
ar annars máls. Vegna upplýsinga
sem fram komu við rannsókn
vegna þeirra kæra er að framan
getur og við athugun á framan-
greindu reikningsyfirliti og tékk-
um þessa fyrirtækis vöknuðu
grunsemdir um að hér væri um
svokallaða keðjutékkastarfsemi
að ræða. Seðlabanki íslands bauð
aðstoð við rannsókn þessa máls og
var hún þegin. Að höfðu samráði
við Seðlabanka islands var sam-
inn listi yfir reikningshafa, sem
taldir voru þessu tengdir og þann
25. mars. s.l. var allmörgum
bankastofnunum send bréf með
beiðni um að gögn yrðu látin í té
varðandi nöfnín á listanum. Gögn
þessi bárust svo smám saman og
voru að berast allt fram í júní-
mánuð. Jafnhliða var hafin athug-
un gagna sem borist höfðu starfs-
mönnum Seðlabankans og þótti
fljótlega sýnt að mikið hagræði og
vinnusparnaður mundi verða af
því að mata tölvu Reikningsstofu
bankanna meó upplýsingum sem
fengust við þessa athugun. Var
þetta gert að ósk Sakadóms
Reykjavíkur. Urvinnsla Reikn-
ingsstofu bankanna ásamt bréfi
Seðlabanka ísiands barst svo
Sakadómi Reykjavíkur þann 9.
ágúst s.l.
% 57 þúsund
athafnir
Urvinnsla Reikningsstofu bank-
anna er yfirlif yfir tékkahreyfing-
ar á 26 reikningum árin 1974 og
1975, ásamt stöðu þessara reikn-
inga á hverjum tíma þessi ár.
Reikningsstofan vann þetta yfir-
lit eftir þeim upplýsingum sem
hún fékk sérstaklega f þessu
skyni frá Seðlabankanum. List-
arnir sem fyrir liggja eru mis-
munandi niðurröðun þessara upp-
lýsinga, þar sem reynt er að leita
svara við þeim spurningum sem
vaknað höfðu með misundandi
uppröðun og samtengingu gagn-
anna. Af tölvuútskriftunum má
rekja leið hvers tékka um banka-
kerfið. Rúmlega 16.000 voru til
meðferðar. Færðar voru um það
bil 57.000 athafnir en þá er átt við
útgáfu tékka, framsal tékka og
bókun tékka, hvert sem eina at-
höfn. Heildarupphæð þeirra
tékka sem teknir voru í þessa
athugun nam um 2 milljörðum.
Rétt er að taka það fram að hér er
ekki um það að ræða að þetta
fjármagn hafi náðst út úr banka-
kerfinu, heldur bendir talan ein-
göngu til umfangs könnunarinn-
ar. I þessari könnun kemur fram,
að 5 aðilar hafa hver um sig gefið
út ávísanir fyrir 100—557 milljón-
ir á tveggja ára tímabili. 8 aðilar
hafa framselt yfir 100 milljónir
hver yfir tímabilið. Hér er sum-
part um einhverja sömu aðila að
ræða sem útgefendur í einu til-
felli en framseljendur í öðru. Rétt
er að láta þess getið að hér er
sumpart um fyrirtæki að ræða í
fullum rekstri og þarf því útgáfa
þetta mikillar upphæðar ekki
endilega að vera tortryggileg.
Athugaðir voru 26 reikningar,
en það eru aðeins 15 menn sem
ávísa á þessa reikninga. Nokkuð
ljóst er að sumir útgefenda koma
fram fyrir aðra aðila. Þá er hér
um 12 fyrirtæki að ræða, sum
þeirra eru ekki á firmaskrá.
% Seðlabankinn
kærir
Seðlabanki tslands hefur með
bréfi dags. í gær staðfest að af
bankans hálfu sé litið á bréf
bankans frá 9. ágúst 1976 til Saka-
dóms Reykjavíkur, þess sem áður
er getið, sem kæru. Því er haldið
fram að við könnun á ofangreind-
um tékka reikningum komi í ljós
að reikningshafar hafi notað þá
að verulegu leyti til þess að stofna
til og viðhalda umfangsmikilli og
flókinni tékkakeðju. Með tékka-
keðju eða keðjusölu á tékkum sé
átt við að greindir reikníngshafar
hafi selt tékka á bankareikninga
sína í öðrum banka, enda þótt
innstæða hafi ekki verið fyrir
hendi en síðan séð um í flestum
tilvikum, að áður en tékkar kæmu
fram í reikningsbanka væri búið
að leggja inn á reikningana og þá,
að því er virðist, með öðrum tékka
eða tékkum sem eins hafi verið
ástatt um, eins og hina fyrri.
Reikningshafarnir hafi síðan við-
haldið tékkakeðjdnni og á þennan
hátt skapað sér ótrúlega mikið fé,
sem þeir hafi ekkert átt í. Þetta
megi ljóslega sjá á tölvuútskrift-
um tékkareikninganna. Fullyrðir
bankinn að víxilviðskipti með
tékka, með notkun tveggja eða
fleiri reikninga hafi verið skipu-
lögð til að ná út fé með blekking-
um úr bönkunum. Vísa þeir í því
sambandi m.a. til 4. gr. tékkka-
laga frá 1933 og ákvæða hegning-
arlaga sem beitt hefur verið til
þessa við tékkamisferli. Það
meinta misferli sem hér er lýst
hefur frá 9. júní sl. verið gert
erfiðara, þar sem Reikningsstofa
bankanna vinnur nú daglega alla
tékka af stór-
Reykj avíkursvæðinu.
% Enginn banki
hefur lýst
yfir tapi
Eftir að Seðlabanki íslands
hafði sent Sakadómi Reykjavikur
umrædda kæru frá 9. ágúst 1976,
tilkynnti bankinn viðskiptabönk-
um viðkomandi reikningshafa um
hvað málið snerist og það varðaði
þennan tiltekna reikningshafa
bankans. Þann 26. ágúst sl. ritaði
ég þessum tilgreindu viðskipta-
bönkum bréf þar sem ég óskaði
eftir ákveðnum upplýsingum um
þessa reikningshafa þeirra. Ég
hefi þegar þessar upplýsingar í
höndum. Enginn þessara banka
hefur þó enn sem komið er gefið
upp að þeir hafi tapað fjármunum
vegna þeirrar starfsemi þessara
reikningshafa sem hér hefur ver-
ið gerð að umtalsefni. í þessu
sambandi er rétt að taka fram, að
jafnvel þótt ákveðnir aðilar nái
fjármagni úr bönkum með tékka-
keðju þá er ekki þar með sagt að
viðkomandi bankar tapi endilega
fjármagni. Hitt er réttara að
reikningshafinn tekur sér á þenn-
an hátt lán án þess að spyrja
nokkurn að því og án þess að,
minnsta kosti í sumum tilfellum,
að borga nokkuð fyrir það.
Hversu umfangsmikið mál þetta
er að fjármagni til liggur ekki
fyrir í dag. Þá þarf að athuga enn
nokkra fleiri reikningshafa og
aðra reikninga þeirra reiknings-
hafa sem hér hafa verið gerðir að
umræðuefni. Ennfremur þarf að
færa rannsóknina nær deginum í
dag og verður það gert. Framund-
an er því enn frekari vinna í
Seðlabanka, Reikningsstofu bank-
anna og hjá fleiri sérfræðingum
sem ég verð að kalla til. Sam-
kvæmt þeirri reynslu, sem þegar
er fengin, hlýtur þessi rannsókn
að taka töluverðan tíma. Nú þegar
liggur fyrir mikið magn skjala og
annarra gagna, en það á eftir að
aukast. Rannsókn sem þessi hefur
ekki áður verið framkvæmd hér.
Ég leyfi mér að fullyrða að hún er
ekki möguleg án þess að tekin sé í
notkun öll hjálpartæki og fjöldi
aðila sé reiðubúinn að vinna sam-
an að sameiginlegu markmiði.
Þetta markmið er það að komast
að raun um hvað þarna gerðist í
raun og veru, hvað þetta er sem
við erum með í höndunum. Mér
sem dómara ber að rannsaka allar
hliðar þessa meinta misferlis
þeirra reikningshafa er hér koma
við sögu og þá líka hvort það sem
þeir eru grunaðir um er réttmætt.
Það verður síðan ákvörðun Ríkis-
saksóknara hvort þeir verða
ákærðir. Hver siðan dæmir í mál-
inu verði ákært er óráðið.
0 Nöfn ekki
birt að
svo stöddu
Rannsókn mín er aðeins saka-
málsrannsókn, en sú spurning
vaknar óneitanlega hvort ekki
hluti þessa máls varði bankakerf-
ið sem slikt. Seðlabanki Islands er
lögum samkvæmt eftirlitsaðili
meó viðskiptabönkunum. Honum
ber að senda viðskiptabönkunum
athugasemdir sínar telji hann hag
eða rekstur innlánsstofnunar
óheilbrigðan, slíkar athugasemdir
skulu tilkynntar bankamálaráð-
herra. Mín ranngókn og rannsókn
bankans getur að vissu marki
fléttast saman. Varðandi banka-
kerfið og þá bankarannsókn, sem
hér hefir verið rætt um og er sem
hjálpargagn í þeirri rannsókn
sem ég fæst við, vil ég fullyrða að
fyrir bankakerfið hefur hún verið
mjög þörf. Það má draga af henni
ýmsan lærdóm og ég þykist hafa
vitneskju um það úr bankakerf-
inu að fullur vilji sé til þess að
reyna að koma í veg fyrir slíka
meinta misnotkun á bankakerf-
inu í framtíðinni, en það er ekki
mitt mál heldur bankakerfisins
sem slíks og stjórnvalda.
Eins og ég hefi nú lýst þá er
rannsókn þessa máls á því stigi að
ekki kemur til mála af minni
hálfu að birta nöfn þessara reikn-
ingshafa sem hér um ræðir.
Ástæður þess eru að rannsókn-
inni er að mínu viti skaði gerður
með þvf. Þeim bönkum sem málið
er skyldast hefur þegar verið til-
kynnt um það. Þá er sýnilegt að
þáttur sumra framseljenda er
meiri en sumra þessara reiknings-
hafa, þar sem eins og áður er sagt,
sumir reikningshafanna koma
fram fyrir aðra aðila. Með birt-
ingu nafna þessara reikningshafa
væri aðeins verið að birta nöfn
sumra þeirra sem fléttast inn i
þetta mál, sumpart væri þá verið
að hengja bakara fyrir smið. Dóm-
arar standa ekki að slíkum verk-
um. Dómsvaldið í lýðræðisríki
eins og okkar vill láta alla njóta
sannmælis og telur þjóðfélaginu
best þjónað með því. Ég vil samt
ekki láta hjá líða að taka það fram
að listar sem gengið hafa manna á
meðal og ég hef heyrt ávæning af
eru meira eða minna brenglaðir.
Enginn fótur er fyrir fjölda
þeirra nafna sem á þeim stendur.
Málum er blandað saman, farið er
að tengja þetta mál alls óskyldum
málum eða málum sem á þessu
stigi málsins engan veginn er
hægt að fullyrða að séu því að
nokkru tengd. Hitt vil ég segja að
nöfn þessara reikningshafa og
þeirra er starfa í skjóli þeirra
ættu ekki að sæta neinum tíðind-
um í bankakerfinu.
Reykjavík 3. september 1976.
Hrafn Bragason."
— Póstgíró
Framhald af bls. 8
framtíðarhorfur“ og urðu
um það miklar umræður.
Á sama tíma og fundur
þessi var haldinn var
undirritaður samningur
milli ísl. póststjórnarinnar
og Póstbankans í Finnlandi
um útborganir úr finnsk-
um póstsparibankabókum
á pósthúsum hér á landi.
Hliðstæðir samningar hafa
verið í gildi við Svíþjóð og
Noreg mörg undanfarin ár.
(Frétt frá póst- og sfma-
málastjórninni.)