Morgunblaðið - 04.09.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.09.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Oskum að ráða lagtækan aðstoðarmann á verkstæði. Reglusemi áskilin. Þarf að geta byrjað fljótlega. Bílaleigan Geysir h. f., Laugavegi 66, sími 24460 og 28810. Kjötbúðin Borg Aðstoðarfólk óskast í eldhús, verslun og vöruafgreiðslu. Upplýsingar í ' síma 1 1 639 fyrir hádegi næstu daga. Kjötbúdm Borg Laugavegi 78. 2 kennara vantar við Barna og unglingaskóla Raufarhafnar vegna húsnæðis er ákjósanlegra að ráða hjón. Upplýsingar 'gefnar á Fræðslumálaskrif- stofunni og hjá skólastjóranum Angantýr Einarsyni síma 96-51 1 25. Laus staða Kennarastaða í náttúrufræði við Menntaskólann að Laugar- vatni er laus til umsóknar Laun samkv launakerfi starfsmanna ríkisms Umsókriir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja- vík, fyrir 1 6 september n.k. Menntamálaráðuneytið, 1 september 19 76 Snyrtisérfræðingur eða stúlka með þekkingu á snyrtivörum óskast til sölukynningar á snyrtivörum. ígripavinna kemur til greina. Tilboð sendist blaðinu fyrir 10. þ. mán. merkt: Snyrtisérfræðingur — 2982. Föstra óskast að Hlíðarborg 1 október eða eftir sam- komulagi Hálfsdags starf kemur til greina. Uppl. gefur forstöðukona í síma 20096 eða 51 589. Skólalæknar óskast til að annast heilsugæzlu i eftirtöldum skólum borgarinnar: Armúlaskóla Fósturskóla íslands Landakotsskóla Réttarholtsskóla Vesturbœjarskóla Vogaskóla Olduselsskóla Laun samkvæmt samningi Læknafélags íslands og Menntamálaráðuneytisins. Upplýsingar hjá aðstoðarborgarlækní, Heilsuverndarstöðinni. Umsóknir berist borgarlækni fyrir 15. september n k. Reykjavík, 1. september 19 76 Borgarlæknir OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF. óskar eftir pilti eða stúlku til léttra sendi- starfa. Skilyrði fyrir ráðningu er stundvísi, lipurð og góð framkoma. Starfstími kl. 9 — 5. Uppl. á skrifstofunni Hafnarstræti 5, ekki í síma. Stórt fyrirtæki í miðborginni óskar eftir að ráða stúlku til starfa í innheimtudeild. Vélritunar- og bókhaldskunnátta nauðsynleg. Umsóknum sé skilað á afgr. Mbl. fyrir 8. september n.k. merkt RÖSK — 2983 Skrifstofustarf Óskum eftir að ráða sem allra fyrst vanan starfskraft, kvenmann eða karlmann á skrifstofu okkar. Bókhaldskunnátta og einhver reynsla i erlendum bréfaskriftum nauðsynleg. Stálver h. f. Funahöfða 1 7, Reykjavik, sími 83444. Tónlistarunnendur afgreiðslufólk Hljómplötuverslun óskar að ráða afgreiðslumann (stúlku), með þekkmgu á sem flestum sviðum tónlistar. Þarf að geta hafið starf sem fyrst, helst strax. Góðir möguleikar fyrir góðan starfskraft. Tilb. sendist Morgunblaðinu fyrir 8. sept. merkt: ..Plötur 2985". Iðnfyrirtæki í Hafnarfirði Vill ráða lager og afgreiðslumann. Nafn og heimilisfang leggist inn á afgr. Mbl. merkt ,,Vanur — 2978”. Trésmiðir Vantar trésmiði og vana verkamenn. Upplýsingar í síma 43091 á kvöldin eftir kl. 7. Tölvari Staða tölvara við tölvudeild Borgarspítal- ann er laus til umsóknar. Laun samkv. kjarasamningum borgar- starfsmanna. Frekari upplýsingar gefur yfirmaður deildarinnar. Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum, skulu sendar sama aðila fyrir 1 5. sept. n.k. Reykjavík 1. sept. 1976 Borgarspítalinn. Skák efíir JÓN Þ. ÞÓR Og þá var Larsen loksins öruggur 18. og næst síðasta umferð millisvæðamótsins í Biel var hrein úrslitaumferð. Bent Lar- sen átti í höggi við Smejkal og sigraði eftir harða og tvísýna baráttu: Hvltt: Smejkal Svart: Larsen. Vængtafl. 1. c4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Rc3 — Rf6, 4. g3 — b6, 5. Bg2 — Bb7, 6. 0-0 — e6, 7. e4 — Db8, 8. de — cxd4, 9. Rxd4 — Rxd4, 10. Dxd4 — Bd6, 11. Bg5, 12. Dd2 — h6, 13. Be3 — 0-0, 14. Bd4 — Bxd4 15. Dxd4 — e5, 16. Dd3 — a6, 17. Hfdl — Hc8, 18. b3 — Dc7, 19. Hacl — Hab8, 20. De3 — Dc5, 21. Dxc5 — bxc5, 22. Ra4 — Hc7, 23. Hd6 — He8, 24. Hb6 — Bxe4, 25. Bx4 — Rxe4, 26. Hxa6 — Rg5, 27. Hdl — Rf3+, 28. Kg2 — Rd4, 29. Hel — - f6, 30. f4 — e4, 31. Rc3 — f5, 32. g4 — Hc6, 33. Hxc6 — dxc6, 34. gxf5 — e3, 35. Ra4 — Kf7, 36. Rxc5 — Kf6, 37. a4 — Kxf5, 38. a5 — Kxf4, 39. a6 — g5, 40. a7 — c2, 41. Kf2 — Ha8, 42. b4 — Hxa7, 43. b5 — cxb5, 44. cxb5 — Hc7, 45. Hcl — Hf7, 46. b6 — Kg4+, 47. Kg2 — Rc2, 48. h3+ — Kh4, 49. Rd3 — Re3, 50. Kh2 — h5, 51. b7 — Hxb7, 52. Rel — g4, 53. hxg4 — hxgb4, 54. Hc3 — He7, 55. Ha3 — g3+, 56. Kgl — Kh3, 57. Ha8 — Rg2, 58. Hh8 — Rh4, 59. Hf8 — He5 og hvltur gafst upp. Þar með hafði Larsen tryggt sér rétt til þátttöku í áskor- endakeppninni, en Smejkal var úr leik. Robert Hiibner yfirspilaði Petrosjan gjörsamlega, vann tvö peð og virtist næstaöruggur um sigur og þar með þátttöku- rétt í áskorendakeppninni. Þá urðu honum á slæm mistök (35. Db5), Petrosjan náði að rétta úr kútnum og vann örugglega. Hvltt: Húbner Svart Petrosjan Óregluleg byrjun. 1. Rf3 — gf>, 2. e4 ■— Bg7, 3. d4 — d6, 4. Bc4 — e6, 5. Bb3 — Re7, 6. 0-0 — 0-0, 7. c3 — b6, 8. Rbd2 — Rbc6, 9. Ilel — Ra5, 10. Bc2 — c5, 11. Rfl — Rac6, 12. Be3 — Dc7, 13. Hcl — e5, 14. h3 — Rd8, 15. R3h2 — Bb7, 16. Rg3 — exd4, 17. cxd4 — Re6, 18. Bb3 — d5, 19. e5 — Rc6, 20. Rg4 — Hfd8, 21. dxc5 — bxc5, 22. Bxc5 — Rxc5, 23. Hxc5 — De7, 24. Dcl — Hac8, 25. Rf6 — Kh8, 26. Rxd5 — Df8, 27. I)e3 — Rxe5, 28. Hxc8 — Hxc8, 29. Dxa7 — Bxd5, 30. Rxd5 — Db4, 41. He2 — f6, 43. Db7 — Hcl, 33. Kh2 — Df8, 34. Framhald á bls. 21 — Eyjar Framhald af bls 11 hefur Viðlagasjóður greitt Eimskipafé- lagi islartds um 1 2 millj kr i leigu fyrir þessa gáma Þarmig náði Eimskip nýt- ingu út úr málinu með ákveðinni stjórnun Þess má geta að ríkisskip tók ekki leigu fyrir sína gáma, en það var litið hægt að nota þá vegna smæðar þeirra Alls hefur Viðlagasjóður greitt Eimskipafélaginu tæplega 40 millj. kr fyrir flutninga o.fl og er það ugglaust vel sloppið FLUGVALLARFRAM- KVÆMDIN GLEYMDIST Sorglegt dæmi um sinnuleysi for- ráðamanna i Eyjum og á fastalandinu er afgreiðslan á malbikun og frágangi flugbrautanna í Eyjum Viðlagasjóður ákvað vorið 1975 að lána 200 millj kr til þessara framkvæmda og þá þeg- ar hófu tæknifræðingar flugmálastjórn- ar að undirbúa framkvæmdir og var m a kannaður möguleiki á að fram- kvæma verkið þá strax um sumarið, en vegna þess hve áliðið var; þótti ekki annað fært en láta malbikun og fl bíða til sumarsins 1976 Þessi ákvörðun Viðlagasjóðs kom til vegna brýnnar nauðsynjar á framkvæmdum í þessum efnum, en um árabil hefur þannig verið háttað með flugbrautirnar að keyrt hefur verið í þær reglulega upp- fyllingarefni, því svo mikið fýkur úr brautunum Flugvöllurinn liggur hæst á Heimaey og i norðan og austan rokveðrum fýkur ^arðvegurinn út um alla Eyju, eyðileggur gróður og eignir og t d hefur stórséð á suðurhluta Heimaeyjar síðustu 20 árin vegna þessa vandamáls Breytingar á vinds- snerpu á þessu svæðt eftir gos hafa aukið vandamálið til mikilla muna. Þau rök voru smávægileg á móti malbikun að þá þyrfti að kaupa ruðningstæki og tæki til að sandbera völlinn í Isingu, sem kemur mjög sjaldan til í Eyjum Flugmenn FÍ sem ég hef rætt málið við eru allir á einu máli um að allra hluta vegna sé mestur kostur að malbika flugbrautirnar Allir forráðamenn í Eyj- um, bæði bæjarstjórnarmenn og þing- menn, vissu um þetta mál og mögu- leika á framkvæmd þess, en það gleymdist hreinlega og á þó annar þingmaður Eyjamanna, Garðar Sig- urðsson, sæti í flugráði eg ræddi um þetta mál víð forráðamenn flugmála í vetur, þeir þökkuðu fyrir að þeir voru minntir á málín — en síðan ekki söguna meir. Það er ugglaust eins- dæmi að bæjarfélag sem hefur slíka möguleika i höndunum varðandi nauð- synlega framkvæmd, skult ekki beita sér fyrir framkvæmd málsins Það er enn möguleiki á meðan Viðlagasjóður hefur ekki skellt i lás, samþykkt hans um fyrirgreiðslu stendur ennþá Hrafn Jóhannsson tæknifræðingur hjá flugmálastjórn sagði við mig að þeir hefðu sett allt i fullan gang við undirbúning vorið 1975, en siðan hefði þetta einhvern veginn dottið nið- ur vegna þess að ekkert heyrðist frá Eyjum meira Þannig hefur hver visað á hinn i málinu LOKASPRETTURINN ER EFTIR Gott dæmi um árangursríka fram- kvæmd i þessu margumrædda máli er uppgræðslan i Eyjum á þessu ári, eftir að nokkrir tugir milljóna i fræi og áburði höfðu fokið til hafs í tilraunum á undanförnum árum Máli þessu hrintu starfsmenn Viðlagasjóðs i framkvæmd af mikilli hörku þannig að stöðugt vex nú hinn græni dúkur í skikkju Heima- eyjar, en þar eins og í ýmsu öðru er ekki séð fyrir endann á og nú verður það ekki dregið öllu lengur að menn setjist niður og afgreiði gosdæmið i Eyjum á þann drengilega hátt sem lofað var og mögulegt er þótt Ijóst sé að fólki almennt og persónulega verði aldrei bætt það mikla fjárhagslega tjón sem það varð fyrir í gosinu í ýmsum þáttum þarf Viðlagasjóður að trygggja framkvæmdir næstu árin. Það hafa margir gert margt gott í sambandi við uppbygginguna í Eyjum, en það hefur meira veriðfyrir harðfylgi einstaklinga í ýmsum málum en ákveðinnar og dríf- andi yfirstjórnar. Það birtir stöðugt yfir bæjarbragnum í Eyjum, en fjárhagserf- iðleikarnir eru stóra málið, eða hver skyldi trúa þvi að bær eins og Vest- mannaeyjakaupstaður rambaði á barmi gjaldþrots Það er ábyrgra forráða- manna að leysa það mál nú þegar, nóg er komið samt Menn geta brosað að mistökum eins og þeim þegar einn af opinberum starfsmönnum flutti ræðu i veizlu i Sviþjóð og þakkaði Finnum kærlega fyrir veitta aðstoð i eldgosinu eða þegar einn af forráðamönnum Vestmannaeyjabæjar var nýkominn frá Osló í sambandi við eldgosið og lenti í húsi í miðri Reykjavik þar sem matur og fleira var borið á borð I miðri veizlunni stóð maðurinn upp, mælti á skandinaviska tungu og þakkaði Norð- mönnum kærlega fyrir þann höfðing- skap sem þeir hefðu sýnt og sýndu m a með þvi að bera hangikjöt á borð inni i miðri Osló. Það er að minnsta kosti óréttlátt að segja að menn reyni ekki að þakka fyrir sig, en alvaran er að alltof míkið hefur verið í framvindu þessa máls i vitlausa átt á vitlausum stað og stund Það má kalla þetta þras, en hér er um að ræða fáeinar af fjölmörgum staðreyndum um óstjórn og misnotkun i Eyjagosmálinu, stjórn- leysi sem varðar sérstaklega þúsundir islenzkra þegna Það er mál að linni og gert verði hreint fyrir dyrum Annað sæmir ekki þar sem góð útgerð á að vera

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.