Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
Svavar Júlíusson
verkstjóri-Minning
F. 15. október 1920
D. 27. ágúst 1976
Horfinn er sannur vinur og
félagi, Svavar Júlíusson. Lokið er
9 ára hetjulegri baráttu við
erfiðan sjúkdóm. Svavar var
fæddur hér í borg þann 15.
október 1920, og var hann elsta
barn hjónanna Ágústfnu Jóns-
dóttur og Júlíusar Þorkelssonar.
Agústina er nú nýlátin i hárri elli,
og var hún einhver sú duglegasta
og hugrakkasta kona, er ég hefi
kynnst. Svavar erfði hina miklu
kosti móður sinnar í rikum mæli.
Hann hóf störf hjá Vegagerð
ríkisins ungur að árum og starfaði
þar af dugnaði og trúmennsku
fram að síðustu stund, oft sárþjáð-
ur hin síðari ár. Viðbrugðið var
umhyggju hans fyrir hverjum
hans minnsta meðbróður og mun
t
Eigmmaður minn 09 faðir.
KRISTJÁN
JÓHANNSSON,
matsveinn.
Ljósheimum 4,
lé?t erlendis þann 1 september
Jarðarforin auglýst siðar
Rósa Pálsdóttir
Tómas Kristjánsson.
öllum, er kynntust hinum góða
dreng, minnisstætt.
Svavar kvæntist 25. október
1947 eftirlifandi konu sinni
Hönnu Pétursdóttur frá Sauðár-
króki. Hanna hefur reynst manni
sinum hinn bezti förunautur ekki
sízt hin síðari ár, er erfiðleikarnir
sóttu á. Eignuðust þau 4 börn:
Pétur, Ágúst og Sigurð, sem eru
nú allir kvæntir og eina dóttur,
Sigrúnu, sem enn dvelst í
foreldrahúsum og hafa þau öll
erft hina góðu eiganleika foreldra
sinna.
Að iokum vil ég þakka Svavari
innilega vináttu og tryggð yfir 30
ár og samstarf, sem aldrei bar
skugga á. Ég og fjölskylda mín
sendum Hönnu, börnunum,
tengdadætrum, barnabörnum,
systkinum, aldraðri tengdamóður
og öðrum ættingjum innilegar
samúðarkveðjur. Minningin um
góðan dreng mun lifa.
Magnús Nikulásson.
I dag er kvaddur hinstu kveðju
Svavar Júlíusson bifvélavirkja-
meistari og verkstjóri á vélaverk-
stæði Vegagerðar ríkisins til
heimilis að Otrateig 56 hér í borg,
en hann lést 27. ágúst.
Svavar átti að baki langan
stárfsferil hjá Vegagerðinni og
var m.a. einn af fyrstu jarðýtu-
stjórum þar, en fór seinna að
t
Hjartkær eiginmaður minn,
ÁGÚST MÁLMKVIST JÚLÍUSSON,
húsasmiður,
Heiðargerði 23, R.
lézt í Borgarspítalanum þann 31 ágúst
Steinunn Jónsdóttir.
t
Eiginmaður mmn
GUÐMUNDUR Á BJORNSSON,
Skúlagotu 52,
lézt í Landakotsspitala 3 september
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmunda Ágústdóttir.
t
Inmlegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför konunn-
ar minnar,
HELGU P. JÓNSDÓTTUR,
Longuhlíð 21.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 4D og 3A,
Landspítalanum fyrir góða umönnun i hennar löngu veikindum
Ólafur Tyrfingsson.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum aðstandendum og vinum er auð
sýndu okkur samúð og vmarhug við andlát og jarðarför eiginkonu
minnar, móður. tengdamóður og ömmu,
MORTU ANDRÉSDÓTTUR,
Jókulgrunni 1,
Bjarni Benediktsson
Halldóra G Bjarnadótíir Leó Þórhallsson
og barnaborn
t
InnHegar þakktr ~ sendum vrð öllum er auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför móður minnar, tengdamóður, ömmu
og langómmu
HELGU HALLDÓRSDÓTTUR,
Safamýri 40.
Órn Sigurgeirsson Ingibjörg Gestsdóttir
Sigurgeir Arnarson Guðrún Sigurjónsdóttir
Gestur Arnarson Anna Óskarsdóttir
Sveinbjörn Örn Arnarson
og barnaborn
vinna við viðgerðir á vinnuvélum
Vegagerðarinnar og ferðaðist þá
viða um landið. Kom sér þá oft vel
hve lfkamlega hraustur hann var
en hann var með hærri mönnum,
þrekinn og hraustbyggður. Muna
áreiðanlega margir eftir honum
þegar hann á striðsárunum vann
við snjðruðning á Hellisheiðinni
og víðar.
Seinna Jærði hann bifvéla-
virkjun og étrfð meistari í þeirri
iðngrein. Sem bifvélavirkja-
meistari lagði hann sig mjög fram
um að kenna lærlingum sínum
sem best, svo að þeir yrðu sem
hæfastir fagmenn, og hvatti þá
alltaf ef þeir voru eitthvað óráðn-
ir í huga, sem oft er þegar ungir
menn eru að velja sér lifsstarf.
Svavar hafði marga góða mann-
kosti, en áberandi I fari hans
fannst mér samviskusemi í starfi,
og drenglyndi. Tel ég það góða
mannkosti, og við sem störfuðum
með honum urðum oft varir við
drenglyndi hans, ekki síst ef ein-
hver vinnufélagi átti eitthvað
erfitt, þá var hann oftast fyrstur
að rétta hjálparhönd.
Svavar var félagslyndur að
eðlisfari og tók mikinn þátt í
félagslífi bæði í Starfsmanna-
félagi Vegagerðar ríkisins, en
hann var einn af stofnendum þess
og formaður um tíma, og alla tlð
mjög áhugasamur félagi, og eins I
Félagi bifvélavirkja, og veit ég að
það er samdóma álit allra sem til
þekktu að hann hafi fylgt þar vel
eftir þeim málum sem hann taldi
vera til batnaðar.
Einnig átti hann ríkan þátt í að
eitt af áhugamálum hans náði
fram að ganga, en það var að
koma á verklegu námi með góðum
tækjum og færum kennurum inn
í Iðnskólann I Rvík.
Síðustu 9 árin átti Svavar við
erfióan sjúkdóm að stríða. Eigi að
síður vann hann nær alltaf fullan
vinnudag með nokkrum frávikum
þó, þar til nú í sumar að hann að
læknisráði átti að hvíla sig frá
vinnu í nokkra mánuði. En þá
kom kallið.
Eftirlifandi eiginkonu, börnum
og öðrum ættingjum votta ég
samúð mína, en huggun harmi
gegn er minningin um góðan
dreng.
Friðþjófur Björnsson
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á 1 mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera f sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
Ifnubili.
AL'GI.VSINGASÍMINN ER:
22480
íW*rfltmbUi&ití
Guðmundur Pálsson
Húsafelli ■
Guðmundur Pálsson, Húsafelli,
er látinn. Eftir er skilin minning-
in um drenglyndan sómamann,
sem í engu mátti vamm sitt vita,
framúrskarandi heimilisföður -og
eiginmann, nágranna góðan og
traustan vin.
Guðmundur var fæddur að
Hjálmsstöðum, Laugardal, sonur
Páls Guðmundssonar bónda og
skálds og konu hans Rósu Eyjólfs-
dóttur er þar bjuggu.
Búfræðingur varð Guðmundur
frá Hvanneyri 1946, síðar lærði
hann til skógræktar og vann hjá
Skógrækt rikisins nokkur ár.
Guðmundur kvæntist árið 1957
Ástríði Þorsteinsdóttur
hjúkrunarkonu frá Húsafelli.
Hófu þau þá þegar búskap á
Húsafelli, byggðu sér þar
myndarlegt íbúðarhús juku við
túnin og hleyptu fram búfé sfnu.
Bjuggu þau fyrst i sambýli við
bræður Ástríðar, þá Magnús og
Kristleif, en sfðar, er Magnús
kvæntist austur að Vatnsnesi í
Grímsnesi og Kristleifur snéri sér
eingöngu að móttöku ferðamanna
og þjónustu við þá, bjó
Guðmundur á nálega öllu Húsa-
felli og var þá með fjárflestu
bændum á landinu. Þau
Guðmundur og Ástriður
eignuðust 4 börn, Guðrúnu fædda
1957, Pál fæddan 1959, Þorstein
fæddan 1960 og Rósu fædda 1963.
Kveðja þau nú elskaðan föður
með sorg í huga. Kallið kemur þó
ekki með öllu óvænt. Tvisvar áður
hafði Guðmundur fengið hjarta-
áfall, hafði hann að loknu sfðara
■■■■■■
áfallinu brugðið búi að mestu og
flutt aðsetur sitt til Reykjavíkur
yfir veturinn, en hvert vor, er sól
hækkaði á lofti, héldu Guðmundi
engin bönd, hugurinn stefndi upp
i fjalladalinn, sem var orðinn hon-
um svo kær. Fjölskyldan dvaldi
þar einnig eftir föngum, en Ásta
hefur síðan þau fluttu til Reykja-
víkur, stundað hjúkrun á Land-
spitalanum þar.
Guðmundur hefur heyjað tún
sitt á Húsafelli sem áður síðan
hann dró að mestu úr skepnu-
haldi. Hafa ýmsir bændur notið
góðs af sem ekki áttu nægan forða
fyrir. Nú í sumar hefur hey-
skapartíð verið í erfiðasta lagi
sem kunnugt er, mikið starf hefur
verið lagt í að reyna að bjarga
heyjum. Guðmundur var þar
engin undantekning. Síðustu hey-
sátu sína hafði hann hlaðið upp
og breitt yfir f góðviðrinu 30.
ágúst, er kallið kom. Hann
bognaði aldrei en brotnaði í
bylnum stóra seinast.
Við í Kalmanstungú höfum
Guðmundi ákaflega margt að
þakka fyrir 20 ára vináttu.sem
aldrei hefur borið minnsta
skugga á. Það var alltaf hátíð, er
Guðmundur kom í heimsókn,
hvort sem hann kom einn saman
eða fjölskylda og vinir með
honum. Var þá stundum tekið
lagið en Guðmundur var söng-
maður góður, svo sem þeir eru
fleiri Hjálmsstaðamenn og lagviss
með afbrigðum, svo aldrei skeik-
aði. Hagmæltur var hann í besta
lagi. En ef til vill verða aldrei til
fulls skilgreindir persónutöfrar
manna eins og Guðmundar,
hlýjan í viðmótinu blandin
glettni, drengskapur í öllu sem til
bar.
Það er fögur minning, sem
- Minning
slfkir skilja eftir, er þeir kveðja
og ganga á vit æðri heima. Má það
vera eftirlifandi ástvinum, eigin-
konu börnum, systkinum,
frændum og tengdafólki mikil
huggun f sfnum mikla harmi.
Við hér i Kalmanstungu
minnumst hans með sorg ogþakk-
læti. Eftirlifandi ástvinum vott-
um við einlæga samúð.
Kalman Stefánsson
Kalmanstungu
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Og nú vann
Larsen
EFTIR tvö töp í röð beit Bent
Larsen á jaxlinn, bölvaði f
hljóði og sveið vinning af
Matanovic í 17. umferð milli-
svæðamótSins í Biel. Larsen
hefur aldrei fylgt bókinni f
byrjunum, en sjaldan hef ég
séð hann tefla eins „óreglu-
lega“ og f þessari skák. Og sjálf-
sagt hefur teóríuhestinum, rit-
stjóra Informators, ekki liðið
vel yfir stöðunni.
Hvftt: Bent Larsen
Svart: A. Matanovic
Kóngsbiskupsleikur
1. e4 — e5, 2. Bc4 — Rf6, 3. Rc3
— Rc6, 4. d3 — Bc5, 5. Bg5 —
h6, 6. BH4 — d6, 7. Ra4 — Bb6,
8. Rxb6 — axb6, 9. f3 — Be6,
10. Re2 — g5, 11. Bf2 — d5, 12.
exd5 — Rxd5, 13. Dd2 — De7,
14. 0-0 — Rf4, 15. Bb5 — Ha5,
16. a4 — Rxe2+, 17. Dxe2 —
0-0, 18. c3 — Dd6, 19. Hfel —
H5a8, 20. Bg3 — f6, 21. d4 —
Bf7, 22. Hadl — De7, 23. Dc2 —
Be8, 24. dxe5 — Rxe5, 25. Bxe5
— fxe5, 26. Hd5 — Bxb5, 27.
axb5 — Hae8, 28. Hel — Hf6,
29. h4 — gxh4, 30. Hxh4 — c6,
31. bxc6 — bxc6, 32. Hd2 —
He6, 33. He4 — b5, 34. Ddl —
Hg6, 35. Hd7 — Dc5+, 36. Kfl
— Hf8, 37. Dd3 — H8f6, 38. b4
— Db6, 39. Hxe5 og svartur
gafst upp.
Eins og við sáum f sfðustu
grein tapaði Portisck illilega
fyrir næstneðsta manni mótsins
í 16. umferð. Nú hristi hann af
sér slenið og sigraði Ulf
Andersson örugglega.
Hvftt: Andersson
Svart: Portisch
Enskur leikur
1. c4 — c5, 2. Rc3 — Rf6, 3. Rf3
— d5, 4. exd5 — Rxd5, 5. g3 —
Rc6, 6. Bg2 — Rc7, 7. a3 — g6,
8. b4 — Bg7, 9. bxc5 — Re6, 10.
Bb2 — Rxc5, 11. Ra4 — Bxb2,
12. Rxb2 — Be6, 13. 0-0 — 0-0,
14. Hcl — Da5,15. Rc4 — Bxc4,
16. Hxc4 — Dxa3, 17. d4 — Rd7,
18. Dd2 — Dd6, 19. Dh6 — f6,
20. e3 — Rb6, 21. H4cl — Hac8,
22. Rd2 — e5, 23. Re4 — De7,
24. Hcdl — Hfd8, 25. Dh4 —
Kg7, 26. Rc5 — exd4, 27. exd4
— Hxd4. 28. Hxd4 — Rxd4, 29.
Dxd4 — Hxc5, 30. h4 — Dc7, 31.
Kh2? — Hc4, 32. De3 —
Hxh4+, 33. Kgl — Hh5, 34. Hdl
— Hc5, 39. Dal — Rd2 og
hvftur gafst upp.
Allir hinir, sem stóðu í bar-
áttunni um þrjú efstu sætin
gerðu jafntefli. Tal við
Solsonko, Smyslov við Htibner,
Petrosjan við Smejkal og Byrne
við Lombard. Israelski
stórmeistarinn Liberzon varð
fyrir slæmu óhappi f þessari
umferð. Hann tefldi við
Bandaríkjamanninn Rogoff, og
þegar Liberzon lék 21. leik sin-
um skrifaði hann leikinn óvart
tvisvar á blaðið. Leið nú og beið
unz Liberzon lék sfnum 39. leik.
Þá hafði hann leikið 40 leiki
samkvæmt blaði sfnu, fór fram
fékk sér kaffi og settist sfðan til
þess að hugsa biðleikinn. Þá
féll klukkan og Rogoff, sem
ekki virðist tiltakanlega mikill
íþróttamaður í anda, stóð hlæj-
andi upp og benti Liberzon á að
hann hefði tapað á tíma.
Skemmtileg framkoma, eða hitt
heldur.