Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
30
Vio eigum
góða möguleika
- sagði Jóhannes Eðvaldsson
— Það munar strax töluverðu
fyrir mig að ég þurfti ekki að
leika með Celtie gagn Dundee
United í bikarkeppninni f fyrra-
kvöld, sagði Jóhannes Eðvaldsson
í viðtali við Morgunblaðið í gær,
enJóhannes sem á að Ieika með
Celtic gegn Rangers f Glasgow á
laugardaginn mun ekki koma tif
landsleiksins við Belgfumenn á
sunnudaginn fyrr en nokkrum
klukkustundum áður en leikur-
inn hefst.
— Þetta verður auðvitað mjög
erfitt hjá mér, en ég er í góðu
formi og treysti mér alveg til þess
að standa mig i lansleiknum,
sagði Jóhannes. — Og ég er mjög
bjartsýnn á að íslenzka liðið geti
sigrað belgíska liðið á sunnudag-
Jöhannes Eðvaldsson.
inn. Við leikum á heimaelli og
slíkt hefur alltaf mikið að segja, í
það minnsta ef áhorfendur standa
vel með okkur. Belgiumennirnir
eru örugglega óvanir aðstæðum
okkar, — þeir hafa ekki kynnzt
öðru en skrælnuðum og glerhörð-
um völlum að undanförnu. Að
minnsta kosti er það þannig hér í
Skotlandi að vellirnir eru ákaf-
lega slæmir og svo harðir, að mað-
ur er með blöðrur á fótunum eftir
hvern einasta leik.
Jóhannes sagði að Celtic—lið-
inu hefði ekki gengið of vel i
leikjum sínum að undanförnu, en
það væri tvímælalaust að sækja
sig. — Ég heid að það sé betra
fyrir okkur að fara þetta hægt af
stað og sækja síðan á, heldur en
að málin þróist eins og í fyrra, er
liðið byrjaði keppnistímabilið af
gífurlegum krafti en sprakk svo á
limminu. Celtic var núna að
ganga frá kaupum á nýjum leik-
manni. Sá er Pat Stanton og kem-
ur frá Hibs. Hann er mjög góður
leikmaður, en orðinn nokkuð
gamall — kominn á fertugsaldur.
— Annars hef ég orðið greini-
lega var við það að Jock Stein,
framkvæmdastjóri Celtic, hefur
áhyggjur af því hvernig mér muni
vegna í leiknum gegn Rangers á
laugardaginn. Hann hefur spurt
mig hvað eftir annað hvort ég
muni beita mér af allri orku í
þeim leik, þar sem ég eigi erfiðan
leik með íslandi strax daginn eft-
ir. Það kynni því að vera að mér
yrði eitthvað hlíft í leiknum á
laugardaginn, þótt ég kæri mig
sjálfur ekkert um slíkt og sé þess
fullviss að ég er í formi til þess að
leika tvo erfiða leiki dag eftir dag.
hóf undirbuning sinn fyrir lands-
leikinn við Belglumenn á sunnu-
daginn meS æfingu á Laugardals-
vellinum I gærmorgun og stjóm-
aSi landsliSsþjálfarinn. Tony
Knapp, æfingunni. ákveSinn aS
vanda. Eftir hádegi I gær fór
landsliðið austur á Þingvelli, þar
sem það mun dvelja fram til leiks-
ins á sunnudaginn. Á morgun
mun liðið æfa á grasvellinum á
Laugarvatni og kvöldið og sunnu-
dagsmorgunninn verður slðan
notað „til þess að ná upp
stemmningunni." Íslenzka lands-
liðið hefur dvalið á Þingvöllum
fyrir meiri háttar leiki undanfarin
ár og verður ekki annað séð en að
hið sögulega umhverfi hafi blásið
baráttuanda I brjóst leikmanna.
Vondandi verður einnig svo nú.
Stærri myndin sýnir landsliðs-
mennina á hlaupaæfingu hjá
Knapp og má á þeirri myndi m.a.
sjá Ásgeir Sigurvinsson. Guðgeir
Leifsson, Teit Þórðarson, Jón
Pétursson, Áma Stefánsson og
Glsla Torfason. Myndin hér til
hliðar sýnir svo landsliðsþjálfar-
ann gefa mönnum slnum fyrir-
mæli.
Matthías
kemurekki
MATTHlAS Hallgrfmsson
varð að gefast upp í baráttu
sinni við forráðamenn sænska
liðsins Halmia, og hann verður
þvf ekki með f landsleiknum á
sunnudaginn. Félagið hefur
hins vegar gefið honum leyfi
til að taka þátt f landsleiknum
við Hollendinga á miðviku-
dagskvöld, en ekki var í gær
ákveðið hvort Matthfas yrði
boðaður til þess leiks.
Töluverð harka hljóp í málið
hjá Ilalmia, er forráðamönn-
um félagsins varð það Ijóst að
Matthfas ætlaði að fara heim
til tslands, hvað sem þeir
segðu. Töldu þeir að þar með
bryti Matthfas gerða samninga
við félagið, en f þeim stendur
að honum sé heimilt að taka
þátt f landsleikjum fyrir ts-
lands hönd, svo fremi að það
stangaðist ekki á við leiki fé-
lagsins. Hótuðu Halmia-menn
Matthfasi öllu illu, m.a. þvf að
hann yrði rekinn frá félaginu
og höfðað skaðabótamál á
hendur honum. Taldi Matthfas
sér ekki mögulegt að eiga slfkt
á hættu og ákvað þvf að til-
kynna að hann gæti ekki leikið
landsleikinn.
Sex leikir - sex sigrar Belgíumanna
LANDSLEIKUR islands og
Belgíu á Laugardalsvellinum á
morgun verður fjórði landsfeikur
islendinga f ár. Hinir þrír hafa
farið þannig að tslendingar hafa
unnið tvo þeirra og tapað einum.
Leikurinn, sem tapaðist var, gegn
Finnum f Helsinki og sigruðu
þeir með einu marki gegn engu.
Islendingar unnu hins vegar
Norðmenn f Osló 1—0 og Luxem-
borgara í Reykjavík 3—1. Þá hafa
tslendingar f sumar leikið tvo
leiki við ensku bikarmeistarana:
Southampton og unnu Englend-
ingarnir annar leikinn 1—0, en
BELGISKALIÐIÐVALIÐ
BELGÍUMENN hafa nú tilkynnt liðs-
skipan sfna í landsleiknum við ísland
á sunnudaginn og munu eftirtaldir
leikmenn hafja leikinn: Christian
Piot (Standard Liege), Ernie Cerets
(Standard Liege), Erwin Vanden
Daele (Anderlecht), Michel Renquin
(Standard Liege), Maurice Martens
(Molenbeek). Francois van der Elst
(Anderlecht), Paul Courant (Club
Brugge), Ludo Coeck (Anderlecht),
Rene Verheyen (Royale Union),
Willy Wellens (Molenbeek) og Jaqu-
es Teugels (Molenbeek).
Svo sem sjá má af upptalningu
þessari verða í liðinu þrfr félagar
Ásgeirs Sigurvinssonar f Standard
Liege-liðinu.
Irskir dómarar munu dæma leiki
íslands við Seigfu og Holland f und-
ankeppni heimsmeistarakeppninnar.
Leikinn á sunnudaginn dæmir J.
Carpenter, en Ifnuverðir verða O.Y.
Burn og D. McGowen Leikinn á
miðvikudaginn dæmir Burn, en Carp-
enter og McGowen verða Ifnuverðir.
hinn varð jafntefli 1—1.
Utkoman í landsleikjum sum-
arsins verður því að teljast mjög
góð, og sérstaklega var sigurinn í
leiknum við Norðmenn athyglis-
verður. Er það í fyrsta sinn sem
íslendingar vinna sigur í lands-
leik sem fram fer erlendis.
Landsleikurinn á morgun verð-
ur svo sjöundi Iandsleikur tslands
og Belgíu og hafa Belgíumenn
unnið alla fyrri leikina. Fyrsti
leikurinn við Belgíumenn fór
fram 5. júni 1957 í Briissel og
urðu úrslit þess leiks 8—3 fyrir
Belgíumenn. 4. september 1957
var svo leikið við Belgíumenn I
Reykjavík og þá sigruðu þeir með
5:2. Næst mættust Islendingar og
Belgiumenn svo I landsleik 18.
maí 1972 i Liege i Belgiu. I þeim
leik sigruðu Belgiumenn 4:0 og
fjórum dögum siðar unnu þeir
með sömu markatölu I leik sem
fram fór í Brugge. 8. september
1974 var svo leikið í Reykjavík og
þá sigruðu Belgíumenn 2:0 eftir
jafnan og mjög skemmtilegan
leik. 6. september í fyrra var svo
leikið I Liege í Belgíu og unnu
Belgíumenn þann leik með einu
marki gegn engu.
ÆTIA EKKIAÐ MÆTA
TVÖ af liðum þeim sem þátttokurétt
eiga í úrslitkeppni um laust sæti i 2.
deild að ári, Afturelding úr Mosfells
sveit og Reynir frá Árskógsstrond,
hafa ákveðið að mæta ekki í boðaða
keppni sem fram átti að fara á Eski
firði innan tiðar Þriðja liðið sem
keppir um sætið er Þróttur, Nes
kaupsstað, og telja forráðamenn
Reynis og Aftureldingar að völlurinn
á Eskifirði geti ekki talizt hlutlaus,
þar sem hann er svo skammt frá
Neskaupsstað, auk þess sem þeir
telja að aðstaða sé ekki fyrir hendi á
Eskifirði að halda slíkt þriggja liða
mót. Munu þeir afhenda KSÍ greinar-
gerð um mál þetta eftir helgi.
Áhorfendur eru líka þátttakendur
Á MORGUN mun athygli knatt-
spyrnuheimsins beinast að Laug-
ardalsvellinum þar sem fram fer
leikur Íslands og Belglu I undan-
keppni heimsmeistarakeppninnar
í knattspyrnu. Segja má að hver
einasti leikur þessarar keppni
vekji athygli þar sem á annað borð
er fylgzt með knattspyrnu, enda
hörð barátta um það hnoss að
komast I lokakeppnina sem fram
mun fara f Argentfnu að tveimur
árum liðnum, 1978.
Að margra dómi er riðillinn sem
íslendingar leika f að þessu sinni
einn sá allra sterkasti f undan-
keppninni, þar sem Belgfumenn
og Hollendingar eiga frábærum
liðum á að skipa, og írar standa
þeim Iftt að baki. Þegar fjallað er
um hugsanleg úrslit f þessum riðli
og það lið sem kemst áfram úr
honum er ekki minnzt á Islend-
inga. en hins vegar er athyglis-
vert, að margir spá þvf að islend-
ingar kunni að setja óvænt strik f
reikninginn hjá þeim stóru, og
m.a. vitnað til sigurs okkar yfir
Austur-Þjóðverjum f landsliða-
keppni Evrópu, en sennilega hafa
fslenzkir knattspyrnumenn aldrei
komið eins á óvart með frammi-
stöðu sinni. Þá er einnig vitnað til
þess að Belgfumenn hafi „aðeins"
sigrað jslendinga 1—0 á heima-
velli sfnum f fyrra og það hafi
Sovétmenn einnig gert.
Það veltur þvl á gffurlega miklu
hvernig frammistaða jslendinga f
leiknum á morgun verður. Og það
erekki bara metnaðarmál piltanna
11 sem berjast á knattspyrnuvell-
inum að vel takist heldur allrar
þjóðarinnar. Sú auglýsing sem fs-
lenzk fþróttaæska og þjóðin öll
fékk t.d. með sigri yfir Austur-
Þjóðverjum f fyrra var ómetanleg.
Þannig má til gamans geta þess
að fyrirsögn vestur-þýzks risa-
blaðs var þannig eftir umræddan
leik: 200 þúsund Íslendingar eiga
Nóbelsskáld og knattspyrnurisa.
En áhorfendur sem vafalaust
fjölmenna á Laugardalsvöllinn
mega ekki gleyma þvf, að þeir eru
einnig þátttakendur f leiknum.
Það er þeirra að hjálpa fslenzku
landsliðsmönnunum f baráttunni
með hvatningu sem standa verður
leikinn út. Oft hefur það verið
þannig að fslenzkir áhorfendur
hafa mjög dofnað, ef illa hefur
gengið hjá landanum f baráttunni
úti á vellinum, en einmitt þá þurfa
knattspyrnumennirnir á mestri að-
stoð óhorfenda að halda. Vonandi
hjálpast áhorfendur dyggilega að
þvf að auðvelda landsliðsmönnun-
um róðurinn f leiknum á morgun.
Ekki mun af öllu veita ef góður
árangur á að nást f viðureign við
hina þrautþjálfuðu atvinnumenn
belgfska liðsins, sem heitið hefur
verið hærri „bónus" fyrir að vinna
þennan leik en jafnvel KSÍ hefur
yfir að ráða á heilu ári. Áfram
ísland þarf að hljóma kröftuglega
á Laugardalsvellinum á morgun,
jafnt hvort Fslenzka liðið er f sókn
eða vörn.