Morgunblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 30 Vio eigum góða möguleika - sagði Jóhannes Eðvaldsson — Það munar strax töluverðu fyrir mig að ég þurfti ekki að leika með Celtie gagn Dundee United í bikarkeppninni f fyrra- kvöld, sagði Jóhannes Eðvaldsson í viðtali við Morgunblaðið í gær, enJóhannes sem á að Ieika með Celtic gegn Rangers f Glasgow á laugardaginn mun ekki koma tif landsleiksins við Belgfumenn á sunnudaginn fyrr en nokkrum klukkustundum áður en leikur- inn hefst. — Þetta verður auðvitað mjög erfitt hjá mér, en ég er í góðu formi og treysti mér alveg til þess að standa mig i lansleiknum, sagði Jóhannes. — Og ég er mjög bjartsýnn á að íslenzka liðið geti sigrað belgíska liðið á sunnudag- Jöhannes Eðvaldsson. inn. Við leikum á heimaelli og slíkt hefur alltaf mikið að segja, í það minnsta ef áhorfendur standa vel með okkur. Belgiumennirnir eru örugglega óvanir aðstæðum okkar, — þeir hafa ekki kynnzt öðru en skrælnuðum og glerhörð- um völlum að undanförnu. Að minnsta kosti er það þannig hér í Skotlandi að vellirnir eru ákaf- lega slæmir og svo harðir, að mað- ur er með blöðrur á fótunum eftir hvern einasta leik. Jóhannes sagði að Celtic—lið- inu hefði ekki gengið of vel i leikjum sínum að undanförnu, en það væri tvímælalaust að sækja sig. — Ég heid að það sé betra fyrir okkur að fara þetta hægt af stað og sækja síðan á, heldur en að málin þróist eins og í fyrra, er liðið byrjaði keppnistímabilið af gífurlegum krafti en sprakk svo á limminu. Celtic var núna að ganga frá kaupum á nýjum leik- manni. Sá er Pat Stanton og kem- ur frá Hibs. Hann er mjög góður leikmaður, en orðinn nokkuð gamall — kominn á fertugsaldur. — Annars hef ég orðið greini- lega var við það að Jock Stein, framkvæmdastjóri Celtic, hefur áhyggjur af því hvernig mér muni vegna í leiknum gegn Rangers á laugardaginn. Hann hefur spurt mig hvað eftir annað hvort ég muni beita mér af allri orku í þeim leik, þar sem ég eigi erfiðan leik með íslandi strax daginn eft- ir. Það kynni því að vera að mér yrði eitthvað hlíft í leiknum á laugardaginn, þótt ég kæri mig sjálfur ekkert um slíkt og sé þess fullviss að ég er í formi til þess að leika tvo erfiða leiki dag eftir dag. hóf undirbuning sinn fyrir lands- leikinn við Belglumenn á sunnu- daginn meS æfingu á Laugardals- vellinum I gærmorgun og stjóm- aSi landsliSsþjálfarinn. Tony Knapp, æfingunni. ákveSinn aS vanda. Eftir hádegi I gær fór landsliðið austur á Þingvelli, þar sem það mun dvelja fram til leiks- ins á sunnudaginn. Á morgun mun liðið æfa á grasvellinum á Laugarvatni og kvöldið og sunnu- dagsmorgunninn verður slðan notað „til þess að ná upp stemmningunni." Íslenzka lands- liðið hefur dvalið á Þingvöllum fyrir meiri háttar leiki undanfarin ár og verður ekki annað séð en að hið sögulega umhverfi hafi blásið baráttuanda I brjóst leikmanna. Vondandi verður einnig svo nú. Stærri myndin sýnir landsliðs- mennina á hlaupaæfingu hjá Knapp og má á þeirri myndi m.a. sjá Ásgeir Sigurvinsson. Guðgeir Leifsson, Teit Þórðarson, Jón Pétursson, Áma Stefánsson og Glsla Torfason. Myndin hér til hliðar sýnir svo landsliðsþjálfar- ann gefa mönnum slnum fyrir- mæli. Matthías kemurekki MATTHlAS Hallgrfmsson varð að gefast upp í baráttu sinni við forráðamenn sænska liðsins Halmia, og hann verður þvf ekki með f landsleiknum á sunnudaginn. Félagið hefur hins vegar gefið honum leyfi til að taka þátt f landsleiknum við Hollendinga á miðviku- dagskvöld, en ekki var í gær ákveðið hvort Matthfas yrði boðaður til þess leiks. Töluverð harka hljóp í málið hjá Ilalmia, er forráðamönn- um félagsins varð það Ijóst að Matthfas ætlaði að fara heim til tslands, hvað sem þeir segðu. Töldu þeir að þar með bryti Matthfas gerða samninga við félagið, en f þeim stendur að honum sé heimilt að taka þátt f landsleikjum fyrir ts- lands hönd, svo fremi að það stangaðist ekki á við leiki fé- lagsins. Hótuðu Halmia-menn Matthfasi öllu illu, m.a. þvf að hann yrði rekinn frá félaginu og höfðað skaðabótamál á hendur honum. Taldi Matthfas sér ekki mögulegt að eiga slfkt á hættu og ákvað þvf að til- kynna að hann gæti ekki leikið landsleikinn. Sex leikir - sex sigrar Belgíumanna LANDSLEIKUR islands og Belgíu á Laugardalsvellinum á morgun verður fjórði landsfeikur islendinga f ár. Hinir þrír hafa farið þannig að tslendingar hafa unnið tvo þeirra og tapað einum. Leikurinn, sem tapaðist var, gegn Finnum f Helsinki og sigruðu þeir með einu marki gegn engu. Islendingar unnu hins vegar Norðmenn f Osló 1—0 og Luxem- borgara í Reykjavík 3—1. Þá hafa tslendingar f sumar leikið tvo leiki við ensku bikarmeistarana: Southampton og unnu Englend- ingarnir annar leikinn 1—0, en BELGISKALIÐIÐVALIÐ BELGÍUMENN hafa nú tilkynnt liðs- skipan sfna í landsleiknum við ísland á sunnudaginn og munu eftirtaldir leikmenn hafja leikinn: Christian Piot (Standard Liege), Ernie Cerets (Standard Liege), Erwin Vanden Daele (Anderlecht), Michel Renquin (Standard Liege), Maurice Martens (Molenbeek). Francois van der Elst (Anderlecht), Paul Courant (Club Brugge), Ludo Coeck (Anderlecht), Rene Verheyen (Royale Union), Willy Wellens (Molenbeek) og Jaqu- es Teugels (Molenbeek). Svo sem sjá má af upptalningu þessari verða í liðinu þrfr félagar Ásgeirs Sigurvinssonar f Standard Liege-liðinu. Irskir dómarar munu dæma leiki íslands við Seigfu og Holland f und- ankeppni heimsmeistarakeppninnar. Leikinn á sunnudaginn dæmir J. Carpenter, en Ifnuverðir verða O.Y. Burn og D. McGowen Leikinn á miðvikudaginn dæmir Burn, en Carp- enter og McGowen verða Ifnuverðir. hinn varð jafntefli 1—1. Utkoman í landsleikjum sum- arsins verður því að teljast mjög góð, og sérstaklega var sigurinn í leiknum við Norðmenn athyglis- verður. Er það í fyrsta sinn sem íslendingar vinna sigur í lands- leik sem fram fer erlendis. Landsleikurinn á morgun verð- ur svo sjöundi Iandsleikur tslands og Belgíu og hafa Belgíumenn unnið alla fyrri leikina. Fyrsti leikurinn við Belgíumenn fór fram 5. júni 1957 í Briissel og urðu úrslit þess leiks 8—3 fyrir Belgíumenn. 4. september 1957 var svo leikið við Belgíumenn I Reykjavík og þá sigruðu þeir með 5:2. Næst mættust Islendingar og Belgiumenn svo I landsleik 18. maí 1972 i Liege i Belgiu. I þeim leik sigruðu Belgiumenn 4:0 og fjórum dögum siðar unnu þeir með sömu markatölu I leik sem fram fór í Brugge. 8. september 1974 var svo leikið í Reykjavík og þá sigruðu Belgíumenn 2:0 eftir jafnan og mjög skemmtilegan leik. 6. september í fyrra var svo leikið I Liege í Belgíu og unnu Belgíumenn þann leik með einu marki gegn engu. ÆTIA EKKIAÐ MÆTA TVÖ af liðum þeim sem þátttokurétt eiga í úrslitkeppni um laust sæti i 2. deild að ári, Afturelding úr Mosfells sveit og Reynir frá Árskógsstrond, hafa ákveðið að mæta ekki í boðaða keppni sem fram átti að fara á Eski firði innan tiðar Þriðja liðið sem keppir um sætið er Þróttur, Nes kaupsstað, og telja forráðamenn Reynis og Aftureldingar að völlurinn á Eskifirði geti ekki talizt hlutlaus, þar sem hann er svo skammt frá Neskaupsstað, auk þess sem þeir telja að aðstaða sé ekki fyrir hendi á Eskifirði að halda slíkt þriggja liða mót. Munu þeir afhenda KSÍ greinar- gerð um mál þetta eftir helgi. Áhorfendur eru líka þátttakendur Á MORGUN mun athygli knatt- spyrnuheimsins beinast að Laug- ardalsvellinum þar sem fram fer leikur Íslands og Belglu I undan- keppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Segja má að hver einasti leikur þessarar keppni vekji athygli þar sem á annað borð er fylgzt með knattspyrnu, enda hörð barátta um það hnoss að komast I lokakeppnina sem fram mun fara f Argentfnu að tveimur árum liðnum, 1978. Að margra dómi er riðillinn sem íslendingar leika f að þessu sinni einn sá allra sterkasti f undan- keppninni, þar sem Belgfumenn og Hollendingar eiga frábærum liðum á að skipa, og írar standa þeim Iftt að baki. Þegar fjallað er um hugsanleg úrslit f þessum riðli og það lið sem kemst áfram úr honum er ekki minnzt á Islend- inga. en hins vegar er athyglis- vert, að margir spá þvf að islend- ingar kunni að setja óvænt strik f reikninginn hjá þeim stóru, og m.a. vitnað til sigurs okkar yfir Austur-Þjóðverjum f landsliða- keppni Evrópu, en sennilega hafa fslenzkir knattspyrnumenn aldrei komið eins á óvart með frammi- stöðu sinni. Þá er einnig vitnað til þess að Belgfumenn hafi „aðeins" sigrað jslendinga 1—0 á heima- velli sfnum f fyrra og það hafi Sovétmenn einnig gert. Það veltur þvl á gffurlega miklu hvernig frammistaða jslendinga f leiknum á morgun verður. Og það erekki bara metnaðarmál piltanna 11 sem berjast á knattspyrnuvell- inum að vel takist heldur allrar þjóðarinnar. Sú auglýsing sem fs- lenzk fþróttaæska og þjóðin öll fékk t.d. með sigri yfir Austur- Þjóðverjum f fyrra var ómetanleg. Þannig má til gamans geta þess að fyrirsögn vestur-þýzks risa- blaðs var þannig eftir umræddan leik: 200 þúsund Íslendingar eiga Nóbelsskáld og knattspyrnurisa. En áhorfendur sem vafalaust fjölmenna á Laugardalsvöllinn mega ekki gleyma þvf, að þeir eru einnig þátttakendur f leiknum. Það er þeirra að hjálpa fslenzku landsliðsmönnunum f baráttunni með hvatningu sem standa verður leikinn út. Oft hefur það verið þannig að fslenzkir áhorfendur hafa mjög dofnað, ef illa hefur gengið hjá landanum f baráttunni úti á vellinum, en einmitt þá þurfa knattspyrnumennirnir á mestri að- stoð óhorfenda að halda. Vonandi hjálpast áhorfendur dyggilega að þvf að auðvelda landsliðsmönnun- um róðurinn f leiknum á morgun. Ekki mun af öllu veita ef góður árangur á að nást f viðureign við hina þrautþjálfuðu atvinnumenn belgfska liðsins, sem heitið hefur verið hærri „bónus" fyrir að vinna þennan leik en jafnvel KSÍ hefur yfir að ráða á heilu ári. Áfram ísland þarf að hljóma kröftuglega á Laugardalsvellinum á morgun, jafnt hvort Fslenzka liðið er f sókn eða vörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.