Morgunblaðið - 04.09.1976, Page 32

Morgunblaðið - 04.09.1976, Page 32
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 8,83% hækkun á landbúnaðarvörum Á FUNDI sexmannanefnd- arinnar með sáttasemjara í gær náðist samkomulag am nýtt verð á landbúnað- Pílagrímaflugið: Flugleiðir leigja tvær DC-8 þotur FLUGLEIÐIR hafa nú leigt tvær DC-8 þotur frá Seaboard Airlines vegna pílagrímaflugs- ins, sem félagið mun annast f vetur. Gert er ráð fyrir, að félagið flytji a.m.k. 10 þúsund farþega i um 90 ferðum — það er 45 ferðir hvora leið. Flug þetta hefst 1. nóvember nk. og stend- ur í fyrstu lotu til 25. nóvember, en hefst síðan að nýju i byrjun desember og stendur til 26. desember. arvörum. Gerir samkomu- lagið ráð fyrir, að vörurnar hækki um 8,83%. Að sögn Einars Ólafsson- ar. sem á sæti í nefndinni fyrir hönd bænda, er enn ekki vitað hvaða verð verð- ur á hinum einstöku teg- undum, þar sem gert er ráð fyrir að hækkun vöruteg- unda verði mismunandi. Ejinar sagði ennfremur aö kartöflur yrðu verðlagð- ar sérsstaklega að þessu sinni. Fundur sexmannanefnd- arinnar hófst kl. 16 hjá sáttasemjara og lauk um kl. 19. Voru fimm nefndar- manna samþykkir þessari nýju hækkun, en einn, full- trúi sjómannafélagsins, greiddi atkvæði á móti. „IÐNKYNNINGARÁR" Islenzkar iðnkynningar hófst f gær f verksmiðjunni Dúk hf„ en þar er þessi mynd tekin af framleiðslu fyrirtækisins. A myndinni eru (frá vinstri) Eyrún Þorleifsdóttir, Halla Hansdóttir, Laufey Jónsdóttir, starfsstúlkur, ásamt Bjarna Björnssyni, forstjóra Dúks. Á bls. 13 er sagt frá setningu „Iðnkynningarárs“. (Ljósm. Ól.K.M.) Viðræður við Mikla norræna í Reykjavík NÆST komandi þriðjudag hefjast í Reykjavík viðræður milli Mikla norræna símafélagsins og íslenzku simamálastjórnarinnar um samning þann, sem enn er í gildi milli þessara aðila, varðandi talsimasamband til og frá íslandi. Að sögn Brynjólfs Ingólfssonar ráðuneytisstjóra í samgönguráðu- neytinu er þess ekki að vænta að til neinna úrslita dragi á fundin- um fyrr en í vikulok. Tveir hringareikn- ingarnir enn opnir — segir setudómarinn í ávísanamálinu — Birtir ekki nöfn reikningshafanna að svo stöddu HEILDARUPPHÆÐ þeirra ávfs- ana, sem eru innan þess hrings, sem dómsrannsókn fer fram á nam um tveimur milljörðum króna. Athugunin nær til 26 reikninga og eru það aðeins 15 Fyrsta netatjónið af völdum háhyrninga Höfn í Hornafirði 3. september frá Arna Johnsen blm. Morgun- blaðsins. FYRSTI báturinn sem verður fyrir tjóni af völdum háhyrn- inga á Hornafjarðarmiðum er Halldór Jónsson frá Ólafsvfk. Haildór Jónsson hafði lagt 50 net í birtingu, þegar háhyrn- ingatorfa réðst á netin og eyði- lagði 40 net af 50. Hvert nýtt net kostar 24 þúsund krónur, þannig að hér er um tæplega 1 milljónar kr. tjón að ræða. Skipstjórinn á Halldóri Jóns- syni.Brynjar Kristmundsson, sagðist hafa lent í svipuðu á sömu slóðum i fyrra, en þá var hann búinn að leggja 19 net í birtingu, þegar háhyrninga- torfa réðst á netin og þeir fengu aðeins teinana upp. Brynjar sagði að engin net væri að fá á Höfn og kvaðst ekki vera búinn að leysa málin enn, en sagðist ætla að leggja neta- dræsuna alla í nótt og sjá hvort eitthvað gengi, en ella færu þeír heim til Ólafsvíkur. Menn á bryggjunni röbbuðu um þetta og voru með getgátur um að háhyrningarnir tækju ákveðna báta fyrir og nefndu Vísi GK sem dæmi, en hann varð oft fyrir veiðarfæratjóni af völdum háhyrninga s.l. ár. Garðar hafnarvöfður benti á, að sumum hefði gefizt vel að gefa háhyrningunum síld þegar þeir kæmu að bátunum og néfndi Helga skipstjóra á Hring sem dæmi, en hann varð aldrei fyrir veiðarfæratjóni eftir að hafa gefið þessum gáfuðu skepnum síld í fyrra. Skipverjar á Steinunni frá Ólafsvík voru með mikinn stríðnissvip þegar þeir vörpuðu fram þeirri hugmynd, að þetta væru kvendýr úr háhyrninga- hópi, sem réðust að Halldóri Jónssyni, því þar um borð væru allir um tvítugt og enginn kvæntur. En Brynjar skipstjóri kvaðst ætla að hugsa málið á útleiðinni. í dag var landað hérna 900 tunnum af síld og 53 tonnum af bolfisk. Vinna er mjög mikil og konur vinna til 11 öll kvöld en karlar vinna útí tii kl. 3—4 á nóttinni. eru gögn, sem fylla stóran sendi- ferðabíl. Þvi er skiljanlegt, að mikil vinna er að kanna málið og setja sig inn í það, sagði Hrafn, og af þeim sökum sagðist hann ekki geta að svo stöddu skýrt frá nöfn- um þeirra 15 manna, sem eru útgefendur að ávísunum. Væri það bæði vegna þess að rannsókn væri komin allt of skammt og einnig vegna þess að stundum eru aðrir aðilar notaðir sem skjöldur fyrir ra unverulegan útgefenda. Eru því sum nöfnið „peð“ og gæti nafnbirting því hugsanlega að- eins komið niður á röngum aðila. Hrafn sagði að ýmsir færustu lög- fræðingar landsins hefðu sagt það skoðun sína að birta ætti nöfnin, en hann sagðist ekki vera í vafa um að ef þeir hefðu haft þá sömu aðstöðu til þess að kanna málið og hann hefur haft, kæmust þeir að sömu niðurstöðu. % Reikningar enn opnir? Hrafn sagðist ekki vera fullviss Framhald á bls. 18 Hrafn Bragason borgardómari. menn, sem ávísa á þá. Nokkuð er Ijóst að sumir þeirra koma fram fyrir aðra. Komið hefur fram við könnun að 5 aðilar hafa hver gef- ið út ávfsanir fyrir 100 til 557 milljónir króna á tveggja ára tímabili og 8 aðilar hafa framselt ávísanir yfir 100 milljónir hver á tfmabilinu. Þessar upplýsingar komu fram í gær á blaðamannafundi, sem Hrafn Bragason, borgardómari, sem skipaður hefur verið umboðs- dómari við rannsókn svokallaðs ávísanakveðjumáls, boðaði til. Hrafn sagði að rannsókn málsins væri einhver umfangsmesta saka- málarannsókn sem hér hefði farið fram og eru gögn mikil að vöxt- um. Frá rannsókn Seðlabankans. 3 ungir menn í gæzluvarðhaldi Reynt að smygla hassi inn á Keflavíkurflugvöll FlKNIEFNADÓMSTÓLLINN úrskurðaði I gær ungan Reykvfk- ing í allt að 10 daga gæzluvarð- hald vegna dreifingar og með- ferðar á hassi, en handtaka mannsins kemur f kjölfar hand- töku tveggja pilta, sem gripnir voru, þegar þeir voru að reyna að smygla hassi inn á Keflavfkur- flugvöll Piltarnir tveir voru úrskurðaðir I 10 daga gæzluvarðhald hjá lög- reglustjóraembættinu á Keflavik- urflugvelli, og við yfirheyrslur viðurkenndu þeir að hafa keypt hassið af manni í Reykjavík. Fíkniefnadómstóllinn i Reykja- ,vik handtók síðan þennan mann og í gær var hann úrskurðaður í 10 daga gæzluvarðhald. Rannsókn málsins var þá á byrjunarstigi, og fleiri úrskurðir höfðu ekki verið kvaðnir upp að sinni. 1 gær rann einnig út gæzluvarð- haldstimi annars þeirra manna, sem undanfarið hafa setið í gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar á öðru og umfangsmiklu fikni- efnamáli. Hefur sá setið alls 45 daga í gæzlu en varðhaldsvist hans var nú framlengd um allt að 15 daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.