Morgunblaðið - 05.09.1976, Side 1
48 SÍÐUR
205. tbl. 63. árg.
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
ÞAÐ hefur löngum skipzt í tvö horn
með veðráttúna sunnanlands og norð-
an. Þessi mynd er tekin í Kalmanns-
tungu og sést til norðurs. Má segja, að
hún sé táknræn fvrir veðrið í sumar.
Dumhungur er fremst á myndinni, en
í norðrinu í f jarska er bjart yfir.
(
J_,jósmynd Ól.K.M.
Kissinger um fundinn með Vorster:
Þaðverður blóðbað ef
ekki miðar í rétta átt
60 börn
farast
í flug-
slysi
— Reuter
HERFLUTNINGAVÉL frá
Venezulea með 60 munaðarlaus
börn innanborðs og átta manna
áhöfn hrapaði til jarðar á flug-
velli nálægt Angra de Heroismo á
Azóreyjum f gærkvöldi og fórust
allir, sem um borð voru, að þvf er
talsmenn flugvallaryfirvalda
sögðu f dag. Börnin voru úr skóla
f Caracas, höfuðborg Venezuela.
Að sögn útvarpsins á Azóreyjum
skall flugvélin til jarðar um 200
metra frá flugbrautinni og kom
strax upp eldur f henni.
Hafði flugmaður vélarinnar,
sem var C-130 Hercules-
flutningavél, haft samband við
flugturn fáum mínútum fyrir
slysið og sagðist þá ætla að lenda
á venjulegan hátt.
Slysið varð kl. 22.40 að ísl.tíma.
Vélin var á leið til Barcelona á
Spáni. Vindur var mikill og
skyggni slæmt. Fyrir utan veður-
skilyrði var engin sérstök ástæða
fyrir slysinu kunn. Talið var vfst,
að allir þeir, sem um borð voru,
hefðu verið af venezuelsku þjóð-
erni. 68 lík höfðu fundizt í flakinu
snemma f dae.
Hercules flutningaflugvél eins og
sú sem fórst.
Kortsnoj sviptur
sovézkum titlum
Moskvu 4. september — Reuter.
SOVEZKA skáksambandið hefur
svipt Viktor Kortsnoj, sem leitaði
hælis á Vesturlöndum f júlf, öll-
um sovézkum heiðurstitlum, þar
á meðal stórmeistaratitlinum, að
sögn blaðsins Sovetsky Sport f
Framhald á bls. 2.
London 4. september
— Reuter.
• BANDARtSKI utanrfk-
isráðherrann, Henry Kiss-
inger, sagði í London i dag,
að hann myndi leggja sig
allan fram til að koma f
veg fyrir blóðbað í suður-
hluta Afríku. Ráðherrann
hélt blaðamannafund eftir
að hafa átt viðræður við
brezka utanrfkisráðherr-
ann, Anthony Crossland
Hann heldur síðan strax
áfram til Ziirich þar sem
hann mun þinga með John
Vorster forsætisráðherra
Suður-Afríku um helgina
um Ródesfu, Namibfu og
önnur málefni Suður-
Afríku.
Kissinger sagði m.a. á blaða-
mannafundinum: „Ef ekki miðar
í rétta átt í viðræðunum, munu
blóðsúthellingar aukast i suður-
hluta Afríku og núna er tíminn til
að koma f veg fyrir það“. Hann
sagðist vera vongóður um að ná
einhverjum árangri, en það muni
kosta erfiðar og langar viðræður.
Kissinger sagði, að áætlun sín
væri að fara aftur til Washington
á þriðjudag, þar sem hann vænti
skýrslu frá sendimanni sinum i
Dar Es Saalaam i Tanzaniu. Það
væri svo eftir niðurstöðum þeirr-
ar skýrslu, hvort hann fer til
Afríku. Sendimaðurinn, William
Schaufele, er nú í Dar Es Salaam
til að kanna, hvort afrískir leið-
togar, sem hefja toppfund sinn á
morgun, telja ástæðu til nýrrar
ferðar Kissingers til álfunnar.
Bandariskir embættismenn hafa
tjáð leiðtogum Afríkuríkja, að
Kissinger sé reiðubúinn til að
reyna að miðla málum milli hvitra
og svartra i Afríku, eins og hann
gerði á milli Egypta og ísraels-
manna.
Það sem Kissinger vill ná fram
með viðræðunum við Vorster er
að völdin í Rhódesiu verði fengin
hinum svarta meirihluta landsins
og að sjálfsíæði Namibíu verði
tryggt.
Getur andlítsfarðinn lengt
forsetatíð Gerald Fords?
New York 4. sept.
— Reuter.
GETUR sletta af andlitsfarða
tryggt Gerald Ford setu I Hvfta
húsinu fjögur ár til vióbótar?
Geta Ijós jakkaföt gerð Jimmy
Carter að fmynd „góða manns-
ins“ og unnið fyrir hann for-
setakosningarnar f Bandarfkj-
unum f nóvember? Slfkum og
þvflfkum spurningum velta að-
stoðarmenn Fords og Carters
nú fyrir sér. Þeir hafa verið að
skoða kvikmyndir af hinum
frægu sjónvarpsrökræðum for-
setaframbjóðendanna John
Kennedy og Richard Nixon ár-
ið 1960 gaumgæfilega til þess
að reyna að finna svör við
spurningum þessum.
Ford og Carter hafa ákveðið
að eiga þrjú sjónvarpseinvigi á
borð við rökræður Nixons og
Framhald á bls. 10
Carter - Ford: Þeir heyja einvígin
Utópía er
stór melur
Pasadena 4. september — Reuter
•VlKINGUR 2. sendi myndir
snemma f morgun af lendingar-
stað sínum norðarlega á Mars, þar
sem gat að Ifta meli svo langt sem
augað eygði. Þessi hluti plánet-
unnar, kallaður Utobfa, virðist
vera risastór slétta gagnstætt
þeim stað þar sem Vfkingur 1.
lenti.
Hvergi var að sjá eyðimekur-
sanda, sem vísindamenn töldu sig
sjá á myndum, sem gervitunglið,
sem bar Víking til Mars, sendi til
jarðar. Þeir höfðu reitt sig á að
sandurinn myndi gera lendingu
geimfarsins mýkri og auðveldari.
Mytldirnar frá Víkingi 2. töfð-
ust um 8 klukkustundir vegna bil-
unar í gervihnettinum, sem end-
Framhald á bls. 2.