Morgunblaðið - 05.09.1976, Síða 23

Morgunblaðið - 05.09.1976, Síða 23
 mBmtémtmmmmtiKíwvwM'úmiiw. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1976 23 |St. Jósefsspítali í Hafnarfirði 5i ’-a dag| um starfið, Hér voru líka til ýmiss konar tæki sem ekki voru annars staðar, röntgentæki ljós- böð, og fleira svo aðstaða eftir þess tíma mælikvarða var hér mjög góð.“ Hvernig atvikaðist það að þú hófst hér störf? „Það var nú þannig að ég spilaði hér við helgihald i kapellunni og þá frétti ég það að hér vantaði mann til ýmissa starfa. Mitt aðalstarf fyrst var að sjá um alla kyndingu spítalans og seinna leikskólans, sem systurnar reka, en þá var ailt kolakynt. Síðar komu fleiri störf til sögunnar, m.a. að sjá um garðinn, alifugla, sem systurnar höfðu og fleira og hef ég alltaf spilað hjá þeim líka og geri það ennþá. Margt skemmti- legt hefur komið fyrír svona innan um og saman við og hér hefur verið alveg prýðilegt að starfa og get ég ekki húgsað mér betra hlutskipti, mér finnst að ekki verði á betra kosið.“ Það eru ekki mjög mörg ár síðan lyftu var komið fyrir í spítalanum og þurfti því áður en hún kom að bera alla sjúkl- inga milli hæða. Víð skulum að lokum heyra frásögn Eiríks frá því: „Það var víst í ein þrjátíu og fimm ár sem við urðum að bera alla sjúklingana á milli hæða, til að fara í aðgerðir og milli sjúkrastofa og þetta var oft nokkuð mikið verk, stundum margir á dag. Systurnar báru á móti mér og þetta komst nú upp í vana hjá manni, og það urðu að sjálfsögðu mikil viðbrigði að fá lyftuna, en það var árið 1953,“ sagði Eiríkur Jóhannes- son að lokum. „Gott að vera hér í Hafnarfirði” 0 St. Jósefssystrareglan var stofnsett í Frakklandi árið 1650 og hóf reglan líknarstarf í Dan- mörku 1856. Til Islands komu St. Jósefssystur fyrst 25. júlí 1896 en það voru fjórar systur, sem unnu á Fáskrúðsfirði að hjúkrun, aðallega meðal er- lendra sjómanna. Sjúkrahúsið á Landakoti var stofnsett eftir að þær hófu störf i Reykjavík, sem var árið 1902, en til Hafnarfjarðar komu þær til spítalastarfa þegar sjúkrahús það, sem þær reistu þar fyrstar allra, var tilbúið. Það var vigt hinn 5. september 1926 og framkvæmdi vígsluna præfekt Meulenberg. Príorinna í dag er systir Eulalia og hefur hún gegnt því starfi nú síðan 1971, en hún var einnig príorinna frá 1958 til 1970. „Ég kom hingað 1958 frá Danmörku og var áður í Þýzka- landi," sagði systir Eulalia, „en í Danmörku vann ég við hjúkrunarstörf. Síðan hef ég verið hér nema eitt ár sem ég var í Danmörku, 1970—’71. Við erum núna alls 7 sem störfum hér og er okkar hlutverk aðal- lega við hjúkrun, en ein starfar í eldhúsinu og við grípum líka í að sauma og fleira sem fellur til, svo sem að þrífa og vinna í garðinum en þar ræktum við svolítið af grænmeti.” Hvernig fannst þér að koma hingað fyrst? „Það var dálítið erfitt í upp- hafi aðallega vegna málsins en það hefur lagazt, íslenzkan er erfitt mál að læra, en við höfum reynt að kenna okkur sjálfum. Samstarf við lækna og aðra hér hefur verið mjög gott og hef ég kunnað mjög vel við mig hérna í Hafnarfirði.” Systir Eulalia sagði að systrunum helði fækkað nokk- uð hjá þeim, þær hefðu flestar verið 12, en þær voru 9 sem komu upphaflega til starfa 1926. Núna eru þeim til aðstoð- ar 6 Mercy-systur frá Írlandi og hefur þeirra hjálp gert það mögulegt að halda spítalastarf- inu áfram. Hún sagði að það Rætt við príorinnuna, systir Eulaliu væri erfitt að fá nunnur til starfa núna, þeim færi alltaf fækkandi og væru margar ástæður fyrir því. Mætti meðal annars nefna að áður fyrr skipuðu klausturskólar mikinn sess í menntarnSlunum, þar vær hægt að fá ýmiss konar Hér afhendir Pétur Thorsteinsson, formaður orðunefndar, systur Eulaliu riddarakross fálkaorðunnar. sérmenntun se <vki var veitt annars staðar og stórar fj-öl- skyldur útheimtu að einhver færi að heiman, en slíkt er ekki fyrir hendi lengur. Systir Eulalia lýsti starfsdeg- inum hjá þeim: „Við byrjum kl. 7:30 á morgn- ana og erum við okkar störf fram eftir degi, með stuttum hvíldum. Við vinnum ekki á kvöldin nema þess sé þörf, en við búum í spítalanum svo það er alltaf hægt að ná í okkur. Annars byrjum við kl. 6:15 í kapellunni og höfum þá okkar bænastundir og einnig á kvöld- in kl. 6:30. Á sunnudögum reynum við að eiga frí en þá eru messur hjá okkur bæði fyr- ir og eftir hádegið.” Það segir ekki allt þót systir Eulalia segi að vinnudagurinn sé frá morgni og fram eftir degi, þvi þær eru sífellt eitt- hvað að starfa í þágu spítalans, þótt það sé ekki bein umönnun sjúklinganna. Þær sauma sjálf- ar.eins og hún nefndi, t.d. er ekki keypt neitt léreft tilbúið, og eru notaðar lausar stundir inn á milli til að sauma og geta þær allar gripið í það. Uti i garðinum rækta þær kartöflur og rófur og aðra jarðávexti og þegar heimsóknartimi stendur yfir og minna er að gera inni huga þær að garðinum. Að lokum segir systir Eulalia frá ferðum þeirra utan spítal- ans: „Við förum í eitthvað fri á hverju sumri ef við getum og þriðja hvert ár heimsækjum við ættingja okkar, en áður gátum við það aðeins fimmta hvert ár. Við höfum líka alltaf samband við systurnar á Landakoti og eru gagnkvæmar heimsóknir milli okkar, sérstaklega á hátið- um. Þær eiga sumarbústað í Kjósinni sem við dveljum Framhald á bls. 47. — Rætt við Eirík Framhaid af bls. 20 dómarasætið, og upp á það hef ég, eins og ég sagði áðan, ekkert bréf“. Föng og félagslegar skáldsög- ur: „Ég hef einkum einbeitt mér að íslandsklukkunni hing- að til. Mér hefur þótt skemmti- legra að vinna athugun einnar bókar vel og Ijúka henni. Að vísu hef ég Iíka stungið niður í nokkrum öðrum verkum skáldsins, til dæmis smásögu sem byggir á samtali við Karl Einarsson Dunganon i Lesbók Morgunblaðsins og ljóðum sem skáldið aflar sér fanga í kvæð- um eftir forföður Dunganons og Halldór Helgason. En ég hef aðallega bundið mig við ís- landsklukkuna. Það er eðlilegt að skáld noti einna helzt heim- ildir við samningu sagnfræði- legrar skáldsögu eins og henn- ar. Og það ætti að vera mikið rannsóknarstarf óunnið að þessu leyti varðandi hinar svo- köliuðu félagslegu skáldsögur Laxness, sérstaklega — Sjálf- stætt fólk, Sölku Völku og Ljós- víkinginn. Þar eru ýmsir at burðir, persónur og tilsvör sem eru fengin úr öðrum rituðum samtimaheimildum. Mér er nú þegar kunnugt um allmörg slík atriði, og það væri vissulega mjög gaman að geta haldið á þau mið sfðar. Og svona mætti vafalaust kanna verk margra annarra höfunda”. Tómstundir og rannsóknir: „Hér er sannarlega mikið og heillandi starf óunnið, sem bíð- ur þeirra sem aðstöðu fá til að vinna það. Þar sem hinar fé- lagslegu skáldsögur Laxness eru bundnari tilurðatíma sín- um en önnur verk hans, þá er það auðveldara samtimamönn- um hans en öðrum að rannsaka þær. 1 þessum sögum speglast samfélagsveruleiki sköpunar- tíma þeirra. En það fer geysi- lega mikill tími í svona athug- un. Ég hef notað svo il allar mínar tómstundir til þeirra. Og nú er ég að hefja kennslu að nýju og þá verður tíminn til frekari konnunar á þessu sviði af skornum skammti. Jú, ég hefði auðvitað mikinn áhuga á að geta helgað mig þessu alveg. Maður gerir þetta af áhuganum einum. Maður vinnur sér ekki inn peninga á meðan og tíman- um yrði vafalaust betur varið öðru vísi til að afla sér fjár.“ Kennslubók fyrir skáld? „Ég dreg í efa að ég hafi mörg tæki- færi til frekari athugunar á næstunni. Gefist mér hins veg- ar tóm til mun ég hefjast handa á ný. Það er mikið eftir af rann- sókn minni á íslandsklukkunni og mér þætti gaman að geta lokið henni. Þessar greinar í Lesbókinni eru nú orðnar 14 talsins, og 5 til viðbótar eru tilbúnar ef áhugi er fyrir birt- ingu þeirra. Ég veit ekki nema Lesbókin sé búin að fá nóg af þessu. Nei, ég hef engin áform uppi um að gefa þetta út á bók. Fyrst er nú að ljúka verkinu. En það kann til dæmis að vera að svona athugun á aðföngum íslandsklukkunnar gæti orðið hin sæmilegasta kennslubók fyrir skáld. Alla vega reyni ég sjálfsagt að halda þessu áfram eftir getu“. Viðbrögð og upplýsing stað- reynda: „Ég hef satt að segja litið orðið var við viðbrögð manna við þessum greinum, — nema þá úr næzta umhverfi mínu og í gegnum aðra. Ég vona alla vega að fólki hafi fundizt þetta fróðlegt. En ég veit til dæmis ekkert um það hvaða augum bókmenntafræð- ingar við Háskóla tslands líta þessa athugun. Ég hef aldrei heyrt frá þeim. Nei, ég veit ekki heldur hver er skoðun Halldórs Laxness sjálfs á henni. Ég hef enga ástæðu til annars en að ætla að hann hafi ánægju af því að staðreyndir séu upplýstar. Að sjálfsögðu hefur hann notfært sér þessi föng vegna þess, að hann hefur talið slíkt eðlileg vinnubrögð. Og varla getur það talizt að- finnsluvert að upplýsa hvernig eðlileg vinnubrögð eru. Könn- un af þessu tagi kann einnig að hafa þann kost að 'dýpka skiln- ing manna á einstökum þáttum í höfundarverki skáldsins”. Að mörgu er að hyggja, er þú þarft að tryggja Brunar og slys eru of tíðir vióburóir í okkar þjóófélagi. Þegar óhapp skeóur er hverjum manni nauósyn, aó hafa sýnt þá fyrirhyggju, aó fjárhagslegu öryggi sé borgió. Hagsmunir fyrirtœkja og einstaklinga eru þeir sömu. SJÓVÁ tryggt er vel tryggt SUÐURLANDSBRAUT 4 -SÍMI 82500 11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.