Morgunblaðið - 21.09.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 21.09.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 Höfrungur áfram við tilraunaveiðar TVEIR bátur frá Patreksfirði stunda enn rækjuveiðar I Táikna- firði en leggja upp aflanum á Bfldudal. Gilda sömu reglur um veiðar þessara báta og gilt hafa I Arnarfirði, þannig að hvorum bát er aðeins heimilt að veiða 4 tonn á viku. Höfrungur, sem stundað hefur tilraunaveiðar á djúprækju í sum- ar, er nú í Grindavík en Hafrann- sóknastofnunin hefur óskað eftir því að veiðum þessum verði hald- ið áfram enn um sinn og mun Höfrungur fara aftur til veiða fyr- ir norðan nú næstu daga. Mjög góður árangur hefur orðið af þessum veiðum Höfrungs, og i ljós hefur komið að rækju er að finna þarna á stærra svæði undan vestanverðu Norðurlandi en vitað var áður. Tveir bátar frá Dalvík hafa ver- ið við veiðar á djúprækju við Kol- beinsey og aflað vel, svo og hefur einn bátur frá Ólafsfirði verið á rækjuveiðum allt frá Kolbeinsey að Grimsey og leggur upp hjá Niðurlagningarverksmiðju K.J. á Akureyri. Fjóðri báturinn, Langa- nes frá Þórshöfn, er um þessar mundir á Seyðisfirði, þar sem ver- ið er að setja suðu- og flokkunar- vél um borð i skipið en það fer væntanlega til veiða einhvern næstu daga. Rækjuveiðin almennt hefst i næsta mánuði, og eru þegar tekn- ar að berast umsóknir um þessar veiðar til sjávarútvegsráðuneytis- Aðstoða nýstúdenta við að fá skólavist og námsstyrki lSLENZK-amerlska félagið hefur undanfarin ár aðstoðað ný- stúdenta við að fá skðlavist og námsstyrki við bandaríska háskóla i samvinnu við stofnun f New York. Er það m.a. hlutverk þessarar stofnunar að miðla til- Réttarhléi hæstaréttar lauk í gær RÉTTARHLÉI hæstaréttar lauk í gær. Átti þann dag að verða mál- flutdingur í ákveðnu máli, en ekkert varð úr því vegna þess að aðiljar málsins höfðu náð sáttum í hléi réttarins og látið málið niður faila. boðum um bandarfska háskðla um skðlavist og námsstyrki til erlendra stúdenta. I fréttatilkynningu frá Islenzk- ameríska félaginu segir að félagið aðstoði í ár 12 stúdenta með slíkri milligöngu og séu þeir frá M.A. og M.T. fjórir frá hvorum og einn frá M.H. M.I, Myndlista- og handiða- skólanum og Verzlunarskólanum. Félagið mun jafnframt veita áfram slíka aðstoð fyrir þá sem hyggjast hefja háskólanám í Bandaríkjunum árið 1977 og skulu styrkþegar ekki vera eldri en 25 ára að jafnaði. Flestir styrkir eru á sviði hugvisinda en erfitt sé að afla styrkja á sviði raunvisinda og ýmiss konar sér- náms. Umsóknum um slíka aðstoð félagsins þarf að skila fyrir 15. október n.k. Eltingaleikur við bílþjófa LÖGREGLAN í Reykjavík lenti í miklum eltingaleik við tvo drukkna bílþjófa, 15 og 16 ára, aðfararnótt s.l. sunnudags. Endaði leikurinn á Klepps- vegi, þar sem piltarnir misstu stjórn á bílnum þannig að hann fór þvert á veginum. Hlupu þeir síðan sem fætur toguðu á brott en lögreglu- menn fundu piltana fljótlega. Bíllinn, sem er af ameriskri gerð, skemmdist töluvert. Budda tapaðist UM mánaðamótin ágúst- september s.l. varð maður einn fyrir því óhappi að týna buddu með 30 þúsund krónum. Er talið líklegast að hann hafi tap- að buddunni á Túngötu. Budd- an er dönsk, ljósbrún að lit og stóð á henni Skat. Þeir, sem veitt geta upplýsingar um mál- ið, eru beðnir að snúa sér til rannsóknarlögreglunnar. Bifhjóla- kappi fót- brotnar Akureyri — 20. september. FIMMTÁN ára piltur fótbrotn- aði illa í gærkvöldi, þegar hann varð fyrir bíl á horni' Hafnarstrætis og Kaupvangs- strætis. Pilturinn var á léttu bifhjóli, og ók niður eftir Kaupvangsstræti, sem er aðal- braut, þegar fólksbill ók í veg fyfir hann, suður Hafnar- stræti. Pilturinn hlaut opið fót- brot á öðrum fæti, en mun ekki vera teljandi meiddur að öðru leyti. Slysíð varð um kl. 18.15 i gær. — Sv. P. Pétur Thorsteins- son afhenti trúnað- arbréf sitt í Kína PÉTUR Thorsteinsson, sendi- herra, er nú í Peking en þangað kom hann 6. september — að því er AP-fréttastofan skýrir frá í fréttaskeyti til Morgunblaðsins. 1 gær afhenti Pétur trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Kina. Ulan Fu, varaformaður fastanefndar „þjóðþings alþýð- unnar“, veitti skilríkjunum við- töku. Formaður fastanefndarinnar, Chu Teh, lézt í júlí, en hann kom jafnan fram sem þjóðhöfðingi og veitti skilríkjum erlendra sendí- manna viðtöku. Síðan hann féll frá hafa ýmsir varaformenn nefndarinnar veitt skilríkjum sendiherra viðtöku. STEFAN Olszowski, utanrfkisráðherra Póilands, kom f opinbera heimsókn til Islands f gær ásamt konu sinni. Á móti hjónunum tóku Einar Ágústsson utanrfkisráðherra og kona hans Þórunn Sigurðardóttir. Myndin er tekin við komu ráðherranna á Hótel Sögu f gær en þar búa Pófverjarnir meðan á heimsókninni stendur. Pólski utanrfkisráðherrann mun dveljast hér á landi þar til sfðdegis á miðvikudag. — Ljósm.: ÓI.K.M. Allt situr við sama í siónvarpsdeilunni „EF ÞAÐ er stefna fjármálaráðu- neytisins að flæma allt starfsfólk sjónvarpsins á brott úr starfi, þá er það á hárréttri leið,“ sagði Eið- ur Guðnason, formaður launa- málanefndar sjónvarpsins, er Mbl. ræddi við hann f gær. Dagur- inn f gær var fjórði sjónvarps- lausi dagurinn vegna launadeil- unnar, sem risið hefur á sjón- varpinu. 1 gær hafði hvorki geng- íð né rekið f þessu máli og sat allt sjónvarpsfólkið aðgerðalaust á vinnustað. Fulltrúar rfkisvalds- ins, hins aðilans að þessu deilu- máli, vildu ekkert tjá sig um mál- ið f gær. Starfsfólki sjónvarpsins barst í gær bréf frá útvarpsstjóra þar sem hann ftrekaði það að hann óskaði svars við þeirri spurningu, hvort starfsfólkið vildi taka upp störf sín með eðlilegum hætti nú þegar. Utvarpsstjóri sagði I þessu bréfi, að hann spyrði einungis sem forstöðumaður stofnunarinn- ar, sem hann að lögum bæri ábyrgð á að væri i eðlilegum rekstri. Oddur Gústafsson og Eiður Guðnason svöruðu bréfinu, en hinn fyrrnefndi er formaður Starfsmannafélags sjónvarpsins, en hinn formaður launamála- nefndar eins og áður er getið. I bréfinu til útvarpsstjóra segjast þeir hafa lesið upp bréfið á al- mennum fundi starfsfólksins oft- ar en einu sinni og yrði síðan tíminn aó skera úr um það hver yrðu viðbrögð starfsmannanna við tilmælunum. Það liggur ljóst fyrir að verkfall sjónvarpsstarfsmannanna er lög- brot, þar sem opinberir starfs- menn hafa ekki heimild til þess að hefja vinnustöðvun. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, sem starfsmenn sjónvarpsins eru aðil- ar að, hefur þegar fengið verk- fallsrétt, en þau lög taka ekki gildi hvað varðar verkfallsréttinn fyrr en 1. júlf 1977. Segir í 46. gr. laganna: „Lög þessi öðlast gildi 1. júli 1977 sbr. þó ákvæði til bráða- birgða" og eru það eingöngu ákvæði samninganna, sem nýlega voru gerðir, en síðan segir: „Jafn- framt falla úr gildi gagnvart fé- lagsmönnum BSRB og félaga inn- an vébanda þess ákvæði laga númer 33 frá 1915,“ en það eru þau lög sem banna opinberum starfsmönnum að hefja verkfall. Eru þau því strangt tiítekið enn í gildi. 1 sambandi við nýju lögin segir i 45. gr., að brot á lögum þessum varði stöðumissi, sektum eða varðhaldi, en í gömlu lögunum segir: „Hver sá er sjálfur tekur þátt í verkfalli, enda skyldi starf- ið unnið samkvæmt embættis- skyldu eða sem sýslan f þarfir landsins, Landsbankans, spítala, sveitar, sýslu eða kaupstaðar, skal sæta sektum frá 500—5000 krón- um eða fangelsi eða embættis- eða sýslunarmissi,- ef miklar sakir eru, enda liggi eigi þyngri refsing við samkvæmt öðrum lögum.“ Samkvæmt nýju lögunum, sem þó hafa enn ekki tekið gildi, er BSRB gefinn verkfallsréttur, sem þó er takmarkaður miðað við verkfallsrétt almennra verkalýðs- félaga. Verkfallsrétturinn er tak- markaður á þann hátt að hann nær aðeins til aðalkjarasamnings, sem BSRB gerir, en ekki til sér- samninga svo sem röðunar í launaflokka. Þessi óánægja sem Framhald á bls. 39 Flugleiðir höfnuðu Lockheed-tilboðinu: Kaupin of risavaxið fyrirtæki miðað við skamman fyrirvara STJORN Flugleiða ákvað á fundi sfnum si. laugardag að hafna til- boði þvf frá Lockheed- flugvélaverksmiðjunum, sem félagið hefur haft til athugunar undanfarnar vikur, varðandi kaup á tveimur breiðþotum af Tri-star gerð ásamt ýmsum vara- hlutum. 1 samtali við Morgunblaðið i gær sagði Sigurður Helgason, for- stjóri hjá Flugleiðum, að ástæðan fyrir þvi að félagið sá sér ekki fært að taka þessu tilboði hefði fyrst og fremst verið sú að félagið hefði verið orðið svo knappt með tíma miðað við að taka þessar vélar í notkun fyrir sumaráætlun næsta árs og þegar öllu hefði verið á botninn hvolft hefði stjórnin ekki talið skynsamlegt að ráðast í þessi kaup. „Okkur fannst, að miðað við risavaxið fyrirtæki eins og það að koma þessum vélum f gagnið með svona litlum undirbúningi, þá væri áhættan meirí en hugsanlegur ávinningur," sagði Sigurður. Sigurður sagð, að Flugleiðir myndu þess vegna nota áfram Dc- 8 vélar á Atlantshafsleiðum sínum. Ekki væri búið að ganga endanlega frá sumaráætlun næsta árs og þar af leiðandi ekki fullráðið hvort félagið þyrfti eitt- hvað að auka við þann flugvéla- kost sem fyrir væri, en miklar annir hafa verið á flugleiðum félagsins nú í sumar og sagði Sig- urður að sá flugvélakostur sem nú væri fyrir hendi væri full- nýttur. Sigurður var þá spurður að því hvort félagið gæti ekki lent í erfiðleikum með þann flugvéla- kost sem nú væri fyrir hendi ef enn yrði aukning á flugleiðum félagsins á næsta sumri. Sigurður kvað það hugsanlegt, en sagði að það væri þá spurning um það að hve miklu leyti félagið vildi eltast við toppana f farþegaflutningun- um, sem væru bundnir við háannatímann og stundum gæti verið álitamál hvort ekki væri far- sælla að fá jafnari og betri nýtingu yfir lengra tímabil. Hvert er tap sjón- varpsins? PÉTUR Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri sjónvarpsins, sagði f gær að óljóst væri hve mikið tap það væri fyrir sjón- varpið að útsendingar féllu niður. Ekki væri ljóst hvort auglýsingatekjur töpuðust eða hvort þær myndu aðeins bfða og þær auglýsingar, sem átt hefðu að vera f sjónvarpinu, skiluðu sér sfðar. Þá er heldur ekki ljóst, hvort farið verður út í það að draga frá þá daga, sem sjónvarpslaus er, I afnotagjöldum. Afnota- gjald fyrir sjónvarp er nú 12 þúsund krónur á ári, en 8 þús- und fyrir útvarp. Miðað er við að sjónvarpið kosti hið sama og dagblaö, en áskrift að dagblaði kostar 12 þúsund krónur á ári. Þess ber þó að geta, að afnota- gjöldin hækkuðu á miðju ári og sé miðað við þetta alman- aksár er sfðari hlutinn dýrarir þvf að jafnaðarverð alls ársins er 12 þúsund krónur. Má þvf segja að hver dagur kosti not- anda rúmlega 50 krónur. Afnotagjöld sjónvarpsins eru veigamesti þátturinn í tekjum þess. Að sögn Péturs Guðfinnssonar eru þar um 70 til 75% af öllum tekjum sjón- varpsins, auglýsingatekjur eru um 10 til 15% og afgangurinn skiptist á tolltekjur af inn- flutningi sjónvarpstækja og ýmsar tekjur af þjónustu, sem sjónvarpið veitir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.