Morgunblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976
19
VESTUR-Þýzka 1. deildar keppnin í
handknattleik hófst um helgina og
vann þá Dankersen. liðið sem þeir
Ólafur H. Jónsson og Axel Axelsson
leika með. sigur i sínum leik, en
Göppingen. liðið sem Gunnar Einars-
son leikur með, tapaði sinum leik.
Það sem mest kom á óvænt i þessari
fyrstu umferð var tap meistaraliðs-
ins, Gummersbach, fyrir Rheinhaus
en i norðurdeildinni. Gummersbach
hefur, sem kunnugt er, verið stór-
veldi i þýzka handknattleiknum, en
fer greinilega verr af stað nú en
oftast áður.
Dankersen keppti við lið Nett-
lestedt sem kom upp úr 2. deild i
fyrra og lauk leiknum með sigri
Dankersen 19—15, eftir að staðan
hafði verið 12—6 i hálfleik. Þeir
Ólafur Jónsson og Axel Axelsson
léku báðir með Dankersen i þessum
leik, en ekki tókst Mbl. i gær að afla
upplýsinga um hversu mörg mörk
þeir félagar gerðu.
Lið Gunnars Einarssonar, Göpp-
ingen, lék við Húttenberg og tapaði
12— 13 eftir jafnan leik.
Ingunn Einarsdóttir (100 metra grindahlaupinu þar sem hún setti glæsilegt tslandsmet, hljóp á 13,9 sek.
Ingunn setti tvö íslandsmet
- hljóp 100 metra grindarhlaup á 13,9
sek. og hlaut 3881 stig í fimmtarþraut
INGUNN Einarsdóttir, tR, keppir
varla þessa dagana án þess að
setja tslandsmet. Er Ingunn
greinilega f mjög góðu formi um
þessar mundir og nálgast óðfluga
að komast á alþjóðlegan mæli-
kvarða með afrekum sfnum.
Þannig setti hún tvö lslandsmet á
bikarkeppni FRl f fjölþrautum
sem fram fór á Laugardalsvellin-
um um helgina og var aðeins
sekúndubroti frá meti f þriðju
greininni.
Það var strax f fyrstu grein
fimmtarþrautarinnar 100 metra
grindahlaupinu sem fyrra met
Ingunnar leit dagsins ljós. Hún
hljóp það á 13,9 sek. og bætti
fyrra met sitt í greininni um 2
sekúndubrot. Ingunn varpaði sfð-
an kúlu 9,02 metra, stökk 1,63
metra f hástökki, 5,28 metra í
langstökki og hljóp loks 200
metra hlaupið á 24,7 sek., en ís-
landsmet hennar í þeirri grein er
24.6 sek. Samtals fékk Ingunn
Vilmundur hugar að vinmælinum eftir 10,3 sek. hlaup sitt.
Hías sigraði í tugþrautinni
en ÍR-ingar hrepptu bikarinn
MIKIL vanhöld og afföll urðu á
keppendum f bikarkeppni Frjáls-
fþróttasambandsins f tugþraut
sem fram fór á Laugardalsvellin-
um um helgina. Útlit var á met-
þátttöku f þrautinni fyrirfram,
þar sem 23 voru skráðir til leiks.
Þegar á hólminn var komið
reyndist aðeins tæplega helming-
ur keppenda mættur til leiks, eða
11 talsins, og af þeím heltust
fimm úr lestinni f keppninni.
Tugþrautarkeppnin var þvf ekki
eins rismikil og búist hafði verið
við fyrirfram, enda bauð veðrið
reyndar ekki upp á mikil tilþrif,
en það var óhagstætt, sérstaklega
fyrri daginn — hvassviðri og
rigning.
íslandsmethafinn f tugþraut,
Stefán Hallgrímsson, KR, sem
ekkert hefur getað keppt í sumar
vegna meiðsla var meðal þeirra
keppenda sem hófu þrautina.
Hann hætti þó strax eftir fyrstu
greinina, 100 metra hlaupið, en
það hljóp hann á 11,5 sek. — var
langt frá sínu bezta.
Mikill meðvindur var f 100
metra hlaupinu í þrautinni, en
eigi að síður var afrek eins kepp-
andans, Vilmundar Vilhjálms-
sonar, KR, í hlaupinu hið glæsi-
legasta. Hann hljóp á 10,3 sek.
Tími var tekinn á þrjár klukkur
og sýndu þær 10,23 sek., 10,26
riðli með Austur-
Þjóðverjum í B-flokki
heimsmeistarakeppninnar
EFTIR atvikum verður ekki
annað sagt en að Islendingar
hafi verið sæmilega heppnir
þegar dregið var um það f gær-
morgun hvaða lið leika saman f
B-heimsmeistarakeppninni f
handknattleik sem fara mun
fram f Austurrfki f vetur.
Munu tslendingar leika f riðli
með Austur-Þjóðverjum og þvf
liði sem sigrar f C-keppninni
sem fram mun fara I Englandi.
Er ekki ótrúlegt að það verði
Svisslendingar sem sigra f
þeirri keppni.
Þátttökuliðunum f B-
keppninni var skipt f fjóra
riðla, en áður hafði þeim verið
skipt eftir styrkleika. t A-riðli
leika Tékkar, Búlgarir og lið
sem verður númer 3 f C-
keppninni. I B-riðli leika Svfar,
Frakkar og Austurrfkismenn, f
C-riðli leika, sem áður segir,
Austur-Þýzkaland, tsland og
sigurvegarinn úr C-riðli og f
D-riðli leika Spánn, Noregur og
lið það er verður f öðru sæti f
C-keppninni.
Varla fer milli mála að Aust-
ur-Þjóðverjar eiga sterkasta
liðið f B-keppninni. Þótt tslend-
ingar tapi fyrir þeim, eru þeir
ekki úr leik, þurfa einungis að
vinna Iiðið úr C-keppninni til
þess að komast f úrslitakeppn-
ina, en f henni verður það fyrir-
komulag viðhaft, :ð tvö efstu
liðin úr A og B-riðli leika sam-
an og tvö efstu liðin úr C- og
D-riðli leika saman. 1 undanúr-
slitunum verða það þvf að lfk-
indum annaðhvort lið Noregs
eða Spánar sem tslendingar
þurfa að leika við.
sek. og 10.30 sek. Vilmundur
stökk síðan 6,91 metra i lang-
stökki — þar var einnig meðvind-
ur, og varpaði kúlunni tæpa 13
metra. Var hann þar með kominn
með góða forystu I þrautinni, en
hætti við svo búið.
Bikarmeistari í tugþraut að
þessu sinni varð Elias Sveinsson,
KR og hlaut hann 7374 stig sem er
ágætur árangur miðað við aðstæð-
urnar. Meðvindur hjálpaði
reyndar í 100 metra hlaupi og
langstökki fyrri daginn, en aftur
á móti kom kuldinn í veg fyrir '
betri afrek í öðrum greinum.
Afrek Eliasar i einstökum
greinum voru þessi: 100 metra
hlaup: 10,9 sek., langstökk 6.50
metr.,kúluvarp 14,07 metrar, há-
stökk 1,99 metrar, 400 metra
hlaup 52,7 sek., 110 metra grinda-
hlaup 15,2 sek., kringlukast 43,16
metrar, stangarstökk 4,22 metrar.
spjótkast 55,92 metrar og 1500
metra hlaup 4:59,7 mín.
Annar i þrautinni varð Friðrik
Þór Öskarsson, IR, með 5993 stig.
Afrek hans i einstökum greinum
voru: 11,2 — 7,12 — 11,11 — 1,75
— 53,4 — 16,9 — 25,86 — 3,30 —
35,56 — 4:48,0.
Þriðji varð Ásgeir Þór Eiriks-
son, ÍR með 5542 stig (12,3 — 5,80
— 12,52 — 1,65 — 60,6 — 17,2 —
34,44 — 3,10 — 51,90 — 4:54,0).
Vésteinn Hafsteinsson, HSK,
varð í fjórða sæti með 5073 stig,
Þorsteinn Þórsson, UMSS, varð
fimmti með 5072 stig og sjötti
varð Torfi Rúnar Kristjánsson,
HSH, með 4400 stig.
IR hlaut bikar þann sem keppt
var um i þrautinni, en þeir Frið-
rik og Ásgeir Þór hlutu samtals
11.535 stig. Fleiri sveitir luku
ekki keppni.
TB meistari
FÆREYSKU 1. deildar keppninni I
knattspyrnu lauk nú um helgina og
varð TB sigurvegari i keppninni —
vann liS Fuglafjarðar í siðasta leikn
um meS fimm mörkum gegn engu.
Þjálfari TB er íslendingurinn Kjartan
Sigtryggsson, — fyrrverandi leik-
maSur með Keflavikurliðinu, og mun
Kjartan hafa leikiS eitthvað með TB
liðinu I sumar.
3881 stig i fimmtarþrautinni og
bætti hún þar með eldra tslands-
metið sem Lára Sveinsdóttir átti
um hvorki meira né minna en 110
stig. Er ekkert vafamál að Ingunn
getur, án mikillar fyrirhafnar,
bætt enn verulega árangur sinn i
fimmtarþrautinni, t.d. með því
einu að varpa kúlunni nokkru
lengra, en það er áberandi slak-
asta grein þrautarinnar hjá
henni.
Lára Sveinsdóttir, Á, — gamli
methafinn í þrautinni — varð í
Öðru sæti I keppninni um helgina,
hlaut 3681 stig, sem einnig er
ágætur árangur. Lára hljóp 100
metra grindahlaup á 14,6 sek.,
varpaði kúlu 9,86 metra, stökk
1,63 metra í hástökki, 5,25 metra í
langstökki og hljóp 200 metra á
26,7 sek.
I þriðja sæti varð Þórdís Gísla-
dóttir, ÍR, sem hlaut 3360 stig og
er það nýtt meyjamet. Eldra
metið átti Ása Halldórsdóttir,
Ármanni. Þórdís hljóp grinda-
hlaupið á 15,7 sek., varpaði kúlu
7,62 metra, stökk 1,66 metra i
hástökki. 4,89 metra í langstökki
og hljóp 200 metra hlaup á 26,5
sek.
Fjórða i þrautinni varð María
Guðnadóttir, HSH, með 2900 stig.
Afrek hennar í einstökum grein-
um voru: 18,0 — 8,98 — 1,63 —
4,70 og 30,8. Fimmta varð Kristj-
ana Hrafnkelsdóttir, HSH, með
2774 stig (18,0 — 8,18 — 1,55 —
4,39 — 29,2) og í sjötta sæti varð
Sigurlaug Friðþjófsdóttir, HSH.
IR sigraði með yfirburðum i
keppninni um fjölþrautabikar-
inn. Hlaut 7741 stig, en HSH varð
I öðru sæti með 5674 stig. 11 stúlk-
ur voru skráðar til leiks í þraut-
ina, 6 mættu og luku þær allar
keppni.
Erlendur í formi
Erlendur Valdimarsson, KR,
er greinilega að komast f sitt
bezta form ( kringlukastinu.
Keppt var f kringlukasti sem
aukagrein f fjölþrautarmóti
FRÍ sem fram fór á Laugar-
dalsvellinum um helgina og
kastaði þá Erlendur vel vfir 60
metra f æfingaköstum sfnum.
Hins vegar náðí hann ekki
nama 58,12 metra gildu kasti f
keppninni. Þeir Hreinn Hall-
dórsson, KR og Guðni Hall-
dórsson, KR, náðu einnig
ágætum afrekum f keppninni.
Hreinn kastaði 55,22 metra og
Guðni 52,18 metra.
Þá var keppt f 3000 metra
hindrunarhlaupi. Sigurvegari
varð Ágúst Þorsteinsson,
UMSB, á 10:07,0 mfn„ Haf-
steinn Oskarsson, IR varð ann-
ar á 10:46,4 mín., Einar P. Guð-
mundsson, FH, þriðji á 10:57,8
mfn„ Gunnar Þ. Sigurðsson,
FH, fjórði á 11:05,0 mfn. og
Jörundur Jónsson, tR, varð
fimmti á 12:13,2 mfn.
I íprúHlr |
DANKERSEN VANN EN
GÖPPINGEN TAPAÐI