Morgunblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 1 FYRRI grein var skýrt frá þvf, að Bandarfkin væru aðalmarkaðslandið fyrir frystar sjávarafurðir frá Is- landi. Að jafnaði fara þangað árlega um 75% af útflutn- ingi þessara afurða miðað við verðmæti. Um er að ræða tugi milljarða króna f útflutningsverðmæti og viðskipta- veltu fslenzku fyrirtækjanna fyrir vestan. Verðmesti hluti fslenzkra sjávarafurða er seldur f Bandarfkjunum. VAXANDI MARKAÐUR Hraðfrystar sjávarafurðir frá Islandi njóta mikils álits í Banda- rikjunum sem gæðavörur og fer framleiðsla fyrir þennan markað stöðugt vaxandi. 1 gegnum eigin fyrirtæki annast Islendingar sjálfir sölu- og markaðsmál. Upp- bygging íslenzks hraðfrystiiðnað- ar, sem hefur byggt afkomu sfna að meira eða minna leyti á banda- ríska markaðnum á síðustu ára- tugum, ber þess órækan vott að vel hefur verið að málunum stað- ið. Þá má minna á að fyrir nokkr- um árum fólu Færeyingar Cold- water Seafodd Corp. (S.H.) sölu frystra sjávarafurða fyrir sig f Ameríku. Hafa þeir aldrei farið dult með það að ástæða þessarar ráðstöfunar hefði verið sú, að með því teldu Færeyingar sölumálum sfnum á þeim markaði bezt borg- ið. Með hverju ári sem lfður hefur samstarf þetta styrkzt og eflzt báðum aðilum í hag. ISLENZK FRAMKVÆMD Hin mikia og glæsilega markaðsuppbygging íslendinga í Ameríku f sölu hraðfrystra sjávarafurða er alíslenzk fram- kvæmd. Hún er grundvölluð á stefnu frjálsra utanríkisviðskipta og framkvæmd af forustumönn- um íslenzks atvinnulífs. Þar hafa einkaframtaksmenn í sjávarút- vegi og fiskiðnaði verið fremstir í fylkingu ásamt einstakfega hæf- um og duglegum samstarfsmönn- um heima fyrir og erlendis. I verkum þessara aðila sannast á ótvfræðan hátt, að hin frjálsa og sjálfstæða utanríkisstefna Islands frá stofnun lýðveldisins hefur skilað þjóðinni miklum og glæsi- legum árangri. Utanrfkisstefna raunverulegrar þjóðlegrar reisn- ar byggð á iðju þúsunda í atvinnu- (iuðmundur II. Garðarsson. alþm.: lífi landsmanna. Þessa stefnu verða Islendingar að verja fyrir árásum hinna svonefndu þjóðlegu sósíalista, þvf f henni felst Ifftaug þjóðarinnar, frelsi og sjálfstæða borgaralegs samfélags. Hin umfangsmikla og sjálf- stæða framkvæmd lslendinga f sölu- og markaðsmálum i Banda- rfkjunum gegnir hér veigamiklu hlutverki. Vegna arðsemi hennar og hagkvæmni fyrir íslenzkan hraðfrystiiðnað, hefur af hálfu Is- lendinga sjálfra verið lögð áherzla á að nýta þá möguleika i fisksölumálum, sem þar hafa ver- ið fyrir hendi, til hins ýtrasta. Þróun þessara mála á umliðn- um árum sýnir augljóslega að svo hefur verið gert. Með tilliti til þess að greinargóðar tölfræðileg- ar upplýsingar, sem gefa góða möguleika til samanburðar við aðrar þjóðir, eru fyrir hendi frá árinu 1961, verður lögð áherzla á að skýra þróunina tímabilið 1961—1975. HEILDARINNFLUTNINGUR Tímabilið 1961—1975 jókst heildarinnflutningur Bandarfkj- Island og banda- ríski fiskmarkaðurinn Traustur og öruggur markaður fyrir hraðfrystar sjávarafurðir anna á frystum fiskflökum og fiskblokkum um 157,9% eða 142.688 smálestir. Til þess að gefa einhverja hugmynd um hvað í þessu felst má geta þess, að þessi aukning er álíka mikil og tæplega tveggja ára framleiðsla þorskfisk- afurða allra hraðfrystihúsa á Is- landi. Árið 1961 var innflutning- urinn 202,0 milljón pund (91.506 smálestir), en árið 1975 521,4 milljón pund (236.194 smálestir). Um er að ræða fiskflök og fisk- blokkir úr þorski, ýsu, ufsa, keilu, löngu, lýsu, steinbít og karfa. Hlutfall fiskblokka f heildar- innflutningnum hefur ætið verið mun hærra en fiskflaka. Hefur það verið breytilegt eftir árum og sveiflast til á bilinu 58—71%. Ár- ið 1961 var innflutningur fisk- blokka 118,6 milljón pund (53.726 smálestir), en 1975 313,5 milljón pund (142.016 smálestir). Aukn- ingin var því 88.290 smálestir eða 163,9%. Árið 1961 voru flutt inn 83,2 milljón pund (37.690 smálest- ir) af fiskflökum. Arið 1975 var þessi innflutningur kominn f 207,9 milljón pund (94.179 smá- lestir). Aukning var því 56.489 smálestir eða 150,6%. Hver hefur hlutdeild Islands verið í þessum innflutningi sam- anborið við önnur lönd, sem selja frystan fisk til Bandarikjanna? HELZTU VIÐSKIPTALÖND Helztu lönd sem selt hafa þang- að eru Kanada, Island, Noregur og Danmörk. Auk þess hafa önn- ur lönd eins og Vestur-Þýskaland, Japan, Suður-Afríka o.fl. lönd komið þar við sögu, en með mun minna magn en hín fjögur fyrst- nefndu, sem hafa árlega verið með samtals yfir 80% magnsins. I súlnariti er sýndur hundraðs- hluti (%) Kanada, Islands, Nor- egs og Danmerkur f innflutníngn- um. Tfmabilinu 1961—1975 hefur til einföldunar verið skipt í þrjú 5 ára tímabil og sfðan reiknað út árlegt meðaltal viðkomandi landa í innflutningnum. Unnt væri að skrifa langt mál um þróun þessara mála umrætt tfmabil með tilliti til hlutdeildar einstakra landa. En að svo stöddu verður að nægja að drepa á hið helzta. HLUTDEILD EINSTAKRA LANDA Tímabilið 1961—1975 eða s.l. 15 ár hefur innflutningur frysts Millj.lbs. Heildarinnflutningur Bandaríkjanna á frystum fiskflökum og fiskblokkum 1961 — 1 975 og hlutdeild íslands I innflutningn- um Gaetum tungu vorrar Svar til sr. Sigurðar Hauks Guðjónssonar SR. SIGURÐUR Haukur Guðjóns- son sendir mér kveðju í Morgun- blaðinu hinn 11. sept. s.l. Telur hann, að ég hafi verið handbendi háðfugla, er ég reit grein mína, sem birtist í Mbl. föstudaginn 3. sept., og hvetur mig til að hamra tungu mína á steðja sannleikans! Hvort það er spaugsemi hans sjálfs eða annarra, sem skín f gegnum skrif hans, skal ósagt lát- ið. Svo gaman hafði sr. Sigurður Haukur af setningunni úr grein minni: „Það hefur aldrei verið kenning kirkjunnar, að börn, sem dæju óskírð, væru glötuð," að hann las fátt f greininni annað. Ég eyddi samt nokkrum orðum í að útskýra, af hverju slíkt gæti ekki verið kenning kirkjunnar. Þær línur virðist sr. Sigurður hafa hlaupið yfir eða hann hefði ekki skrifað á þann hátt sem hann gerði. Treysti ég því, að Mbl. eigi sér sanngjarnari lesendur, sem skilji, að hér er ekki um grín að ræða, heldur alvöru. En hvað um allt það, sem sr. Sigurður taldi upp? Sr. Sigurði yfirsést um það, að skírnin frá upphafi er inntaka meðlima i söfnuð Jesú Krists, kirkjuna. Um leið lítur hann yfir það, sem ég lagði áherzlu á, að skírnin bendir burt frá sjálfri sér til þess atburðar, sem er sjálft skilyrði hjálpræðisins, þ.e. lff, dauði og upprisa Jesú Krists. Ég geri ráð fyrir því, að sr. Sigurður Haukur skíri börn sam- kvæmt ritúali Helgisiðabókar fs- lenzku þjóðkirkjunnar frá árinu 1934. Þar standa m.a. þessi orð á bls. 112—113: „Lofaður sé Guð og faðir drott- ins vors Jesú Krists, sem eftir mikilli miskunn sinni vill endur- fæða þetta barn til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum. Vér tökum það nú inn í söfnuð Krists. Ég helga þig Kristi með tákni hins heilaga kross bæði á enni og brjóst til merkis um að hugur þinn og hjarta á að helgast fyrir trúna á hann. Heilagi faðir. Tak þetta barn í samfélag sonar þíns. Endurfæð það með anda þínum og lát hann aldrei frá þvf víkja. Styrk það með krafti þinum og kærleika." Það má finna Helgisiðabókinni frá 1934 margt til foráttu, en varla verður henni brugðið um afturhald. I þeim orðum, sem ég tilgreini, er það að finna, sem gerir högg sr. Sigurðar að vind- höggi einu. Þvf að þau leiða í ljós inntak hinnar kristnu skfrnar, að hún bendir á og ber endurskin af Iffi, dauða og upprisu Jesú Krists samtímis sem menn eru fyrir skírnina teknir inn í söfnuð Krists. í fyrsta lagi er kunngjörð- ur vilji Guðs til að endurfæða barnið til lifandi vonar fyrir upp- risu Jesú Krists frá dauðum. I öðru lagi er skírskotað til þess, að skfrnin er inntaka I söfnuð Krists. I þriðja lagi er áminnt um það, sem skfrninni fylgir, þ.e. trú á Jesúm Krist. I fjórða lagi er bæn um, að Guð taki barnið I samfélag sonar sfns og endurfæði það. M.ö.o. endurfæðing leiðir ekki af fæðingu manns, heldur af upprisu Jesú Krists samkvæmt vilja Guðs. Og sá er einn af söfn- uði Jesú Krists á jörðu, þ.e. krist- inn, sem skfrður er. Meira fullyrð- ir önnur grein Ágsborgarjátning- ar heldur ekki, sé hún lesin í eðlilegu samhengi. Meðan kirkjan bar enn svipmót þess ástands, sem rfkti, þegar hún fyrst kom með kenningu sína f löndin, túlkaði hún skarpar f breytni sinni skilin milli hinna kristnu og ókristnu en á timum, þegar samrumi var orðinn milli trúar og menningar. Það kom þá líka fram i greftrunarsiðum kirkj- unnar. Kristnir greftrunarsiðir túlkuðu til forna — og túlka von- andi enn — að hin eina von í lífi og dauða er Jesús Kristur, ekki ástand manns á dauðastundu, ekki heldur auðæfi hans, máttur eða dyggðir eins og túlkað er í heiðnum — þ.e. ókristnum — greftrunarsiðum. Kirkjugarðs- veggurinn markaði sem sagt ekki skil hólpinna og glataðra, heldur markaði hann þann reit, sem var ætlaður kristnum mönnum, þ.e. meðlimum safnaðar Krists eða hinum skfrðu, til hinztu hvíldar. Það held ég, að afa mfnum og nafna hafi verið ljóst f kirkju- garðinum f Skálholti forðum. Hvað um þá verður, sem ekki náðu i lffi sfnu inn í söfnuð Krists, sem ekki náðu þvi að lifa og deyja sem kristnir menn, er kristnum mönnum áhyggjuefni, en ekki aðhláturs Þess vegna hafa þeir rekið ks stniboð meðal hverrar kynslóðar og meðal þjóða, sem enn hafa ekki heyrt gleðitíð- indin um elsku Guðs, sem birzt hefur i Jesú Kristi. Sjálfir vinna kristnir menn að sáluhjálp sinni með ugg og ótta (Fil.-2.12). Dæmi- sagan um illgresið meðal hveitis- ins (Matt. 13.24—30, 36—43) hef- ur m.a. verið kristnum mönnum áminning um, að hjálpræðið er dýpri leyndardómur og meiri al- vara en að það verði haft I flimt- ingum eða menn ræði um það í hroka farisea. Ágústfnus kirkju- faðir hugsaði um það mál meir en flestir aðrir hugsuðir kristnir fyrr og síðar, m.a., f riti sinu De civitate dei. I því riti setti hann engan veginn jafnaðarmerki milli Guðs ríkis og kirkjunnar sem stofnunar. Þar hefur sr. Sigurður Haukur — eða heimildarmaður hans — lesið Ágústínus skakkt. Sr. Sigurður Haukur nefndi til Matthias Flacius (1520—1575) sem forsvarsmann kenningarinn- ar um glötun ungbarna, sem dæju óskfrð. Vel hefði hann mátt taka það fram, að kenning Flaciusar um syndina var um hans daga og allar götur síðan metin sem hin argasta villa af lútherskum guð- fræðingum. Ætti sú stáðreynd ein að nægja til að renna stoðum und- ir þá fullyrðingu mína, að kenn- ing kirkjunnar er metin út frá vitnisburðinum um virka elsku Guðs, en ekki út frá hugsanlegu ástandi mannsins lifs eða liðins. Og elska Guðs er engin hugsjón, ekkert tómt hugtak. Hún hefur birzt sem sögulegur atburður i ltfi, dauða og upprisu Jesú Krists. Að lokum þakka ég sr. Sigurði Hauki góðar óskir, þó að tónninn i grein hans almennt geti gefið mér tilefni til að efast um einlægní þeirra óska. Reynivöllum, 13. sepfember 1976. VCRKimiÐJU Einar Sigurbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.